Skessuhorn - 01.09.2004, Blaðsíða 15
akUMIIIU..
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2004
15
ÍA - Keflavík - 2 -1
Varnarmennirnir í sóknina og
tryggðu dýrmæt stig
Skagamenn sýndu úr hverju
þeir eru gerðir þegar þeir fengu
spræka Keflvíkinga í heimsókn
í gærkvöld eftir að leiknum
hafði verið frestað á mánudag
vegna veðurs. Heimamenn
byrjuðu betur og pressuðu stíft
en uppskáru ekki eftir því. Það
voru hinsvegar gestirnir sem
voru fyrri til þegar þeir fengu
umdeilda vítaspyrnu á 18. mín-
útu og skoruðu úr henni. Eftir
það var fyrri hálfleikurinn
þannig að Skagamenn voru
mun meira með boltann og
fengu þokkaleg færi upp úr
löngum sóknum en Keflvíking-
Búið er að leggja gervigras
á fyrsta sparkvöllinn á Vestur-
landi en sá er í Ólafsvík.
Þýsku aðiiarnir sem eru að
leggja grasið hafa sagt að
völlurinn í Ólafsvík sé sá besti
sem þeir hafi séð hvað varðar
undirlag en Svanur Tómasson
ar beittu skyndisóknum og
voru alveg jafn líklegir til að
skora. Fleiri urðu mörkin þó
ekki í hálfleiknum og Ijóst að
Skagamenn urðu að girða sig í
brók í leikhléi til að halda í
möguleikann um Evrópusætið.
Það gerðu þeir og mættu al-
brjálaðir til leiks í síðari hálf-
leiknum og í raun má segja að
í 45 mínútur hafi aðeins verið
eitt lið á vellinum. Skagamenn
fengu hvert dauðafærið á fæt-
ur öðru en markvörður Keflvík-
inga vann vel fyrir kaupinu sínu
í þetta sinnið.
Um miðjan hálfleikinn
og starfsmenn Snæfellsbæjar
sáu um alla vinnu í undirlagi.
Einnig hefur Víkingur skaffð
menn í sjálfboða vinnu við
uppsetningu á girðingu utan
um völlinn sem verður form-
lega opnaður í næstu viku.
Gervigrasið komið
í Snæfellsbæ
. % , '
" ' ......-v
komust Skagamenn yfir með
góðu marki Helga Péturs
Magnússonar eftir auka-
spyrnu. Helgi var reyndar besti
maður vallarins og algjörlega
óþreytandi í þessum leik. Und-
ir lokin kom síðan annar varn-
arjaxl, Reynir Leósson og skor-
aði sigurmarkið með góðum
skalla. Sanngjarn sigur skaga-
manna var hinsvegar í hættu á
síðustu mínútunni þegar Kefl-
víkingar komust í einu sókn
sína í leiknum og áttu gott skot
í slá. Aðeins annar heimasigur
Skagamanna í sumar og því
sætari fyrir vikið. GE
Helgi Pétur Magnússon
Skallar misstu
af tækifærinu
Skallagrímur mátti sitja
eftir með sárt ennið og
horfa á eftir Huginn frá
Seyðisfirði, mótherjunum í
undanúrslitum 3. deildar
upp í 2. deild.
Fyrri leikurinn í viðureign
þessara liða fór fram í Borg-
arnesi á laugardag en þá
tóku Seyðfirðingar öll völd
strax á fyrstu mínútum
leiksins og voru komnir í
þrjú núll eftir 25 mínútur.
Skallarnir minnkuðu muninn
fyrir rest en Seyðfirðingar
skorðuðu fjórða markið
skömmu fyrir leikslok og á
síðustu mínútunni kom loks
annað mark heimamanna.
Skallarnir fóru illa að ráði
sínu í leiknum, misnotuðu
dauðafæri hvað eftir annað
og sjálf markamaskínan
Valdmar Kr. Sigurðsson
klúðraði m.a. vítaspyrnu.
Seinni leikurinn, á Seyðis-
firði í gærkvöldi, var á svip-
aða lund þótt Skallarnir
væru heldur betur stemmd-
ir. í hálfleik var staðan 2-2
en heimamenn létu kné
fylgja kviði og skorðu tvö
mörk áður en yfir lauk, 4-2,
í annað sinn og samtals 8 -
4 fyrir Seyðfirðinga.
„Þetta voru vissulega
vonbrigði,“ sagði Aðal-
steinn Símonarson formað-
ur knattspyrnudeildar
Skallagríms í samtali við
Skessuhorn. „Það var á
brattann að sækja í seinni
leiknum en það hefði allt
getað gerst og í stöðunni 2
- 2 var það spurningin hvort
liðið yrði á undan að skora
þriðja markið. En það þýðir
ekki að gráta Björn bónda
heldur gera betur næst.“
GE
ATVINNA
ÓSKAST!
Karlmaður,
búsettur í
Borgarnesi, óskar
eftir vel launaðri
vinnu.
Á auövelt með aö
starfa sjálfstætt, er
með fjölbreytta
starfsreynslu,
hefur öll ökuréttindi
ásamt lyftaraprófi.
Hafið samband í
síma 616 7913.
Aðalfundur og ganga
Félags hjartasjúklinga á Vesturlandi efnir til léttrar göngu
sunnudaginn 5. september n.k. Gengið verður að heiðarbýlinu
Heiðarbæ í Eyjahreppi.
Gangan hefst við eiðibýlið Ölverskross kl. 13:30. Ölverskross er við Heydalsveg um það
bil 13 -14 kmfrá Olafsvíkurvegi. Saga staðarins verður rakin í stuttu máli.
Adalfundur félags hjartasjúklinga á Vesturlandi
verður haldinn að Lindartungu, Kolbeinsstaðahreppi, eftir gönguna,
og hefst fundurinn kl. 16:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fyrirlestur um mikilvægi meðferðarheldni.
Félagsmenn eru hvattir
til að fjölmenna
og taka með sér gesti.
Stjórnin.
jSALAff
BILALEIGA - BILASALA
Þjóðbraut 1 • Akranesi • Sími: 431 2622
Þekking - Reynsla - Þjónusta
VW Golf Comfortline
07/1999 5 gíra.
Ekinn 95.000. Ný
tímareim og vatnsdæla.
Verð 880.000.
Toyota Rav 4
09/2002, sjálfskiptur.
Ekinn 25.000.
Verð 1.550.000.
Mikið af aukabúnaði.
Dodge Ram 2500
Cummings TDI
01/1996 5 gíra
Ekinn 278.000, 35"dekk.
Verð 1.780.000.
Mikið endurnýjaður.
Honda CR-V
10/1999, sjálfskiptur.
Verð 1.490.000
VW Golf CL 1.8
01/1995, sjálfskiptur.
Ekinn 107.000.
Verð 390.000
Renault Megane
Berline, 08/2000, sjálfsk.
Ekinn 61.000.
Tilboð 900.000
-SSBA.
\salaJlt
BILALEIGA- BILASALA
Þjóðbraut 1 • Akranesi • Sími: 431 2622
Þekking - Reynsla - Þjónusta