Skessuhorn - 06.07.2005, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2005
gBlSSIÍIi©BRi
Þjóðartilþrif
LANDIÐ: Ungmennafélag Is-
lands og Pokasjóður eru að fara
af stað með umhverfisverkefhí.
Verkefhið felst í því að vekja
landsmenn til umhugsunar um
gildi þess að ganga vel um um-
hverfið og eru þeir hvattir til að
taka þátt í verkefhinu með því að
fara út og tína rusl, í merkta
ruslapoka sem þeir fá senda
heim. Verkefninu er ætlað að
vera bæði forvamarstarf sem og
framkvæmdarátak. Verkefnið er
auglýst svohljóðandi; Þjóðartil-
þrif með Ungmennafélagi Is-
lands og Pokasjóði. „Látum
greipar sópa umhverfið". Steftit
er að því að senda pokana inn á
öll heimili í landinu nú í byrjun
júlí. Þegar fólk hefur fyllt pok-
ann af msli sem liggur á víð og
dreif í umhverfmu gefst því
kostur á að senda nafn sitt inn til
UMFÍ til að taka þátt í happa-
drætti. -ge
• •
Orninn
fjölgar sér
BREIÐAFJ ORÐUR: Sam-
kvæmt upplýsingum frá Náttúr-
fræðistofhun er útlit fyrir gott
sumar hjá breiðfirskum örnum.
„Við flugum yfir varpið á laug-
ardag og það lítur út fyrir að á-
standið sé ágætt þrátt fyrir vor-
hret. Við vitum um 23 hreiður
með ungum en það dugar til að
halda stofhinum í vexti þótt það
mætti vissulega vera meira,“
segir Kristinn Haukur Skarp-
héðinsson fuglafræðingur. Am-
arstoftiinn á Breiðafirði teiur nú
um 60 fugla og fer vaxandi. -ge
Fimm
fíkniefnamál
BORGARFJÖRÐUR: Tölu-
vert annríki var hjá lögreglunni í
Borgamesi um helgina. Alls
urðu 3 umferðaróhöpp í um-
dæminu, 25 ökumenn vom
teknir fyrir of hraðan akstur og
einn var tekinn fyrir meinta ölv-
un við akstur. Þá komu upp 5
fíkniefnamál og vora 7 irag-
menni yfirheyrð við rannsókn
þeirra mála. Lagt var hald á
kannabisefiii, amfetamín og e-
töflur í þessum málum. Þetta er
óvenju mikill fjöldi fíkníefna-
mála að sögn Theodórs Þórðar-
sonar, lögreglustjóra í Borgar-
nesi en ekkert þeirra var þó
veralega stórt. -ge
Veiðiþjófar og
stigamenn
DALER: Um síðustu helgi voru
bíræfhir veiðiþjófar teknir glóð-
volgir þar sem þeir voru við
veiðar í laxastiganum í Búðar-
dalsá í Dölum. Vart þarf að taka
fram að veiði er stranglega
bönnuð í laxastigum hvað þá í
nágrenni þeirra, né heldur að
stelast í fengsælar ár sem Búðar-
dalsá er. Veiðarfæri voru gerð
upptæk og mega „stigamennim-
ir“ búast við kæru. Afli var ekki
gerður upptækur þar sem ekki
var um hann að ræða. -mm
S
Onýt bifreið eftir ölvunarakstur
Snemma morguns síðastliðinn
föstudag vora tvær sjúkraflutn-
ingabifreiðar ffá Akranesi sendar á
slysstað á Vesturlandsvegi við
Hagamelshverfið í Skilmanna-
hreppi. Þar vora tveir ungir menn
á ferð á lítilli fólksbiffeið. Alissti
ökumaður vald á bifreiðinni með
þeim afleiðingum að hún valt í
vegkantinum og endaði á hjólun-
um, langt utan vegar.
Þótti það með ólíkindum að eft-
ir þessa harkalegu ferð, þar sem
bifreiðin er ónýt, sluppu ferða-
langarnir með eitt beinbrot.
Akstursskilyrði voru afar góð
þennan fagra föstudagsmorgun.
Frá slysstað.
Það svarta við þessa morgunstund
var að lögreglumenn höfðu rök-
studdan grun um að báðir ungu
mennirnir hafi verið ölvaðir. OG
Hafiiarfranikvæmdir í Skorradal
Nýju flotbryggjuna smíðaði Ami Ingvarsson, „bryggjusmiðura á Skarði í Lundarreykjadal.
Ljósm: SJ
I síðustu viku var sett niður stór
flotbryggja í Skorradalsvatni í
landi Indriðastaða. Það er Jón
Haukur Sigurðsson sumarhúsa-
eigandi í Indriðastaðalandi sem
stendur fyrir framkvæmdinni en
flotbryggjan er engin smásmíði.
„Þetta er T bryggja 30 metra löng
með um 17 metra löngum efri
legg og þarna á að vera pláss fyrir
allt að 30 báta,“ segir Jón Haukur.
„Ástæðan fyrir því að ég fór út í
þetta er sú að hér er mjög að-
grannt, ekki síst eins og vatns-
hæðin hefur verið að undanförnu,
þannig að þeir sem hafa verið með
báta á vatninu hafa lent í erfiðleik-
um. Eg veit meðal annars að það
eyðilögðust skrúfur á þremur bát-
um í fyrra útaf þessu. Það era líka
margir sem hafa áhuga á að vera
með báta en hafa ekki lagt í það út
af aðstöðuleysi enda hafa nú þeg-
ar margir sýnt því áhuga að kaupa
sér pláss við bryggjuna.“
Jón Haukur ætlar að selja báta-
lægi við flotbryggjuna og ganga
sumarhúsaeigendur í Indriða-
staðalandi fyrir en einnig segir
hann koma til greina að leigja út
pláss til annarra ef þau seljist ekki
upp. Hann er hinsvegar bjartsýnn
á að bryggjan verði orðin fullnýtt
innan skamms tíma. „Við byggð-
um bátaskýli fyrir tíu báta fyrir
fáum misseram og þau era öll seld
og ég er viss um að bátum hérna á
eftir að fjölga með tilkomu
bryggjunnar. Það er ágætis veiði í
vatninu og menn hafa verið að fá
hérna stærðar urriða. Eins eru
margir sem stunda sjóskíði á vatn-
inu eða annars konar vatnasport
og síðan er Skorradalsvatn með
þeim bestu á landinu til að stunda
skútusiglingar vegna þess hvað
það er langt. Þá er líka gríðarleg
uppbygging hér á Indriðastöðum
og sumarhúsum fjölgar ört þannig
að ég hef trú á því að innan fárra
ára verði þörf á að stækka bryggj-
una,“ segir Jón Haukur Sigurðs-
son, hafnarstjóri í Skorradal.
GE
Endurbætur á SHA vegna
aukinnar aðsóknar
Síðustu góðviðrisdaga hefur ver-
ið unnið við viðhald á húsnæði
Sjúkrahúss og heilsugæslu Akra-
ness. Verið er að endumýja hluta í
þaki og þakbrúnum hússins. Að
sögn ffamkvæmdastjóra, Guðjóns
Brjánssonar, er einnig brýn þörf
fyrir endurbætur og breytingar
innandyra. „Það þarf að endurbæta
handlækningadeild og lyflækn-
ingadeild og færa þær í nútíma-
legra horf og aðlaga að breyttum
viðhorfum varðandi umönntm og
vinnufyrirkomulag. Brýnt er
einnig að gera endurbætur á
myndatökubúnaði. Koma þarf á
stafrænni myndgreiningu en sá
búnaður er dýr,“ segir Guðjón.
Hann gat þess að margvísleg
önntn verkefni hafi verið á biðlista.
„Sjúkrabiffeiðar komast ekki inn í
skjól með sjúklinga, lóðafram-
kvæmdir á baklóð hafa beðið,
gamla ketilhúsið þar sem umbúð-
um var brennt þarf að breyta og fá
nýtt hlutverk og mætti hugsa sér
að þar mætti staðsetja
skjalasafn sjúkrahúss-
ins.“
Um 3000 manns
lögðust inn á sjúkra-
húsið á síðastliðnu ári,
fæðingum fjölgaði og
vora um 230 árið
2004 og stefnir í að
þær verði fleiri á
þessu ári. Þá hefur
liðskiptiaðgerðum
fjölgað, eða um 40%.
Sjúkir koma flestir af
Vesturlandi en þó er
um fjórðungur sjúklinga annars- Landsspítalann og erindi um ýms-
Guðjón Brjánsson.
staðar af landinu. Við það er mið-
að að gera þær aðgerðir þar sem
ekki er gerð krafa um gjörgæslu.
Guðjón Brjánsson gat þess að
lokum að rekstur sjúkrahússins
gengi vel, það væri að vísu eril-
samt, en framlegð væri góð ef svo
mætti að orði komast. Reksturinn
væri í góðu jafnvægi. „Nú er unnið
að því að gera samstarfssaming við
ar nauðsynlegar endurbætur era til
skoðunar í heilbrigðisráðuneytinu,
því starfsemi sjúkrahússins er að
aukast. Eftir að Hvalfjarðargöngin
komu til sögunnar hafa umsvif
sjúkrahússins aukist veralega og er
það þvert á gerðar spár um að
starfsemi þess myndi dragast sam-
an þegar göngin kæmu,“ sagði
Guðjón að lokum. OG
Allt í doða í sum-
arfiríi
BORGARNES: Fastur starfsmað-
ur Bifreiðaskoðunar í Borgamesi er
í sranarffíi og bregður svo við að
ekki er nokkur leið að fá skoðun á
bíl á meðan. Talað er um að það
eigi að vera opið tvo daga í viku, en
aðeins var opið einn dag í síðustu
viku og enginn tími laus í skoðun
fyrr en eftir mánuð. I síðustu viku
var einnig verið að lesa af ökumæl-
um í síðasta sinn fyrir „olíuskiptin"
og löng biðröð myndaðist við þjón-
usmhús bifreiðaskoðunar. Bif-
reiðaeigendur hafa þurft að fara af
svæðinu til að fá skoðun á bílum
sínum. „Svæðið er stórt sem þjón-
usta ber og alveg með ólíkindum að
ekki skuli vera veitt betri þjónusta
en raun ber vitni“, sagði heimildar-
maður Skessuhorns, „samkeppni
virðist þurfa þama sem víðar.“ -bgk
Skot í
laxveiðinni
BORGARFJÖRÐUR: Óhemju
góð veiði er í ám í Borgarfirði þessa
dagana, göngur ótrúlegar og nán-
ast mok víða. Holl, sem hafði lokið
fyrri veiðidegi sínum í Brennu fyr-
ir nokkrum dögum, hafði á land 32
laxa á aðeins tvær stangir. Brennu-
laxinn er á leið í Þverá og Kjarrá,
en í báðum ánum hefur verið mikil
veiði síðustu daga. Hollin, sem
voru í ánum ffá 30. júní og til há-
degis á sraraudag 3. júlí, voru sam-
tals með 256 Iaxa, en sjö stangir eru
í hvorri á og offast aðeins veitt á sex
stangir í Þverá. Sjá fleiri veiðiffétt-
ir á bls. 10. -mm
Grænni skógar
HVANNEYRI: f haust hefúr
göngu sína á Vesturlandi nám-
skeiðaröðin „Grænni skógar á
Vesturlandi," sem standa mun yfir í
þrjú ár. Um er að ræða samstarfs-
verkefni Vesmrlandsskóga, FsV,
Skógræktarinnar, Landgræðsl-
unnar og LBHI. Þessi námskeiða-
röð mun taka við af annarri sam-
bærilegri, sem Vesturlandsskógar
og Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri hafa rekið iradanfarin
tvö ár í samstarfi við Skógrækt rfk-
isins. Reiknað er með að þátttak-
endur fari ásamt þeim sem stunda
samskonar námskeiðaröð á Vest-
fjörðum til Skotlands haustið 2006.
Þeir sem ljúka námskeiðaröðinni
munu fá viðurkenningar, allt að 16
einingar til náms á framhaldsskóla-
stigi. -mm
Sala á
sveitabýlum
SVEITIN: Verkefnisstjóm um
heimasölu á sveitabýlum leitar eftir
samstarfsaðilum sem hafa áhuga á
áð taka þátt í þróunarverkefni um
heimavinnslu og sölu afurða á
sveitabýlum. Fylla þarf út umsókn-
areyðublað sem er að finna á
heimasíðrarai www.sveit.is, en þar
þurfa að koma ffam upplýsingar
ran framleiðsluvöruna, s.s. tegtrad
vöra, innihaldslýsing og fram-
leiðsluaðferð. Umsóknir berist á
netf: berglind@farmholidays.is eða
bréfleiðis í Síðumúla 13, 108
Reykjavík merkt „Sala á sveitabýl-
um“. -mm
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemut út alla mi&vikudaga. Skilafréstur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
augíýsingapláss tfmanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er tií
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefíð út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuöi en krónur 750
sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DACA
Útgefandi: Skessuhom ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaöamenn: Gísli Eiharsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir 895 0811 gugga@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is
Prentun: ísafoldarprentsmiðja