Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2005, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 06.07.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 6. JULI 2005 3Uaj8g¥ll¥W¥l31« • „Eg er ekki kominn á þann aldur að ástæða sé til að ræða um mig í þátíðu Segir Gísli Gíslason, aftnælisbarn vikunnar og bæjarstjóri með meiru á Akranesi Bæjarstjórinn, lögfræðingurinn, stjómarformaðurinn, gítarspilarinn, knattspymuunnandinn , veiðimað- urinn og nýbakaði afinn Gísli „bæjó“ Gíslason fagnar hálfrar aldar afrnæli sínu um helgina. Gísli hefur komið víða við á ferli sínum og hefur setið í stóli bæjarstjóra á Akranesi í ein 18 ár - lengur en nokkur annar. Blaða- maður Skessuhoms hitti Gísla á heimili hans og spjallaði við hann um fortíð, nútíð og framtíð í tílefni af tímamótunum. Þegar ég verð stór Það er nær óvinnandi verk að koma því helsta úr lífshlaupi Gísla fyrir í fáum orðum og ljóst að stikla þarf á stóra. En einhversstaðar þarf að byrja og beinast hggur við að byrja á byrjuninni. „Eg er fæddur í Hafharfirði 9. júlí 1955, næstyngstur sex systkma. Allt mitt föðurfólk er ffá Vestmannaeyjum en ég er uppal- inn í Vesturbænmn. Þetta var þung- ur baggi að bera,“ segir Gísh og hlær. „Reyndar em afi minn og langafi frá Ytri Hólmi svoleiðis að ég er á heimaslóðum hér á Skaganum og lít á mig sem Skagamann enda aldurs og gerði þar garðinn ffægan að eigin sögn. „Ég var mun erfiðari ffaman af en ég er í dag og gerði ým- islegt sem þætti ekki góð latína í dag. Þegar ég horfi tíl baka og minnist æskuáranna vona ég að bömin mín hafi aldrei gerst svona brött þótt þau hafi vissulega tekið sér ýmislegt fýrir hendm,“ segir Gísh sem á synina Jó- hannes og Þorstein og dótturina Hahbem með konu sinni Hallberu Fríði Jóhannesdóttur og soninn Magnús Kjartan að auki. Aðspurður segir Gísli það ömggt mál að hann hefði verið settur á of- virknilyf hefði það tíðkast á þessum tíma. „Eg hefði bæði verið settur í sálfræðimeðferð og á lyf en var lík- lega í hópi þeirra síðustu sem slapp við það. Ég fór aldrei á leikskóla og skólakerfið þurftí ekki að taka við mér fyrr en ég mætti í Isaksskóla sex ára gamall. Eg var þar reyndar bara í eitt ár en held að þeir hafi verið meira en lítíð fegnir að losna við mig þaðan.“ * Ihugaði fomleifafræði Einn skólinn tók við af öðrum. Ur Isaksskóla lá leiðin í Melaskóla, það- hann og hlær. „Af hverju veit ég ekki en ég hafði að vísu alltaf gaman af sögu og hef enn. Mér fannst einhver sjarmi yfir fomleifaffæðinni.“ Að námi loknu starfaði Gísli hjá Ragnari Aðalsteinssyni lögmanni í liðlega tvö ár. „Eg hélt alltaf að ég myndi fara í lögmennsku og opnaði lögffæðistofu hér á Skaganum eftír að við Hallbera fluttum hingað. Þar vann ég þangað tíl ég var eiginlega plataður til bæjarins. Það hafði aldrei hvarflað að mér að fara að vinna hjá bænum eða í sveitarstjóm- armálum.11 Tekur fjögur ár fyrir í einu Þeir em nokkrir samsekir um að hafa „platað" Gísla inn í bæjarmálin. „Hörður Pálsson bakari, Benedikt Jónmtmdsson og Ingimundur Sigur- pálsson þáverandi bæjarstjóri heim- sóttu mig og áttu við mig orð. Það leiddi tíl þess að ég sótti um starf bæjarritara.“ Gísh fékk starfið og hóf störf 1. september 1985. Hann hefur því unnið hjá bænum í 20 ár í haust. „Sumarið 1987 ákvað Ingimundur svo að fara til Garðabæjar og ég Gísli og Hallbera við Akranesgötu í Fœreyjum. ... f« r | T \Ví j| \ji v i i l\J\ | Gtsli (annarfrá hœgri) er íþróttasinnaður með eintbemum og lék bæöi körfu- ogfótbolta vid góöan orSstír. Þessi mynd er tekin aflands- liðinu í körfubolta árið 1980. Sá sem ber höfuð og herðaryfir aðra fyrir miðju er enginn annar en Pétur Guðmundsson. hef ég búið hér jafinlengi og í Vestur- bænum. Hér hef ég hugsað mér að eiga heima hvað sem á dynur.“ Hefði verið settur á Rítalín í dag I Hafnarfirði bjó Gísh tíl 5 ára an í Hagaskóla, Menntaskólann í Reykjavík og loks í Háskóla Islands þaðan sem Gísli var útskrifaður úr lögffæði með ágætiseinkunn. Hann velti þó ýmsum möguleikum fyrir sér áður en hann hóf lögffæðinámið. „Eg var með varaplan - að fara í fomleifaffæði eða guðfræði,“ segir hafði svosem áhuga á því að verða bæjarstjóri fyrst ég var kominn inn í þetta á annað borð. Satt að segja hef ég bara tekið fjögur ár fyrir í einu síðan og velti því h'tið fyrir mér hvað ég verði þegar ég verð stór.“ Gísli og Hallbera með sonarsoninn Gísla Frey. „Ekki erþað verra aðfá najha með fyrsta barnabaminu - enda er drengurinn yndislegur. “ „Þegar maður byrjar styttist í að maður hætti“ Þegar Gísli hóf störf var hann í hópi yngstu bæjarstjóra á landinu, aðeins 32 ára, og segir það undarlega tilfinningu að vera í dag orðinn þeirra elstur, þ.e.a.s. í starfsaldri. „Kristinn Þór á Akureyri og Sigurð- ur Valur í Sandgerði hafa reyndar verið að í svipaðan tíma. En á Akra- nesi hafa fýrirrennarar mínir lengst verið að í átta ár og þeir sem á eftir koma þurfa að vera heldur þaulsetn- ir ef þeir ætla að sitja lengur en ég,“ segir hann og hlær. En sér hann fyrir sér að verða bæj- arstjóra elstur í æviárum áðttr en yfir lýkur? „Nei, ég er ekkert viss um það. Það eina sem maður veit fýrir víst er að þegar maður byrjar í starfi styttist í að maður hætti. Eg hef aldrei velt því fýrir mér hvort mig langi að hætta, það hefur eiginlega verið mottó hjá mér því þá er hætt við að maður hugsi of mikið um það og minna um það sem maður á að vera að gera. Eg hef ennþá gaman af því að mæta í vinnuna og get fullyrt gagnvart hverjum sem er að ég er í fullu fjöri.“ Menntaverðlaunin og göng standa upp úr Gísli segir margt hafa breyst á Akranesi á þessum 18 árum. „Eg hef reyndar verið að velta því fýrir mér hvort ég ætti ekki að fara að h'ta yfir farinn veg og festa eitthvað á blað. Eg hefði að minnsta kosti gaman af því sjálfur. Fyrsm ár mín í starfi var árferðið frekar erfitt, hér vom erfið- leikar og breytingar í atvinnuh'finu, atvinnuleysi og íbúum fækkaði. Þrátt fýrir erfiðleikana fannst mér þó fólk alltaf vera bjartsýnt og ég var viss um að lukkuhjólið myndi snúast okkur í hag. Síðustu 8-9 árin hefur orðið ó- trúleg breyting á bænum og það besta er að framtmdan em jafnvel enn betri tímar. Þetta er eins og í fótboltanum, það er ekkert gaman að spila alltaf vöm en ef þú átt nóg af færum gerast skemmtilegir hlutir." Hvað einstaka viðburði og ffarn- kvæmdir í bæjarfélaginu varðar seg- ist Gísh geta tíntýmislegt til svo sem byggingu leikskóla bæjarins, upp- byggingu grunnskólanna, Tónlistar- skólann, fluming Landmælinga Is- lands, hafnamál, stofiiun Faxaflóa- hafha, sammna orkufýrirtækjanna við OR, byggingu íþróttamannvirkj- anna á Jaðarsbökkum, byggingu vemdaðs vinnustaðar og margt fleira sem hann hefur fengið tækifæri til að taka þátt í að vinna að með góðu fólki. „Það var t.d. mjög stór stund í sögu bæjarins þegar Grundaskóli fékk Islensku menntaverðlaunin á dögunum og ég held að menn eigi eftir að sjá það jafhvel enn bemr síð- ar,“ segir Gísh og viðurkennir að hafa sem bæjarstjóri og Skagamaður orðið bæði hrærðm og afar stolmr Gísli 6 ára og sakleysislegur. „Egfór aldrei á leikskóla og skólakerftð þurfti ekki að taka við mérfyrr en ég nuetti í Isaksskóla sex ára gamall. Ég varþar reyndar bara t eitt ár en held að þeir haft verið meira en lítiðfegnir að losna við mig. “

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.