Skessuhorn - 09.11.2005, Blaðsíða 23
SffieSSIÍMieEK
MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 2005
23
Vesturlandsliðin
töpuðu - og unnu
SNÆFELL:
Föstudaginn 4. nóvember hófst
8 liða úrslið Powerade deildarinn-
ar í körfubolta. KR tók á móti
Snæfelli og lauk fyrri viðureign
þeirra með 62-57 sigri KR. Seinni
leikur þessara liða fór svo fram
sunnudaginn 6. nóvember sem
lauk með sigri Snæfellinga 66-62.
Igor Beljanski átti flest stigin í
þeim leik, eða 24 stig. Næstur var
Ingvaldur Hafsteinsson með 13
stig og Jón Ó. Jónsson með 12.
Þá átti Lýður Vignisson 8 stig og
Helgi R. Guðmundsson 6. 2 stig
skoraði Árni Ásgeirsson og
Sveinn A. Davíðsson átti 1.
SKALLAGRÍMUR:
Fyrri leikur Skallagríms og
Fjölnis í Powerade bikarnum fór
einnig fram 4. nóvember í Borgar-
nesi. í þeim leik beið Skallagrím-
ur lægri hlut fyrir liði Fjölnis eða
með 104 stigum gegn 114. Seinni
leikur liðanna fór fram sunnudag-
inn eftir og náði þá Skallagrímur
að jafna hlut sinn með 90-83 sigri
á Fjölni. í þeim leik átti Jovan
Zdravevski flest stig eða 33.
Christopher Manker skoraði 13
stig, Axel Kárason 12 stig, Hafþór
I. Gunnarsson 10, Áskell Jónsson
5 og Pétur Sigurðsson 3.
BG
Sólfell vann fyrir-
tækjamótið í skák
Síðastliðna helgi fór fram fyrir-
tækjakeppni í skák í Borgarnesi.
Það er skáknefnd UMSB sem
stóð fyrir keppninni sem vonast
er til að verði árleg hér eftir. Um
20 ár eru síðan keppni í skák milli
fyrirtækja var haldin í Borgarnesi
síðast og var skákstarfi lítið sinnt
um árabil. Athygli vakti góð þátt-
taka fyrrverandi íbúa í Miklaholts-
hreppi en þar var mikið teflt með-
an Sæmundur Bjarnason bjó á
Vegamótum því hann bauð til sín
hreppsbúum til að tefla. Sigur-
sveitin að þessu sinni var ein-
göngu skipuð skákmönnum sem
notið hafa leiðbeininga Sæmund-
ar.
lingum en fyrirtækjum var í sjálfs-
vald sett hvort keppendur væru
starfsmenn fyrirtækisins eða ekki.
Þessi fyrirtæki voru Borgarverk,
Búnaðarsamtök Vesturlands, Eð-
alfiskur, Glitstaðir, Loftorka og
Sólfell. Svo fór að Sólfell bar sig-
ur úr bítum og fékk 11 vinninga af
15 mögulegum og farandbikar. í
öðru sæti var Borgarverk og í því
þriðja Búnaðarsamtök Vestur-
lands. Veitt voru verðlaun fyrir
besta árangur á hverju borði og
komu þau í hlut Sólfells - Bjarna
Sæmundssonar á 1. borði, Eðal-
fisks - Harðar Arons Haukssonar
á 2. borði og Sólfells - Önnu Ein-
arsdóttur á 3. borði.
Sex fyrirtæki tóku þátt í mótinu GS
og sendu eina sveit hvert. Hver
sveit var skipuð þremur einstak-
Sigursveitin frá Sólfelli: Bjarni Sæmundsson og systkinin Anna Einarsdóttir og Þorgeir
Einarsson.
Skaga - Kobbi á
heimsmælikvarða
Skagamaðurinn Jakob Bald-
ursson var maður Bikarmótsins í
kraftlyftingum sem fram fór 5.
nóvember sl. Hann varð stiga-
hæsti maður mótsins og þríbætti
íslandsmetið í bekkpressu í 110
kg flokki þar sem hann lyfti 290,
270 og 230 kílóum eða samtals
790 kg. í hnébeygju lyfti hann 290
kg. sem einnig var góð bæting og
var svo með þessa fínu lyftuseríu
á bekknum, þ.e. 250, 260 og 270
kg. sem hver um sig var íslands-
met. í réttstöðulyftu lyfti Jakob
230 kg. Jakob vann besta afrek
mótsins en árangur hans í bekk-
pressu á mótinu, þegar hann lyfti
270 kílóum, er 6. besti árangur í
heiminum.
MM
Jakob Baldursson.
Lionsmót Skallagríms
Hið árlega Lionsmót Skalla-
gríms var haldið dagana 5. og 6.
nóvember í sundlaug Borgar-
ness. Til leiks mættu rúmlega 100
keppendur á aldrinum 5 - 12 ára
frá 6 sundfélögum og var keppt í
25 greinum. Gestir Skallagríms að
þessu sinni voru Afturelding í
Mosfellsbæ, Húnar á Hvamms-
tanga, Snæfell í Stykkishólmi,
Sundfélag Selfoss og Víking-
ur/Reynir í Ólafsvík. Gestirnir
gistu í Grunnskóla Borgarness og
var öll umgengni þeirra um hús-
næðið til mestu prýði. Mest var
þátttakan í yngstu aldursflokkun-
um og margir keppendur að
synda sín fyrstu sundtök á móti
enda aðstaða til keppni í yngri-
flokkum góð í innilauginni. í heild-
ina tókst mótið með ágætum og
voru eldri keppendur flestir að
bæta fyrri árangur. Það setti svip
á mótið að landsliðsþjálfarinn í
sundi, Brian Daniel Marshall var
staddur á bakkanum á laugar-
daginn og kynnti keppendur til
leiks á skemmtilegan og fróðleg-
an hátt sem varð keppendum
hvatning til góðra verka.
Eins og undanfarin ár styrkti
Lionsklúbbur Borgarness mótið
með myndarlegu fjárframlagi. Þá
lagði Sparisjóður Mýrasýslu
einnig lið en hann hefur um árabil
gefið þátttökupeninga á mótinu
og Borgarnes kjötvörur og Sam-
kaup Úrval veittu góða afslætti af
matvörum. Sunddeild Skalla-
gríms þakkar öllum þeim sem
styrktu mótið á einn eða annan
hátt fyrir framlag sitt og síðast en
ekki síst starfsfólki íþróttamið-
stöðvar og grunnskóla fyrir hjálp-
semi og liðlegheit við undirbúning
og framkvæmd mótsins.
(Sunddeild Skallagríms)
SVEFNSOFAR í sterku áklæði
2 stærðir-3 litir-eitt verð
•VERZLUNI
431 2507
KALMANSVÖLLUM
AKRANESI
Laust starf skrifstofumanns á
Skattstofu Vesturlandsumdæmis
Starfið:
Starfið er við álagningu, eftirlit og aðra framkvœmd við virðisaukaskatt.
Hœfisskilyrði:
Æskilegt er að umsœkjandi hafi háskólapróf í lögfræði eða viðskiptafrœði, eða reynslu og
kunnáttu í bókhalds- og skrifstofustörfum. Þekking á skattframkvæmd er æskileg, svo og
jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
í boði eru góð starfsskilyrði og áhugaverð verkefni. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra og BHMR eða BSRB. Laun taka ennfremur mið af einstaklingsbundnum
hæfileikum og frammistöðu í starfi. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til 21. nóvember 2005. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun,
fyrri störf, meðmœlendur og annað sem umsœkjandi vill taka fram skal skilað til skattstjóra,
Stefáns Skjaldarsonar, sem gefur nánari upplýsingar um störfin í síma 430 2900.
| Upphaf starfs: Miðað er við að nýr starfsmaður hefji störfsem fyrst.
| Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
5 Skattstjórinn íVesturlandsumdœmi - Stillholti 16-18 - 300 Akranes