Skessuhorn - 06.04.2005, Qupperneq 7
agBaSifHQBRl
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2005
7
Hestavöruverslunin Knapinn í Borgamesi fagnar ársafinæli um næstu helgi:
Viðtökur firamar björtustu vonum
Gujffy og Elli í bestavöniversluninni Knapanum.
Margir þekkja vel til hússins sem
lengst af hýsti gömlu Essóstöðina í
Borgamesi við Borgarbraut 59 þar
sem Guðmundur Ingimundar og
hans fólk réði ríkjum til áratuga. Frá
því Hyman tók til starfa og bensín-
sala og verslun lagðist af í húsinu hef-
ur þar verið ýmis starfsemi til húsa;
handverksfólk, Ferðaskriístofa Vest-
urlands og tískubúð svo eitthvað sé
nefint. Fyrir réttu ári síðan var opnuð
í hluta hússins hestavöruverslunin
Knapinn og verður haldið upp á af-
mæhð nk. laugardag. I tilefhi þess
heimsótti blaðamaður hjónin sem
ráða ríkjum í Knapanum, þau Erlend
Sigurðsson og Gunnffíði Harðar-
dóttur, eða Ella og Guffý eins og þau
sjálf kjósa að vera kölluð.
Erum að leita að
hentugum stað
I Knapanum er selt flest það sem
hestamenn vanhagar um bæði fýrir
knapa og hest; þ.e. fatnaður, reiðtygi,
hnakkar, allt til jáminga, ffæðsluefhi
fýrir hestamenn og margt fleira. Það
fer ekki mikið fýrir þessari verslun við
aðalgötuna í Borgarnesi, en þegar inn
er komið er haganlega fýrir komið
öllu sem flokka má undir búnað
hestamannsins. „Viðtökur fólks hafa
verið ffamar öllum okkar björtustu
vonum og það er enn stöðug aukn-
ing,“ segir Gufíý, þegar hún er spurð
þeirrar gegnu spurningar hvernig
gangi í rekstrinum. „Við byrjuðum
smátt en í dag má segja að starfsemin
hafi sprengt utan af sér húsnæðið og
rekstramiðurstaðan reyndist jákvæð
fýrsta árið. Talandi um húsnæðið þá
geri ég ráð fýrir að við þurfum innan
margra mánaða að leita okkur að nýj-
um stað fýrir verslunina þar sem á-
form em uppi um að byggja nokkurra
hæða hús hér á lóðinni. A neðstu hæð
í þeirri byggingu verður verslunar-
miðstöð en við gerum ekki ráð fýrir
að það henti okkar starfsemi að vera í
slíkri miðstöð þar sem við tökum t.d.
á móti miklu magni af reiðtygjum og
hnökkum til viðgerða og það sam-
ræmist ekki annarri verslun að blanda
hestalyktdnni saman við annað,“ segir
Guffý.
Hnakkar fyrir fatlaða
Verkaskipting milli þeirra hjóna er
skýr. Elli sinnir nýsmíði á hnökkum
og reiðtygjum en Guffý versluninni;
innkaupum og afgreiðslu. Þau búa í
Galtarholti sem er skammt fýrir ofan
Borgarnes og hefur Elh smíðaverk-
stæði sitt þar. Aðspurður segist hann
hafa starfað við söðlasmíði og reið-
tygjaviðgerðir í mörg ár en byrjað á
jámsmíði, t.d. á hófjámasmíði fýrir
um aldarfjórðungi síðan. „Eg bjó
lengi norður í Aðaldal og byrjaði á
jámsmíðinni þar en áður en við flutt-
um í Borgarfjörðinn bjuggum við í
Keflavík í nokkur ár þar sem ég hafði
verkstæði. Menn segja að margir leiti
uppmna síns á nýjan leik ef þeir geti
og gæti það vel átt við mig þar sem ég
er fæddur og uppalinn á Urriðaá hér
vestur á Mýrum,“ segir Elh.
I smíðunum segir hann að mikið sé
að gera og nái hann trauðla að upp-
fýha aUar pantanir. Meðal annars hef-
ur hann frá aldamótaárinu hannað og
smíðað í mgatah hina þekktu Seif -
hnakka en það eru sérsmíðaðir
hnakkar fýrir fatlaða sem selst hafa
vel hér innanlands og em nú einnig
famir að seljast til útflutnings. Með
tilkomu Seifs hnakksins varð það í
fýrsta skipti mögulegt fýrir fatlaða
einstaklinga að njóta hesta-
mennskunnar og þeirrar hollu úti-
vem sem henni fýlgir. „Eg er líka að
smíða Adam hnakkana en í smíði
þeirra hef ég engan veginn undan,“
bætir Elh við.
Mikið af reiðtygjum berst Knapan-
um til viðgerðar norðan úr landi, frá
Keflavík og úr héraðinu. „Við erum í
ágætu samstarfi við Brynjólf bónda í
Hlöðutúni sem hefúr undafarið tekið
að sér þessar viðgerðir. Við tökum við
þessu til viðgerðar og komum reið-
tygjunum til hans og afhendum eig-
endunum síðan aftur eftír að Binni
hefúr farið fimum höndum um bún-
aðinn. Með þessu móti erum við að
veita mjög breiða þjónustu sem
hestamönnum líkar vel.“
Flytja sjálf inn
og sækja vörur
Eins og áður segir er það Guffý
sem ræður ríkjum innandyra í versl-
uninni. Aðspurð um hvort hesta-
menn í Borgarfirði séu þeirra stærstu
viðskiptavinir svarar hún því til að
þeir séu góður hluti en aukningin
komi þó mikið annarsstaðar frá. „Eg
er í vaxandi mæh að fá viðskipti firá
Akranesi, af höfuðborgarsvæðinu og
hér vestur og norður um. Fólk er að
frétta af því að verðlagningin hjá okk-
ur sé hófleg og úrvalið gott en lykill-
inn að góðu verði er sá að við flytjum
t.a.m. mikið inn sjálf af fatnaði og
öðru og því getum við haff margt ó-
dýrara en samkeppnisaðilar okkar
fýrir sunnan, sérstaklega þeir sem
þurfa að treysta alfarið á milliliðina.
Til að halda t.d. verði á skeifum niðri
þá förum við sjálf austur á Hellu og
sækjum þær og því bætist enginn
milliliða- og lítill flutningskosmaður
ofan á verðið. Svo er að sjálfsögðu
þetta gamla og góða ráð að þjóna vel
viðskiptavininum, panta strax það
sem beðið er um og ekki er til og
halda verðinu innan skynsamlegra
marka,“ segir Guffý.
Eins og áður segir var verslunin
fýrst opnuð 10. apríl á hðnu ári. í til-
efúi afmælisins verður opið lengur en
venjulega nk. laugardag, 9. apríl. Boð-
ið verður upp á kaffi og góðgæti,
teymt vmdir bömum úti og haldið upp
á afrnæhð með ýmsum hætti. MM
Ágæti hluthafi!
Aðalfundur Fiskmarkaðs íslands hf.
verður haldinn 8. apríl 2005 kl. 20.00 í
þingsal nr. 8 á Hótel Loftleiðum.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta
félagsins
2. Tillaga stjórnar um að félaginu verði heimilað
að kaupa eigin hluti sbr. 2. og 3. mgr. 55. gr.
laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Sljórn Fiskmarkaðs íslands hf.
i Fiskmarkaður Íslands hf.
KJOLUR
Stéttarfélag starfsmarma
í almannaþjónustu
Stiórnarkiör
Óskað er eftir tillögum félagsmanna um stjómarmenn
til kjörs stjómar næstu þrjú árin og verða að minnsta
kosti 25 félagsmenn að standa að tillögu um hvem
stjómarmann. Allar tillögur skulu vera skriflegar og
berast kjörstjórn félagsins fyrir 31. mars. Þeim skal
fylgja nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti
vinnustaðar þeirra sem tillaga er gerð um, einnig
skriflegt samþykki þeirra sem um er að ræða, að öðmm
kosti telst tillagan um hann ógild.
Tillögur trúnaðarráðs er að finna á heimsasíðu
félagsins www.kjolur.is.
Á aðalfundi KJALAR16. apríl kl. 15:00 á Hótel KEA
verður stjórnarkjöri lýst.
WWW . KJOLUR . IS
r
Akraneskaupstaður
Vinnuskóli Akraness
Sumarstörf
1
Akraneskaupstaður óskar eftir starfsmönnum í eftirfarandi störf í sumar.
Um er að ræða tímabilið frá 20. maí til 20. ágúst.
Störf leiðbeinanda (flokksstjóra) viðVinnuskóIaAkraness
Starf traktorsmanns viðVinnuskóIa Akraness
Óskað er eftir að umsœkjendur séu 20 dra og eldri.
Öllum umsóknum verður svarað sem fyrst eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í Arnardal, Kirkjubraut 48 og á
bæjarskrifstofunni, Stillholti 16-18 og þar skal umsóknum skilað.
Jafnframt er hægt að sækja um á heimasíðu Akraneskaupstaðar akranes@akranes.is
Umsóknarfrestur er til föstudags 8.apríl
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Skúlason í Arnardal, sími 431 2785
Tómstunda og forvarnarnefnd Akraneskaupstaðar
MÁ L l/MGA RDA GA R
afsláttur af hágæða
islenskri innimalningu
Slippfélagi
LITALAN