Skessuhorn


Skessuhorn - 08.03.2006, Qupperneq 14

Skessuhorn - 08.03.2006, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 ► * V' Það er fingralipurð í ættínni segir Sólberg Björnsson, fyrrverandi verkstjóri hjá Þorgeiri og Ellert á Akranesi Sólberg Björnsson og kona hans Arnfríður Árnadóttir búa í ný- leguhúsi, skammt frá merkjunum á milli Akraness og Innri Akranes- hrepps. Þau hafa búið þar í fá ár, eða frá árinu 2000, en alltaf í sinni sam- eiginlegu búskapartíð ffam að þeim tíma átt heima á Vesturgötu 61 á Akranesi. Sólberg er fæddur á Hofs- ósi 7. nóvember 1932 í einu af hús- unum í Kvosirmi sem heitir Brim- nes. Þau voru átta systkinin, 5 bræð- ur og 3 systur. „Húsakynni voru ekki stór í sniðum í þá daga,“ segir Sól- berg hægt og gætilega; „húsið var tvö herbergi." í síldinni á Siglufirði „Ég stundaði barnaskólanám á Hofsósi og fór síðan í Reykjaskóla í tvo vetur, þetta var nú öll skólagang- an á unglingsárunum, sumrin þar á eftir var ég í síld á Siglufirði. Þar var mikið um að vera og stundum var fjörðurinn nánast fullur af skipum.“ Spurður um hvort ekki hafi verið sukksamt á þessum árum, brosir Sól- berg og segir rólega að ekki minnist hann þess nú að það hafi verið til vandræða. „Við sáumst fyrst á Siglu- firði,“ bætir Arnfríður við. „Við fengum að fara norður, fjórar saman, 16 ára og unnum á plani í þrjú sum- ur. Þá var okkur treyst að fara svo langt á svo þekktan og umsvifamik- inn stað.“ Amffíður er fædd í Geirs- hlíð í Flókadal. Móðir hennar var Margrét Pétursdóttir sem lést í hárri elli, 97 ára. Faðir hennar lést úr Sólberg Bjömsson í stofunni heima. berklum þegar hún var á fyrsta ári. „Berklar réðust að minni fjölskyldu. Það voru 6 börn sem voru föður- eða móðurlaus í minni fjölskyldu. Móðir mín var áreiðanlega óvenju ákveðin og dugleg, hún byggði íbúð- arhús að Vesturgötu 61, vann alltaf úti og ræktaði kartöflur á nánast allri lóðinni við húsið. Hún var alltaf að, alla ævina,“ segir Arnffíður. Sest að á Skaganum „Égflutti á Skagann 1951 og vann við beitningu í tvær vertíðir, þá hóf ég nám við skipasmíðar hjá Þorgeiri og Ellert. Þegar farið var að smíða stálskipin lærði ég einnig vélvirkjun. Ég hef mrnið hjá þeim öllum feðg- unum; Þorgeiri, Jósep og Þorgeiri yngri. Þetta gekk afar vel. Þeir feðg- ar allir voru mér afar góðir yfir- menn. Ég var þarna flokksstjóri í slippnum og endaði sem yfirverk- stjóri. Ég var heppinn, alltaf við góða heilsu og slapp við óhöpp. Reyndar hefur þessi vinna truflað heyrnina, í þá daga voru ekki notað- ar eymahlífar. Það syngur alltaf dá- HefSbundinn árabátur; hagleiksgripur úr höndum Sólbergs. Höfrungur. Nákvœm eftirlíking af skipinu sem hann kom aó smíii á árið 19S7. lítið í hausnum á mér,“ segir Sólberg brosandi. „Stærstu skipin sem við smíðuðum vom togarar. Ég man eft- ir skipi sem fór á Gmndarfjörð, öðm man ég eftir sem fór á Hornafjörð. Síðasta skipið sem ég kom að var stálskip fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Ég verð að játa að þetta rennur svo- lítið allt saman hjá mér, minnið hef- ur aldrei verið mjög sterkt og enga hélt ég dagbókina á þessum ámm,“ segir Sólberg. Fingralipurð í ættinni „Það er áreiðanlega ættgengt að vera laginn í höndunum, frændi minn einn bjó á Dalvík, Jón Björns- son og var þekktur hagleiksmaður, bráðflínkur við allar smíðar hvort sem var á tré eða járn. Hann smíðaði m.a. þvottavél fyrir heimilið sem dugði í mörg ár. A Bessastöðum mun vera lítill rokkur sem hann smíðaði og var gefin Vigdísi Finn- bogadóttur í heimsókn hennar til Dalvíkur. Rokkur sá er algjör lista- smíði.“ Sólberg gengst líka við því að hafa gaman af smíðum og einnig að eiga fingralipran son. Björn Steinar er þekktur orgelleikari, nú starfandi organisti við Akureyrar- kirkju. Skipslíkön „Við erum búin að eiga sumarbú- stað við Skorradalsvatn, í Indriða- staðalandi í 35-40 ár. Fyrst var þetta aðeins skúr en flest sumur hefur eitt- hvað verið dundað í breytingum og viðhaldi. Við dveljum þar mikið yfir sumarmánuðina. Þá hefur fjölskylda mín átt og haldið við íbúðarhúsi því sem foreldrar mínir bjuggu síðast í á Hofsósi í Skagafirði. Við höfum haldið þar öllu í horfinu eins og það var þegar foreldrar mínir létust.“ Þessar upplýsingar koma hægt og rólega og er Sólberg tregur til að gera mikið úr eigin hæfileikum og fingralipurð. Spurður nánar um hvað hann sé nú að föndra við, leggur hann líkan af árabátd á borðið. „Þessi er nú smíðaður eftir teikningu, harm á að vera í réttum hlutföllum, stýrið alveg eins og það var algengast og árarnar líka.“ Þetta líkan var gjörsamlega ó- aðfinnanlegt í útliti að öllu leyti. Spurður um fleiri slíka handverks- muni, þá kom Sólberg með líkan af Höfrungi sem smíðaður var hjá Þor- geiri og Ellert. „Líklega var það 1957, þessi Höffungur var annar báturinn sem ég kom að smíði á. Þetta líkan er nákvæmlega í sömu hlutföllum og Höfrungur var og á það við um hvem einasta hlut í lík- aninu.“ A meðfýlgjandi ljósmyndum má vonandi sjá hversu hstilega vel líkön- in era gerð. Það hefur gengið afar rólega og yfirvegað fýrir sig að fá fram þessar upplýsingar hjá Sólberg Björnssyni og konu hans, Amfríði Amadóttur. Hjá þeim er afar friðsælt og notalegt að sitja og spjalla en það er viðmæl- andi viss um, að leitun er að jafh orðvömm og hófsömum manni og Sólberg Björnssyni, fýrrverandi yfir- verkstjóra hjá skipasmíðastöð Þor- geirs og Ellerts á Akranesi. ÓG Kraftmikil sýning á Vegas hjá NFFA Þór Birgisson og Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir leika tvœr af aðalpersónum söngleiksins, þau Aron og Fanneyju. Að koma til Las Vegas er hverjum manni eftirminnilegt. Ekki svo að það valdi straumhvörfum í lífi venju- legs manns heldur er þar að finna hápunkt mannlegrar firringar. Áreit- ið sem mætir fólki er gríðarlegt og hvergi er undan því vikist. Léttirinn að komast þaðan er ekki minni en eftirvæntingin að komast þangað. Spilakassahljóðin og tónlistin var lengi að hljóðna í eyrum saklausra Islendinga. A laugardaginn frumsýndi leiklist- arklúbbur Nemendafélags Fjöl- brautaskólans á Akranesi leikritdð og söngleikinn Vegas í leikstjóm Olafs Sk. Þorvaldz. Olafur er einnig höf- undur verksins. Hann lærði leiklist við Arts Educational í London og hefur starfað í Bretlandi bæði sem leikari og leikstjóri. Hér á landi hef- ur hann m.a. farið með hlutverk í sýningum hjá Borgarleikhúsinu og hjá leikhópnum Kláusi. I stóram dráttum fjallar verkið um Djöfulinn og fjölskyldu hans sem telur þrjú börn. Hann er afar þreytt- ur á börnum sínum því þau hafa ein- stakt lag á að gera honum allt til miska. Til þess að losna við þau, um tíma að minnsta kosti, sendi hann þau uppá jörðina. Þar bíður þeirra göfugt verkefhi að hans mati. Nefni- lega að eyðileggja samband tveggja skemmtikrafta í Vegas þeirra Fann- eyjar og Arons. Skemmtikraffarnir hafa unnið sér það til frægðar að vera bestu eftirhermur Marilyn Monroe og Elvis Arons Presley og skemmta sem slíkir við mikla aðdáun samborgara sinna. Ekki svo að skilja að í raun hafi þurft sjálfan Djöfulinn og böm hans til að eyðileggja svo mjög fýrir þeim því í kringum þau er mikið lið manna og kvenna sem greinilega kalla ekki allt ömmu sína í mannlegum samskipmm. Húsbónd- inn á skemmtistaðnum, Ramon hinn spænskættaði, er ákveðinn stjórn- andi og vill allt til vinna að ná ástum Fanneyjar og bendir henni ítrekað á þá staðreynd að htergi sé henni bet- ur borgið en í örmum hans. Tónlistin er fýrirferðarmikill hluti leikritsins því leikin era og sungin lög eftir Rolling Stones, Creedence Clearwater Revival, Deep Purple, Queen og fleiri fræga listamenn. Lögin hafa öðlast íslenska texta höf- undar leikritsins. Ekki er Vegas án dansa og þeir era margir í leikritinu sem Asta Bærings samdi. Samtals koma fram í verkinu yfir 40 leikarar og dansarar auk fimm manna hljóm- sveitar. Þrátt fýrir brösótt æfingatímabil, eins og lesa má um í leikskrá, hefur tekist að setja upp mjög trúverðugt verk. Það er rnjög kröffugt frá fýrstu mínútu til hinnar síðustu enda tón- listin ekki af verri endanum. Brjál- semin og mannfýrirlitning skemmt- anaiðnaðarins kemst vel til skila þó einnig komi fram að ekki er öllum alls varnað þar á bæ. Ekki skal efni leikritsins rakið hér af tillitssemi við þá sem eiga effir að berja það aug- um. Ekki er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur með uppsemingu þessa verks. Það kallar á leikhæfi- leika, sönghæfileika og danshæfi- leika hjá flestum leikaranna. Flestir leysa sín verkefhi af hendi af stakri prýði. Bjarni Freyr Björgvinsson í hlutverki Ramons var þó án efa fremstur meðal jafningja. Leikur hans var öraggur og söngur hans var ffábær. Hann hefur mikla söngrödd drengurinn og er skýrmæltur. A köflum kom hinn sungni texti sýningarinnar ekki nægilega vel ffarn og verður það trúlega að skrif- ast á hljóðblöndun verksins. Raddir söngvaranna hefðu mátt vera ff amar í blöndun en það er nú reyndar al- þekkt vandamál hér á landi. Hljóm- sveit sýningarinnar, sem fimm ungir drengir skipa, stóð sig ffábærlega. Hljóðfæraleikurinn var mjög þéttur og nánast hnökralaus. Sviðsmyndin var einföld en skemmtileg og ekki spillti fýrir þáttur okkar ágæta Skessuhorns þar. Sýningin Vegas er mjög vel unnin og að henni lokinni leiðir maður auðvitað hugann að því þrekvirki sem nemendur sýna til þess að koma henni á fjalirnar. Nætumar við æf- ingar em eflaust margar og kennslu- stundirnar þar sem aðstandendur sýningarinnar hafa dottað era eflaust ekki færri. Því má með hreinni sam- visku hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að sjá þessa líflegu sýningu. Því miður er það nú svo að ekki þarf að fara alla leið til Las Vegas til þess að verða vitni að þeirri firringu sem þarna em gerð svo góð skil. HJ

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.