Skessuhorn - 07.01.2004, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 7. JANUAR 2004
jntjaurn/,..
Jón V1"™™
Ahlaupið á sparisjóðina
Sparisjóðirnir eru ein helsta
stoðin við byggð víða um land,
m.a. vegna þess að íbúarnir hafa
sjálfir forræði yfir þeim. Spari-
sjóðurinn er ein helsta trygging
fyrir þjónustu á staðnum og lán-
um til einstaklinga og smærri
íyrirtækja. Þeir hafa veitt al-
menna fjármálaþjónustu og
unnið á grundvelli hugsjóna um
eflingu og uppbyggingu at-
vinnulífs og menningarstarfs á
sínu heimasvæði. Fyrir um 2
árum var gert áhlaup á spari-
sjóðina. Stórgróðamenn reyndu
að brjótast inn og sölsa þá und-
ir sig. Því- áhlaupi tókst að
hrinda. En græðgin beið rétt
handan homsins. Ljóst var að á-
ffarn yrði sóst í að hlutfélaga-
væða sparisjóðina og sölsa þá
undir braskið.
Græðgin ræður ferð
Við þingmenn Vinstri
grænna vildum tryggja með
lögum framtíð sparisjóðanna,
sérstöðu þeirra og samkeppnis-
hæfhi og standa jafhframt vörð
um eðli þeirra og hugsjónir.
Hefði betur verið farið að til-
lögum okkar. Við vöruðum við
því að þær lagabreytingar sem
Alþingi samþykkti 2002 myndu
ekki ná að veita sparisjóðunum
þá vörn sem að var stefnt. Nú
fyrir jólin var tilkynnt að Kaup-
þing Búnaðarbanki hefði keypt
SPRON og greiddi stofhfjár-
festum hluti sína á yfirverðum.
Þingmenn annarra flokka lýsa
furðu sinni og vanþóknun, en
þeir töldu að nýsett lög ættu að
girða fyrir slíkt.
Ljóst er að gangi þessi kaup
eftir mun græðgi fjármagnsins
rífa í sig sparsjóðina sem nú
standa berskjaldaðir. Hægt er að
taka undir ritstjórnargrein
Morgunblaðsins 23. des. sl. um
nýtt gjafakvótakerfi í sparisjóð-
unum: „Fákeppni eykst stórlega
í íslenska fjármálakerfmu, þar
sem augljóst er að bankarnir
þrír munu skipta sparisjóðun-
um í landinu á milli sín og
skiptir þá engu þótt þeir haldi
áfram að reka þá úm tíma sem
sjálfstæðar einingar undir
þeirra hatti. - Er þetta vilji
fólksins?“ spyr Morgunblaðið.
Þingmenn Vinstri - grænna
segja nei, þetta er ekki vilji
fólksins.
Ráðherra
Framsóknar fagnar
Framsóknarþingmaðurinn og
bankamálaráðherra ríkisstjórn-
arinnar, Valgerður Sverrisdóttir,
virðist fagna yfirtöku Kaupþings
Búnaðarbanka á SPRON og of-
urgreiðslunum til stofnfjáreig-
enda enda sé nú engum íjand-
skap beitt, allt gert í miklu bróð-
erni. „Löggjafinn sem slíkur geti
ekki komið í veg fyrir þróun og
hagræðingu á fjármálamarkaði"
(RÚV 22.12.) Viðskiptaráðherra
Framsóknar hefur dregið einka-
væðingarvagninn, stýrt afar um-
deildri sölu á ríkisbönkunum og
leitt feril til svo gríðarlegs sam-
runa og fákeppni í viðskiptum
og á peningamarkaði að hags-
munum fólks og öllu ffjálsu at-
hafnalífi um land allt stendur
bein ógn af. Ekki bætir úr skák,
að Samkeppnisstofnun og Fjár-
málaeftirlitið, sem eiga að fara
yfir, gera athugasemdir og stað-
festa lögmæti þessara umskipta
allra heyra undir þann sama ráð-
herra. Eru þessar eftirlitsstofn-
anir settar í býsna erfiða stöðu
að rneta mál hlutlaust, gera
kröfur, setja hömlur eða sinna
hlutverki sínu, þegar ráðherrann
sjálfur hefur fyrirfram lýst fjálg-
lega fögnuði sínum með alla at-
burðarás. Eftirá er þessum
stofhunum kennt um ef illa fer.
Verjum sparisjóðina -
stöðvum sölu
SPRON
Lögin sem Alþingi setti
haustið 2002 ná engan veginn
þeim yfirlýstu markmiðum að
tryggja framtíð og stöðu spari-
sjóðanna. Þingflokkur VG hefur
krafist fundar í efhahags- og við-
skiptanefhd Alþingis svo hægt sé
að fara yfir lagalegar forsendur á
sölu SPRON og þær afleiðingar
sem hún hefði í för með sér fyr-
ir sparisjóðina í landinu, nái hún
fram að ganga. Hlutverk spari-
sjóðanna hefur verið mjög þýð-
ingarmikið í íslensku atvinnulífi
og skipt sköpum fyrir mörg
byggðarlög einkum á lands-
byggðinni.
Grunnhugsjón sparisjóðanna
er að starfa með hag sparifjár-
eigenda og almennings fyrir
augum en ekki að hámarka arð
stofnfjáreigenda. Markmiðið
með rekstri þeirra er því að
stuðla að almannahag á sínu
starfssvæði. Hafi SPRON borið
af leið í þeim efnurn á að rétta
þann kúrs af og með lögum ef
með þarf. Hlutafélagavæddur
banki hefur engar samfélags-
skyldur eða staðbundnar þjón-
ustukvaðir. Markmið með
rekstri slíks banka er það eitt að
hámarka arð hluthafanna og
hefur það sjónarmið komið
rækilega fram að undanförnu.
Heimild til hlutafélagavæðingar
á því alls ekki heima í lögum um
sparisjóði.
Ef marka má viðbrögð stjóm-
arþingmanna ætti að vera meiri-
hluti til þess á Alþingi að breyta
lögum þannig að eignar- og
rekstrarform sparisjóðanna
verði varið og sala stofnfjárhluta
á yfirverði gerð óheimil.
Þörfin fyrir sjálfstæða spari-
sjóði út um allt land hefur sjald-
an verið meiri en nú.
Með óskum umfarsælt
ár 2004,
Jón Bjamason, þingmaður
Vinstrihreyfmgarinnar
- græns framboðs
Þj óu usviuiuglýsi i iga i l'jónustuauglýsi i igar
FYRIRTÆKI - HEIMILI
SUMARHÚS
IÞarft pú að gefa út bækling,
dreifibréf, ársskýrslu eða heila bók?
Sinnum útgáfuþjónustu fyrir
fyrirtæki og félagasamtök
Þetta fyrirtæki er vaktað !
NÆTURSÍMI 690 3900,6903901,6903902
Gerum föst verðtilboð í hönnun,
umbrot, prentun, textagerð og
umsjón slíkra verkefna
((j)/it/tiJ otjtjóJfijó/tit'S'fa 1 6ár
Skessuhorn ehf
Sími 437-1677
Hársnyrtistofa
Hyrnutorgi
Borgarnesi
sími 4371125
& Einangrunargler
Öryggisgler
* Speglar
Tvöföld líming - 5 ára ábyrgð
Gæðavottað frá RB
Fljót og góð þjónusta
Sendum á staðinn
GLERj 3 0LLIN
Ægisbraut 30 • Akranesi • Sími 431 2028 • Fax 431 3828
Þjóit usvua ugJýsi i iga t
Herbalife - heilsunnar vegna
www.fanneyxx.topdiet.is
1
Fanney
660 1666
Brynja
660 1668
PGV
Hágæða PVC gluggar, hurðir,
sólstofur og svalalokanir.
Kíktu á heimasíðuna
www.pgv.is
eða hringdu í síma 564 6080 og
699 2434 - pgv@pgv.is
Geri við sjónvörp,
MYNDBANDSTÆKI OG
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
Hafið SAMBAND í SÍMA
892 8376
M
latstofan
Restaurant FiHpjnO FoOdS
Brákarbraut 3 - Borgarnesij
Heit súpa í hádeginu 350,-
Nautakjöt 200 gr. með frönskum
og fersku grænmeti 1.490,-