Skessuhorn - 07.01.2004, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 7. TANUAR 2004
Tit minnis
Gleðigjafann Ingimar leikur á
harmoniku á Dússabar á föstu-
dagskvöldið. Við minnum einnig á
ýmislegt fleira sem hægt er að
finna á A döfinni bls. 13.
(D®<2)
Má búast við því að
næsti menningai'-
samningur verði
gerður við
Hafnarfjörð?
MPEvna Nei ætli það.
Við verðum
| vonandi næst
I Segir Helga
J Halldórsdóttir
formaður Sam-
taka Sveitarfé-
laga á Vestur-
landi.
Sveitarstjórnarmenn á Vesturlandi
eru afar óhressir með að skömmu
fj/rir jól var gerður menningarsamn-
ingur milli ríkisins og Akureyrar en
Vestlendingar hafa beðið efiir slíkum
samningi í á þriðja ár. Fráfarandi
menntamálaráðherra.Tómas Ingi 01-
rich, er frá Akureyri en nýskiþaður
ráðherra, Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir er Hafnfirðingur.
Ve5t\rhorfnr
Búast má við rigningu og slyddu á
norðanverðu Snæfellsnesi fram á
sunnudag en þá á að byrja að
snjóa. Annarsstaðar áVesturlandi
er búist við úrkomulausum dög-
um utan þess að það rigni lítið
eitt á laugardag. Hiti verður um
og yfir frostmark. Hlýjast á
fimmtudag.
Spnrniwj viKtAnnar
Síðast var spurt á vef Skessu-
horns: Hefur árið 2003 verið þér
gott?
„ Já, afskaplega" sögðu 29,9%, „Já,
allt í lagi“, svöruðu 38,7% þátt-
takenda.
9,5% sögðu „Nei, ekkert svo“,
„Nei, þetta er búið að vera öm-
urlegt", sögðu 5,8% og „Æ, ég veit
ekki, mér er alveg sama", svöruðu
16,1%.
I þessari viku er sþurt?
Ertu hlynntur þvi að fækka sveitar-
félögum á Vesturlandi úr 17 i 3 - 5?
Takið afstöðu á
skessuhorn.is
Vestlendimjar
viKannar
Er Guðsteinn
Einarsson
kaupfélags-
stjóri í Borg-
arnesi en fáir
hafa þurft að
standa í jafn
harðri baráttu
vegna tveggja bókstafi, í þessu til-
felli K og B.
Samstarf HB og Granda
Efsamningar takast um kaup Granda og HB fjölskyldunnar á HB er taliö lík-
legt að fiskimölsbrœðslan aukist á Akranesi.
Eins og greint hefur verið frá
í fjölmiðlum hófust viðræður
um kaup á eigum Brims í HB
nú í vikunni. Grandi og HB
fjölskyldan hafa gert ineð sér
samkomulag og ganga saman í
þessar viðræður. Sturlaugur
Sturlaugsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri HB sagðist í sam-
tali við Skessuhorn ekkert geta
greint frá gangi mála en við-
ræður væru á byrjunarstigi.
Skrifað var undir yfirlýsingu
um að ekki verði greint frá
neinum þáttum samninganna á
meðan viðræður standi yfir.
„Þú verður bara að gerast spá-
maður eins og allir hinar,“ sagði
Sturlaugur.
An þess að sett séu upp nein
spámannsklæði þá er Ijóst að
Grandi hefur lengi litið hýru
auga til HB. Fyrirtækið keppti
á sínum tíma við Eimskipafé-
lagið um kaup á HB en varð að
láta í minni pokann. Af þeim
sem hafa lýst yfir skoðunum
sínum við Skessuhorn eru þeir
mun fleiri sem telja að samstarf
við Granda sé góður kostur fýr-
ir Akurnesinga og verði til að
efla enn frekar fiskvinnslu á
Akranesi. Talið er að fýrsta
sltrefið í þá átt verði að físki-
mjölsverksmiðja Granda á
Grandagarði, sem nú er rekin á
undanþágu, verði lögð niður og
uppsjávarafli bræddur á Akra-
nesi. Enn er þó alltof snemmt
að segja nokkuð til um þessa
hluti. Þó svo að viðræður séu
komnar áleiðis er óljóst hvort
aðilar nái saman um verð.
Magnús Gunnarsson stjórnar-
formaður Eimskipafélagsins
hefur lýst því yfir að HB verði
eldd selt nema fýrir það verð
sem Eimskip telur vera ásættan-
legt. Það ríkir því enn óvissa á
Akranesi um framtíð HB.
Ríkið minnkar þátttöku
í minkaveiðum
Á síðasta fundi bæjarráðs
Borgarbyggðar á nýliðnu ári
var samþykkt áskorun þess efn-
is að skora á Alþingi og opin-
berar stofnanir að endurskoða
sín vinnubrögð varðandi sam-
skipti við sveitarfélög þar sem
um er að ræða sameiginlega
málafloltka þessara aðila.
Tilefnið var bréf frá Um-
hverfisstofnun frá því snemma
í desember þar sem tilkynnt er
að endurgreiðsla vegna minka-
og refaveiði verði skert úr 50%
í 30%. Sveitarfélög bera kosm-
að af eyðingu refa og minka en
fá endurgreiðslu hluta kostn-
aðar frá ríkinu. „Hlutur rílds-
ins var skertur með einhliða á-
kvörðun og það í árslok. Það
gefur auga leið að það er ó-
mögulegt fýrir okkur að gera
fjárhagsáætlanir þegar við get-
um ekki treyst á að það fjár-
Páll S Brynjarsson.
magn sem ríkinu er ætlað að
greiða skili sér og ákvarðanir
sem þessar teknar fýrirvara-
laust,“ segir Páll S Brynjarsson
bæjarstjóri Borgarbyggðar.
Páll segir að fýrir sveitarfé-
lag eins og Borgarbyggð sé
refa og minkaveiði nokkuð stór
kostnaðarliður. Megi reikna
með að hlutur ríkisins minnki
með fýrrnefndri ákvörðun um
sem nemur hálfri milljón
króna.
Skólameistari ráðinn
Menntamálaráðherra hefur
skipað Guðbjörgu Aðalbergs-
dóttur í embætti skólameistara
Fjölbrautaskóla Snæfellinga til
fimm ára frá 1. janúar 2004 að
telja. Guðbjörg hefur starfað
við Fjölbrautaskóla Suðurnesja
frá árinu 1994 og hefur gegnt
starfi áfangastjóra frá 1998.
Átta umsóknir bárust um emb-
ættið sem sendar voru skóla-
nefnd Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga til umsagnar og tillögu-
gerðar skv. 2. mgr. 11. gr. laga
um framhaldsskóla nr. 80/1996.
Skólanefndin mælti í umsögn
sinni til menntamálaráðherra
einróma með því að Guðbjörgu
yrði veitt embættið.
Theodór Þórðarson nýskipaður yf-
irlögregluþjónn í Borgarnesi.
Theodór
ráðinn
Theodór Þórðarson lög-
regluvarðstjóri í Borgarnesi
hefur verið skipaður yfirlög-
regluþjónn við embætti
Sýslumannsins í Borgarnesi.
Theodór hefur gegnt þessu
embætti í tæpt ár eftir að
Þórður Sigurðsson lét af
embætti síðastliðið vor en
tekur formlega við því frá
áramótum. Þrettán umsækj-
endur voru um stöðuna.
Dómsmálaráðherra skipar í
embættið að fengnu áliti
Sýslumanns.
Merki KB Borgamesi.
Deiltum
skamm-
stöfim
Eins og fram hefur komið
í fréttum brugðust stjórn-
endur KB í Borgarnesi illa
við þegar sameinaður banki
Kaupþings og Búnaðar-
banka hóf að markaðssetja
sig undir nafninu KB banki.
Kaupfélagsmenn telja sig
eiga einkarétt á nafninu þar
sem skammstöfunin hefur
verið notuð þar í heila öld.
Bankamenn ætla hinsvegar
að halda sínu striki og KB
skal bankinn heita.
Guðsteinn Einarsson
sagði að lögfræðingar Kaup-
félagsins væru enn að fara
yfir málin en ekki lægi fýrir
hvort farið yrði í mál vegna
meints stulds á vörumerki
enda væri slíkur málarekstur
tímafrekur og kostnaðar-
samur.