Skessuhorn


Skessuhorn - 08.03.2006, Page 11

Skessuhorn - 08.03.2006, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 11 Ungir dansarar sópuðu að sér verðlaunum á alþjóðlegu dansmóti Glæsilegir fulltrúar Islands á alþjóðlegu dansmóti á Irlandi. áhrif á dansarana og þau komu öll tvíefld heim tilbúin til að halda áfram og bæta sig enn frekar,“ segir Eva. Þessa dagana er mikill dansáhugi í Borgarfjarðarsveit. Hjá Evu Karen eru um 60 nemendur að æfa dans frá 6 ára aldri upp í 17 ára. Allir þessir krakkar hafa mikinn metnað og ætla sér að verða góðir dansarar. Hópurinn æfir einu sinni til tvisvar í viku auk þess sem þau fara í einka- tíma á tveggja vikna fresti. „Eins og staðan er í dag tel ég miklar líkur á því að dansinn muni lifa áfram hér í Borgarfjarðarsveit og jafnvel skila af sér atvinnudönsurum í náinni fram- tíð. Mér finnst mjög gaman að vinna með þessum krökkum, þau eru jákvæð og leggja mikinn metn- að í það sem þau eru að gera,“ seg- ir Eva að lokum. KOO \ Happdrætti Líknarsjóðs Lionsklúbbsins EÐNU Dregið hefur verið í happdrætti Líknarsjóðs Lionsklúbbsins Eðnu. Eftirtalin númer hlutu vinning: I lok febrúar héldu 10 íslensk danspör af stað til Irlands til að keppa á alþjóðlegu dansmóti en keppendur þar skiptu þúsundum. Þar af voru 7 pör úr Borgarfjarðar- sveit og eitt par frá Akranesi en hópurinn keppti undir merkjum Dansskóla Jóns Pémrs og Köru. Þetta efnilega dansfólk frá Vestur- landi kom heim með alls 18 verð- launapeninga og mega þau því stolt vera. Krakkarnir skipuðu flest effi sætin í byrjendaflokki F (frjálsri að- ferð) í bæði latin- og standard dönsum en í þeim flokki kepptu rúmlega 30 pör. Það voru þau Mar- en Jónasardóttir og Karl Friðrik Hjaltason frá Akranesi sem báru sigur úr býtum og höfhuðu í 1. sæti í bæði latin- og standard dönsum í þessum flokki. Þá var einnig keppt í ballroom dönsum og náðu þau jafn- framt góðum árangri þar en þess má geta að mörg þeirra voru að keppa upp fyrir sig miðað við fyrri árangur. „Krakkarnir hafa verið að ná góðum árangri hér heima og áttu þau því einhverja möguleika á verð- launasætum," segir Eva Karen Þórðardóttir, sem þjálfað hefur krakkana úr Borgarfirðinum síðast- liðin 3 ár. „Þau voru svolítið stressuð til að byrja með sem er afar eðlilegt miðað við að þau voru að keppa við margreynda dansara ffá öðrum löndum og umgjörðin var öll svo yfirþyrmandi. Það hafði samt sem áður engin áhrif á vel- gengni þeirra því þau náðu glæsi- legum árangri sem fór fram úr okk- ar björtustu vonum,“ segir Eva. Unnu í Samkaup til að fjármagna ferðina Þar sem ferðina bar brátt að tóku krakkarnir sig til og gengu í hús til að fjármagna ferðina með því að setja upp sýningar og selja ýmis konar varning. Hópurinn fékk t.d. vinnu hjá Samkaup í einn dag og fóru launin þeirra upp í ferðina.“Þau voru mjög dugleg og mörg fyrirtæki og félög studdu við bakið á þeim þannig það er ekki annað hægt að segja en að fjáröfl- unin hafi gengið vel,“ segir Eva stolt. Hún segir að í byrjun hafi verið nokkrar efasemdir um ferðina til Irlands þar sem kostnaður og undirbúningur væri mikill en einnig voru uppi vangaveltur um hvort danspörin væru tilbúin fyrir svona stórt mót. „I dag sé ég ekkert nema jákvætt við að hafa farið. Það eru allir glaðir og ánægðir með ferðina í heild og það er sérstaklega gaman að ná svona góðum árangri eftir mikinn og erfiðan undirbún- ing þar sem allir lögðu hönd á plóg til að gera þetta sem skemmtilegast. Danslega séð hafði þessi ferð mikið að segja og hafði mjög hvetjandi Myndarlegir ballroom dansarar. Frá vinstri eru Einar, Hjálmur, Orri, Gunnar ogArnar. Gagnrýna gamalt timburhús við Garðasel Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins í bæjarstjórn Akraness, sem sitja í minnihluta, telja að meirihluti bæjarstjórnar sýni fyrirhyggjuleysi í dagvistarmálum bæjarins og benda á að ætli bæjarfélagið að vaxa og dafna þurfi að bjóða íbúum góða þjónustu. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar á fundi í síðustu viku þegar rædd var sú ákvörðun bæjar- ráðs að undirbúa uppsetningu á lausri kennslustofu við leikskólann Garðasel vegna skorts á dagvistar- rýmum. A fundinum lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram bókun þar sem meðal annars segir: „Við und- irrituð bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi viljum benda á fyrirhyggjuleysi núverandi meiri- hluta, með að huga ekki tímanlega að lausn á skorti á dagvistarplássi, heldur verður að grípa til bráða- birgðalausnar með því að setja gamalt timburhús við leikskólann Garðasel. Ætli bæjarfélagið að vaxa og dafna og geta boðið íbúum sín- um góða þjónustu þá þarf nauðsyn- lega að vera fyrir hendi nægt dag- vistarrými. Það eru engin ný sann- indi, en virðist þurfa að segja meiri- hlutanum regltdega.“ Þá lögðu bæjarfulltrúarnir til að unnið verði „að fyrirhyggju og til framtíðar með málefni yngstu Ak- urnesinganna okkar,“ eins og segir í bókuninni. Þetta vilja bæjarfulltrú- arnir gera og lögðu fram aðgerðar- áætlun í þremur liðum. I fyrsta lagi verði nýskipuðum starfshópi um leikskólamál falið að kanna mögu- leika á viðbyggingu við Garðasel. I öðru lagi verði starfshópnum falið að skila inn tillögum um úrbæmr í málafokknum sem allra fyrst „helst fyrir 1. apríl en ekki í júlí eins og meirihlutinn lagði til,“ segir í bók- uninni. I þriðja lagi vill minnihlut- inn að hafinn verði strax undirbún- ingur að byggingu nýs leikskóla á lóð í Flatahverfi. HJ 1004-1006-1015-1018-1033-1041 -1053-1085-1107-1112-1116-1135- 1159-1141-1188-1218-1233-1261 -1264-1265-1268-1283-1293-1296- 1303-1311-1324-1327-1330-1331-1332-1334-1362-1402-1411 -1420- 1426-1442-1452-1456-1457-1485-1492-1493-1503-1506-1509-1519- 1524-1571 -1573-1579-1582-1586-1602-1604-1612-1616-1625-1628- 1646-1651 -1658-1680-1681 -1688-1689-1696-1698-1704-1718-1728- 1757-1762-1774-1779-1789-1803-1824-1847-1894-1896-1905-1908- 1909-1948-1961 -1959-1971 -1974-1978-1985-1986-1991 -1999 Vinninga má vitja í húsi Lionsklúbbanna á Akranesi að Suður- götu 108, laugardaginn 11. mars n.k. milli kl. 13 og 16. Landsbankinn Banki allra landsmanna V!_______________________ Uonsklúbburínn EÐNA þakkar stuðnlnginn. _____________________J FULL BÚÐ af nýjum vörum T.d. kvenfatnaður í st. 38-54 borgcirsport hyrnutorgi - borqarnesi - sími 437 1707 ATVINNA íslenskajárnblendifélagið ehfóskar eftir að ráða starfsfólk til sumarafleysinga á komandi sumri, 2006. í boði er bæði dag og vaktavinna. Lágmarksaldur er 18 ár. Lyftaranámskeið verður í boði fyrir þá sem verða ráðnir og frumþjálfun verður í apríl og maí. Umsóknareyðublöð er hægt aðprenta út á heimasíðu íj, www.alloys.is. Nánari upplýsingar veita Ómar Sigurðsson, s. 860 6248 og I Skafti S. Steinólfsson, s. 860 6275 íslenska jámblendifélagið ehf. Icelandic Alloys Ltd.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.