Skessuhorn


Skessuhorn - 18.01.2006, Qupperneq 11

Skessuhorn - 18.01.2006, Qupperneq 11
^siasunuh. MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 2006 11 Ef efrirspumin eftir sérbýlishúsa- lóðum á Akranesi verður eins og í undanförnum úthlutunum má gera ráð fyrir að þessum 94 lóðum verði öllum úthlutað. Framkvæmdir við götur og lagnir ættu að geta hafist á vormánuðum 2006 og byggingar- framkvæmdir vegna einstakra húsa næsta haust. Magnús Guðmundsson Formaður skipulags- og umhverfisnefndar aukiðframboð á sérbýlis- húsaláðam á Akranesi SKÓGARHVERFI AKRANESI, DEILISKIPULAG 1. ÁFANGA tillaba21.10.2005 SKÝRWGAA í endurskoðuðu aðalskipulagi Akraness 2005-2017 sem brátt tek- ur gildi er gert ráð fyrir íbúðar- svæði á Akranesi norðan Flata- hverfis og austan Þjóðbrautar, svo- nefndu Skógarhverfi. Svæðið í heild er skilgreint sem blönduð íbúðabyggð um 50 ha að flatarmáli. A grundvelli þessarar stefnumótun- ar hefur skipulags- og umhverfis- nefnd á Akranesi undanfarið unnið að gerð rammaskipulags og deiliskipulags í nýju Skógarhverfi. Skipulagsvinnan er unnið í sam- vinnu við fyrirtækið Gylfa og fé- laga. Vinnulagið var þannig að rammaskipulagið fyrir um 1000 íbúðir var fyrst unnið en í beinu framhaldi var hafist handa við gerð deiliskipulags 1. áfanga á svæði sem er 12,6 ha að flatarmáli. Markmið við skipulagn- ingu 1. áfanga var að fá til úthlut- unar lóðir tmdir sérbýl- ishús þar sem mestur hluti þeirra íbúð- arlóða sem lögð hafa verið drög að eða hefúr verið úthlut- að á Akranesi undanfarin misseri eru fyrir fjölbýl- ishús. Gert er ráð fyrir að auglýst verði eftir umsóknum um 94 sérbýlis- húsalóðir 1. áfanga í febrúar næst- komandi og skiptast lóðirnar þannig að 52 íbúðir eru í einnar hæðar einbýlishúsum, 9 íbúðir í tveggja hæða einbýlishúsum, 21 íbúð er í einnar hæðar rað- og par- húsum og 12 íbúðir í tveggja hæða rað- og parhúsum. Gatnakerfi áfangans er heildstætt net húsagatna og er gert ráð fyrir að leyfilegur hámarkshraði ökutækja verðu 30 km/klst. Leitast er við að skapa ákveðna reglufestu með bein- um götum en þess gætt að beinir kaflar verði aldrei það langir að hætta verði á hraðakstri. TALAGA 1? 102005. HN 1tO 000 Varta á ásýnd Borgamess Nú nýverið voru kynnt þau áform bæjaryfirvalda að byggja sex hæða stigahús á lóð þar sem áður var þvottaplan Esso. Undirritaður, sem er nánast innfæddur Borgnes- ingur hefur svo sem ekki mikið lát- ið til sín taka skipulagsmál í Borg- arnesi, þrátt fyrir að honum hafi á stundum blöskrað landvinninga- stefna bæjaryfirvalda, sem hafa ver- ið mjög iðin við að fylla í víkur og vcga til að vinna nýtt land. Það er nu að verða svo komið að útlínur við sjó eru að verða það reglulegar að nota má reglustiku til að teikna ströndina, alla vega í neðri hluta bæjarins. Nú er hinsvegar í uppsiglingu ffamangreind áform um stigahús sem ég get ekki samþykkt. Út af fyrir sig er ég ekki að efast um að húsið sem slíkt verði fallegt og vel hannað en það er fráleitt að byggja svo hátt hús inn í hverfi þar sem tveggja hæða hús eru hæst. Svona bygging, á þessum stað, verður eins og varta á ásýnd Borgarness sem annars er fallegur bær og fallegt bæjarstæði. Þarna er líka um að ræða nýjan miðbæ og svona hús fer vægast sagt illa þar. Onnur rök sem mæla á móti svo stórri byggingu þama era að þetta eykur mikið á umferð og þrengir einnig að Kveldúlfsgötu og öllu næsta nágrenni. Það er enn tími til að þrýsta á bæjaryfirvöld að láta af þessum áformum þar sem nú liggur ffammi tillaga að deiliskipulagi þarna og ég heiti á alla Borgnesinga, sem láta sig útlit bæjarins okkar einhverju máli skipta, að fjölmenna á bæjar- skrifstoffuysenda bréf eða tölvupóst og mótmæla þessu umhverfissfysi. Fólk hefur tíma til 2. febrúar að hafa áhrif á þetta en þá er kæru- frestur útrunnin. Þá er annað mál sem ég vil minn- ast á en það er tjaldstæðið okkar. Hugmyndir eru uppi um að taka það undir skólabyggingu. Eg vil einnig mótmæla því. Tjaldstæðið er mjög vel staðsett þarna og er á þeim stað sem ferðafólk vill hafa slíka staði. Það væri nær að klára tjaldstæðið eins og það var ætlað, með trjágróðri og betri aðstöðu. Hvað þá með skóla? Eg væri hlynntur því að staðsetja hann í Brákarey en þar er hugmynd að hafa í framtíðinni ferðatengda menningarstarfsemi og væri þá hægt að nýta skólahúsnæði í tengsl- um við það yfir sumartímann. I eyj- unni era byggingar að stórum hluta í eigu Borgarbyggðar og væri þörf á því að rífa töluverðan hluta þeirra. I eyjunni, þegar búið væri að fjar- lægja léleg eða ónýt hús þá væri gott pláss fyrir skólabyggingu og þá með miklum stækkunarmöguleik- um Guðmundur Ingi Waage. Sœunnargótu 10 Borgamesi ATVINNA Óskum eftir að ráða starfskraft í 100% starf. Um er aðræða starf í verslun með kvenfatnað, undirfatnað, snyrtivörur og þessháttar. Umsækjendur þurfa að vera; samviskusamir - glaðlyndir - reyklausir og umfram allt hafa mikla þjónustulund. Upplýsingar veitir Ellen í síma 431-1753 og 861-1599 eða í Litlu búðnni. SQt/a S§uðm KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI SÍMI431 1753 & 861 1599 MJOLKURVORUR í SÉRFLOKKI Bílstjórar með meirapróf MS Reykjavík óskar eftir að ráða bílstjóra til söfnunar og flutnings mjólkur frá framleiðendum á Vesturlandi til Reykjavíkur. Um er að ræða framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki. Viðkomandi þarf að hafa meirapróf og geta byrjað sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Pátl Svavarsson í síma 569-2200. Umsóknir skulu berast til MS Reykjavík, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavik eigi síðar en 23. janúar nk. Hægt er að senda umsóknir á netfangið starfsmannasvid@ms.is eða fá sent sérstakt umsóknareyóublað. armam >la<‘k<‘0(l< I tilefni Bóndadagsins % bjóöum við 15% afslátt \ af öllum 11 errasnyrtivörum og -ilmum. S'?A 43.1 STÍLLHOLTI 1 AKB^NESI

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.