Skessuhorn - 18.01.2006, Page 2
2
MIÐVIKnDAGUR 18. JANUAR 2006
gglSSSJIii©BM
Nýr samn-
ingur um
Staðardag-
skrá21
Nýverið var gengið frá nýjum
samningi milli mnhverfisráðu-
neytisins og Sambands íslenskra
sveitarfélaga um Staðardag-
skrárstarfið á landsvísu. Jafn-
ffamt var samið við UMIS ehf.
Environice í Borgarnesi um
áframhaldandi rekstur á Staðar-
dagskrárskrifstofunni sem er á
Bjarnarbraut 8. „Báðir samning-
amir gilda til ársloka 2006, en
ekki þótti fært að semja til lengri
tíma með tdlliti til þess að kosið
verður til sveitarstjóma á vori
komanda," segir í frétt UMIS.
Nýju samningamir fela ekki í
sér neinar veralegar breytingar á
Staðardagskrárstarfinu. Því er
ljóst að starfið mun halda áfram
til loka þessa árs með svipuðum
hætti og verið hefur.
MM
Til minnis
Vi& minnum alla sem vettlingi
geta valdib ab kynna sér hvar
og hvenær þorrablót eru í
næsta nágrenni við þá - og
panta sér miða. Höldum til
vegs og virðingar þessum
góða og umfram allt þjóðlega
sið.
Vectyrhorfwr
Gert er ráð fyrir breytilegri
vindátt á fimmtudag með élj-
um eða jafnvel slyddu. Fremur
svalt veður. Norðvestanátt á
föstudag og bjart með köflum.
Vaxandi subaustanátt meb
slyddu á föstudagskvöld. Um
helgina má búast við suðvest-
anátt meb éljagangi, en á
mánudag er útlit fyrir subaust-
anátt meb rigningu og hlýn-
andi veöri.
Spnrniruj vÍKnnnar
Vart hefur farib framhjá nein-
um sú mikla umræða sem varb
um fréttaflutning DV í vikunni
sem leið, sem endaöi meb af-
sögn ritstjóra blaðsins. í liðinni
viku var spurt á Skessuhorn-
svefnum: „Er fréttaflutningur
DV trúverbugur að þínu mati?"
Niburstaban varb sú að 84%
svarenda töldu hann ótrúverb-
ugan, 4% mynda sér ekki
skoðun um það, en 12% telja
hann trúverðugan.
I næstu viku spyrjum við:
„Ætlar þú á þorra-
blótíár?"
Svaraöu án undanbragöa á
www.skessuhorn. is
Vestlendiníjwr
viKijnnctr
Ólafur Ólafs-
son, formað-
ur stjórnar
Samskipa er
Vestlending-
ur vikunnar.
Um ástæbu
þess má lesa
aftar í blabinu.
Brunabótamat fasteigna á Vestur-
landi rúmir 184 milljarðar króna
Um síðustu áramót var bruna-
bótamat fasteigna á Vesturlandi
rúmir 184 milljarðar króna og
hafði hækkað um rúmlega 4,5%
á milli ára. A landinu öllu var
brunabótamat fasteigna um ára-
mótin rúmlega 3.063 milljarðar
króna og er hlutur Vesturlands
um 6%. f árslok 2004 var hlutfall
fasteigna á Vesturlandi um 6,06
og hefur því lækkað lítilsháttar á
milli ára. Hér að neðan má sjá
skiptingu á milli einstakra sveit-
arfélaga á Vesturlandi. Af ein-
stökum sveitarfélögum má nefna
að bmndabótamat fasteigna í
Skorradalshreppi hækkaði á milli
ára um rúm 11% og í Grundar-
firðium8,6%. jjj
Sveitarfélag 2005 2004 Breyting
Akranes .... 51,390,926 49,415,416 4.0%
Hvalfjarðarstrandarhreppur .... 10,261,127 9,791,750 4.8%
Skilmannahreppur .... 6,761,017 6,522,348 3.7%
Innri-Akraneshreppur .... 1,324,413 1,267,389 4.5%
Leirár- og Melahreppur .... 2,705,983 2,634,937 2.7%
Skorradalshreppur .... 3,827,931 3,446,954 11.1%
Borgarfjarðarsveit .... 13,506,910 12,899,471 4.7%
Hvítársíðuhreppur .... 1,471,656 1,437,029 2.4%
Borgarbyggð .... 34,663,127 32,843,099 5.5%
Kolbeinsstaðahreppur .... 1,477,922 1,463,757 1.0%
Grundarfjarðarbær .... 9,471,906 8,724,243 8.6%
Helgafellssveit 958,627 935,855 2.4%
Stykkishólmur .... 12,511,175 11,973,867 4.5%
Eyja- og Miklaholtshreppur .... 2,515,918 2,421,695 3.9%
Snæfellsbær ... 19,182,992 18,556,301 3.4%
Saurbæjarhreppur ... 1,285,582 1,251,375 2.7%
Dalabyggð ... 10,760,374 10,435,758 3.1%
Fundað um athyglisbrest og ofvirkni
Miðvikudaginn 11. janúar var
haldinn fræðslu- og kynningar-
fundir í Grandarfirði um ADHD,
kynning á ADHD samtökunum og
Ráðgjafarmiðstöðinni Sjónarhól
og hvaða starf er unnið þar.
ADHD stendur fýrir athyglisbrest
og ofvirkni í börnum sem full-
orðnum. Það var fýrir tilstuðlan
Félags- og skólaþjónustu Snæfells-
ness og heilsugæslu og grannskól-
um Snæfellsness sem fundurinn
var haldinn.
Aðsókn var góð á fundina tvo
sem haldnir voru. 70 manns mætm
á þann fýrri en hann var ætlaður
fagfólki og 25 einstaklingar mættu
á seinni fundinn sem var ætlaður
aðstandendum og áhugafólki um
ADHD. Fulltrúar ADHD á ís-
landi og Sjónarhóls segjast ánægð-
ir með fundinn og að mikill hugur
sé í fólki og áhugi á frekara sam-
starfi sem og stofnun foreldra- og
fullorðinshópa sem stuðningsnet
fýrir alla þá sem þess óska.
Nánar verður greint ffá hlut-
verki og starfsemi ADHD samtak-
anna á Vesturlandi í næsta Skessu-
horni. BG
Hugsanleg sameining Lífeyrissjóðs
Vesturlands og Lf.sj. Suðurlands
Gylfi Jónassm.
Gylfi Jónasson framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs Vesturlands
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs Suðurlands.
Ekki er þó víst að hann láti af fýrr-
nefnda starfinu því svo getur farið
að sjóðirnir verði sameinaðir í vor.
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið að sameiningu Lífeyrissjóðs
Vesturlands og Lífeyrissjóðs Suð-
urlands. Stjórnir sjóðanna hófu
viðræður í apríl á síðasta ári og á
vormánuðum var skipuð sérstök
viðræðunefnd sem í sitja stjórnar-
formenn og framkvæmdastjórar
sjóðanna auk eins stjórnarmanns
frá hvorum sjóði. Einnig hafa
tryggingafræðingar sjóðanna kom-
ið að málinu.
Að sögn Gylfa var sameiningin
rædd á aukaársfundi sjóðsins sem
haldinn var 29. nóvember. Þar var
samþykkt að fresta endanlegri
ákvörðun um sameiningu til næsta
aðalfundar sjóðsins sem haldinn
verður í apríl. Jafnffamt var stjórn
sjóðsins falið umboð til að halda
sameiningarviðræðum áfram.
Hann segir að nánast sé lokið allri
undirbúningsvinnu við sameining-
una og því sé nú beðið uppgjörs
sjóðanna við síðustu áramót en
miðað verður við stöðu þeirra þá
við hugsanlega sameiningu.
Á undan-
förnum árum
hafa fjölmarg-
ir lífeyrissjóð-
ir verið sam-
einaðir og fýr-
ir skömmu
samþykktu
stjórnir lífeyr-
issjóðanna á
Norðurlandi
og Austur-
landi að at-
huga mögu-
leika á sam-
einingu sjóð-
anna.
Gylfi segir að markmið með
sameiningu sjóðanna sé að auka
hagkvæmni í rekstri, bæta áhætm-
dreifingu og ávöxmn eigna og há-
marka með þeim hætti þau lífeyr-
isréttindi sem sjóðirnir geta veitt
sjóðsfélögum sínum. Einnig sé
stærri sjóður bemr í stakk búinn til
þess að veita þá þjónusm sem nú sé
krafist. Gylfi segir að verði af sam-
einingu sé stefnt að því að starf-
semi sjóðsins verði með óbreyttum
hætti á Vesturlandi, en hann rekur
í dag skrifstofu á Akranesi og þar
eru fjórir starfsmenn í 3,3 stöðu-
gildum. Lífeyrissjóður Suðurlands
varð til á síðasta ári með samein-
ingu Lífeyrissjóðs Suðurnesja og
Lífeyrissjóðs Suðurlands.
Á stjórnarfundi Lífeyrissjóðs
Suðurlands þann 12. janúar s.l.,
var Gylfi síðan ráðinn fram-
kvæmdastjóri sjóðsins en Friðjón
Einarsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri, óskaði eftir því að
láta af starfinu. Aðspurður segir
Gylfi að hann taki við hinu nýja
starfi að loknum aðalfundi sjóðsins
á Vesmrlandi í vor. Aðspurður
hvort með þessari ráðningu sé í
raun verið að sameina sjóðina seg-
ir Gylfi svo ekki vera. Aðalfundur
sjóðsins eigi síðasta orðið í því
efni.
HJ
Þjóðkirkjan á misjöfh ítök
á Vesturlandi
Af 14.786 íbúum Vesmriands á
síðasta ári voru 13.423 skráðir í
þjóðkirkjuna eða tæplega 90,8%
íbúa. Itök þjóðkirkjtmnar eru mis-
jöfn milli sókna og prófastsdæma. I
Borgarfjarðarprófastsdæmi voru
92,8% íbúa í þjóðkirkjunni en í
Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi
voru 86,9% íbúa í þjóðkirkjunni. í
sjö sóknum á Vesturlandi voru allir
íbúar í þjóðkirkjunni það er í Fitja-
sókn, Stóra-Ássókn, Akrasókn,
Bjarnarhafnarsókn, Narfeyrarsókn,
Breiðabólsstaðarsókn og í Skarðs-
sókn. Lægst var hlutfallið hins veg-
ar í Dagverðamesssókn þar sem
þrír af fjórum íbúum voru í þjóð-
kirkjunni eða 75% og í Innra-
Hólmssókn voru 129 af íbúunum
165 í þjóðkirkjunni eða 78,2%
íbúa. I stærsm sókninni, á Akranesi,
voru 94,1% íbúa í þjóðkirkjunni og
í Borgarnesi voru 90,9% íbúa í
þjóðkirkjunni. HJ
SPM ræður
Þorkel
útibússtjóra
AKRANES: Þorkell Steinsson
hefur verið ráðinn útibússtjóri
nýs útibús Sparisjóðs Mýrasýslu á
Akranesi. Að sögn Gísla Kjart-
anssonar, sparisjóðsstjóra er ráð-
gert að útibúið opni uppúr næsm
mánaðamótum og verður það,
eins og firam hefur komið í frétt
blaðsins, til húsa við Stillholt. Þar
verður auk þess umboð TM á
Akranesi. Þorkell Steinsson er frá
Akranesi. Áður hefur hann m.a.
starfað hjá Akraneskaupstað, við
Landsbankann en nú síðast hjá
SPRON. Til að byrja með verða
auk Þorkels ráðnir tveir starfs-
menn í hið nýja útibú SPM.
-mm
Framsóknar-
menn ræða
aðferðir
NV-KJÖRDÆMI: Kjördæm-
isþing framsóknarmanna í
Norðvesmrkjördæmi, sem
haldið var að Reykjum í Hrúta-
firði um helgina, ræddi tilhög-
un uppstillingar á framboðslista
flokksins fýrir næsm Alþingis-
kosningar. Fyrir síðusm kosn-
ingar var viðhaft prófkjör með-
al aðal- og varamanna í kjör-
dæmisráði. Á þinginu nú voru
viðraðar hugmyndir um opið
prófkjör meðal flokksbundinna
ffamsóknarmanna. Hugmyndir
þessar verða ræddar á næstu
mánuðum og stefnt er að því að
taka endanlega ákvörðun á
næsta kjördæmisþingi sem
haldið verður í haust.
-hj
Sjálfstæðismenn
í prófkjör
AKRANES: Fundur í fulltrúa-
ráði sjálfstæðisfélaganna á Akra-
nesi samþykkti sl. sunnudag að
viðhaft verði prófkjör til að raða
á Hsta fyrir bæjarstjómarkosning-
ar næsta vor. Allir skráðir félagar
í flokkinn geta þannig tekið þátt í
prófkjörinu. Að sögn Eydísar
Aðalbjömsdóttur, formanns full-
trúaráðsins er stefnt að því að
prófkjörið fari ffam eins fljótt og
hægt er, en á þessu stigi kvaðst
hún ekki geta sagt nákvæmlega
til um hvenær, en það verði
kynnt strax og ákvörðun hggur
fýrir. Sagði hún nýja félaga ávalt
velkomna í félögin.
-mm
Launakjör
bæjarfulltrúa
GRUNDARFJÖRÐUR: Bæj-
arstjórn Grundarfjarðar hefur
samþykkt að endurskoða launa-
kjör bæjarfulltrúa og „möguleg-
ar breytingar á þeim,“ eins og
ffam kemur í tillögu Sigríðar
Finsen forseta bæjarstjómar. Til-
lagan var samþykkt samhljóða.
-hj
Nýr safinvörður
SNÆFELLSBÆR: Stjórn
Pakkhússins í Olafsvík hefur
mælt með að Fríða Sveinsdóttir
verði ráðin í stöðu safnvarðar í
bókasafni og Pakkhúsinu í Ólafs-
vík. Um er að ræða 65% starf
sem auglýst var laust til umsókn-
ar á dögunum.
-hj