Skessuhorn


Skessuhorn - 18.01.2006, Síða 23

Skessuhorn - 18.01.2006, Síða 23
 MIÐVDCUDAGUR 18. JANUAR 2006 23 Aðstaðan góð og metnaðurínn mildll Rætt við Dean Martin; meistaraflokksmann, einka- og knattspymuþjálfara á Akranesi íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökk- um á Akranesi hefur í nokkurn tíma boðið uppá viðveru einka- þjálfara í þreksal íþróttamiðstöðv- arinnar til aðstoðar þeim sem þess óska með líkamsræktarprógramm sitt. Hefur Ingólfur Ágúst Hreins- son sinnt því starfi með prýði und- anfarin ár. Nú hefur annar einka- þjálfari bæst til liðs við Ingólf og er það Dean Martin, 33 ára knatt- spyrnumaður og einkaþjálfari ffá London. Svo virðist sem þjónustu þeirra félaga sé fyllilega þörf því aðsókn til þeirra er mikil. Blaða- maður Skessuhorns mælti sér mót við Dean, sem náði með herkjum að finna nokkrar lausar mínútur snemma morguns því dagskráin var alveg fullpökkuð. Ekki var heldur þörf á því að draga fram skellótta enskukunnáttuna því drengurinn er orðinn nær altalandi í íslensku. Það var vorið 1995 sem Dean Martin kom til Islands, fyrir til- stuðlan þjálfara síns hjá Westham. Það sumar spilaði hann með KA á Akureyri, sem og nokkur sumur í röð þar á eftir, en fór þó til London á haustin. Vorið 1998 kom Dean fyrst á Akranes og spil- aði með IA það sumar. Það var svo síðastliðið vor sem hann ákvað að koma aftur á Akranes og hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Ásamt því að spila fót- bolta og vinna sem einkaþjálfari þjálfar hann 6. og 7. flokk drengja í fótbolta. Dean segist líða vel á Akranesi. Hann segir að vel hafi verið tekið á móti sér og að fólk sé almennt almennilegt og kurteist við sig. „Það er mikil breyting sem hefur átt sér stað hér á Akranesi ffá því að ég konj hingað fyrst 1998, t.d. göngin, þau eru mikill munur.“ Góður árangur Dean segir aðstöðu til íþrótta- iðkunar á Akranesi góða þó alltaf megi gera betur. Það er mikill kostur að hafa íþróttahúsið, sund- laugina og þrekaðstöðuna allt á sama stað og að stórt fjölnota íþróttahús eins og það sem er í byggingu verði til staðar í 5-6 þús- und manna bæjarfélagi megi kalla mikil forréttindi. Fjöldinn allur af fólki hefur nú farið í gegnum æfingaprógramm Deans. ,Jú, árángurinn hefur verið góður hjá því fólki sem ég hef unn- ið með í haust. Mér finnst mjög gaman að vinna með fólki. Eg byrja á því að kynnast hverjum og einum, finn úf hvernig týpa við- komandi er og vinn traust okkar á milli. Svo geri ég prógram fyrir hvern fyrir sig samhliða markmið- um þeirra. Sumir þurfa mikla hvatningu en flestir setja sér mark- mið og mæta svo reglulega í þrek og vinna þar hörðum höndum að markmiðum sínum. Það er svo merkilegt að flestir sem ég þjálfa, þá litlu krakkarnir í fótboltanum einnig, gefa sig alveg 100%, ann- ars væru þau hreinlega ekki að þessu.“ Framtíðin „Mig langar að vinna sem knatt- spyrnuþjálfari í framtíðinni, þá með alla aldurshópa. Svo langar mig að læra kínversku þar sem ég dvaldi í Kína í 2 ár,“ segir Dean þegar hann er spurður að því hvað Dean Martin. hann langar til að gera í ffamtíð- inni. Dean á 2 drengi sem búa á Akureyri, svo tenging hans við Is- land er orðin nokkuð sterk. Sjálfur er Dean að æfa með meistaraflokki IA í knattspyrnu, en lætur ekki þar við sitja. Hann hef- ur verið að læra og þjálfa sund undir leiðsögn Ragnheiðar Run- ólfsdóttur síðastliðna mánuði og segist stoltur vera farinn að synda um 2 km í skriðsundi. „Það er ekki hvar sem er sem maður fær Olympíusundkonu til að þjálfa sig,“ segir Dean og brosir. Til að þjálfa fjölhæfni líkamans hefur Dean einnig verið að æfa Pilates og hefur áhuga á að æfa yoga. Það er því af nógu að taka hjá þessum fjölhæfa íþróttamanni við æfingar á sér og öðrum og iðkun keppnisí- þróttar í fótboltabænum Akranesi. BG Lengd aðsendra greina og skilafrestur Af gefnu tilefni eru þeir sem senda inn greinar sem þeir óska birtar í Skessuhorni, beðnir að takmarka lengd þeiira við eina A4 síðu (12 punkta letur). Greinar af hæfilegri lengd eiga frekar tryggt sæti í blaðinu en auk þess eru þær þá frekar lesnar. Einnig er mjög gott að viðkomandi hafi samband við ritstjóra með góðum fyrirvara. Síðasti skilafrestur fyrir aðsendar greinar er á mánudögum, eigi þær að birtast í næsta tölublaði Skessuhorns. Aðsendar greinar er auk þess hægt að fá birtar á vef Skessuhorns, en þá skiptir lengdin hinsvegar ekki máli. Ritstjóri. Frá Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi flflevsingor/sumQrofleysingQr Starfsmann vantar í afleysingu læknaritara við Heilsugæslustöðina frá 23. janúar til 20. febrúar nk. og í sumar frá l.júní til 31. ágúst nk. 100% starfshlutfall. Æskilegt að viðkomandi hafi réttindi sem læknaritari. Upplýsingar í síma 437-1400 Guðrún Umsóknir sendist til: Framkvæmdastjóra Heilsugæslustöðvarinnar Borgarbraut 65-310 Borgarnesi ATVINNA ÓSKAST Mig vantar vinnu á Akranesi eða nágrenni. Allt kemur til greina. Vanur afgreiðslu, sölumaður og fl. Upplýsingar i sima 824-6967 joskar@simnet.is V________________________________J INGI TRYGG VASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali FASTEIGNIR í B0RGARNESI BORGARBRAUT 31, Borgarnesi Ibúð á efri hæð í tvíbýlishúsi, 63,8 ferm. Forstofa flísalögð. Stofa dúklögð. Eitt herbergi dúklagt. Eldhús dúklagt, máluð eldri innrétting. Baðherbergi dúklagt. Á neðri hæð er sameiginlegt þvottahús og geymslur. Verð: 9.000.000 KVELDÚLFSGATA 28, Borgarnesi íbúð á 3. hæð, 74,8 ferm. Hol, stofa og tvö herbergi nýlega parketlagt. Eldhús nýlega parketlagt, eldri viðarinnrétting. Baðherbergi dúklagt. Geymslur og sameiginl. þvottahús í kjallara. Eign í góðu ástandi, utan sem innan. Verð: 12.500.000 Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61,310 Borgarnes, s. 437 1700, 860 2181 -fax 4371017, netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.