Skessuhorn


Skessuhorn - 01.09.2004, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 01.09.2004, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2004 ■ ■nr.-v-'UHw. MINNING Friðjón Arnason - minning Friðjón Arnason bifreiðastjóri, Melgerði Lundarreykjadal. F. 03.03.1934. d. 15.08.2004. Utför hans var gerð frá Reykholtskirkju laug- ardaginn 28. ágúst sl. Bróðurminning. I hásumarblíðunni haustið erfjœr þau héluðu bak við mig stráin. Og minningabylgjflti, hún brotnar mér nær, Hann bróðir minn Friðjón, er dáinn! „ Vertu sæll bróðir, “ ég hvísla, og hann í lmga mér óðara stendur. A tárvotan skjáinn mín tjáningin rann, við töltum í bemskunnar lendur. Friðjón mhm bróðir, um hugarins heim, hér er svo indælt að líða. Við ætluðum víða á árunum þeim unaðsleg hugverk að smíða. Eg kveð þig nú bróðir minn kæri, um sinn, en kannski viðfáum að sýna, þau brot sem að óþolinn bamshugurinn var búinn að tnölva og tína. Þáflytjum við leikrit sem löngu er týnt, leikið af bræðrunum ungu. Og þó fyrir smáfugla samið og sýnt, ég sé það á alheimsins tungu. Drottinn minn himneskur, huggaðu þá, sem harðast nú sorgimar pína. Leiddu þau táranna lindinnifrá, lofaðu sólinni að skína. Kristján Arnason frá Kistufelli. Baski sýndi nýlega verk í anddyri SHA. Baski sýnir á Tvíær- ingnum Myndlistarmanninum Baska (Bjarna S. Ketilssyni) frá Akra- nesi hefur verið boðið að sýna á Tvíæringnum í Feneyjum á næsta ári. Baski er fæddur á Akranesi árið 1966 en er nú búsettur í Hollandi. Tvíæringurinn í Flórens er talinn til mikilvægustu listvið- burða í heiminum og sá yfir- gripsmesti á sviði nútímalistar, en rúmlega 800 listamenn frá 72 löndum eiga jafnan verk á Flórens sýningunni. Ahersla er lögð á að koma verkum framsækinna ungra listamanna á framfæri og því er greinilegt að sýning- arstjórar Tvíæringsins meta verk Baska. Þess má geta að Tvíæringurinn hefur fengið sérstaka viðurkenningu Sam- einuðu þjóðanna sem mikil- vægur liður í þeirra viðleitni að auka samskipti og skilning á milli þjóða. ALS l/tlH/ihfi'Hléé Ajram líður ævibraut Öllu fer aft- ur sem er full- farið fram, svo mannskepn- unni sem öðru. Kristinn Karls- son velti íyrir sér sinni aftur- för á þennan hátt: Lengist œvin, linast fjör, leitar á hugann tregi. Liöin tíb oð spœna úr spjör sprund á góöum degi. Þórir Valgeirsson gisti eitt sinn á bæ en gekk illa að sofha og gekk um gólf þar til húsfreyja kom og spurði: Er hart undir þér Þórir minn? Ekki þurftí að bíða lengi eftír Árin líöa, ekkert má því varna, ellin byrjar nart í lífsins kjarna, verst meö þann sem hættur er aö haröna, helvítis bölvaöur rœfillinn sá arna. Sigurður Hansen heyrði rætt um ástalífs- aðferðir sem honum voru framandi og skaut inn þessari athugasemd: Orð af þessu ekki skil, þaö enga vekur þrá. Mér finnst betra aö búa til börnin ofan frá. Verður það þó seint sagt um Norðlend- inga að þeir skilji ekki undirstöðuatriði mannfjölgunarstefnunnar enda virðist Torfi Sveinsson hafa verið fljótur að átta sig: Ég heyröi á ganginum ganga glaölegt hjalandi par, mig fór aö langa - langa í lífsins freistingar Mig minnir að eftírfarandi vísa um mið- aldra heiðurshjón hafi verið eignuð Hirti Gíslasyni: Þegar fjörsins fálm er búiö fellur allt í sömu spor, sveittum rössum saman snúiö, síöan lesiö Faöirvor. Ekki fá þó allir að njóta þeirrar hamingju sem falin er í löngu og farsælu hjónabandi og getur ýmsu verið um að kenna. Gísli O- lafsson frá Eiríksstöðum orti en um tílefnið verður hver að geta sér sjálfur: Heimskan vekur hœttu grun, hart er slíkt í eyrum. Sú hefur gœfu gengismun gert mér eins og fleirum Sá gagnmerki hagyrðingur Leifúr Har- aldsson fékk að kenna á ýmsu andstreymi lífsins og vafalaust einnig vonbrigðum í ástamálum eins og eftirfarandi vísa bendir tíl: Allt hér sama ber aö brunni, brestur getu sjúkan mann. Hún sem aö ég heitast unni hjartaslög mín sjaldnast fann. Ekki man ég fýrir víst hver er höfundur næstu vísu og er þá betra að þegja en segja eitthvað sem ég get ekki staðið við síðar enda vísan jafngóð fyrir því: Ýmsir bera þessa þrá og því ég segi: Kannske er fegurst ást sem á sér enga vegi Sjómenn þess togaraflota sem nú siglir undir íslenskum fána hafa litla hugmynd um aðbúð þeirra sem voru á gömlu síðutogur- unum eða á skútunum þar áður. Einhvern- d'ma á skútuöldinni kom skúta inn á Dýra- fjörð og fóru tveir félagar í land til að freista þess að semja við konur um að þvo af sér. Mættu þeir tveim ásjálegum stúlkum og heilsuðu kurteislega en þær brugðust illa við og lögðu þegar á flótta svo hratt sem fætur gátu borið þær. Annar mannanna horfði undrandi á eftír þeim og sagði svo: Dýrafjaröar drósirnar dugir ekki aö fala, þœr œtla aö veröa vitlausar ef viö þær á aö tala. Þó fer nú oftar svo að það leitar saman sem saman á. Ami J. Haraldsson stakk efrir- farandi að pari sem vann í matvöruverslun KEA á Akureyri: Ungar vonir vœngi fá sem vaxa í gróandanum. Veriö þiö nú varkár hjá varplandinu í kjallaranum. Þorbjörn Björnsson sem notaði dulnefn- ið Þorskabítur ortí um ástina: Ást er lífsins andi hreinn, upphafs vonardagur, ást er hjartans óskasteinn, engill sálar fagur. Ástinni hættír þó til að hafa nokkrar af- leiðingar og venjulega mæða þær meira á öðru kyninu enda kvað Þorskabítur enn: Ójafnt leikiö því er þrátt þaö sem alla girnir. Fljóöin veiku falla lágt - fríast karlmennirnir. Þetta er nú nóg af svona kveðskap í bili og nær að snúa sér að pólitíkinni enda er það merkileg tík. Meðan Guðrún Ilelgadóttir var forsetí sameinaðs þings ortí Halldór Blöndal: Um Gubrúnu ég segi satt, (sem hefur skap er rís og dalar.) Þaö er kúnst aö hugsa hratt - en hægara þó en maöur talar. I utanríkisráðherratíð Jóns Baldvins Hannibalssonar var allnokkur umræða um Evrópusambandið. Þá kvað Brynjólfur Sig- urðsson á Kópaskeri: Setjum niöur sambandsdraug sem er hér á spani, þó aö orgi efst á haug utanríkishani. Fyrir nokkru spurði ég hér um vísuhelm- ing á þessa leið: Drottinn leggur líkn meö þraut, líka börn meb skuldum. Engan fyrripart hef ég fengið við þessa útgáfu vísunnar en önnur vísa barst til mín sem gæti útaf fýrir sig verið snúningur af þessari, nú eða þessi hefur bara snúið eitt- hvað uppá sig en Júh'us Sigurðsson banka- stjóri á Akureyri orti efrir húsbruna þar í bæ: Áfram líöur œvibraut eftir vegum duldum. Drottinn leggur líkn meö þraut - líka eld meö skuldum. Endum svo þáttinn með þessari ágætu vísu eftír Halla frá Kambi: Góöa vísu get ég ort, gjöri þaö meö sanni. Enda væri annaö hvort - undan gáfumanni. Meb þökk fyrir lesturinn Dagbjartur Dagbjartsson Refsstööum 320 Reykholt S435 1367 og 849 2715 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.