Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2005, Side 16

Skessuhorn - 06.04.2005, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2005 PY W W ' Sm “ * “ f úm |«f|; > sL |rT 'Wffi íi' Hamrahlíðarkórinn syngnr á Vesturlandi Kór Menntaskólans við Hamra- hlíð verður í tónleikaferð í Borgar- firði og á Snæfellsnesi dagana 9.- 11. apríl nk. Kórinn heldur al- menna tónleika í Reykholtskirkju í Borgarfirði laugardaginn 9. apríl kl. 15. Sunnudaginn 10. apríl syngur kórinn við messu í Olafs- víkurkirkju og flytur söngdagskrá í kirkjunni kl. 13.30 en messan hefst að venju kl. 14. A sunnudagskvöld heldur kórinn tónleika í Stykkis- hólmskirkju kl. 20. Tónleikarnir í Stykkishólmskirkju eru tileinkaðir heiðursborgara Stykkishólms, Arna Helgasyni menningarfröm- uði, sem hefur unnið að uppeldis- málum allt sitt líf. Mánudaginn 11. apríl heldur kórinn síðan þrenna skólatónleika, fyrir Grunnskólann í Stykkis- hólmi, Grunnskólann í Olafsvík og Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Grunnskólann í Grundarfirði. Kórinn gistir í hinum nýja Fjöl- brautaskóla í Grundarfirði. A efnisskrá kórsins í þessari ferð eru íslensk og erlend verk m.a. eft- ir J.S.Bach, Vaughan Williams, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sig- urbjörnsson, Hafliða Hallgríms- son, Gunnar Reyni Sveinsson og Jórunni Viðar auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. I nokkrum verk- anna leika kórfélagar með á hljóð- færi. A þessari vorönn er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð skipaður 75 nemendum á aldrin- um 16-20 ára. Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir, stofh- andi hans og upphafsmaður kór- starfsins í Hamrahlíð, en hún stjórnar einnig Hamrahlíðarkórn- um (sem er skipaður eldri nem- endum). Rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, Lárus H. Bjarnason, er fararstjóri í ferðinni. Aðgangur á tónleika kórsins er ókeypis og öllum heimill. MM Sögutengd feröaþjómista er aðalsmerki þeirrar starfsemi sem fram fer á Eiríksstööum í Haukadal. Myndin erfrá Leifshátíð íjúlí áriö 2003. Vesdenskir fom- kappar á Næstkomandi föstudag verður haldið málþing í Reykjanesbæ um sögutengda ferðaþjónustu. Meðal þeirra verkefha sem kynnt verða á námskeiðinu eru þrjú frá Vestur- landi. Fyrst skal telja Eiríksstaði í Haukadal, bæ Eiríks Rauða og fæð- ingarstað Leifs Heppna en það er komið hvað best á legg af sögu- tengdum verkefhum í ferðaþjón- ustu á Vesturlandi. Þá verða kynnt- málþingi ar hugmyndir um Landnámssemr í Borgarnesi og Sögumiðstöð og sagnamennska í Grundarfirði. Einnig verða kynnt nokkur önnur íslensk verkefhi af svipuðum toga. Málþingið er haldið í samvinnu Reykjanesbæjar og Evrópuverkefn- isins Destination Viking Sagalands. Málþingið hefst kl. 15.00 á föstu- dag í Duus húsum og er aðgangur ókeypis. GE Fúsakvöld í Logalandi Næstkomandi laugardag, 9. apríl klukkan 17, verður haldið í Loga- landi í Reykholtsdal svokallað Fúsakvöld. Um er að ræða söng- skemmtun sem helguð er minn- ingu Sigfúsar Halldórssonar, tón- skálds og listamanns, en hann hefði orðið 85 ára á þessu ári. A skemmt- uninni verður í máli, tónum og myndum sagt ffá lífi og starfi hsta- mannsins sem samdi margar af ást- sælustu söngperlum Islendinga. Gunnlaugur sonur Sigfúsar er kennari í Borgarnesi og mtm hann segja frá lífi og starfi föður síns, m.a. frá tilurð einstakra laga sem flutt verða á samkomunni. A sam- komunni flytja lög Sigfúsar ein- söngvaramir Ingþór Friðriksson úr Borgarnesi, Unnur Sigurðardóttir frá Stóra Kálfalæk, Asdís Haralds- dóttir frá Alftanesi, Snorri Hjálm- arsson ffá Syðstu Fossum, Gísli Þorsteinsson frá Hvassafelli og Dagný Sigurðardóttir ffá Skelja- brekku. Þá mtm nýstofnaður kvar- tett, Silfurrefirnir syngja nokkur lög. Til gamans má geta þess að fé- lagar í kvartettinum voru valdir m.t.t. háralits, en þeir em Gísli Þorsteinsson, Ingþór Friðriksson, Sigurgeir Gíslason og Jenni R. Olason. Kór Borgarneskirkju syng- ur á tónleikunum en undirleik ann- ast Guðjón Pálsson á píanó og harmónikku, Sigurgeir Gíslason á harmónikku og Steinunn Arna- dóttir á píanó, en hún er jafhframt stjómandi kórs Borgarneskirkju og afmælisbam dagsins. Að loknum tónleikunum verður boðið upp á létta hressingu þar sem gestir geta skoðað sýningu á mál- verkum Sigfúsar sem komið verður upp af þessu tilefhi, en Sigfús var afkastamikill málari og vom mörg verka hans unnin í Borgarfirði. Allir era velkomnir á Fúsakvöld, aðgangseyrir verður krónur 1500. MM Vesturlandsmeyjar í vfldng Kvennahljómsveitin Brúðar- bandið hefur farið stóram síðan hljómsveitin var stofhuð fýrir rétt rúmi ári síðan, en meirihluti hljóm- sveitarmeðlima kemur ffá Akranesi og Borgarnesi. Ohætt er að segja að þær stöllur hafi verið ótrúlega at- orkusamar og iðnar ffá því hljóm- sveitin var stofhuð fyrir rétt rúmu ári síðan því á fyrsta hálfa árinu lærðu þær á hljóðfærin, sömdu 12 lög og gáfu út breiðskífúna Meira!, sem hlaut ffábærar viðtökur í fýrra. Hljómsveitin hefur vakið nokkra athygli fýrir það að meðlimir henn- ar klæðast ævinlega brúðarkjólum á tónleikum. I janúar síðastliðnum fór Brúðar- bandið í tónleikaferð til Bandaríkj- anna og spiluðu þær meðal annars í Ashewille, Nashville og Savannah. Skemmst er ffá því að segja að upp- selt var á nánast alla tónleikana. Þá er sveitin einnig á leið í tónleika- ferð til Svíþjóðar seinna í mánuðin- tun þar sem þær troða upp með japönsku sveitinni OOIOO. Af fleiri verkefhum ffamundan nefnir Sigríður Árnadóttir, Skagamaður og gítarleikari, tónleika á hinni Sigga tekur hér gítarsóló. margrómuðu tónlistarhátíð sem ár- lega er haldin á Hróarskeldu, en þar spila þær þann 29. júní næst- komandi og einnig er stefnan tekin á Holland, Rotterdam nánar tiltek- ið, með haustinu. Þegar Sigríður er spurð út í heimatónleika, segir hún þá vera á döfinni, því verið er að vinna í því að finna tónleikum á Akranesi stað og stund. ALS Brúðarhandiö á Airwaves

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.