Skessuhorn


Skessuhorn - 18.01.2006, Page 18

Skessuhorn - 18.01.2006, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 2006 » * T^eHninn—, Við áramót Predikun flutt við aftansöng í Borgameskirkju 31. desembersl. Lúkas 13. 6-9. En hann sagði þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sín- um. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki. Hann sagði þá við víngarðsmanninn: I þrjú ár hef ég nú komið og leitað ávaxtar á fíkju- tré þessu og ekki fundið. Högg það upp. Hví á það að spilla jörð- inni ? En hann svaraði honum: Herra, lát það standa enn þetta ár, þar til ég hef grafið um það og borið að áburð. Má vera að það beri ávöxt síðan. Annars skaltu höggva það upp.“ Enn erum við í þessum sporum, stödd í helgidóminum við lok árs. Fáeinar stundir lifa af árinu sem er að líða, það hverfur brátt í aldanna skaut. Við áramót, líkt og við önn- ur mörk tímans, lítum við til baka, til þess tíma sem er að líða. Það gera fjölmiðlarnir í annálum sín- um. Þeir tína saman það sem þeim þótti frétmæmast, það sem upp úr stendur, eins og sagt er - atburði sem höfðu gjörtæk áhrif á þjóðlífið og heimsmálin og munu kannski fá sess í sögubókunum. En guðspjall dagsins eru fáein orð um tré, fíkjutré. Tré sem ekki hefur staðið sig vel. Tré sem á litla framtíð. Tré sem á að upphöggvast og hverfa. Gefðu því eitt ár enn, segir víngarðsmaðurinn, og biður því miskunnar. Það er ekki erfitt að skilja þessa sögu bókstaflega. Allir trjáræktarmenn gera það að minnsta kosti. Hvert tré sem upp kemst á Islandi er mikils virði og það er eitur í beinum okkar að fella tré sem þurfa mikla alúð og um- hyggju svo þau fái lifað og prýtt jörðina. En þetta er dæmisaga. Dæmi- saga er saga sem tekur atvik úr daglegu lífi og reynslu okkar - not- ar efni sem er afar venjulegt og öll- um auðskilið, til að flytja erindi, boðskap, hugmynd eða lífsskoðun. Sagan af fíkjutrénu sem á sér tví- sýna tilvist á því ekki heima í hand- bók um trjárækt, heldur geymir hún erindi um tímann og tækifær- in, vöxt og stöðnun, líf og dauða. Þetta er saga um afdrif mannanna. Þessi saga geymir áminningu og kröfu, kröfu um vöxt. Tréð á að gefa ávöxt, til þess er það, annars fær það ekki að lifa og er ekki til neins. Þetta ætti nú ekki að vera erfitt að skilja. Við erum mikið kröfu- gerðarfólk, við sem byggjum þetta land, íslensk þjóð. Stöðugar kröf- ur um vöxt, hagvöxt, framfarir, lífsgæði og neysla okkar vex, eykst frá einu ári til annars. Og mikið viljum við enn. Aldrei hefur ffamkvæmdagleði okkar fengið aðra eins útrás eins og nú um þessar mundir. Hvar sem litið er, um landið allt, er ver- ið að byggja og breytá. Og svo mikið er undir, að vinnufusar, ís- lenskar hendur duga ekki, heldur notum við nú erlent vinnuafl, eins og það er kallað. Það segja okkur allar hagtölur. En þetta vinnuafl er engu að síður lifandi fólk, fólk með langanir þrár og þarfir eins og við - fólk sem þó er oft gert annars flokks. Þeir útlendu menn sem hingað koma um langan veg og hér stárfa, búa margir við hörð kjör. ítrekað heyrum við um hýru- dregna menn, menn sem búa við smánarlegar aðstæður, sem við myndum ekki láta bjóða okkur einn dag. Okunnugleiki þeirra og umkomuleysi kemur í veg fyrir að þeir geti borið hönd yfir höfuð sér og sótt rétt sinn. Nánast daglega heyrum við af því að óprúttnir menn gera sér þessa verkamenn að féþúfu noti sér þá í raun eins og vinnudýr eða þræla. Sem betur fer hefur íslensk verkalýðshreyfing tekið að sér að verja rétt þessara manna, og fjölmiðlar hafa sýnt lofsverða viðleitni í að birta stað- reyndir og afhjúpa þennan myrka veruleika arðráns og kúgunar, sem hefur fundið sér stað meðal okkar. I dómspredikununum spámanna Gamla Testamentisins, gagnrýndu þeir samfélag sitt, mátuðu það við Guðs orð - þeir töluðu gjarna um rétt ekkna, munaðarleysingja og útlendinga. Það var mælikvarði spámannanna á heilbrigði samfé- lagsins - hvernig þessu fólki var sinnt, hvernig réttur þess var virt- ur. En það er margt við fram- kvæmdagleði okkar sem ætti að leita á okkur og láta okkur spyrja spurninga. Við Islendingar eigum mikið og höfum mikið. Meira en flestar aðra þjóðir. Samt viljum við meira. Hvar eru þá endimörk vaxt- arins? Hvaða stefnu höfum við um lífskjör og lífsgæði? Ræðum við einhvern tíma í alvöru um þessi efni? Og hvað ber jörðin, hversu lengi er hægt að ausa af auðlindum jarð- arinnar, áður en við rekumst í þrot. Og hvar eru mörk mengunar ? Virkjunin mikla við Kárahnjúka er stærsta framkvæmd Islandssög- unnar. Þar verður orkuframleiðsla í þágu álvers á Reyðarfirði. Upp- haflegur tilgangur þessa verks var að skapa fleiri störf á Austurlandi og koma í veg fyrir meinta hnign- un þar og bæta afkomu fólks. Það er mikil forsjárhyggja sem býr í áformum af þessu tagi. Hugs- unarháttur áætlunarbúskaparins, sem var tíðkaður mjög í Sovétríkj- unum sem einu sinni voru. Við höfum séð hvernig ríkisforsjár- hyggjan hefur leikið íslenskan landbúnað. Sporin hljóta að hræða. En það er ekki hægt að skikka fólk til búsetu, eða starfa, í lýð- frjálsu ríki. I Sovétríkjunum hafði fólk ekkert val. Það tók þau störf sem að voru rétt. Það er alveg óljóst hvort álver í Reyðarfirði verði til lengri tíma einhver lyftistöng fyrir mannlíf, auki velsæld og hamingju á Austur- landi. Það er mikill gangur þar núna En það er vitaskuld enginn vandi að búa til rífandi uppgang með því að dæla fjármunum í verk og virkjanir, vegi og hafnir, íþróttamannvirki og íbúðarhús- næði. En sú sæla er af því sprettur getur orðið skammvinn. Talsmenn þessara framkvæmda allra, þeir sem hafa orðið ofan á og fengið sitt fram, segja þetta ekki aðeins ávinning fýrir Austurland heldur fýrir þjóðarbúið allt. En hvað erum við að gera og hvað höfum við gert? Hver er herkostn- aðurinn? Mikil og óafturkræf eyði- legging náttúruverðmæta, blasir við. Hernaður gegn landinu. Mér finnst ótrúlegt að nokkur sem inn að Kárahnjúkum kemur, geti farið þaðan ógrátandi. Otal áhættu- þættir eru síðan varðandi umhverf- isáhrif virkjunarinnar - enginn veit með vissu hvað verður í þeim efn- um - óskhyggja virðist hafa ráðið för - þetta hljóti allt að fara vel. Og til hvers. Allt þetta ógnarstóra dæmi - búa til störf í álveri, Setja upp þungaiðnað sem bætir enn á mengun ? Ef við værum nú að búa til orku sem sem gæti nýst til að framleiða matvæli fýrir þurfandi fólk í þriðja heiminum, eða skapa önnur verðmæti sem gætu nýst í örbjarga samfélögum - nei öðru nær. Auka hagvöxt á Islandi. Vonandi verður þessi fram- kvæmd öll ekki dæmd í sögubók- um framtíðarinnar sem eintómt heimskra manna ráð. Og hér er alls ekki við stjórnmálamenn sem hafa haft pólitíska forystu um þetta verk að sakast. Þeir eru sannarlega allir af vilja gerðir til að láta gott af sér leiða - og orð og gerðir stjórmála- manna stjórnast yfirleitt af því sem þeir telja að fólk vilji. Stóriðjusóknin er skýrt dæmi um gjaldþrota hugmyndafræði sem bindur sig í blindni við hagvaxtar- hyggju og gleymir því að gott líf felst í svo mörgu öðru. Lífsgæði eru svo margt. Þar á meðal menn- ing. Menntir og listir. Allt það er auðgar líf okkar. Augljósa vaxtarbrodda, nýsköp- un sjáum við á öðrum sviðum. Ný- sköpun sem er ekki afleiðing áætl- unarbúskapar stjórvalda, heldur einfaldlega afurð vel menntaðs fólks sem sér tækifæri, kann til verka og fær rými til athafna. Við þurfum ekki að líta langt. Hugvit, áræði og framsýni hafa skapað Viðskiptaháskólann á Bif- röst. Þar er risið heilt þorp, á undraskömmum tíma, staður sem gefur myndarlega til samfélagsins hér á Mýrum og í Borgarfirði. Aform eru nú uppi um að stofna menntaskóla í Borgarfirði. Þetta er vegleg og löngu tímabær hug- mynd, sem mun efla þetta hérað, verði hún að veruleika, og styrkja á svo margvíslegan rpáta. Fjárfest- ing í menntun er góð fjárfesting. Það hefur verið reiknað út, að hver dollari sem fer í menntun barna og ungmenna í Afríku skilar sér fimmfaldur til baka, til samfé- lagsins. Þetta er ekki ágiskun eða óskhyggja, heldur staðhæfing, byggð á rannsóknum. Varla gilda önnur lögmál hér í Borgarfirði. Og arður af þessu tagi er meiri og langvinnari en af nokkurri virkjun eða álveri. Menntun er af hinu góða og ger- ir öllum gott. Menntun er reynd- ar í sjálfu sér engin trygging fýrir betra lífi, en það eru líkur á hún geri gott betra. Að menntun auki víðsýni, vinni gegn hleypidómum og þröngsýni. Þjálfi hug og anda og hjálpi fólki að setja sig í spor annarra - skilja og meta það sem er öðru vísi og framandi. Allt hefur sinn tíma. Og við ára- mót er tími til að staðnæmast og hlusta og hugsa. Það er Jesús ffá Nasaret sem segir söguna um fíkjutréð í guð- spjalli dagsins. Sagan um fíkjutréð fjallar ekki um hagvöxt, heldur öðru vísi vöxt, vöxt andans - verð- mæti sem ekki er hægt að mæla með reglustriku hagvaxtarins er verðmæti samt, sem eru ekki síður mikilvæg en það sem við þurfum til daglegs viðurværis. Við höfum tíma, erum kölluð inn í þennan heim. Fáum að lifa, njóta og starfa. Og við erum spurð um það, og það er eftir því gengið að við berum ávöxt. Jólabarnið spyr. Jesús sem Mar- ía fæðir í heiminn á Betlehemsvöll- um er lifandi drottinn, sem kemur og spyr. Hann spyr spurninga er ganga inn að kviku, inn að hjarta- rót. Hver ert þú og hvernig hefur þú farið með það allt sem þér var gefið? Hvernig eru orð þín og verk? Þolir það allt dagsins ljós? Hefur þú notað daga þína til að færa birtu og yl inn í líf annarra, eða hefur þú blásið yfir myrkri og kvöl? Hvernig eru dagar þínir og ár? Þessum spurningum þurfum við að svara - ekki á torgum, ekki með þeirri sjálfsréttlætingu sem við notum alla jafna í samskiptum við aðra - heldur með því segja satt. Birta okkur umbúðalaus fýrir drottni, í allri fátækt okkar svo að drottinn Jesús fái auðgað líf okkar og við verðum ekki ofurseld mis- tökum okkar og afbrotum. Sagan um fíkjutréð segir okkur æ að enn er tími, enn er miskunn Guðs rík. Og við erum líkt og fíkjutréð, þurfum aðhlynningu og næringu, svo við fáum lifað og bor- ið góðan ávöxt og horft vonglöð fram á veg. I bæn, er við leitum drottins í hugsun okkar og orðum, í ákalli, í nauðum, í lofsöng og í gleði, þiggj- um við það sem hann vill gefa, það sem hagvöxtur heimsins getur ekki gefið og engin gengisfelling mann- legra verðmæta getur frá okkur tekið. Við megum þakka af hjarta fýrir að á nýju ári fáum við enn tíma, einn dag í einu. Biðjum um vit og dómgreind til að fara vel með það sem er á okkar valdi, svo að dagar okkar verði góðir. Æðruleysi til að sætta okkur við það sem við fáum ekki breytt og djörfung til að vera það sem við teljum réttast. Guði sé lof fýrir nýtt ár sem hann gefur. Guð gefi að við getum unnið ljóssins verk meðan dagur er. Þorbjöm Hlynur Amason, prófastur Borg Að vanda skutu Vestlendingar upp miklu magni afflugeldum um áramótin enda var veður hagstætt til slíkrar iðkunar. Þessa skemmti- legu mynd tók Þorgerður Gunnarsdóttir í Borgamesi og lýsa Ijósin upp kirkjuna ogfagurt umhverfi hennar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.