Skessuhorn


Skessuhorn - 08.03.2006, Side 15

Skessuhorn - 08.03.2006, Side 15
L>Ki,33ijnu>^ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 15 Ný stjórn og varamenn Ferðamálasamtaka Sneefellsness. Miklar framfarir í ferða- þjónustu á Snæfellsnesi Aðalfundur Ferðamálasamtaka Snæfellsness var haldinn á Hótel Olafsvík sl. sunnudag. Þar voru mættir ferðaþjónustuaðilar, rekstr- araðilar fyrirtækja sem og aðrir áhugamenn um ferðaþjónustuna al- mennt. I ár fagna samtökin 15 ára afmæli sínu og í tilefni af því var les- ið upp úr fúndargerðum undirbún- ingsfundar samtakanna og stofn- fúndinum sjálfúm sem haldinn var í Ólafsvík 16. maí 1991. Á þeim fundi var rætt um mikilvægi samvinnu ferðaþjónustuaðila og hve nauðsyn- legt væri að vinna að sameiginlegum hagsmunum og markaðsmálum þeirra. Síðan þá hafa miklar ffamfar- ið átt sér stað í atvinnugreininni og voru fundargestir á einu máh að margt hefði áunnist á síðasm 15 árum með mikilli þrautseigju og dugnaði þeirra sem í hlut eiga. Því er það áríðandi að halda þessu öfl- uga starfi áffam svo ferðaþjónustan geti eflst og dafnað og starfað á þeim vettvangi sem áður hefur verið gert. Þá var Marteinn Njálsson kosinn nýr formaður stjórnar en hann er jafnframt fulltrúi Grundarfjarðar- bæjar. Með honum í stjórn voru kjörin; Svanborg Siggeirsdóttir full- trúi Stykkishólmsbæjar, Kristín Jó- hannesdóttir fulltrúi Ólafsvíkur, Skúli Alexandersson verður fulltrúi fyrir Hellissand og Rif og Þorkell Símonarson verður aðalmaður fyrir sunnanvert Snæfellsnes. Frístundabyggðir í nágrenni þéttbýlisstaða Fundarmenn voru sammála um ágæti Snæfellsnesskortsins og hvöttu þeir nýja stjórn til að halda þeirri útgáfu áfram. Þá lagði stjórn- in ffam ályktun, sem samþykkt var og er eftirfarandi. „Aðalfundur Ferðamálasamtaka Snæfellsness haldinn 5. mars 2006 fagnar þeirri fjölgun og uppsetningu góðra merkinga við bæi og stofúanir sem átt hefur sér stað á undanförnum árum í sveitum á Snæfellsnesi. Jafn- framt bendir fundurinn þeim til- mælum til sveitarstjórna í þéttbýlis- stöðunum á Snæfellsnesi að sjá til þess að húsa- , götu- og umferðar- merkingar sér þar í góðu ástandi. Þá telur fúndurinn áríðandi að í ná- grenni allra þéttbýlisstaðanna verði skipulagðar frístundabyggðir séu slíkar ekki þegar fyrir í skipulagi.“ Umhverfisvottun Green Globe Á fundinum flutti Marteinn er- indi um Greeen Globe vottun Snæfellsnes og mikilvægi þeirrar sérstöðu sem svæðið fengi sem vottaður áfangastaður í ferðaþjón- ustu. Þar kemur fram að Green Globe 21 hefur mjög öflugt um- hverfisvottunarkerfi sem er bæði frammistöðuvottunarkerfi og innra eftirlit með verðlagskerfi fýrir fyrirtæki og sveitafélög. Green globe leggur mikla áherslu á hagræna hvata t.d. sparnað í kaupum á aðföngum og nærgætni við nánasta umhverfi og samfélag. Á næstu vikum er svo von á er- lendum aðila til að taka út sveitafé- lögin á svæðinu og mun það svo ráðast í framhaldinu á því hvort svæðið hjóti þessa viðurkenningar. Hann hvatti jafnframt fundarmenn til að vera bjartsýna og líta á vandamálin í rekstri sínum sem verkefni. Hann sagði margt vera að breytast til hins betra en horfa þyrfti til aukinnar fagþekkingar í ferðaþjónustu líkt og aðrar at- vinnugreinar hafa gert. Þá sagði hann arðsemi ferðaþjónustunnar þurfa að aukast og í því sambandi væri stuðningur yfirvalda, háskóla og fræðasetra nauðsynlegur í framtíðinni. KÓÓ Guðrún Jóna endurheimtir sæti sitt í byggðaráði Félagsmálaráðtmeytið hefur með úrskurði ógilt þá ákvörðun sveitar- stjórnar Dalabyggðar að hafúa ósk Guðrúnar Jónu Gunnarsdóttur um að endurkosning fari fram í byggðaráð Dalabyggðar. I fram- haldi af þessum úrskurði hefur Guðrún Jóna verið kjörin að nýju í byggðaráð og vonar hún að með þessum úrskurði ráðuneytisins verði öllum kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins gefinn kostur á að sinna starfsskyldum sínum. Forsaga málsins er sú að á sínum tíma svipti sveitarstjórn Dala- byggðar Guðrúnu Jónu seturétti í sveitarstjórn og í framhaldi af því vék hún sæti í byggðaráði og var Snæbjörg Bjartmarsdóttir kjörin í stað hennar í ráðið. Félagsmála- ráðunejrtið úrskurðaði á sínum tíma þennan gjörning sveitarstjórnar- innar ógildan og tók Guðrún Jóna því sæti í sveitarstjórn að nýju. Á fundi sveitarstjórnar þann 17. nóv- ember óskaði Snæbjörg eftir því að kjörið yrði að nýju í byggðaráð en því hafnaði sveitarstjórn með fjór- um atkvæðum gegn tveimur. Kærði Snæbjörg þennan úrskurð til fé- lagsmálaráðuneytisins sem nú hefur fellt sinn úrskurð. Á fundi sveitarstjórnar Dala- byggðar þann 21. febrúar var þessi úrskurður kynntur og þá bókaði Guðrún Jóna Gunnarsdóttir eftir- farandi: „Síðustu misseri hefur meirihluti sveitarstjórnar Dala- byggðar gróflega misbeitt valdi sínu og viðhaft persónulegar of- sóknir og einelti. Er það von mín að með þessum úrskurði ráðuneyt- isins linni þeim þannig að öllum kjörnum fulltrúum sveitarstjórnar verði gefinn kostur á að sinna starf- skyldum sínum eins og þeir eru kjörnir til.“ Þá óskaði Jónas Guð- mundsson eftir því að bókað yrðir að hann mótmælti þessum mál- flutningi Guðrúnar Jónu „sem rakalausum þvættingi,“ eins og seg- ir orðrétt í bókun hans. Snæbjörg Bjartmarsdóttir óskaði því eftir endurkosningu í byggða- ráð og gerði hún að tillögu sinni að Guðrún Jóna yrði kosin að nýju í ráðið. Á það var fallist. Bryndís Karlsdóttir lét þá bóka eftirfarandi: „Eg harma það vantraust sem Snæ- björgu Bjartmarsdóttur er sýnd hér að henni skuli ekki vera treyst til starfa í byggðarráði þá fáu fundi sem eftir eru. Eg vil þakka henni fyrir samstarfið í byggðaráði sem var með miklum ágætum.“ Snæ- björg Bjartmarsdóttir óskaði eftir að bókað væri að hún hafi óskað eftir endurkosningu því hún telji Guðrúnu hæfari til að sinna þessu starfi og að henni hafi verið rang- lega bolað út á sínum tíma. Hjf BILAVERKSTÆÐIÐ HOLTI VA^EGAMÓT ALLAR ALMENNAR VIÐGERÐIR - FRAMRÚÐUÍ SETNIN G AR - RÉTTINGAR - BLETTANIR OPIÐ ALLA DAGA - LÁNSBÍLL í BOÐI S.435 6662 & 895 6662 Pæjur OG PÓLITÍSK PLOTT Kvennahreyfing Samfylkingarinnar heldur súpufund í Hyrnunni laugardaginn 11. mars kl. 11. Á fundinn mæta þingkonurnar Anna Kristín Gunnarsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Katrín Júlíusdóttir. Á fundinum verður rætt um undirbúning sveitastjórnakosninganna. Samfylkingin Vfmet ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR www.limtrevirnet.is Starfsmenn óskast Vegna mikilla verkefna óskum við hiá Límtré Vírnet ehf eftir að ráða fólk til starfa í verksmiðju okkar í Borgarnesi. Bæði er um að ræða framtíðarstörf og sumarafleysingar í • Blikksmiðju • Járnsmiðju • Rafvirkjun • Völsun Við leitum að duglegu og traustu fólki og æskilegt að viðkomandi séu eldri en 18 ára. Hægt er að sækja um á heimasíðu okkar, www.limtrevirnet.is eða senda tölvupóst á reynir@limtrevirnet.is Allar nánari upplýsingar gefa Reynir Guðmundsson s.: 530-6073 og Aðalsteinn Símonarson s.: 530-6046 INGI TRYGGVASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali FASTEIGNIBORGARNESI HELGUGATA II, Borgarnesi Einbýlishús, íbúð 155,3 ferm. og bílskúr 24,8 ferm. íbúðin er á þremur pöllum. Efsti pallur: Þrjú herbergi, tvö parketlögð en eitt með dúkflísum. Baðherbergi allt flísalagt, Ijós viðarinnr., allt nýlega endumýjað. Tröppur upp á efsta pall parketlagðar. flísalögð. Stofa og borðstofa parketlagðar. Eldhús með dúkflísum á gólfi, viðarinnr. Neðsti pallur: Stigi og hol flísalagt. Tvö teppalögð herbergi. Snyrting öll flísalögð. Forstofa dúklögð. Þvottahús og búr. Stór lóð og fallegt útsýni. Góð staðsetning m.a. stutt í gmnnskóla og íþróttamannvirki. Verð: 27.000.000 Allar nánarí upplýsingar á skrífstofu Ingi Tryggvason hdl. - löggiltur fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61,310 Borgarnes, s. 437 1700, 860 2181, fax 4371017, netfang: lit@simnet.is - veffang: lit.is «

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.