Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2005, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 09.11.2005, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 2005 Sextug Sóla vill styrkja aðra á afinæli sínu Svo kunnug er Snjólaug Guð- mundsdóttir Borgfirðingum og Mýramönnum að hún, ásamt manni hennar Guðbrandi Brynj- úlfssyni á Brúarlandi, er eflaust í hugum flestra talin innfædd þar um slóðir. Svo er reyndar ekki því Snjó- laug er ísfirðingur, sem hefur um áratuga skeið búið í Borgarfjarðar- héraði. Snjólaug lagði á mennta- veginn frá Isafirði og kom ekki aft- ur. Átti ekki afturkvæmt frekar en flest þau ungmenni er héldu í ffam- haldsskóla á árum áður. Sem betur fer hefur ffamhaldsskólum fjölgað á undanförnum áratugum og gert unglingum kleift að dvelja lengur á heimaslóðum. Þann 14. nóvember verður Snjó- laug sextug. Ekki er það nú ffétt í sjálfu sér. Ekki heldur að haldin verði veisla af því tilefhi. Það er hins vegar sjaldgæfara að afmælis- börn afþakki gjafir en biðji um leið að öðrum verði gefhar gjafir. Hún hefur óskað eftir því að þeir sem vilja gleðja hana á þessum tímamót- um gefi til söfhunar til kaupa á hjólastólabiffeið fyrir Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Þegar blaðamaður hafði samband við Snjólaugu vegna þessarar ó- venjulegu óskar var hún á fullu við undirbúning gleðifundarins, en svo kallar hún affnælisveislu sína. Þar var listakonan Sóla í essinu sínu. Hún var að útbúa skreytingar fyrir afmælið og hún leitar til upprtmans á ísafirði. Búin að tína steina og höggva þá tdl svo þeir beri kerti. Það eru æskufjöllin sem skýldu. Hún var einnig að þurrka þara sem hún ætlar að nota til skrauts. Fjaran Snjdlaug Guðmundsdóttir á vinnustofu sinni. var leiksvæði æskunnar þar sem freyddi aldan köld. Afmælisbarnið hefur ávallt tengst listum með einum eða öðrum hætti. Hún nam vefnað og hefur haldið sýningar með veflistaverkum sýn- um. A seinni árum hefur hún tdl- einkað sér fleiri listgreinar og hefur sett upp sölugallerí við heimabæ sinn, Brúarland á Mýrum. Þar kennir margra grasa sem sýna að Snjólaug er ekki við eina fjölina felld í listsköpun sinni. Snjólaug segist vera komin á þann aldur að þurfa engar gjafir en hún hafi um tíma komið að starfi Dvalarheimils aldraðra í Borgarnesi og því hafi hún vitað af söfhuninni fyrir biffeiðinni. Það sé málefhi sem virkileg þörf sé á að styrkja og því hafi hún notað tækifærið á þessum tímamótum í sínu lífi til þess að vekja athygli á söfnuninni. Hún vonist því eindregið til þess að allir sem vilja gleðja hana við þessi tíma- mót leggi söfnuninni lið. Margrét Guðmundsdóttir starfs- maður Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi segir að söfhunin hafi byrjað í árslok 2001. Frumkvæðið kom frá starffnönnum bensínstöðv- arinnar í Hymunni og Sigurði B. Guðbrandssyni íbúa á dvalarheim- ilinu. Hún segir að þrátt fyrir að margir hafi komið að söfnuninni með veglegum hætti, meðal annars Kiwanismenn, megi ennþá gera betur og því sé ffamtak Snjólaugar mikið fagnaðarefhi. Þeir sem leggja vilja söfuninni lið en taka ekki þátt í gleðifundi Snjó- laugar geta lagt fjárffamlög á reikn- ing 0326-18-934303 kt. 430371- 0109 í KB-banka í Borgarnesi. Eins og áður sagði verður Snjó- laug sextug þann 14. rióvember. Gleðifundur hennar verður hins vegar í félagsheimilinu Lyngbrekku laugardaginn 19. nóvember og hefst kl. 17.30. Þar verður baukur fyrir söfhunina sem verður afhentur Dvalarheimilinu að fagnaði lokn- um. HJ Ungir írumkvöðlar í utanlandsferð Síðustu mánuði hafa ungir ffum- kvöðlar á aldrinum 15-20 ára setið námskeið og hafa tvö slík námskeið verið haldin hér á Vesturlandi. Þessi námskeið eru hluti af Evrópuverk- efninu Ungir frumkvöðlar, eða Yotrng Entrepreneur Factory, sem hefur það að markmiði að þroska og efla frumkvöðlakraff ungs fólks í hinum dreifðari byggðum á norð- urslóðum. Verkefnið er leitt af Impru nýsköpunarmiðstöð hér- lendis en auk Impru taka þátt í verkefninu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi - SSV þróun og ráðgjöf og atvinnuþróunarfélögin vítt og breytt um landið. Verkefhið er unn- ið með stuðningi ffá Norðurslóðaá- ætlun Evrópusambandsins og Byggðastofhun. G. Agúst Pétursson, stjórnarfor- maður ffumkvöðlaffæðslunnar, hef- ur verið leiðbeinandi á námskeið- unum en alls hafa til þessa u.þ.b. 60 ungmenni sótt námskeiðin. Það er samdóma álit ungmennanna að námskeiðin hafi bæði verið ffóðleg og afar skemmtileg. Um er að ræða samtals 30 tíma námskeið sem hafa verið haldin yfir eina helgi. Námskeið hafa nú þegar verið haldin á Snæfellsnesi, í Dölum, á Sauðárkróki og á Akureyri og gafst sigurvegurum á þessum námskeið- Þátttakmdumir í Svíþjóðarferðinni. um kostur á að fara til Svíþjóðar og hitta þar unga frumkvöðla frá Skotlandi, Noregi og Svíþjóð. Alls fóru 7 ungmenni til Svíþjóðar fýrir hönd íslands, tvö ffá Stykkishólmi, tvö ffá Sauðárkróki og þrjú úr Döl- unum. Einnig var haldið námskeið á Blönduósi þar sem ungmennum í vinnuskólanum var í tilraunaskyni boðið að sækja frumkvöðlanám- skeið yfir eina helgi. Tilraunin tókst með miklum ágætum og má búast við ffamhaldi þar á. Frá Stykkis- hólmi fóru í ferðina þær Guðrún Magnea Magnúsdóttir og Olöf Rún Ásgeirsdóttir en úr Dalasýslu þeir Auðunn Haraldsson, Asþór Aron Þorgrímsson og Þórður Gísli Guð- björnsson. Fararstjórar voru þau Inga Dóra Halldórsdóttir og G A- gúst Pétursson. Islensku ungmennin tóku þátt í fjögurra daga dagskrá þar sem þeim gafst m.a. kostur á að heimsækja tækniháskóla og ffæðast um starf- semi tæknigarða þar sem markvisst er reynt að vinna að því að vekja á- huga ungs fólks á tækni og vísind- um. Einnig var þátttakendum falið að vinna að verkefhi sem fólst í því að þeim var skipt upp í fimm hópa og hver hópur fékk tæpan sólar- hring til að koma með viðskipta- hugmynd, útfæra hana, framkvæma og kynna niðurstöður. Ljóst er að verkefnið Ungir ffumkvöðlar á fullt erindi við ís- lensk ungmenni og áformað er að halda slík námskeið víða um land á næstu misserum. A Vesturlandi er stefnt að því að halda námskeið í byrjun næsta árs og þá í Borgarnesi. IDH

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.