Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2005, Síða 4

Skessuhorn - 09.11.2005, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 2005 amgSSMHWQBH Innbrot upplýst AKRANES: Á aðfararnótt föstudags var brotist inn í heima- hús við Heiðargerði á Akranesi og þaðan stolið fartölvu, pening- um, síma, tölvuskjá og fleiru. Innbrotsþjófurinn eða þjófamir höfðu spennt upp glugga og fór inn um íbúð á neðri hæð. Efdr að hafa tekið þaðan ýmislegt fémætt lá leiðin í íbúð á effi hæð þar sem greipar voru látnar sópa. Rann- sókn lögreglu beindi grun að á- kveðnum manni sem var svo handtekinn á heimili sínu í morgunsárið. Við húsleit hjá honum fundust munirnir sem stohð hafði verið fyrr um nóttina auk þess sem þar fundust munir sem stolið hafði verið úr biffeið á Akranesi fyrr á þessu ári. Sá sem handtekinn var hefur gengist við báðum innbrotunum og bendir allt til þess að hann hafi verið einn að verki. Málin teljast upp- lýst. -bg Fjárveitingar til skipulags- verkefitia AKRANES: Skipulags- og um- hverfisnefiid Akraness samþykkti á fundi á mánudag tillögu að fjár- hagsáætlun ársins 2006 og er þar gert ráð fyrir að varið verði 11,4 milljónum króna til skipulags- verkefna í bæjarfélaginu. Til end- urskoðunar aðalskipulags skal verja 400 þúsund krónum, í deiliskipulag Akratorgsreits og Amardalsreits var samþykkt að verja 2 milljónum króna í hvort verkefni. Til útfærslu á deiliskipulagi Akratorgs verður varið 1,5 milljónum króna og sömu upphæð verður varið í ó- skilgreind verkefni svo og til rammaskipulags í Kalmansvík. Þá er einnig lagt til að varið verði 2,5 milljónum króna til deiliskipulags nýs byggingar- svæðis. -hj Kvenfélagið 55 ára ÓLAFSVÍK: Kvenfélag Ólafs- víkur hélt þann 7. október hátíð- lega uppá 55 ára afmæli félagsins. Affnælisdagur félagsins er á kvenréttindadaginn 19. júní. Kvenfélagið hefur, svo sem kven- félaga er háttur, komið að mörg- um framfaramálum í sínu samfé- lagi. Má þar nefna að félagið hóf á sínum tíma rekstur gæsluvallar í bænum og stofnaði síðar leik- skólann. Þá gaf félagið alla bekki í ldrkjuna í Ólafsvík. Félagið hef- ur einnig styrkt ýmsa starfsemi svo sem heilsugæsluna og grunn- skólann. Þá hafa félagskonur komið að undirbúningi þorrablóts bæjar- búa í gegnum tíðina og fyrir nokkrum árum komu þær á fót aðventuhátíð og hefur ágóði af þeirri hátíð runnið til safnaðar- heimilisins í Ólafsvík. -hj Amalíuborg í Stykkishóbni Starfsmannafélag Hafnarfjarðar fagnaði 65 ára afmæli sínu með því að fara í hópferð í Stykkishólm. Fé- lagið er eitt af elstu starfsmannafé- lögum landsins. I ferðinni var glæsilegt orlofshús félagsins tekið formlega í notkun og því gefið nafnið „Amalíuborg.“ Húsið er eitt af húsum þeim sem Skipavík ehf í Stykkishólmi hefur reist rétt ofan við Stykkishólm, við Nesvog á mjög fallegum stað. Er það búið öllum þægindum, svo sem heitum potti. Fjölmenntu Hafnfirðingamir og vom kátir með húsið sitt og stað- setninguna. Fannst þeim nafhið vel við hæfi miðað við danskan blæ Stykkishólms. Svo nú eiga Hólmar- ar sína Amalíuborg. DSH Félagar úr Starfsmannafélagi Hafnar- jjarðar skoöa nýja húsið við Nesveg. Dekurstofa á Akranesi Nýlega var opnuð ný snyrtistofa á Akranesi og nefnist hún Dekur- stofan. Þar býður Sigríður Marta Valsdóttir uppá dekur af ýmsu tagi. Hjá henni er hægt að ná sólarlanda- brúnkunni á 3 sekúndum, fá 1-3 daga airbrush tattoo, 2-5 ára varan- legt (tattoo), förðun, gervineglur og naglaskraut ásamt því að fá göt í eyrun. Dekurstofan er til húsa að Vesturgötu 133, í snyrtilegri og bjartri aðstöðu. Sigríður Marta er nýflutt, ásamt börnum sínum Gísla Val og Hönnu Margréti, aftur á Akranes. Sjálf er hún fædd og upp- alin í Keflavík en bjó áður á Akra- nesi frá árinu 1989 til 1997. Árið 2003 hóf Sigríður nám við naglaá- setningu og varð ári seinna Islands- meistari nema í því fagi. Síðan þá hefur áhuginn leitt hana lengra inná braut snyritgeirans og nú hef- ur hún einnig að baki nám í air- brushtækni (skraut á neglur og brúnka á líkama), og varanlegri förðun með jurtalitum. Sigríður segir tattooin hafa verið vinsæl jóla- gjöf í fyrra þar sem þau era ekki varanleg. I apríl á þessu ári fjárfesti hún svo í „instant tan“ brúnku- spreyklefa sem með skaðlausu efni spreyjar líkamann allann á 3 sek- úndum. „Þetta er eins og frískandi vatnsúði," út- skýrir Sigríð- ur, „sem svo er látinn þorna. Það er svo þetta efiii sem virkjar melanínið í húðinni til að f r a m 1 e i ð a brúnan lit, sömu áhrif og sólin bara engir útíjólu- bláir geislar,“ segir hún. Sigríður segir móttökur fólks við stofunni vera góðar og fólk almennt áhugasamt um þessar nýjungar sem í boði era. Þetta sé spennandi verkefni og hlakki mikið til komandi tíma. Hún bendir bara öllum á að líta við eða hringja og kynna sér málið frekar. BG Sigríður Marta ásamt syni sínum Gísla Val. Lögreglustöðin hverfur Síðasthðinn mánudag hófust starfsmenn Dodds ehf. handa við að rífa gömlu lögreglu- stöðina í Grundarfirði. Húsið stóð við Grund- argötu 33 í miðjum bænum og því vænleg byggingarlóð. Húsið var byggt árið 1945 og var rúmir 67 fermetrar að stærð. Auk lögregl- unnar höfðu Olíufélgið Esso og Verslun Ragn- ars Kristjánssonar að- stöðu í húsinu og síðast var Gallerí Grúsk þar til húsa. Grundarfjarðar- bær eignaðist húsið fyr- ir nokkrum árum. Samið var við Dodds ehf. um niðurrif hússins eftir útboð þar sem þrjú tilboð bárust. HJ/ Ljósm: SK Friðþjófur bæjarlistamaður Friðþjófur Helgason ljósmyndari hefur verið úmefndur bæjarlista- maður Akraness. Frá þessu var greint þegar menningarhátíðin Vökudagar var formlega sett á föstudaginn í Tónlistarskólanum á Akranesi. Friðþjófur er Akurnesingur og hóf störf sem blaðaljósmyndari árið 1973 og síðar sem kvikmyndatöku- maður hjá Ríkissjónvarpinu. Átrnd- anförnum árum hefur hann starfað við kvikmyndagerð ásamt Páli Steingrímssyni. Þrátt fyrir að Frið- þjófur hafi á síðari árum verið bú- settur syðra hefur hugur hans verið nátengdur Akranesi og í því sam- bandi má minnast þess að fyrsta framlag til Ljósmyndasafns Akra- ness kom ffá Friðþjófi og föður hans Helga Daníelssyni. Afhenm þeir feðgar safninu hluta af ljós- myndaverkum sínum jafúframt sem undirritað var samkomulag um að þeir afhenm safninu allar ljósmynd- ir sínar og filmur í fyllingu tímans. Við sömu at- höfú voru veittar viðurkenningar fyrir framlag til tónlistarmála á Akranesi. Annars vegar voru það fé- lagarnir úr hljóm- sveitinni góð- kunnu Dúmbó og Steina sem fengu viðurkenningu og hins vegar fékk Fríða Lárusdóttir tónlistarkennari viðurkenningu fyrir ffamlag sitt til. Afið athöfnina léku og sungu nemendur úr Tónlistarskóla Akra- ness. HJ Friðþjófitr Helgason, bœjarlistamaður ásamt Guðmundi Páli Jónssyni, biejarsfióra. Sjálfkjörið í stjóm VLFA AKRANES: Sjálfkjörið er í stjóm Verkalýðsfélags Akraness til næsm tveggja ára. Þetta kom í ljós þegar ffamboðsffestur rann út þann 5. nóvember. Aðeins einn listi barst, hsti stjórnar og trúnaðarráðs og er hann því sjálf- kjörinn. Formaður er sem fyrr Vilhjálmur Birgisson. Auk hans sitja í stjóminni Auður Ásgeirs- dóttir, Bryndís O. Guðjónsdóttir, Guðmtmdur Rúnar Davíðsson, Þórarinn Helgason og Svavar S. Guðmundsson. Eina breytingin var sú að Sigurgeir R. Sigurðsson ritari hætti í stjóm en í hans stað kom Guðmundur Rúnar nýr inn. -hj Kona fyrir bíl AKRANES: Á miðvikudaginn fyrir viku var ekið á gangandi vegfaranda á Skagabraut, til móts við Einarsbúð. Þar hafði eldri kona komið út úr Einarsbúð og gengið út á akbrautina og í veg fyrir biffeið sem ekið var ausmr Skagabrautina. Konan lenti uppi á vélarhlíf biffeiðarinnar og skall síðan harkalega niður í götuna og missti meðvitund. Hún var flutt með sjúkrabiffeið á SHA og reyndist hún vera mjaðmagrind- arbrotin og með skurð á höfði. Samkvæmt ffamburði vitna og ökumanns bifreiðarinnar bendir allt til þess að biffeiðinni hafi verið ekið á lítdlli ferð þegar slys- ið átti sér stað. -bg Tengibygging BORGARNES: Búið er að ganga frá verksamningi milli Borgarbyggðar og Sólfells um byggingu tengibyggingar milli Gamla pakkhússins og Búðar- kletts í Borgamesi sem hýsa mun starfsemi Landnámssemrs. Framkvæmdir fara af stað á næstu dögum og er ráðgert að þeim verði lokið eigi síðar en um miðjan apríl nk. Samningur um verkið hljóðar upp á tæpar 24 milljónir króna. Páll S Brynjars- son, bæjarstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að nokkrir verk- þættir hafi breyst, miðað við upphafleg útboðsgögn, og er því verkið ódýrara en útlit var fyrir. -mm Sjálfstæðisdag- ur Pólverja SNÆFELLSBÆR: Pólverjar búsettir í Snæfellsbæ halda á laugardaginn hátíðlegan sjálf- stæðisdag Pólverja. Sjálfstæðis- dagurinn er 11. nóvember en þann dag árið 1918 hlaut landið sjálfstæði. Um 80 Pólverjar eru búsettir í Snæfellsbæ og ætla þeir að minnast dagsins með hátíðar- höldum laugardaginn 12. nóv- ember kl. 20. Margt verður til gamans gert meðal annars verður söngur, dans, tónhst og einnig verða sýndar ljósmyndir ffá Pól- landi. Að sjálfsögðu verður einnig á boðstólunum pólskur matur. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þribjudögum. Auglýsendum er bent á a& panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þri&judögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og f lausasölu. Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánu&i en krónur 900 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritarar: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is Ófeigur Gestsson 892 4383 sf@simnet.is Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún StOlgeir Helgi 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.