Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2005, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 09.11.2005, Blaðsíða 19
 MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 2005 19 Pólskir starfsmenn starfs- ✓ mannaleignnnar 2b til Istaks ístak hf. hefur fengið atvinnuleyfí fyrir Pólverjana 14 sem starfað hafa án atvinnuleyfa á Grundartanga á vegum starfsmannaleigunnar 2b. Vinnumálastofnun samþykkti at- vinnuleyfin frá sér í gær, þriðjudag. „Það er því orðið ljóst að Pól- verjarnir 14 eru ekki lengur að starfa hér á landi á vegum starfs- mannaleigunnar 2b. Istak og Verkalýðsfélag Akraness hafa í sam- einingu unnið að því finna farsæla lausn á málefiium pólsku starfs- mannanna og hefur það nú loksins tekist. Þessi leið sem nú er farinn er sú sama og þegar Verkalýðsfélag Akraness leysti mál pólverjanna 5 sem starfa hjá Spútoik bátom á Akranesi. Við fögnum því að farsæl lausn hefur fundist á þessari deilu og ljóst að sú mikla óvissa sem pólsku starfsmennirnir hafa búið við að undanförnu hefur verið eytt með þessu samkomulagi,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA í samtali við Skessuhorn. Það er einnig mat félagsins að hagsmunir og starfsöryggi pólsku starfsmannanna séu mun betur tryggðir nú eftir að þeir urðu laun- þegar hjá ístaki. Eins og margoft hefur komið ffam kærði Verkalýðs- félag Akraness og Félag iðn og tæknigreina meint lögbrot starfs- mannaleigunnar 2b til Sýslumanns- ins í Borgamesi. Nú hafa félögin hins vegar ákveðið að falla frá kæranni þar sem farsæl lausn er komin í málið. MM Adi Már sigraði Borgarfj arðarædol 2005 Síðastliðið föstudags- kvöld stóð Ungmennafé- lagið Islendingur fyrir Borgarfjarðarædoli í Brún í Bæjarsveit. 11 manns tóku þátt í keppninni og var mjög erfitt hjá dómnefnd- innni að velja á milli kepp- enda í úrslit og gerðist það sem ekki hefur gerst áður að allir komust áffarn eftir fyrstu umferð. Dómarar voru Snorri Hjálmarsson, Björn Haukur Einarsson og Elísabet Axelsdóttir. Kynnir var Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson Bakkakoti, Borgarfjarðarædol síðan í fyrra. Mikil stemning var í hús- inu þegar 170 áhorfendur kusu Atla Má Bjömsson 17 ára úr Bæjarsveit, nemanda í Menntaskólanum í Kópa- vogi, Borgarfjarðarædol 2005. I öðru sæti varð Asta Kristín Guðmundsdóttir nemandi LBHÍ og í 3. sæti Haukur Gunnarsson á Hvanneyri. Hljómsveit hússins spil- aði undir en hana skipa Dóra Erna Asbjörnsdóttir hljómsveitarstjóri, Asbjarn- arstöðum, Sigurður Jak- obsson Varmalæk, As- mundur Sigurðarsson Varmalæk og Helgi Eyleif- ur Þorvaldsson Brekkukoti. Skemmtiatriði voru milli söngatriða. Ur Lunda- reykjadalnum kom Helgi Björnsson á Snartarstöðum og flutti hann texta við þekkt dægurlag og Barbara Guðbjartsdóttir sem var í þriðja sæti í fyrra tók lagið í seinna hléinu. Segja má að skemmtileg hefð sé komin á Ædolinu í Brún þar sem öll fjölskyldan getur skemmt sér saman góða kvöldstond. Sigurvegarinn; Atli Már Bjömsson. MM n _ . ^ 'etuutuu—. Tilkynning frá forstjóra Landmælinga Islands Um ummæli forsvarsmanna Loftmynda ehf. um Landmælingar Islands Undanfarna daga og vikur hafa talsmenn fyrirtækisins Loffmynda ehf. ítrekað lagt lykkju á leið sína í greinum og viðtölum við fjölmiðla til að reyna að koma höggi á Land- mælingar Islands og ekki vílað fyrir sér að grípa til dylgja og órök- studdra fullyrðinga. Það er miður að ákafinn hafi leitt menn í þessar gönur en sem kunnugt er ásælast Loftmyndir ehf. mjög þau verkefni sem Landmælingum Islands er falið að vinna samkvæmt lögum ffá Al- þingi. Landmælingar íslands hafa aldrei kveinkað sér undan málefhalegri gagnrýni. Þó verður ekki undan því vikist að gera athugasemd við hnútuköst Loftmynda ehf. þar sem ummælunum virðist beinlínis ætlað að trufla setoingu nýrra laga um landmælingar og grunnkortagerð en ffumvarp þar að lútandi verður lagt ffam á næsto vikum. Starfshópur umhverfisráðherra hefur skilað niðurstöðum sem munu geta þjónað sem vegvísir til ffamtíðar. Þær fela meðal annars í sér að í nýju lögunum verði skerpt á hlutverki og verkaskipan Landmæl- inga íslands auk þess sem stofnunin dragi sig úr samkeppnisrekstri. Um það ætti að geta náðst almenn sátt. Umhverfisráðherra hefur ennfrem- ur lýst því yfir að æskilegt sé að op- inberir aðilar tryggi tilvist og að- gengi að ákveðnum grunngögnum og að það verði hlutverk Landmæl- inga Islands. Eins og áður segir munu alþing- ismenn fjalla um málið ffá öllum hliðum á næstu vikum. Það er von mín og starfsmanna Landmælinga Islands að þeir hafi almannahags- muni í öndvegi en láti dylgjur og ó- hróður Loftmynda ehf. sem vind um eyru þjóta. Þá er rétt að halda því til haga að Landmælingar hafa lagt sig ffam um að eiga gott samstarf við Loft- myndir ehf. og hefur fyrirtækið meðal annars unnið afmörkuð kortagrunn- inn IS 50V fyrir Landmælingar. Hjá Landmælingum íslands, sem fluttar voru á Akranes árið 1999 til að styrkja atvinnulífið á lands- byggðinni, starfa rúmlega 30 manns þar af rúmur helmingur konur, og hafa 70% starfsfólksins háskólamenntun að baki. Land- mælingar Islands voru ein 5 stofn- ana sem tilnefndar vora af fjármála- ráðherra sem fyrirmyndarstofnun árið 2004 og einnig hefur komið ffam mikil og almenn ánægja ís- lendinga með störf og vörur stofn- unarinnar. I spumingavagni Gallup í september 2004 voru 78% lands- manna mjög eða frekar ánægðir með störf Landmælinga Islands og 86% þeirra voru mjög eða ffekar á- nægðir með gæði vara sem stofhun- in gefur út og dreifir. Virðingarfyllst Magnús Guðmundsson forstjóri Hljómdiskurinn Kata Rokkar með helstu lögum og textum Theódórs Fr. Einarssonar er til sölu í verslunum Skífunnar og Pennans. Getum við aðstoðað þig? Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ársreikningar, skýrslur, ritgerðir & handbækur stafræn prentun & frágangur Kveldúlfsgötu 23-310 Borgarnes 437 2360 - 893 2361 olgeirhelgi@islandia.is + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi. EinarJóhannesson bóndi Jarðlangsstööum í Borgarbyggð lést á Sjúkrahúsi Akraness 3. nóvember. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju mánud. 14. nóvember kl. 14:00. Sigríður Bárðardóttir Sigríður Bára Einarsdóttir Þuríður Einarsdóttir Friðrik Alexandersson Kristín Einarsdóttir Lárus Þ. Sigurðsson Fanney Einarsdóttir Brynjólfur Brynjólfsson Jóhannes Guðmundur Einarsson Kristína H. M. Elizondo Barnabörn og barnabarnabörn ískraft\

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.