Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2004, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 07.01.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. TANUAR 2004 o&IÍSSUIlUu. WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 437 1677 Fax: 437 1678 SkRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf 437 1677 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098 ritstjori@skessuhorn.is Blaðamaður: Hrafnkell Proppé 892 2698 hrafnkell@skessuhorn.is Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir nugl@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir gudrun@skessuhorn.is Prentun: Prentmet ehf. Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum. Blaðíð er gefið út i 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með greiðslukorti. Verð i lausasölu er 250 kr. 437 1677 Niður- stöður jóla- Þegar jólavertíðin er að baki liggur næst fyrir að gera upp dæmið og reikna út hvernig maður hefur komið út úr jólunum. Það þarf að vega og meta jólagjafimar og bera saman við undangengin ár, „kalkúlera11 útfrá vísitölu neysluverðs og finna út hvort viðskipta- jöfnuðurinn hafi verið jákvæður eða neikvæður. Miðað við óendurskoðað uppgjör tel ég mig geta verið bærilega sáttan. Eg fékk margar ágætar gjafir, bæði mjúka pakka og gallharða og ég held ég geti fullyrt, þótt það liggi ekki fyrir áritaður efnahags- reikningur, að þessi jól hafi verið vel yfir meðaljólum. Eg get samt ekki neitað því að það olli mér nokkrum vonbrigðum að ég fékk ekki það sem mig langaði mest í. Eg fékk ekki mennta- málaráðherra í jólagjöf! Ekki einu sinni notaðann. Ég skal svosem viðurkenna að menntamálaráðherrar em kannski ekki hefðbundnar jólagjafir og því er mínum nánustu reyndar vor- kunn að hafa ekki áttað sig á því að það var akkúrat þetta sem mig langaði mest í. Ef menn velta því hinsvegar fyrir sér þá er það nokk- uð augljóst af hverju menntamálaráðherrar komast á óskalistann. Eg er allavega viss um að jólasveinninn myndi átta sig á því enda er hon- um málið skilt. Til nánari útskýringar má geta þess að í tíð nýafsetts menntamála- ráðherra var farin ný leið í rekstri umrædds ráðuneytis, Norðurleið- in. Það má reikna með að það hafi þurft álíka marga vörubíla til að flytja peninga Norður til Akureyrar og þurfti til að flytja grjótið hans Ama Johnsen úr Grjótinu. Peningabunkarnir em notaðir í mennningarhús, menningar- samning og hverskonar menningarvita norður þar og eru sjálfsagt vel þegnir af innfæddum. Það kann aftur á móti að pirra svolítið íbúa annarra landshluta að Norðurleiðin er einstefhugata og þess vand- lega gætt af hálfu umrædds ráðherra að ekki hrykki ein einasta króna af drekkhlöðnum vömbílunum á leið um aðrar sýslur. Akkúrat vegna þessa langaði mig svo mjög í menntamálaráðherra í jólagjöf. Eg er svosem ekkert að hnýta í þessa ráðherra sem við höfum haft hér á Vesturlandi í gegnuin árin. Þeir em alls ekki svo slæmir fyrir utan það að þeir hafa verið að þvælast með peninga úr sínum ráðu- neytum í aðra landshluta í stað þess að nýta þá óskipta í sinni heima- sveit. Þessvegna get ég ekki neitað því að mig langar meira í alvöru ráðherra, í akureyskum stíl. Þegar öllu er á bominn hvolft þá þýðir svosem ekki að vera með neitt öfundarvæl. Eg uni því glaður við mitt og mínar jólagjafir en óska Akureyringum til hamingju með nýjan sendiherra í París. Or- ugglega mun þess ekki langt að bíða að þar verði reystur nýr sigur- bogi úr eyfirsku hráefni. Gísli Einarsson, svolítið svekktur Gísli Einarsson, ritstjóri. I í* Aukin úthlutun viðbótarlána Á síðasta ári varð algjör sprenging í úthlutun viðbótar- lána á Akranesi. Félgasmálaráð afgreiddi viðbótarlán fyrir tæp- lega 180 mkr. til 96 aðila en árið 2002 fengu 40 aðilar út- hlutun. Helsta skýringin á þessari miklu viðbót sem orðið hefur á milli ára má m.a. leita í hækkun á viðmiðunartekjum. Það eru því fleiri sem falla und- ir reglurnar en áður. Við þess- ar breytingar hefur það færst í vöxt að ungir einstaklingar sæki urn viðbótarlán en það var svo til óþekkt áður. Á súluritinu má sjá fjölda úthlutaðra lána á ári frá 1999 en þá var fyrst úthlut- að viðbótarlánum á Akranesi. Þorvaldur í Byggðastofnun Þorvaldur Tómas Jónsson, bóndi og rekstrarráðgjafi, í Hjarðarholti í Borgarfirði hefur verið skipaður í stjórn Byggða- stofnunar í stað Elísabetar Benediktsdóttur. Vestlendingar eiga þar með tvo fulltrúa í stjórn Byggðastofnunar en Guðjón Guðmundsson fyrrver- andi Alþingismaður á Akranesi hefur verið í stjórninni um ára- bil. Yfir 200 fæðingar Á síðasta ári var tekið á móti 208 nýburum á Sjúkrahúsi Akraness. Þetta eru talsvert fleiri en árið 2002 þegar tekið var á móti 158 börnum. Kynja- hlutfall nýbura árið 2003 var mjög jafnt en af þessum 208 börnum voru 103 stúlkur og 105 drengir. Fernir tvíburar fæddust á síðasta ári og voru þeir allir teknir með keisara- skurði. Bætt aðstaða Nú standa yfir miklar breyt- ingar á þrekaðstöðunni á Jað- arsbökkum. Gólfflöturinn hef- ur verið stækkaður um 10 m2 og verið er að loka á milli í- þróttasalarins og þrekaðstöð- unnar. Parket verður lagt á gólf og ný tæki tekin í notkun. Einnig verða sett upp 4 ný sjónvörp, munu iðkendur fá heyrnartól og geta stillt á þá rás sem þeir kjósa. Áætlað er að breytingarnar kosti á milli 5 og 7 mkr. og greiðir Akraneskaup- staður fyrir breytingar á hús- næðinu en IA endurnýjun á tækjum og búnaði. Þreksalur- inn verður opnaður á ný fimmtudaginn 15. janúar nk. Fjölmargir bíða nú óþreyjufull- ir eftir að brenna upp jólasteik- inni í þreksalnum en fá í stað- inn breytta og bætta aðstöðu fyrir líkamsrækt. Flosi í öðru sæti Bók Flosa Olafssonar, á Bergi í Reykholtsdal, Ósköpin öll, varð í öðru sæti yfir mest seldu bækurnar fyrir þessi jól. Skáldsagan Betty eftir Arnald Indriða- son varð í fyrsta sæti. Margrét Eir leikstýrir Leikkonan Margrét Eir Hjartardóttir hefur verið ráðin til að leikstýra næstu árshátíðarsýningu Nem- endafélags Grunnskólans í Borgarnesi. Margrét hefur góða reynslu í að leikstýra unglingum en hún hefur unnið að uppsetningu árshá- tíða og söngleikja hjá mörg- um félagsmiðstöðvum auk þess að vinna sjálf í félags- miðstöð í Kópavogi. Hún hefur víða haldið leik- og sönglistarnámskeið m.a. í Borgarnesi á Lands- móti Samfés s.l. haust. Ávallt hefur mikið verið lagt í árs- hátíðarsýningar nemendafé- lagsins og má búast við að það verði ekki síður nú. \ Pétur í skólanefhd Sú breyting hefur verið gerð á skólanefnd Fjöl- brautaskóla Vesturlands að Pétur Ottesen Innri-Akra- neshreppi hefur verið skip- aður af ráðherra í stað Sig- ríðar Finsen frá Grundafirði sein óskaði eftir lausn frá störfum. Pétur tók sæti í upphafi þessa árs og er skólanefndin þá þannig skip- uð: Þorgeir Jósefsson Akra- nesi formaður, Bergþóra Jónsdóttir Hrútsstöðum, Pétur Ottesen Hamri, Borg- hildur Jósúadóttir Akranesi, Guðrún Jónsdóttir Borgar- nesi. Aheyrnarfulltrúi kenn- ara er Sigurgeir Sveinsson og áheyrnarfulltrúi nem- enda er Þorkell Steindal.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.