Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2005, Side 15

Skessuhorn - 09.11.2005, Side 15
■»..L MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 15 Orkan fylgir Bónusi til Akraness Við undirritun samninga milli Akraneskaupstaðar, Bónuss og SS verktaka um úthlutun lóðar undir starfsemi Bónuss á Akranesi sagði Jóhannes Jónsson kaupmaður að Orkan myndi opna bensínstöð á lóð verslunarinnar. Reiknað er með að verslunin opni vorið 2007. Að lokinni undirritun samninga lýsti Jóhannes Jónsson ánægju sinni með að nú styttist í að hægt yrði að opna verslun á Akranesi. Sagði hann að embættismaður hjá bæn- um hefði látdð þau orð falla að eng- inn væri bærinn án Bónuss. Sem kunnugt er hefur Bónus boðið sama verð í verslunum sínum um land allt. Aðspurður sagði Jóhann- es engar hugmyndir uppi um breytingar á þeirri stefnu. Stefnan væri að bjóða ávallt lægsta verðið. Guðmtmdur Páll Jónsson bæjar- stjóri bauð Bónus velkominn í bæ- inn og óskaði fyrirtækinu alls hins besta. Hin nýja verslun Bónus mun rísa á horni Þjóðbrautar og þjóðvegar- ins inn í bæinn. Það eru SS verk- takar sem sjá munu um byggingu hússins sem verður um 2.000 fer- metrar að stærð. HJ OR kynnir starfsemi sína í Grundarfirði Orkuveita Reykjavíkur kynnti á dögunum starfsemi sína fýrir íbú- um Grundarfjarðar. Sem kunnugt er festi Orkuveitan kaup á Vatos- veitu Grundarfjarðar og tekur við rekstri hennar um næstu áramót. Samhliða kaupum á vatosveitunni var gerður samningur um byggingu hitaveito í Grundarfirði. Þegar starfsemi hefst í Grundarfirði verð- ur Orkuveitan með starfsemi í 22 sveitarfélögum. Að sögn Bjargar A- gústsdóttur var fundurinn afar gagnlegur íbúum enda mætin góð. Hjf/Ljósm: SK Störf auglýst við nýjan leikskóla í Borgamesi Borgarbyggð hefur auglýst eftir leikskólastjóra og leikskólakennur- um á nýjan leikskóla sem byggja á í Borgarnesi. Að sögn Asthildar Magnúsdóttur, forstöðumanns ffæðslu- og menningarsviðs er ætl- unin að opna nýjan tveggja til þriggja deilda leikskóla á næsta ári. „Fyrst um sinn verður starfrækt ein deild, fyrir 2ja til 3ja ára börn, í bráðabirgðahúsnæði á meðan nýtt húsnæði sem reisa á í Stöðulsholti er í hönnun og byggingu. Deildin verður opnuð í janúar 2006 og á- formað er að nýja húsnæðið verði tekið í notkun um ári síðar,“ segir Ásthildur. í síðustu viku auglýsti Borgar- byggð stöðu leikskólastjóra í fullt starf frá og með 1. janúar nk. Með- al verkefna hans fyrsta árið er að taka þátt í undirbúningi og hönnun húsnæðis og innra starfs hins nýja leikskóla auk þess að stjórna leik- skóladeild í bráðabirgðahúsnæði. Einnig eru auglýstar stöður leik- skólakennara ffá næstu áramótum við nýja skólann. I allar stöðurnar er óskað eftir því að faglært fólk sæki um, en ef ekki fást leikskóla- kennarar til starfa áskilur sveitarfé- lagið sér rétt til að ráða starfsmenn með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu. MM Söngdagskrá í Tónlist- arskóla Borgaríjarðar I tilefni af Degi ís- lenskrar tungu munu nemendur söngdeildar Tónlistarskóla Borgar- fjarðar flytja íslensk sönglög í sal skólans að Borgarbraut 23 í Borgar- nesi þriðjudaginn 15. nóv- ember nk. Dagskráin hefst kl. 20 og er öllum velkom- ið að koma og hlusta á ís- lensk sönglög eftir ýmsa höfunda. Kaffi verður á könnunni. Hvítasunnusöfhuðurinn á Akra- nesi hefur fest kaup á húseigninni Skagabraut 6 á Akranesi og verður húsið kirkja safnaðarins. Húsið var reist árið 1981 og er tveggja hæða, samtals tæpir 309 fermetrar að stærð. Brunabótamat hússins er rúmar 33 milljónir króna. Hjalti Glúmsson, forstöðumaður saffiað- arins segir kaupin ætluð til að efla starfsemi saffiarðarins, sem var endurreistur fyrir um fjórum árum síðan. I dag eru meðlimir um 20 talsins. Hjalti vildi ekki gefa kaup- verð hússins upp en ekki er óvarlegt að áætla að það hafi verið nokkuð á þriðja tog milljóna. Aðspurður hvort ekki sé mikið í ráðist fyrir fá- mennan söfeuð segir Hjalti svo auðvitað vera. „Við stöndnm ekki ein í þessu því aðrir söffiuðir koma að þessum kaupum með okkur og við erum sannfærð um að starf okk- ar eigi eftir að eflast á komandi árum,“ segir Hjalti. Söffiuðurinn heffir þegar tekið neðri hæð hússins í notkun fýrir starfsemi sína og á sunndaginn kemur verður vígsluathöffi. Effi hæð hússins verður áfram í údeigu, um sinn að minnsta kostí, en þar er nú rekið rafmagnsverkstæði. HJ MÁ LINGA RDA GA R Hvítasunnusöfiiuðurinn kaupir Skagabraut 6 Slippfélagið LITALAND 30% afsláttur af hágæða íslenskri innimálningu ' H IANDVERKSBAKARÍ Digraríesgotu 6 - Borgarnesi - sinu :%S7 ,20t20*Wr ©tSuíSaÍffBajflfeBteDíte)

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.