Skessuhorn


Skessuhorn - 08.03.2006, Qupperneq 12

Skessuhorn - 08.03.2006, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 ssEssuiiöiÉæi Nýtur sín best undir mikilíi pressu með mörg jám í eldi Þekktasta núlifandi Vestlendingnrinn; fjölmiðlamaðurinn og skemmtikrafturinn Gísli Einarsson tekinn tali A vettuangi viSfréttaöflunfyrir RUV. Gísla Einarsson fréttamann þarf tæpast að kynna fyrir lesendum Skessuhorns. Hann var ritstjóri blaðsins ffá stofnun þess 1998 og þar til fyrir ári síðan þegar hann söðlar um og eykur vinnu sína fyrir Ríkisútvarpið við frétta- og dag- skrárgerð. Bein afskipti af fjölmiðl- un hófust hjá Gísla fyrir réttum 10 árum síðan þegar hann réði sig sem ritstjóra á blaðið Vesmrlandspóst- inn sem þá þjónaði hlutverki hér- aðsfréttablaðs á Vesturlandi. Þannig hefur hann verið viðloðandi fjölmiðla í áratug og óhætt að segja að hann hafi áorkað mörgu á þeim tíma. Síðan þá hefúr engum ein- staklingi öðrum tekist að færa Vest- urland betur á kortið en Gísla Ein- arssyni og má því segja að íbúar landshlutans eigi honum margt að þakka. Eftír að útgáfa Vesturlandspósts- ins leið undir lok vann Gísli að stofnun Skessuhorns og fylgdi eftir því verkefni næstu 8 árin. A þessum áratug er óhætt að segja að Gísli hafi markað djúp spor í fjöl- miðlaumhverfið hér á Vesturlandi og e.t.v. ekki síður á landsvísu eftír að hann byrjaði að vinna fyrir Rík- isútvarpið, þar sem hann hefur fært ferska vinda inn í dagskrárgerð RUV og gert þar íbúum og rnálefn- um landsbyggðarinnar hærra undir höfði en flestir kollegar hans á þeirri annars ágætu stofnun. Gísli fer sjaldan troðnar slóðir við vinnu sína og hefur náð að skapa sér sterka ímynd þar sem saman fer hispurslaus frásagnarlist, ágætt fréttamat og íslenskur húmor. Þennan beitta húmor og hæfileik- ann til að færa spaugilegar hliðar mannlífsins í búning sem fólki líkar hefur gert hann að einum vin- sælasta skemmtikrafti landsins. Starfs síns vegna undanfarin ár hefur Gísli verið það sem kalla má vanhæfur í viðtal hér í Skessuhorni, eða þar til nú því hann er hættur störfum fyrir Skessuhom að öðm leyti en því að skrifa þar vikulega pistla. En við sem komum að útgáfu Skessuhoms í dag teljum okkur eiga ansi mikið í piltinum enda vandséð hvernig persónan og þetta blað verða alveg slitin í sundur. Var hann því tekinn tali einn blíðviðrisdag í liðinni viku og hann beðinn að lýsa fyrir lesendum helstu verkefnum sínum um þessar mundir. Það er al- veg óhætt að segja að af nægu er að taka. Undið upp á sig „Verkefnin hjá mér era óþrjót- andi og verða það vonandi svo lengi sem ég dreg andann. Það er alltaf best að hafa heldur of mikið að gera, ég vinn t.d. alltaf best á ákveðnum yfirsnúningi þó svo bíl- arnir mínir væru því vafalaust ósammála gætu þeir mælt. Það er bara spurning að velja og haftia og reyna að komast skammlaust yfir það sem manni finnst skemmtilegt að gera. Því miður gengur stundum svolítið illa að haftia, enda alltaf að koma upp einhver skemmtileg verkefni og stundum ætlar maður sér kannski um of,“ svarar Gísli að- spurður um hvað hæst beri þessa dagana hjá honum. Yfir kaffíbolla með mörgum sykurmolum lætur Gísli móðann mása og viðmælandi vopnaður penna og skrifblokk hef- ur enganvegin undan og þarf af og til að stoppa hann af til að missa ekki þráðinn. Skrifstofa Gísla er í fyrram safn- aðarheimili Borgnesinga við Bröttugötu en þar hefur harm í af- lögðu íbúðarhúsi komið fyrir skrif- stofu og hljóðveri þar sem hægt er að taka upp viðtöl fyrir útvarp. I ársbyrjun urðu þau tímamót að Gísli var fastráðinn sem fréttamað- ur hjá RUV á Vesturlandi. „Það var ákveðið í haust að ég færi í fast starf hjá RUV og heyri þar undir frétta- svið en ég vinn fyrir bæði frétta- stofti útvarps og sjónvarps. Þessi vinna hefur smám saman á mörgum árum verið að vinda upp á sig. Upp- haflega var það Skessuhorn sem samdi við RUV um að fyrirtækið sinnti fréttaöflun hér á svæðinu og byrjaði ég árið 1999, á vegum Skessuhorns, að vinna pistla fyrir útvarpið og ári síðar bættist sjón- varpið við. Þessi vinna þróaðist síð- an einnig yfir í dagskrárgerð og hef ég á tíðum leyst af á fréttastofu sjónvarps og þannig náð að komast þokkalega inn í starfið og kynnst starfsfólki þessara ljósvakamiðla.“ Stór áfangi Vesturland er orðið eini lands- hlutinn sem er án svokallaðs svæðisútvarps, sem sér um svæðis- bundnar útsendingar að hluta á tíðni rásar tvö. Þar er fjórum sinn- um í viku útvarpað fréttum og dag- skrárefni af viðkomandi svæði og næst útsendingin ekki útfyrir við- komandi landshluta. Gísli segir enn einhvern tíma í að svæðisútvarp með sama hætti verði sett upp á Vesturlandi, þó áhuginn sé fyrir hendi innan RUV Hann segir hins- vegar að stór áfangi hafi náðst um liðin áramót þegar stofnuð var svokölluð svæðisstöð sem hefur það hlutverk að afla ffétta af Vesturlandi til að útvarpa og sjónvarpa á lands- vísu. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir þennan landshluta að hafa svæðisstöð sem þessa, jaftivel þó stöðugildið sé einungis eitt enn sem komið er. Hlutverk mitt er að miðla fréttum af svæðinu út á við, til allra landsmanna, og það tel ég mikil- vægara heldur en að miðla þeim inná við eins og svæðisútvarp myndi gera þótt það verði góð við- bót þegar þar að kemur. Eg tel per- sónulega að Skessuhorn sinni ágæt- lega því hlutverki að sjá um svæðis- bundna fréttamiðlun og vera um leið vettvangur fyrir skoðanaskipti íbúa Vesturlands. En það þarf að láta landsmenn vita af því sem hér er að gerast og þar tel ég að Rikis- útvarpið hafi ekki einungis lög- bundnu hlutverki að gegna, heldur sé það að standa sig mun betur en aðrir ljósvakamiðlar í því samhengi og dagblöðin einnig. Ríkisútvarp- inu ber skylda til að sinna þessu svæði sem öðram, enda útvarp allra landsmanna, rekið af ríkinu í al- mannaþágu. Það hefur lengi verið mín skoðun að það sé eitt stærsta byggðamálið að hverju svæði og hverjum stað sé veitt athygli í gegn- um fjölmiðla. Því er ég þeirrar skoðunar að stofnun svæðisstöðvar hér um liðin áramót sé stærsti áfangi í fjölmiðlun á Vesturlandi ffá því að Skessuhorn var stoftiað fyrir 9 árum síðan.“ Svæðisútvarp engin töfiralausn Gísli heldur áfram: „Ég hélt á tímabili að svæðisútvarp þyTfti að koma fyrst, en það er ekki raunin. Frá Vesturlandi eru nú þegar að koma álíka margar fféttir í útvarpi og sjónvarpi og ffá hinum lands- hlutunum, að Norðurlandi undan- skildu. Það sem fyrst og ffemst tef- ur að ekki heftir enn verið sett upp svæðisútvarp á Vesturlandi er sú staðreynd að landshlutinn er til- tölulega strjálbýll og fjöllin ekki rétt staðsett með tilliti til útvarpssend- inga. Því þarf að setja upp marga og dýra senda til að hægt eigi að vera að ná til allra. Þetta er því bæði spurning um stoftikostnað og síðan Óhœtt er að segja að Gíslifari ekki alltaf troðnar slóðir. Hér í bókstaflegri merkingu atts ekki. Þegar veitingastaðurinn í Fossatúni var formlega vtgíhir á sl. ári stiklaöi Gísli á steinum út í miðja Grímsá þvíþaðan fannst honum húsin njóta sín best á mynd. „Það kemur sér oft vel aí vera kloflangur við aðstæður sem þessar. “

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.