Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2005, Side 10

Skessuhorn - 09.11.2005, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 2005 attUSUItuU Hippatíminn endurvakinn í f)örugu leik- og söngverki: Hunangsflugur og Villikettir Það er óhætt að segja að það hafi verið stór stund í sögu Grundaskóla á Akranesi sl. laugardag þegar frumsýning á söngleiknum Hun- angsflugum og villiköttum fór þar ffam fyrir troðfullu húsi. Enn á ný sönnuðu nemendur og starfsfólk með ótvíræðum hætti hversu feik- iöflugur skóli þetta er. Sýningin var í alla staði ffábær hvort heldur sem um er að ræða handrit, tónlist, leik- stjórn, leikræna tilburði eða sam- þættingu allra þessara þátta. Söngleikurinn er í fullri lengd, miðað við sýningar áhugaleikhópa almennt, en með hléi tók hún tæp- ar tvær klukkustundir. Leikgleði krakkanna var mikil og á stokk stigu margir ungir og efnilegir leik- og söngvarar sem vafalaust eiga eftir að gera það gott í ffamtíðinni. Ekki eina sekúndu fékk áhorfandinn á tilfinninguna að eitthvað væri ekki að ganga sem skildi, þannig að úr varð ein besta áhugaleikhússýning sem undirritaður hefur séð, jafnvel án þess að horft sé til aldurs leikara. Leikstjórn er í höndum Einars Viðarssonar en tónlistarstjóri er Flosi Einarsson. Þeir félagar sömdu jafnframt handrit og lög ásamt Gunnari Sturlu Hervarssyni fyrrum kennara við skólann sem á nokkur þeirra 13 laga og texta sem flutt eru. Þeir Einar og Flosi hafa lagt allt sitt í verkið og í raun miklu meira en Villikettimir finna hér sjórekinn sptra sem þeir hygg/ast nota til aí fiármagna hljóífæra- kaup sín. Margtfer öðruvísi en til stóð og voru þeirfyrir vikið nánast bannfœrðir af Stúkunni. Leikurum og öðrum aðstandendum sýningarinnar var vel tekið í frumsýningarlok. hægt er að ætlast til að einstakir starfsmenn nokkurs skóla geri. Eiga þeir sérstakan heiður skilinn fyrir ffamlag sitt. Söngleikurinn Hunangsflugur og Villikettir fjallar um unglinga á Akranesi í kringum 1970. I bænum eru tvö gengi sem eiga í stöðugri baráttu um völd, ffægð og ffama og líkt og svo oft í annan tíma er ljóst að aðfluttir einstaklingar sitja ekki við sama borð og innfæddir í þeirri baráttu. Þessi barátta er háð í götu- bardögum, á fótboltavellinum í gegnum félagsstarf og í skólanum. Aðalsögupersónan Elvar er nýflutt- ur í bæinn frá Hljómabænum Keflavík, sonur bandarísks her- manns sem féll í Víetnamstríðinu. Við komu sína í bæinn leiðir Bóbó frændi hans hann til fundar við Effi Skagaklíkuna, piltana sem eiga sér einlægan draum um frægð og frama á hljómsveitarsviðinu og stofha þeir bandið Villikettina þar sem Elvar er fljótlega skipaður söngvari. Piltarn- ir í Villiköttunum eiga í stöðugum erjum við Halla og fína gengið hans af Neðri Skaganum. Ekki bamar á- standið þegar Elvar hrífst af Júlíu, sætu stelpunni sem er næsmm því kærasta Halla aðalgæjans í Neðri Skaga klíkunni og söngvara í hljómsveitinni Hunangsflugunum. Báðar hlómsveitirnar eiga þann draum heitastan að spila á stóra stúkuballinu enda felst í því mikil félagsleg virðing meðal unglinga í bænum. Verkið fjallar síðan um ör- lög krakkanna á bak við þessar hljómsveitir þar sem ástin, valda- barátta, landafundur í fjörunni við Ytri Hólm og ýmislegt annað kem- ur við sögu. I Hunangsflugum og Villikötmm tekst höfundunum að tengja í góðu flæði söguþráð í texta og tónum. I verkinu koma mgir nemenda af unglingastigi Grundaskóla við sögu. Það er erfitt og í raun ósann- gjarnt að draga einhverja einstaka leik- og söngvara ffam í dagsljósið umfram aðra því ALLIR ungling- arnir í þessari sýningu sem og hún Sigurbjörg Ragna stóðu sig með mikilli prýði. A þetta jafht við um aðalleikarana, þau Arnþór Inga Kristinsson, Huldu Halldórsdótmr, Olaf Helga Halldórsson og Krist- inn Agúst Þórsson og þá sem voru í öðrum hlutverkum eða í verkefnum baksviðs. Þó má segja að undirrit- aður verði mest spennmr þegar fram líða stundir að fylgjast með ár- angri Arnþórs Inga, sérstaklega á tónlistarsviðinu. Aðrir félagar í Neðri- og Effi Skagaklíkunum skil- uðu sínum hlutverkum með sóma sem og þeir sem í smærri hlutverk- um voru. Veikur hlekkur var þar hvergi. Aðrir þættir svo sem sviðs- mynd, hljóð, lýsing og búningar, allt átti þetta sinn þátt í að skapa heildstæða sýningu og átti áhorf- andinn afskaplega auðvelt með að lifa sig inn í hippatímann í dæmi- gerðum íslenskum útgerðarbæ þar sem stöðug barátta er um völd, ffægð og frama. Þess má geta að gefinn hefur ver- ið út hljómdiskur með tónlist Hun- angsfluga og Villikatta og hefur hann að geyma mörg ágæt lög í anda tímabilins. Lög þessi er gaman að hlusta á aftur og aftur og leynast þar inn á milli ágætar perlur sem vonandi eiga eftir að hljóma á öld- um ljósvakans næstu misserin. Ekki er nokkur vafi að hér er á ferðinni leikverk sem á mikið erindi jafnt til fullorðinna, sem endurlifa vilja gamla hippatímann, sem yngra fólks. Eg trúi ekki öðru en bæjarbú- ar, margir hópar af unglingastigi grunnskólanna á Vesturlandi sem og aðrir áhugasamir um góð áhuga- leikverk muni fjölmenna á sýningu nemenda Grundaskóla. Framundan er nokkuð stíft sýningarplan í nóv- ember og gera aðstandendur ráð fyrir því að söngleikinn sjái ekki færri en 3 þúsund manns. Enginn þeirra verður svikinn. Til hamingju Grundaskóli! Magniís Magmtsson. ifauOMMt Skyldi drottinn skammast sín? - Hann skapaði mig svona. Einhverntíman meban getnab- arvarnir voru ekki eins ab- gengilegar ungu fólki og nú er, var kvebib og þætti mér fengur í ef einhver vissi um höfund meb því öryggi ab eftir vœri hafandi: Barnib kenndi barni barn, - barnib barnar varla! Ab halda ab barnib barni barn barnaskap má kalla. Mabur nokkur kom þar ab sem strákur um fermingu var ab fljúgast á vib fulltíba stúlku og stakk eftirfarandi ab húsrábanda: lllt er ab varast ungvibin þó af þeim lítib kembi. Saumabu fyrir sumrunginn svo hann ekki lembi. Þab var haft eftir jökuldœlingum ab þab væri allt ílagi meb tímann, þab kæmi meira af honum. Þetta er hinsvegar spurning um nýtingu eba samnýtingu á fyrirbærinu. Sigurbur j. Císlason frá Skarbsá var spurbur ab því hvort hann hefbi ekkert ort nýlega og svarabi: Þótt ég geri stöku stöku stöku sinni. lítt ég því ab sinni sinni, sinni bara vinnu minni. Eilífbarmálin hafa löngum verib mönnum hugleikin og Bjarni frá Cröf hafbi þetta ab segja þar um: Þó líkaminn sé lúka af mold og líklega brenni í víti sálin, finnst mér gott ab hafa hold - þab hressir upp á kvennamálin. Þegar ein af okkar œgifögru fegurbar- drottningum var send til fegurbarmats í útt- landinu var talab eitthvab um kostnab í því sambandi. Varb þab Braga Björnssyni tilefni eftirfarandi: Farinn veg í frægbar pub fórst ótreg úr landi, þín er fegurb - þab veit Gub- þjóbhagslegur vandi. Eftir Sigurb j. Gíslason er hinsvegar þessi hugleibing: Hvab er leir í líki manns? Leikfang einhvers meistarans, eba skáldverk skaparans til skemmtilestrar englum hans. Ekki taldi Káinn gamli sig til stórskálda þó vísur hans hafi lifab betur mebal fólks en margt þab sem á sínum tíma þótti merki- legra. Einhverntíman lýsti hann kvebskap sínum á þessa leib: Mín eru Ijób ei merkileg mínir kæru vinir en oft og tíbum yrki ég öbruvísi en hinir. Elis Thorvaldsson kaupmabur var í síman- um þegar mabur kom inn og hafbi svo hátt ab Elis sá sig tilneyddan til ab hasta á hann meb þessum orbum: Go to hell! Keep quiet! Varb þab Káinn tilefni þessarar hugleibing- ar: Meistari Elis á nú bágt öllum vel ab þjóna. „Go to hell" en hafbu lágt, hann er ab „telefóna." Og um Ióhannes lækni kvab Káinn: Um sig hljótt þó hafi stundum hugar rótt meb þel, léttasótt íljúfum sprundum læknar fljótt og vel. Þab er nú svo meb þessa blessaba létta- sótt ab hún læknast oft meb lítilli hjálp þó aubvitab geti út af því borib en þrálát virb- ist hún vera mannkyninu eba kannske frekar kvenkyninu. Þorbjörg Eiríksdóttir frá Ásgeirs- stöbum lýsti sjálfri sér svo: Er ég fyrir ást og vín enda blóbheit kona. Skyldi drottinn skammast sín? - Hann skapabi mig svona! Hér ábur var algengt ab heita á kirkjur og helga menn (eba jafnvel óhelga) til ab eitt- hvab gengi mönnum ab óskum. Ekki var þó Kristján Runólfsson á Saubárkróki mjög hall- ur undir þessi fræbi: Áheit voru uppgötvub af ágirnd klerka. En varla þarf ab ginna Gub til góbra verka. Eitthvab hefur Þormóbi Eiríkssyni þótt ímynd þrenningarinnar vera farin ab láta á sjá þegar hann orti: ímynd Krists menn engu fórna, engir hlýba á prestaraus. Heiminum Gub er hættur ab stjórna, heilagur andi getulaus. Þab er kannske ekki vert ab hella sér út í miklar umræbur um getu eba getuleysi en 58 ár mun vera þab lengsta sem ég man til ab hafa heyrt um á milli samfebra hálfsystk- ina og ekki er ég þó fjölfróbastur manna um þau mál. Stefán Vagnson orti um roskinn mann sem þó hefur verib furbu ern: Flogib hingab hefir sá hávær orbasveimur, ab Þorsteinn gamalsaldri á átt hafi börn meb tveimur. Hlabinn gikt sem drjúgum dró dug og kjark úr honum, þetta gat sá gamli þó gert meb fjósverkonum. Eftir Hrönn jónsdóttur er þessi ágæta limra um tilurb eins ímyndabs íslendings sem eftir verklýsingu ab dæma hefur væntanlega ver- ib Strandamabur: Kyntröllib Þórarinn Þorn íþarabing vestur vib Horn. Varb fabir ab barni bjáninn sá arni, því verjan var fúin og forn. Annars getur verib tryggara ab fara var- lega í sakirnar þegar ellin færist yfir. Sigurb- ur Ó. Pálsson lýsti svo lífshlaupi eins framá- manns í þjóblífinu: Hann byrjabi ungur sem baráttufrík og barst þannig inn í pólitík, komst inn á þing, varb þjóbhetja slyng. Áttrœbur dó hann - úr erótík. í síbasta þætti birti ég vísu Teits Hartmann um Eskifjarbarbúa og er því ekki nema rétt- látt ab hér komi svarvísa Péturs B. jónssonar og látum vib þar meb þessum þætti lokib: Sitt þá mokar sálarfjós signor Teitur fíni, hann sitt andans lætur Ijós loga í brennivíni. Meb þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöbum 320 Reykholt S435 1367 og 849 2715 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.