Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2005, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 06.07.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. JULI 2005 §g!SSUgi©BKI Fjórðungsmót þar sem ungir knapar og efnileg kynbótahross stóðu öðru fremur uppúr Glæsilegt mót í fremur köldu veðri á Kaldármelum Fjórðungsmóti Vesturlands á Kaldármelum lauk undir kvöld á sunnudag en þá hafði það staðið frá því á fimmtudegi. Mótið var vel sótt, en ríflega 2000 manns voru á svæð- inu. Veðrið setti eitthvað mark á að- sókn því gera má ráð fyrir að ef hlýrra og þurrviðrasamara hefði ver- ið á landinu um helgina hefðu fleiri áhugasamir mætt í kjarrivaxna brekkuna til að fylgjast með skemmtilegu móti. Mótshaldið fór vel ffam og var í senn bæði fróðlegt og skemmtilegt, skipulagning var góð, tímasetningar stóðust ágædega, þulir stjómuðu af röggsemi sem og aðrir þeir sem komu að mótsstjóm. Unga kynslóðin áberandi Mótið að þessu sinni endurspegl- ar öðm fremur mikla framför sem orðið hefur í hestamennsku á Vest- urlandi og em nokkur atriði sem vafalítið standa uppúr í hugum margra. Má þar fyrst nefna gríðar- lega öflugar sýningar yngstu knapaxma á mótinu sem sýndu að þeir em í mörgum tilfellum engir eftirbátar eldri og reyndari knapa enda var ekkert til sparað í gæðing- unum sem þau höfðu til afinota. I nokkrum hestamannafélögum í landshlutanum er greinilega verið að vinna gott starf með unga fólkinu í þjálfun, aga og sýningarhaldi og var uppskorið eftir því. Þá ber að nefna háar einkunnir kynbótahrossa og sérstaklega meteinkunnir hæstu stóðhestanna fjögurra og fimm vetra, þeirra Glyms frá Innri Skelja- brekku, fjögurra vetra og Sólons frá Skáney, fimm vetra sem hvor um sig standa hæst eða meðal hæst dæmdu stóðhesta í sínum aldursflokkum í heiminum í dag. Bæði þessi atriði sem nefhd hafa verið, þ.e. ungir og efnilegir knapar og úrvals kynbóta- hross era ótvíræð merki um að hestamennska í fjórðungnum verður áffam í ffamför. Nokkur úrslit Forkeppni í gæðingakeppni og tölti fór ffam á fimmtudag og föstu- dag. A föstudagskvöldið fóra ffam úrsfit í tölti unglinga og ungmenna og keppt var í 100 m skeiði. A laugardeginum fór fram yfirhts- sýning kynbótahrossa. Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur sagði við mótslok að honum sýndist hrossaræktin á Vesturlandi vera í mikilli framför og vesdensk hross væra engir eftirbátar annarra. Nefiidi hann m.a. að nú hafi 60 hross náð lágmarkseinkunn inn á mótið á móti 30 fyrir fjórum árum. Sérstaklega fannst Guðlaugi yngri hrossin lofa mjög góðu. Töltúrslit vora að venju ein skemmtilegasta sýningargreinin og fór hún ffam á laugardagskvöldinu þegar veðrið var hvað best. Töltið sigraði Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi eftir harða viðureign við Þorvald Ama Þorvaldsson á Blíðu ffá Flögu. I A-flokld stóðhesta sigraði Dagur ffá Strandarhöfði og Stefán Frið- geirsson en Tjörvi frá Ketilsstöðum hafði verið efstur inn í úrsht. I B- flokki stóðhesta sigraði Frakkur ffá Mýnesi og Logi Laxdal. IB og A flokkum gæðinga var hart barist um efstu sætin. I B flokld var Tindur frá Múlakoti efstur eftir for- keppnina. I úrslitunum varð Berg- hnd Rósa Guðmundsdóttir á Þjót- anda frá Svignaskarði efst og Karen Líndal Marteinsdóttir á Flygli ffá Vestri Leirárgörðum í öðra sæti. Síðasti dagskrárliður mótsins, að venju, vora úrsht í flokki alhliða hrossa. EitiU frá Vindási kom efstur inn í úrsht og þrátt fyrir harða keppni hafði hann sigur með ein- kunnina 8,74 og varði hinn ungi og bráðefnilegi, Þingnesættaði knapi Eyjólfur Þorsteinsson stöðu sína í forystunxú. I öðra sæti varð Sveinn Ragnarsson á Þengh ffá Laugavöll- um. Glæsilegar ræktunarsýningar Fimmtán ræktunarbú sýndu úrval hrossaræktunar sinnar. Þessi bú vora: Berg, Hallkelsstaðahlíð, Hömluholt, Innri Skeljabrekka, Lambastaðir, Leiralækur, Litla Berg, Nýibær, Skáney, Skipanes, Stakkhamar, Stóri As, Svignaskarð, Vestri Leirárgarðar og Olvaldsstaðir IV Allar þessar sýningar vora búun- um til mikils sóma enda greinilega vandað til þeirra í hvívetna. Akveðið var að þessu sinni að gera ekki upp á milli árangurs heldur tóku forsvars- menn ræktunarbúanna við viður- kenningu að sýningum loknum. Breiddin í hópunum var mikil og endurspeglar misjafnar áherslur ræktenda þar sem hver hópur hefur sína sérstöðu hvað varðar t.d. hti, fas, gang, kosti og ýmislegt fleira. Þessi fjöldi góðra ræktunarbúa á Vesturlandi er gleðiefni og ekki síst fjölgun þeirra ffá Fjórðtmgsmótinu 2001 þegar 9 bú sýndu. Framkvæmdastjóriim ánægður „Það er alveg óhætt að segja að ég hef enga ástæðu til annars en að vera mjög kátur nú í mótslok með hvem- ig til tókst. Þetta gekk allt eins vel og kostur var, starfsfólk stóð sig með prýði og mótsgestir eiga heiður skil- inn fyrir gott skap, sem gerir skemmtilegt mót, umgengni var til fyrirmyndar, allt gekk slysalaust og almennt alhr sem hönd lögðu á plóginn skiluðu sínu vel og mótið endurspeglaði það,“ sagði Bjarni Jónasson, ffamkvæmdastjóri í sam- tali við Skessuhom í mótslok. Talið er að á Kaldármelum hafa verið hð- lega 2000 manns. „Það borguðu sig inn um 1500 fullorðnir og þeim til viðbótar era böm og starfsmenn þannig að þetta gæti hafa verið um 2200 manns þegar allt er tahð. Þetta er svipaður fjöldi og ég spáði og fjár- hagslega sýnist mér að dæmið gangi upp hjá félögunum." Mót að fjórum árum liðnum Aðspurður um hvað standi uppúr eftir mótið segir Bjami að persónu- lega hafi sér fundist töltið gera það. „Mótið endurspeglaðist af mjög sterkum hrossum og er engin ein grein undanskihn í því sambandi. Kynbótahross vora að fá háar ein- kunnir og það er greinilegt að vest- lenskur hestakostur hefur tekið miklum ffamförum ffá því síðasta mót var haldið fyrir fjóram árum síðan. 15 ræktunarbú sýndu úrval hrossa og vora með ffábærar sýning- ar hvert á sinn hátt.“ Bjami segir að ekki sé reiknað með öðra en næsta mót verði sam- kvæmt venju haldið eftir fjögur ár. „Miðað við tal fólks á og eftir mótið era menn ekki síður ánægðir nú en eftir síðasta mót 2001. Þó svo að veðrið hefði mátt vera betra, var það ekki svo slæmt að ekki hafi verið hægt að klæða það af sér. Við höfð- um sól á milli skúra en það sem mest er um vert var að það var stöðug sól í sinni fólks alla mótsdagana og því vora allir ánægðir," sagði Bjami Jón- asson að lokum. Hestamót era einnig annað og meira en stöðugar sýningar hrossa. Kvölddagskrá og dansleikir vora í lautinni góðu, hópreið, hugvekja á sunnudegi, Löngufjörareið er og verður ómissandi dagskrárliður meðan mótið fer ffam á Kaldármel- um og vora margir sem nýttu sér hana. Yngsta kynslóðin fékk sýningu Avaxtakörfunnar í kaupbæti og söngmenn skemmtu svo fátt eitt sé nefnt. Af þessu má sjá að af nógu var að taka í dagskrá og keppni á Fjörð- ungsmóti vestlenskra hestamanna sem var skipuleggjendum mótsins til mikils sóma. Til hamingju hesta- menn! MM/ Ljósm : MM og MKG Sigurvegaramir í A flokki voru aö vonum kampakátir. Eyjólfur Þorsteinsson lengst til hœgri. Eftir skemmtilega keppni stóð Berglind Rósa Guðmundsdóttir á Þjótanda frá Svignaskarði efst í B flokki. Við hlið þeirra er kempan og rcektandinn Skúli í Skarði. Félagar í Faxa hreinlega sópuðu að sér verðlaunum í bamaflokki. Hér eru þau Flosi Olafssm, Heiðar Ami Bald- I unglingaflokki sigraði Sigurborg Hanna Sigurðardóttir frá Oddsstöðum. Öðru sœti og ásetuverðlaunum sem ursson og Þórdís Fjeldsteð sem urðu í efstu sœtunum. Knapinn í Borgamesi gaf hlaut Guðbjartur Þór Stefánsson frá Skipanesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.