Skessuhorn - 08.03.2006, Síða 23
jatssimu^:
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006
23
Badmintonmeistarar af Vesturlandi
íslandsmót unglinga í Badmint-
on var haldið í íþróttahúsinu við
Vesturgötu á Akranesi um liðna
helgi. Badmintonfélag Akraness
er 30 ára um þessar mundir og
var það því vel við hæfi að halda
mótið á Akranesi. Um 240 kepp-
endur mættu til leiks og spilaðir
voru 518 leikir. Vestlendingar voru
fjölmennir á mótinu og áttu bæði
Borgnesingar og Skagamenn eft-
ir að hampa titlum fyrir mótslok.
Heimamenn
með 11 titla
Akurnesingar hlutu alls 11 ís-
landsmeistaratitla en auk þess
höfnuðu þeir fjórum sinnum í öðru
sæti og í 18 leikjum í 3. - 4. sæti
auk þess að vinna í tveim auka-
flokkum. Mesta afrek mótsinns
vann Skagastúikan Una Harðar-
dóttir en hún vann þrefalt í telpna-
flokki, þá unnu skagamennirnir
Karitas Ósk Ólafsdóttir og Róbert
Þór Henn tvöfalt í sínum flokkum.
Mesta afrek mótsins átti Una Harðardóttir úr IA sem vann þrefalt á mótinu.
Þau náðu bestum árangri UMSB fólks á mótinu.
islandsmeistarar ÍA eru sem hér
segir. Una Harðardóttir í einliða-
leik telpna, tvíliðaleik og tvennd-
arleik. Karitas Ósk Ólafsdóttir í
einliðaleik stúlkna og tvíliðaleik.
Róbert Þór Henn í einliðaleik
drengja og tvíliðaleik. Birgitta Rán
Ásgeirsdóttir í tvíliðaleik stúlkna.
Hulda Einarsdóttir í tvíliðaleik
telpna. Ragnar Harðarson í
tvenndarleik og Egill Guðlaugs-
son í tvíliðaleik sveina.
4 titlar í Borgarnes
13 keppendur mættu á mótið
frá Borgarnesi og var árangur
þeirra mjög góður. Trausti Eiríks-
son varð tvöfaldur íslandsmeistari
í sveinaflokki (U-15) en hann sigr-
aði Hauk Stefánsson TBR í úrslit-
um í einliðaleik og í tvíliðaleik sigr-
aði hann ásamt Agli Guðlaugssyni
ÍA þá Hauk Stefánsson og Viktor
Jónasson TBR. Magnús Björn
Sigurðsson sigraði Kristinn Inga
Guðjónsson í úrslitum í einliðaleik
Tap og sigur Snæfellinga
í vikunni sem leið fóru fram tvær
umferðir í lceland Express deild
karla í körfuknattleik. Snæfellingar
tóku á móti KR- ingum í 20. um-
ferð lceland Express deildarinnar
sem fram fór fimmtudaginn 2.
mars. Þetta var afar mikilvægur
leikur fyrir Snæfellinga og mikið í
húfi þar sem þeir hefðu getað með
sigri í þessum leik náð 3. sæti
deildarinnar. Leikurinn fór vel á
stað fyrir lið Snæfells og náði það
yfirtökum á fyrstu mínútum leiks-
ins. KR-ingar tóku þá snögglega
við sér, spiluðu af krafti og leiddu
allan leikinn sem endaði með sigri
þeirra 59-63. Ingvaldur Magni Haf-
steinsson átti frábæran leik að
vanda og skorði 21 stig.
Sigruðu Hauka
naumlega
Þá heimsóttu Snæfellingar
Hauka í Hafnarfjörð í næstsíðustu
umferð deildarinnar sem fram fór
síðastliðinn sunnudag í frekar
óvenjulegum en hörkuspennandi
leik. Snæfellingar náðu sigri 72-
71 þó Haukar hafi barist kröftug-
lega og verið sterkari í gegnum
leikinn. Lið Snæfells spilaði af-
burðarvel til að byrja með og
staðan var 9-26 Snæfelli í vil eftir
fyrsta leikhluta. Ungt og efnilegt
lið Hauka var þó ekki hætt og
kom af fullum krafti inn í leikinn
aftur og náðu að skora 31 stig í
öðrum leikhluta á móti 11 stigum
Snæfellinga og voru Haukar þar
með komnir yfir í hálfleik. ( þriðja
og fjórða leikhluta var leikurinn
nokkuð jafn en á endanum var
það Snæfell sem sigraði naum-
lega með aðeins eins stigs mun.
Maður leiksins var án efa Kristinn
Jónasson, leikmaður Hauka en
hann fór á kostum með 21 stig og
15 fráköst. Eftir þessa umferð sit-
ur Snæfell nú í 5. til 6. sæti deild-
arinnar ásamt Grindavík með 26
stig. KÓÓ
hnokka (U-13) og Þórkatla Þórar-
insdóttir sigraði Maríu Árnadóttir
TBR í úrslitum í einliðaleik í hnátu-
flokki (U-13). Magnús og Þórkatla
spiluðu saman í úrslitum í tvennd-
arleik en biðu lægri hlut fyrir Mar-
íu Árnadóttir TBR og Sigurði Rún-
ari Sigurðssyni KR. Benedikt
Bjarnason varð í öðru sæti í auka-
flokki í einliðaleik í snáðaflokki (U-
11) en þetta var í fyrsta skipti sem
keppt er í þessum flokki á ís-
landsmótinu.
MM
Áminning!
Tveir Skallasigrar í röð
Skallagrímsmenn gerðu sér
góða ferð austur fyrir fjall þegar
þeir unnu sigur á Hetti á Egilstöð-
um með 98 stigum gegn 87 í
lceland Express deildinni síðast-
liðinn fimmtudag. Dimitar Kara-
dzovski og Jovan Zdravevski,
sem báðir eru frá Makedóníu,
spiluðu af einstakri snilld og skor-
uðu 30 stig hvor. Leikurinn var
mjög jafn frá byrjun og var það
því ekki fyrr en undir lok leiksins
sem Skallagrími tókst að innbyrða
sigur. Bæði liðin voru að spila
góðan körfubolta og lið Hattar
sýndi og sannaði að þeir eiga
töluvert inni þó gengi þeirra hafi
verið slæmt á þessu tímabili.
Stórkostlegur
endasprettur
Sunnudaginn 5. mars tók
Skallagrímur í Borgarnesi á móti
Grindavfk í 21. umferð lceland
Express deildarinnar. Leikurinn
fór rólega af stað og var lítið skor-
að en það var einungis lognið á
undan storminum því viðureign
þessara sterku liða átti eftir að
vera hinn allra skemmtilegasta.
Leikurinn var jafn framan af en í
fjórða leikhluta magnaðist spenn-
an heldur betur þegar Grindavík
Níu styrkir
í Borgarbyggð
Tómstundanefnd Borgar-
byggðar hefur samþykkt að veita
níu styrki að upphæð þrjár millj-
ónir króna til íþrótta-, æskulýðs,-
og tómstundastarfs í Borgar-
byggð. Auglýst var eftir styrk-
beiðnum og bárust óskir frá níu
aðilum sem allir voru styrkhæfir
að mati nefndarinnar. Eftirtaldir
aðilar hlutu styrki:
Umf. Stafholtstungna kr. 200.000,-
Nemf. Varmalandsskóla kr. 50.000,-
Skátafélag Borgarness kr. 120.000,-
Mímir ungmennahús kr. 50.000,-
Nemf Grunnsk. Borgarn. kr. 70.000,-
Golfklúbbur Borgarness kr. 80.000,-
Hestamannaf. Skuggi kr. 80.000,-
íþróttafélagsstarf fatlaðra kr. 50.000,-
Umf Skallagrímur kr. 2.300.000, -
HJ
komst skynailega yfir 79-71.
Skallagrímur náði að minnka
muninn og með glæsilegum til-
þrifum náðu þeir að komast yfir
þegar 45 sekúndur voru eftir til
leiksloka og sigruðu lið Grindavík-
ur 93-89. Stigahæstu menn
Skallagríms voru Jovan Zdra-
vevski sem skoraði 32 stig og Ge-
orge Byrd með 25 stig og 15 frá-
köst. Maður leiksins var án efa
Jeremiah Johnson, leikmaður
Grindavíkur með 38 stig en hann
hefur verið að spila sérstaklega
vel með Suðurnesjaliðinu í ár.
Skallagrímur er nú í 4. sæti deild-
arinnar þegar ein umferð er eftir,
með 28 stig en UMFG er í 5. til 6.
sæti ásamt Snæfelli með 26 stig.
KÓÓ
Góður árangur
Skipaskaga á Meist-
aramóti í frjálsum
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum innanhúss fyrir 12-14
ára fór fram í nýju íþróttahöllinni í
Laugardal dagana 25. og 26.
febrúar. Um 270 keppendur af
öllu landinu tóku þátt í mótinu og
þar af níu ungmenni frá Ung-
mennafélaginu Skipaskaga á
Akranesi. Krakkarnir, sem voru
flest að keppa á sínu fyrsta stór-
móti, stóðu sig með prýði og
náðu mörg þeirra að bæta sinn
fyrri árangur í keppnisgreinum
sínum. Lýður Snær Skúlason
hafnaði í 3. sæti í 60 metra hlaupi
og Auðunn Björnsson í 7. sæti í
800 metra hlaupi en þeir kepptu
báðir í flokki 14 ára drengja. Hlut-
skörpust i flokki 13 ára voru þau
Ármann Jónsson sem lenti í 6.
sæti í 800 metra hlaupi og Rósa
Lilja Sigmundsdóttir sem varð í 3.
sæti í kúluvarpi. Þetta má teljast
glæsilegur árangur og eiga þau
eftir að sýna þjóðinni enn frekar
hvað býr í frjálsíþróttafólki af
Skaganum í framtíðinni.
KÓÓ
Nei, við erum bara
að minna ykkur á
Herrakvöld KFÍA
föstudaginn
10. mars kl. 19:30
að Jaðarsbökkum.
Heiðurgestur
Einar Kr. Guðfinnsson
ráðherrra.
Veislustjóri Gísli Einarsson
Jóhannes Kristjánsson
eftirherma skemmtir
Góður matur,
listmunauppboð,
happadrætti ofi.
Allaf góð skemmtun
um leið og bú styrkir
knattspymuna á Skaganum
| Taktu félagana með
I og gerðu gott kvöld
K.F.I.A.
P.s. Vinsamlegast látið vita
um þátttöku í sima
431 3311
eða 862 6700
Munið rútuferð úr Reykjavik
frá Guðmundi Jónassyni
Borgartúni 34 ki.18:30