Skessuhorn - 07.01.2004, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 7. JANUAR 2004
9
Framkvæmdir við FVA
Nú er verið
að grafa grunn
fyrir nýrri
byggingu við
Fjölbrautaskóla
Vesturlands.
Um er að ræða
2ja hæða bygg-
ingu Vallholts-
megin sem mun
hýsa 10
kennslustofur
og tengjast
svokölluðu Ar-
mannshúsi.
Viðburðaskipti milli
norrænna sveitarfélaga
Héraðsnefnd Snæfellinga, á-
samt Isaíjarðarbæ og fleiri aðil-
um eru þátttakendur í nýju
verkefni um svökölluð við-
burðaskipti sem ber nafnið
„Usevenue“ og er styrkt af
Norðurslóðaáætlun Evrópu-
sambandsins.
Auk íslensku þátttakendanna
eru sveitarfélögin Storuman í
Svíþjóð, Aviemore i Skotlandi
og Hyrynsalmi í Finnlandi aðil-
ar að verkefninu. en þaðan er
hugmyndin að verkefiiinu kom-
in. Rúnar Oli Karlsson, ferða-
málafúlltrúi Isafjarðarbæjar og
Asthildur Sturludóttir, atvinnu-
ráðgjafi á Vesturlandi, segja æd-
unina að miðla á rnilli svæðanna
viðburðum sem reynst hafi vel á
hverjum stað og fara í samstarf
um þróun nýrra viðburða. Auk
þess sé markmið verkefnisins
m.a. að auka þekkingu á skipu-
lagningu viðburða og byggja
upp jákvæða ímynd íbúa af sín-
um heimabyggðum.
Allar byggðirnar eru fremur
smáar og þær eiga við svipuð
vandamál að stríða m.a. stutt
ferðamannatímabil og fjarlægð
frá markaði. Því fylgi að fjár-
festingar séu illa nýttar stóran
hluta ársins. Vinna megi gegn
þessu með því að byggja upp
viðburði á jaðartímum ferða-
þjónustunnar.
Fjölmargir árlegir viðburðir
eru haldnir í ísafjarðarbæ og
Snæfellsnesi og hafa sveitarfé-
lögin því upp á margt að bjóða í
samstarfinu. Einnig er fjöldi
annarra viðburða sem eiga
möguleika á að vaxa með réttri
kynningu og skipulagningu.
Asthildur Sturludóttir, at-
vinnuráðgjafi á Vesturlandi, seg-
ir marga viðburði á svæðinu ekki
þurfa svo mikla aukningu í að-
sókn til að geta orðið sjálfbærir.
„Þessu verkefni er ætlað að
kynna viðburði, aðstoða heima-
menn við markaðssetningu og
þróunarstarf auk þess að effa nú-
verandi viðburði í gegnum al-
þjóðlegt samstarfsnet. Þar kem-
ur fjöldi fagmanna að með hug-
myndir og miðla af sinni
reynslu, enda sjá betur augu en
auga“.
Það er Roftorka hf. í Borgarnesi
sem sér um að reisa nýju bygg-
inguna og sameina við gamla-
húsið með nýju þaki. Uppsteyp-
unni á að vera lokið fýrir næsta
haust. Á vordögum verður svo
innanhússfrágangur boðinn út
en gert er ráð fyrir að 5 nýjar
kennslustofur verði teknar í
gagnið að ári liðnu en byggingin
verið fullkláruð vorið 2006.
Gert er ráð fyrir að kostnaður
við verkið sé um 240 mkr. þar af
greiða sveitarfélögin tæpar 80
mkr.
Þessar nýju skólastofur mun
leysa af hólmi 6 lausar stofur sem
eru til húsa í 3 timburhúsum við
Vallholt. Við þessa breytingu
verður talsverð aukning á bíla-
stæðum við Fjölbrautaskólann
en bílastæðaskortur virðist vera
eitt helsta vandamál við ffam-
haldsskóla landsins nú á dögum.
Kaupfélag-
ið byggir
Kaupfélag Borgfirðinga
hefur á teikniborðinu tvö ný
hús undir verslunarstarfsemi.
Annarsvegar er um að ræða
nýtt verslunarhúsnæði í
Grundarfirði undir verslun-
ina Grundaval sem kaupfé-
lagið hefur rekið þar í rúman
mánuð og hinsvegar við-
byggingu við nýja bygginga-
vöruverslun við vegamót
Snæfellsnesvegar. Guðsteinn
Einarsson kaupfélagsstjóri
segir að þessar fýrirætlanir
séu háðar því að það takist að
fjármagna framkvæmdirnar.
„Þessir staðir á landsbyggð-
inni eru hinsvegar ekki hátt
skrifaðir til fjármögnunar af
bankastofnunum landsins,"
segir Guðsteinn.
Akraneskaupstaður
Auglýsinp um
deiliskipulag a Akranesi
Breyting á deiliskipulagi Flatahverfis,
klasi 1 og 2, Brúarflöt 2, Akranesi
Áfundi bæjarstjórnar Akraness sem haldinn var þann 25. nóvember
2003, var samþykkt deiliskipulagsbreyting í klasa 1 og 2 í Flatahverfi
vegna lóðarinnar nr. 2 vió Búrarflöt á Akranesi.
Breytinqin felst í að stigahús verba tvö í stað þriggja og ná þau 75 cm
út fyrir bindandi byggingarlínu til norburs.
Fariö var með deiliskipulagsbreytinguna skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags-
oq byqqinqarlaqa nr. 73/1997 oq hefur málið hlotið þá mebferð sem
lögin mæla fyrir um.
Deiluskipulagsbreytingin tekur þegar gildi.
Akranesi 6. janúar 2004
Ólöf Gubný Valdimarsdóttir
skipulagsfulltrúi Akraness
JShziíjls tötjUis taiifl
Skessuhorn leitar nú starfsmanns í
/
blandað skrifstofustarf á Akranesi. I
starfinu felast mikil samskipti við
viðskiptavini; auglýsendur og
áskrifendur. Starfshlutfall 60-80%.
Æskilegt að viðkomandi hafi einhverja
reynslu af sölustörfum, góða
samskiptahæfileika og jákvætt viðmót.
Einnig er tölvuþekking nauðsynleg.
Ahugasamir sendi umsóknir á
netfangið m2@m2.is fyrir 15. janúar
nk. Nánari upplýsingar eru veittar í
síma 894-8998.
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur
óskar eftir tilboðum í verkið:
Hitaveita Munaðarnesi
- dælustöð og miðlunargeymir
Verkið felst í því að reisa 50 m2 dælustöð, timburhús
á steyptum grunni og 250 m3 einangraðan og klæddan
stálgeymi á steyptum grunni. Smíða skal og setja upp
gasskilju, leggja einangraða pípulögn í álkápu og
setja upp raf- og stjórnbúnað fyrir veituna í
dælustöðinni.
Útboðsgögn verða seld hjá þjónustufulltrúum á
1. hæð í húsi Orkuveitu Reykjavíkur,
Bæjarhálsi i, 110 Reykjavík frá og með
þriðjudeginum 23. desember 2003 kl. 13:00.
Verð útboðsgagna er kr. 5.000
Tilboð verða opnuð í fundarsal á 5. hæð í vesturhúsi
miðvikudaginn 14. janúar 2004 kl. 11.00
Orkuveita Reykjavíkur - Bæjarhálsi I ■ 110 Reykjavík
Sími 516 6000 - Fax 516 7008
www.or.is/utbod
V_________________________________________________________________________J