Skessuhorn


Skessuhorn - 07.01.2004, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 07.01.2004, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 7. JANUAR 2004 Utskriftamemendur Fjölbrautaskóli Vesturlands á haustönn 2003 auk Harðar Ó. Helgasonar ogAlta Harðarsonar. Brautskráning firá FVA Þann 19. desember, vora 40 nemendur brautskráðir frá Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Athöfn- in fór fram á sal skólans og hófst með ávarpi Harðar O. Helga- sonar skólameistara, því næst flutti Adi Harðarson aðstoðar- skólameistari annál haustannar 2003. Skólakór Fjölbrautaskóla Vesturlands söng undir stjórn Elvu M. Ingvadóttur við undir- leik Viðars Guðmundssonar og fyrir athöfhina léku félagar úr Skólahljómsveit Akraness undir stjórn Heiðrúnar Hámundar- dóttur. Aðrir listamenn sem komu ffam voru: Birna Sigur- geirsdóttír, Helga Sjöfn Jóhann- esdóttir og Ragnheiður Björns- dóttir sem léku á píanó; Kristín Sigurjónsdóttir og Timothy Andrew Knappet sem léku sam- an á fiðlu og píanó. Eggert Sól- bergjónsson nýstúdent flutti á- varp fyrir hönd útskriftarnema. Nokkrum útskriftarnemum vora veittar viðurkenningar en þeir vora: • Elsa Axelsdóttir hlaut viður- kenningu (sem gefin var af Landmælingum Islands) fyrir góðan árangur í raungrein- um og viðurkenningu (sem gefin var af Islandsbanka hf. á Akranesi) fyrir góðan árang- ur í stærðfræði. • Eggert Sólberg Jónsson hlaut viðurkenningu (gefna af Kaupþingi Búnaðarbanka hf. á Akranesi) fyrir góðan árangur í félagsfræði. • Guðgeir Guðmundsson fékk viðurkenningu fyrir störf að félagsmálum (sem gefin var af Rótarýklúbbnum á Akra- nesi) og viðurkenningu (sem gefin var af Landsskrifstofu Leonardó á Islandi) fyrir góðan árangur í rafiðna- greinum. • Hallbera Eiríksdóttir hlaut viðurkenningu (sem gefin var af Sparisjóði Mýrasýslu) fýrir góðan árangur í félagsvísind- um og viðurkenningu skól- ans fyrir bestan námsárangur á stúdentsprófi á haustönn 2003. • Harald Björnsson fékkviður- kenningu (sem gefin var af Islandsbanka hf. á Akranesi) fyrir góðan árangur í við- skiptagreinum. • Hjalti Daðason hlaut viður- kenningu (sem gefin er af Kötlu Hallsdóttur) fyrir framúrskarandi árangur í iðnnámi. • Jón Ingi Olafsson hlaut viður- kenningu (sem gefin var af Landsskrifstofu Leonardó á Islandi) fyrir góðan árangur í rafiðnagreinum. • Kolbrún Yr Kristjánsdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir störf að félagsmálum og fyrir að vera skólanum til sóma með frábærri frammi- stöðu í íþróttum. • Kristján Hagalín Guðjóns- son hlaut viðurkenningu (sem gefin var af Landsskrif- stofu Leonardó á Islandi) fyr- ir góðan árangur í húsasmíði. • Sigríður Helga Sigurðar- dóttir hlaut viðurkenningu (sem gefin var af Landmæl- ingum íslands) fyrir góðan árangur í raungreinum. • Valdís Sigrún Valbergsdóttir hlaut viðurkenningu (sem gefin var af þýska sendi- ráðinu) fyrir góðan árangur í þýsku og viðurkenningu (sem gefin var af Eddu útgáfu hf.) fyrir góðan árangur í ís- lensku. Taflan sýnir hvemig þessir 40 nemendur skiptast á námsbrautir. Piltar/Karlar Stúlkur/Konur Alls Stúdentspróf 9 16 . 25 Burtfararpróf í húsasmíði 4 0 4 Burtfararpróf í rafvirkjun 7 0 7 Burtfararpróf af uppeldisbraut 1 1 2 Verslunarpróf af viðskiptabraut 0 2 2 Alls 21 19 40 Aldarafinæli Kaupfélags Borgfirðinga Kaupfélag Borgfirðinga fagn- aði aldarafmæi sínu með pompi og prakt síðastliðinn sunnudag með afmælisveislu í verslunar- miðstöðinni Hyrnutorgi í Borg- arnesi. Kaupfélg Borgfirðinga var stofnað á fundi í Deildartungu þann fjórða janúar 2004. Félagið var í upphafi verslunarfélag, fyrst með pöntunarfélagsformi, en árið 1931 hóf það bæði mjólkurvinnslu og slátrun. Um áratuga skeið var KB meðal um- svifamestu fyrirtækja landsins á því sviði. Þá hefur kaupfélagið haft ýmiskonar iðnrekstur með höndum í gegnum tíðina, meðal annars Bifreiðasmiðju, bakarí og saumastofu. í dag er félagið aft- ur komið til uppranans og er eingöngu í verslun og þjónustu. KB rekur í dag verslanir í Hyrnutorgi og Hyrnunni í Borgarnesi og byggingavöru- verslun í jaðri bæjarins. Þá rekur KB verslanir á Akranesi, Grand- arfirði og Bifröst. I afmælisfagnaðinum á sunnu- dag var boðið upp á fjölbreytt tónlistaratriði þar sem kennarar Tónlistarskóla Borgarfjarðar og Freyjukórinn voru í aðalhlut- verki. Þá var saga félagsins riþuð upp, annars vegar með glæsilegri myndasýningu sem Páll Guð- bjartsson hafði veg og vanda af og í heimildarmynd um sögu Kaupfélagsins eftir Gísla Einars- son.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.