Skessuhorn - 18.01.2006, Blaðsíða 13
saess'(iii©EH
MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 2006
13
•»
Litiðyfir farinn veg
Sveitarstjórnarkosningar fara
fram á komandi vori og eru stjórn-
málaflokkar farnir að undirbúa
þær, meðal annars með málefna-
vinnu. Okkar flokkur, Samfylking-
in, er þar enginn eftirbátur. Sam-
fylkingin á nú þrjá fulltrúa í bæjar-
stjórn Akraness og hefur verið í
meirihluta í bæjarstjórn síðastliðin
átta ár. Hér á eftir ætlum við að
geta nokkurra mikilvægra málefna
sem unnið hefur verið að á síðast-
liðnu kjörtímabili.
I fyrsta lagi er ágætt að geta þess
hvað miklar breytingar hafa orðið
á aðgengi bæjarbúa að öllum mál-
efnum bæjarins. Bæjarstjórnar-
fundir eru öllum opnir og þeim er
einnig útvarpað (FM 95,0). Bæjar-
málafundir stjórnmálaflokkanna
eru líka opnir öllum áhugasömum
bæjarbúum. Þá má geta þess að all-
ar fundargerðir bæjarráðs, bæjar-
stjórnar og allra nefnda bæjarins
eru birtar á vef Akraneskaupstaðar
(http://wtvw.akranes.is). Þær eru
að jafnaði birtar samdægurs eða
daginn eftir hvern fund. Það er því
öllum auðvelt að afla sér upplýs-
inga og fylgjast með því sem fram
fer innan bæjarstjórnar eða nefnda
bæjarins. Að fylgjast með því sem
gerist á vettvangi bæjarstjórnar er
afar mikilvægt og lykillinn að því
að fólk geti á málefnalegan hátt
myndað sér skoðun og tjáð sig um
þau verkefni sem unnið er að
hverju sinni.
Þegar farið er yfir framkvæmdir
undanfarinna ára teljum við að þær
hafi alltaf haft hagsmuni bæjarbúa
að leiðarljósi. Hér verða aðeins
nefndar nokkrar og er ekki endi-
lega um forgangsröðun að ræða
heldur verður að velja í stuttri
grein. Grunnskólarnir eru báðir
einsetnir og þar fer fram farsælt
skólastarf. Sömu sögu er að segja
um leikskóla. Leikskólinn Vallarsel
var stækkaður á kjörtímabilinu og
tókst með því að afnema biðlista
frá tveggja ára aldri. Eitthvað er
um að yngri börn komist að í leik-
skólana og er það af hinu góða.
Þess verður einnig að geta að for-
eldrar greiða frá áramótum sama
gjald hjá dagmæðrum og þeir gera
fyrir börn á leikskólum. Þar er um
verulega kjarabót að ræða fyrir
foreldra.
Auðvitað eru flestir sammála um
að ákjósanlegt væri að hafa gjald-
frían leikskóla en það myndi kosta
um það bil 80 milljónir í aukinn
rekstrakostnað fyrir bæjarsjóð.
Ljóst er að þá fjármuni verður að
taka af einhverjum öðrum rekstr-
arliðum bæjarins og skerða þar
með aðra þjónustu. Annar mögu-
leiki gæti verið að ríkið kæmi inn í
rekstur leikskóla með fjárframlög-
um og teljum við það eina raun-
hæfa kostinn.
Þegar bæjarfulltrúar allra flokka
tóku samhljóða ákvörðun um
byggingu fjölnota íþróttahúss
hafði farið fram um það mál mikil
umræða innan bæjarstjórnar og
íþróttahreyfingarinnar. Sú stað-
reynd var öllum ljós að íþróttahús-
in tvö í bænum dygðu engan veg-
inn lengur fyrir þá íþróttaiðkun
sem færi fram á Akranesi. Menn
voru sammála um að íþróttaiðkun
væri mikilvæg fyrir börn og ung-
linga í bænum og einnig væri
greinilega aukning meðal fullorð-
inna. Bygging íþróttahúss var
óhjákvæmileg og niðurstaðan varð
sú að fara út í byggingu fjölnota-
húss á Jaðarsbökkum í stað þess að
byggja þriðja hefðbundna húsið í
viðbót. Byggingarkostnaður er
áætlaður 350-400 milljónir, sem
vissulega er mikill kostnaður en
venjulegt íþróttahús hefði kostað
allt að helmingi meira. Bæjarfull-
trúar voru því allir sannfærðir um
að þessi leið væri sú rétta, enda er
frekari uppbygging fyrirhuguð á
Jaðarsbökkum þar sem byggt verð-
ur yfir núverandi sundlaug og ný
útisundlaug byggð. Ennfremur
verður gerð tengibygging á milli
fjölnotahússins og núverandi
íþróttamannvirkja á svæðinu þar
sem komið verður fyrir æfingasöl-
um, búningsklefum og annarri
nauðsynlegri aðstöðu. Með þessu
verður gjörbylting á allri aðstöðu
þeirra sem stunda íþróttir á Akra-
nesi og aðstaðan öll með því besta
sem gerist á landinu.
Akvörðun um að sameina Akra-
nesveitu, Andakílsárvirkjun og
eignarhlut bæjarins í HAB við
Orkuveitu Reykjavíkur var tekin á
árinu 2001. Nauðsynlegt er að
bæjarbúar geri sér grein fyrir því
að ofangreind fyrirtæki voru ekki
seld heldur mynda þau eignarhluta
Akraness í Orkuveitunni og hefur
hann skilað bæjarsjóði um það bil
80 milljóna króna arði á ári. Bæjar-
stjórn Akraness á fulltrúa í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur. Eignar-
hluti Akraneskaupstaðar er nú
metinn á rúmlega fjóra milljarða
króna. Orkuverð á Akranesi lækk-
aði þegar Akranes varð eignaraðili
að OR og var það að sjálfsögðu
kjarabót fyrir bæjarbúa. Þá er vert
að geta þess að fráveitan var sam-
einuð Orkuveitunni nú um ára-
mótin og er þar með tryggt að frá-
rennslismálum Akurnesinga verð-
ur komið í fullkomið horf innan
þriggja ára.
Ollum Akurnesingum er ljóst að
bærinn er að stækka og miklar
framkvæmdir eiga sér stað innan
bæjarlandsins. Mikilvægt er að átta
sig á að mjög ákveðnar reglur gilda
um skipulagsmál, bæði aðalskipu-
lag og deiliskipulag. Er réttur al-
mennings þar tryggður, bæði til
upplýsinga og áhrifa, þannig að
engar breytingar geta átt sér stað
nema eftir ákveðnu ferli, þar sem
almenningi er gefinn kostur á að
segja álit sitt. Ef breytingar eru
gerðar á skipulagi kostar það bæði
mikla vinnu og fjármuni. Slíkar
breytingar eru sjaldgæfar og ekki
er farið út í þær nema brýna nauð-
syn beri til. Öðru máli gegnir um
smávægilegar breytingar sem ein-
göngu krefjast grenndarkynningar,
þ.e. að nágrönnum er kynnt fyrir-
huguð breyting og þeir fá tækifæri
til að gera athugasemdir. Opnir
kynningarfundir eru oft haldnir
þegar fyrstu drög að skipulagi
liggja fyrir og gefst þá bæjarbúum
tækifæri til að tjá sig um drögin.
Þar er gott tækifæri fyrir bæjarbúa
til að hafa áhrif á skipulagsmál í
bænum, enda varðar þessi mála-
flokkur alla íbúana jafnt.
Akraneskaupstaður er eins og
langflest sveitarfélög á landinu að-
ili að Launanefnd sveitarfélaganna
(LN). Með þeirri aðild veitti Akra-
nesbær LN umboð til að semja um
kaup og kjör starfsmanna bæjarins.
I þeirri aðild felast ýmsir kostir en
ekki er því að leyna að henni fylgja
líka gallar. Starfsmenn bæjarins
eru ekki ofsælir af launum sínum
Agústa FriSriksdóttir.
Hrörtn Ríkarðsdóttir.
og nauðsynlegt að finna leiðir til
að bæta þeirra kjör með einhverj-
um hætti í samstarfi við LN á
næstu árum. Við teljum það ekki
vera lausn að Akranesbær segi sig
úr LN heldur leggi sig fram um að
bæta kjör starfsmanna sveitarfé-
laga í samstarfi við önnur sveitar-
félög á landinu, enda hafa fulltrúar
bæjarins beitt sér við lausn deilu-
mála á vettvangi LN. Um bætt
launakjör hljóta allir að vera sam-
mála, en geta sveitarfélaganna er
misjöfn á þessu sviði og miðlægir
kjarasamningar taka þá mið af því.
Varla verður skilið við umfjöllun
um það sem áunnist hefur án þess
að minnast á þá miklu kjara- og
samgöngubót sem felst í strætis-
vagnaferðum á milli Akraness og
Reykjavíkur. Hér er um gjörbreyt-
ingu að ræða, ekki síst fyrir þá að-
ila sem vinna á höfuðborgarsvæð-
inu eða stunda þar nám. En sam-
göngur af þessu tagi koma sér vel
fyrir alla aðila, Ungt fólk sem ekki
hefur ökuleyfi og þarf að komast
til höfuðborgarinnar getur núna
farið með Strætó. Fullorðnir, sem
ekki treysta sér til að aka í Reykja-
vík en eiga þangað erindi, munu
vafalítið notfæra sér ferðir Strætó.
Við höfum hér að ofan valið að
segja í nokkrum orðum frá mála-
flokkum sem eru okkur hugleiknir.
Vissulega eru þeir fleiri. Við höf-
um til dæmis ekki nefnt atvinnu-
mál, menningarmál, félagsmál eða
málefni aldraðra svo einhverra sé
getið. Við munum væntanlega
gera þeim skil síðar. Við lítum svo
á að á Akranesi sé gott mannlíf og
erum stoltar af því að vera Akur-
nesingar. Við hvetjum alla þá sem
áhuga hafa á að kynna sér og fylgj-
ast með starfi stjórnmálaflokka í
bænum. Með því móti getur hver
og einn myndað sér skoðun sem
verður honum gott veganesti þeg-
ar hann gerir upp hug sinn við
sveitarstjórnarkosningar í vor.
Agústa FriSriksdóttir og
Hrönn Ríkharðsdóttir
Hef hafið störf við sjúkranudd á
fimmtudögum og föstudögum
í Iþróttamiðstöðinni á
Jaðarsbökkum, Akranesi.
Nánari upplýsingar
og tímapantanir
í síma 866-5809.
Bryndís Gylfadóttir
Löggiltur sjúkranuddari
www.skessuhorn.is
Borqarnesi
■__ . .liii __
NÝJAR VÖRUR
KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI
SÍMI431 1753 & 861 1599
Starfsfólk óskast
• Málarameistarar
• Málarasveinar
• Verkamenn
Einnig hægt að taka nema á samning
i upplýsingar veitir
on í sima B96-23
Allar nánari
Garðar Jónsson
Umsóknir sendist
á gardjons@visir.is
2356
Híbýlamálun GarSars Jónssonar er framsækiS
málningarfyrirtæki á Akranesi en það var slofnaS
áriS 1 y90. Starfsemin hefur vaxiS jafnt og þétt
og er fyrirtækiS nú meS þeim stærstu á pessu
svioi á Vesturlandi. Híbýlamálun GarSars
Jónssonar þjónustar einkum Akranes og
uppsveitir Borgarf|ar3ar auk þess sem verkefnum
a höfuSborgarsvæSinu hefur fjölgaS stórlega.
ViS bjóSum pér aS ganga tíl
liSs viS fyrirtæki í miklum vextí.
r
-r