Skessuhorn


Skessuhorn - 08.03.2006, Qupperneq 24

Skessuhorn - 08.03.2006, Qupperneq 24
Nýtt og öflugt til íbúöakaupa '?N) íbúöalán.is www.ibudaian.is Unnið að stofaun S Landbúnaðarsafas Islands á Hvanneyri Gamlafjósið á Hvanneyri var byggt árið 1928 og teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Fjósið gekk reynarfram undir aldamót undir najninu Nýjafjósió á Hvanneyri, en kýr hafa nú horfið þaðan og er hugmyndin sú að þar verði íframtíðinni miðstöð Landhúnaðarsafns Islands. Myndin var liklega tekin í byrjunfjórða áratugs síðustu aldar. Ljósmyndarinn varAmi G. Eylands, að því talið er. A vegum Landbúnaðarháskóla Is- lands er nú unnið að stofnun Land- búnaðarsafhs Islands, m.a. á grunni Búvélasafnsins sem til hefur verið á Hvanneyri að segja má allt frá árinu 1940. Þann 27. febrúar sl. var hald- inn fundur undirbúningsaðila þar sem staða málsins var kynnt og hug- myndir ræddar. Safninu er sérstak- lega ætlað að sinna tímabihnu ffá fyrstu árum tæknivæðingar landbún- aðarins með skráningu heimilda, varðveislu og rannsókna- og kynn- ingarstarfi. Bjami Guðmundsson er ábyrgð- armaður Búvélasafiisins á Hvanneyri og hefur hann einnig leitt undirbún- ing að stofnun Landbúnaðarsafhs Is- lands. „Málið er skammt á veg kom- ið, við erum ekki að fara að ffarn- kvæma á næstu dögum en erum að marka stefhu til að vinna eftir. Þessa dagana erum við fyrst og fremst að afla samstarfsaðila og meta umfang verksins. Stefnt er að því að safhið verði sjálfseignarstofnun og eru nú í gangi viðræður við aðila sem lýst hafa áhuga á að vera með í starfinu og get ég því ekki nefnt neina ákveðna að svo stöddu. Stefnt er að því að nýta Gamla fjósið hér á Hvanneyri undir starfsemi safnsins, að því marki sem starf þess verður innanhúss. Fjósið er sögulega merk bygg- ing, byggð árið 1928 og teiknuð af ekki ómerk- ari manni en G u ð j ó n i Samúelssyni húsameist- ara ríkisins. Skoðun hef- ur sýnt að byggingin er að stofni til traust og vönduð þó vissulega sé hún komin til ára sinna og beri þess merki,“ seg- ir Bjami. Hann segist gera ráð fyrir að viðgerðir og endurbætur á fjós- byggingunni muni vart kosta undir 100 milljónum króna. Bjarni segir stofnkostnaðaráætlun vegna nýja safnsins ekki hggja fyrir enn sem komið er. Sagan drýpur af hverjum steini Landbúnaðarsafni Islands er ædað að halda tíl haga tækniþróun í land- búnaði hér á landi allt aftur til ársins 1880 og hvemig atvinnuhættir tóku breytingum með nýrri tækni. Því er í raun verið að gera landbúnaðarsög- unni skil í víðu samhengi. Landbún- aðarsafii verðm því ekki einvörð- ungu safh innan fjögurra veggja heldur allt eins skipulegt kerfi til að halda utan um ákveðna vitneskju og miðla henni í samvinnu við aðra að- ila og stofnanir. „Landbúnaðarsagan er mjög víða. Hún er að hluta til í bóka-, mynda-, muna- og vélasöfnum og að stórum hluta er hún um allt í sveitum lands- ins. Sögulegar minjar um landbúnað hvers konar leynast í byggingum, sýnilegum minjum í túnum og út- haga, þær geta líka falist í minjum um nýtingu laxveiðiáa og þar er t.d. vísir að safiii á góðtun stað í Ferju- koti, hægt er að sjá minjar um sil- ungsveiði á Arnarvamsheiði, fjahskil og réttarhald í vel varðveittum rétt- um, og áfram mættí lengi telja. Hlutverk Landbúnaðarsafiis er því ekki síst að halda utan um upplýs- ingar, varðveita sumt, stunda rann- sóknir og skráningu, kynningarstarf og vísa til annarra safiia í samstarfi við hfiðstæðar stofhanir, þar sem nýttir verða margvíslegir kostir sam- býlis við Landbúnaðarháskóla Is- lands. Með þessu er því ekki verið að fara inn á svið t.d. byggðasafhanna í landinu sem þjóna hvert um sig mik- ilvægu hlutverki í skráningu og varð- veislu minja í sýslum landsins heldur skapa miðstöð um sögu mikilvægs tímabils í lífi þjóðarinnar,“ segir Bjami Guðmundsson. MM Bjami Guðmundsson hjá virðulegum Farmal á Búvélasafninu á Hvanneyri sem verður hluti afhinu nýja Landbúnaðarsafni ef áætlanir ganga efiir. Áhugaverð störf hjá Norðuráli Vegna stækkunar álvers Norðuráls getum við enn bætt við nokkrum starfsmönnum til almennra starfa við álframleiðsluna. í boði eru tímabundin störf og framtíðarstörf. Til hvers ætlumst við af þér? Við leitum að áhugasömu fólki sem vill vinna að krefjandi verkefnum og vaxa í starfi. Lipurð í samskiptum, metnaður til að ná árangri og vilji til að axla nýja ábyrgð eru skilyrði. Hvað veitum við þér? Við bjóðum þér gott og gefandi starf hjá nú- tímalegu fyrirtæki í miklum vexti. Þú vinnur mikilvæg verk með góðu samstarfsfólki og við tökum vel á móti þér. Sérstök áhersla er lögð á starfsþjálfun. Atvinnu- öryggi er mikið, tekjur traustar og laun þín eru að hluta árangurstengd. Ennfremur greiðir fyrirtækið þér aukið framlag í séreignasjóð. Hvenær þurfum við að fá umsókn þína? Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 15. mars n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsokn@nordural.is. eða póstlagt umsóknina, merkta: Atvinna Jafnrétti Áhersla er lögð á jafna möguleika karla og kvenna til starfa hjá Norðuráli. Trúnaður Við förum með umsókn þína og allar persónu- legar upplýsingar sem trúnaðarmál. CenturyALUMiNUM Norðurát á Grundartanga er einn af stærstu vinnustöðum á Vesturlandi og fyrirtækið skipar öflugan sess í samfélaginu. Norðurál leggur ríka áherslu á öryggismál og er ströngum öryggisreglum fylgt á öllum sviðum starfseminnar. Um þessar mundir er unnið að stækkun Norðuráls sem felur í sér meira en tvöföldun á framleiðslugetu átversins. Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 * Fax 430 1001 • nordural@nordurai.is • www.nordural.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.