Skessuhorn - 18.01.2006, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 3. tbl. 9. árg. 18. janúar 2006 - Kr. 300 í lausasölu
Þakkar fyrir
uppeldið
Ólafur Ólafsson,
stjórnarformaður Sam-
skipa og fyrrum Borg-
nesingar hefur fært
Landnámssetrinu rausn-
argjöf. Hann hefur
keypt Búðarklett, gerir
húsið upp á næstu mán-
uðum og færir setrinu til
endurgjaldslausra af-
nota. Hann lætur ekki þar við sitja heldur gef-
ur 10 milljónir króna að auki til að greiða götu
verkefhisins. Hann vill þakka fyrir sig og sína.
Sjá bls. 6.
S
Altengt Island
Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra er nú
að leggja upp í tæplega
30 funda röð um landið
og kynna nýja fjarskipta-
áætlun. Kynningin er
undir heitinu „Island al-
tengt - sími, sjónvarp og
nettengingar á háhraða
til allra landsmanna.“
Sjá bls. 8.
Stýrihópur utn
nýjan menntaskóla
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, mennta-
málaráðherra hefur skipað stýrihóp sem undir-
búa á stofnun ffamhaldsskóla í Borgarfirði.
Heimamenn vonast til þess að skólinn hefji
starfsemi haustið 2007 og er flest sem bendir
til að sú verði raunin. Gert er ráð fyrir þriggja
ára framhaldsskóla sem starfi eftir nýrri náms-
skrá um breytt námsskipulag til stúdentsprófs
og verður um tilraunaverkefni að ræða.
Sjá bls. 12.
Skrafað og skeggrætt
Ibúar sunnan Hvalfjarðar settust á rökstóla
sl. laugardag og ræddu á íbúaþingi hvernig
þeir vilja sjá nýtt og sameinað sveitarfélag
verða til og þroskast. Sjá helstu niðurstöður
þingsins á bls. 10.
ÁTLANTSOLIA
Dísel ‘Faxabraut 9.
Það hejur ekki fariðfram hjá neinum að undanfómu aí vetur konungur rœður nú ríkjum hér á Fróni. Unga kynslóðin nýturþess „í botn“ að hafa snjó og eru sktði,
sleðar og önnur farart<eki tekin úr geymslum og notuð óspart. Þeir Ægir, Isak og Knútur nýttu daginn vel sl. sunnudag og renndu sér í brekkunni góðu við Borgar-
braut í Borgamesi. Ljósm. MM
Samningar um sölu Baldurs og kaup á
nýrri Breiðafjarðarferju í undirbúningi
Tilboði, sem borist hefur í
Breiðafjarðarferjuna Baldur,
hefur verið tekið og ef að líkum
lætur kemur ný, stærri og hrað-
skreiðari ferja í hennar stað í
marslok. Ný ferja getur flutt
allt að 50 bíla og 300 farþega.
Með kaupum á stærri og hrað-
skreiðari ferju er leitað leiða til
þess að tryggja ferjusamgöngur
um Breiðafjörð þegar og ef
styrkur samkvæmt vegalögum
fellur niður með tilkomu heils-
árs vegar.
Eins og fram kom í fréttum
Skessuhorns í haust hefur
Vegagerðin ákveðið að fækka
ferðum Breiðafjarðarferjunnar
Baldurs smám saman á næstu
árum og að þeim tíma liðnum
verði rekstri ferjunnar hætt.
Landleiðinni um Barðastrand-
arsýslur hefur á undanförnum
árum verið haldið opinni og því
er samkvæmt skilgreiningu
Vegagerðarinnar kominn heils
árs vegur og því óþarft að
styrkja sjóflutninga. Samkvæmt
núgildandi samningi um rekst-
ur ferjunnar munu styrkir til
hennar leggjast af á næstu fimm
árum og árið 2010 er einungis
gert ráð fyrir styrkjum til að
þjóna byggð í Flatey. I viðtali
við Skessuhorn í haust sagði
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra það ljóst í sínum huga
að þjónusta Baldurs yrði ekki
skert á meðan Ódrjúgsháls og
Hjallaháls í Barðastrandasýslu
yrðu eknir. Einnig hefur verið á
það bent að ferðaþjónusta við
Breiðafjörð hafi að stórum
hluta verið byggð með ferju-
samgöngur í huga og því væri
missir ferjunnar mikið áfall fyr-
ir þá atvinnugrein.
Undanfarna mánuði hefur
staðið yfir skoðtm á möguleik-
um þess að skipta út Baldri í
stað stærra og afkastameira
skips. Pétur Agústsson, fram-
kvæmdastjóri Sæferða, sem
reka ferjuna samkvæmt samn-
ingi við Vegagerðina, telur að
núverandi ferja muni ekki geta
staðið undir sér rekstrarlega án
ríkisstyrks vegna mjög lítilla af-
kasta. Eina leiðin til þess að
tryggja áframhaldandi rekstur
a.m.k á sumrin sé því að fá
stærra skip sem þó hefði ekki í
för með sér neinn verulegan
aukakostnað fram yfir það sem
nú er. Hann segir að ennfrem-
ur sé talið nauðsynlegt að hafa
til staðar skip sem hægt sé að
grípa til við sérstakar aðstæður
eða til að leysa af aðrar ferjur
við landið svo sem vegna
óvæntra bilana eða viðhalds.
Hann segir að nýverið hafi
náðst samkomulag við ríkis-
valdið um að selja Baldur og
ffeista þess að fá í staðinn aðra
hentugri ferju. Nú hefur borist
í Baldur mjög viðunandi tilboð
ffá finnsku fyrirtæki og hefur
því verið tekið. Jafnframt eru í
skoðun þrjú skip í Danmörku
og Hollandi sem koma eiga í
stað Baldurs og mun nýtt skip
fyrst og fremst þjóna sem sum-
arferja, en möguleiki á vetrar-
ferðum er jafnframt til staðar.
Verði af sölu Baldurs mun
hann hverfa úr rekstri í mars og
er því stefnt að því að ný ferja
hefji siglingar í lok mars. Pétur
segir að endanleg niðurstaða
muni liggja fyrir um næstu
mánaðarmót. „Það eru hins
vegar margir lausir endar sem
þarf að hnýta á stuttum tíma til
þess að þetta takist. Mikil vinna
hefur nú þegar farið fram og ég
er mjög vongóður um að það
takist að ljúka málinu. Til þessa
hefur málið mætt miklum vel-
vilja stjórnvalda og annarra er
að málinu hafa komið og ég
vona að svo verði áfram,“ segir
Pétur.
Þær ferjur sem hugmyndir
eru um að kaupa í stað Baldurs
taka 45 - 50 bíla og um 300 far-
þega. Baldur tekur 19 bíla og
um 200 farþega. Nýtt skip
verður einnig mun hraðskreið-
ara og má ætla að ferðatími
styttist úr þremur klukkutím-
um í tvo verði þessar hug-
myndir að veruleika. HJ
ÍSLANDSIÍ'UOL
ttfihka i'htt
Gulrætur
Samkaup fúr\/ai
Helgargrís m/pestó
á rtalska vísu
Kjúklingur heill/ferskur
■ður • Husavík • ísafjöröur • Neskaupsstaður • Njarðvik • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd
'iifwr'mllTWIrfBMlffllliliiSBllB í fM- ■-■■■ aMHHHHHI I ■
4 Jarðaber " * 200 gr. box L