Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2006, Síða 4

Skessuhorn - 22.03.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 Framboðlisti Samfylkingar AKRANES: Uppstillingamefhd Samfylkingarinnar á Akranesi stefnir að því að ljúka tillögu sinni að skipan framboðslista flokksins við bæjarstjómarkosn- ingamar í vor á næstu dögum, að sögn Guðlaugs Ketilssonar for- marrns nefndarinnar. -hj Fræðslufimdur um heilabilun AKRANES: Næstkomandi mánudag verður í íþróttamið- stöðinni að Jaðarsbökkum á Akranesi haldinn ffæðslufundur um heilabilun. Þar flytur Jón Snædal öldrunarlæknir erindi og Hanna Lára Steinsson félagsráð- gjafi. Engin stórfjölskylda er til hér á landi þar sem ekki finnst einstaklingur sem glímir við heilabilun af einhverju tagi. Fundurinn er haldinn að tilstuðl- an Lionshreyfingarinnar á Is- landi og Lionsklúbbs Akraness með stuðningi Akraneskaupstað- ar, VLFA og STAK -mm Hrafiihildur í frí VESTURLAND: Hrafhhildur Tryggvadóttir, sem verið hefur allt í öllu ffá stofiiun Upplýsinga- og kynnningarmiðstöðvar Vest- urlands, er nú á leið í árs fæðing- arorlof. Við starfi hennar á með- an hefur tekið Andrea Marta Vigfusdóttir. -mm Rangsælis í umferðinni AKRANES: Lögreglan á Akra- nesi kærði í liðinni viku 20 öku- menn fyrir að aka of hratt. Þar af einn sem mældist á 91 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um ölvun við akstur um helgina. Einn öku- maður var stöðvaður eftir að hann hafði ekið bifreið sinni rangsæfis í hringtorgi. Brást hann reiður við afekiptum lögreglunn- ar og kvaðst „oft gera þetta til að flýta fyrir sér,“ og rauk síðan á braut öskuillur. Okumaðurinn má búast við sekt vegna brotsins. Þrír ökumenn þurftu að skila inn ökuskírteinunum sínum í vikunni vegna uppsafnaðrar slæmrar hegðunar í umferðinni. Höfðu þeir allir safnað það mörgum punktum að komið var að því að fela yfirvöldum tímabundið vörslu ökuleyfanna. -mm Bíll skemmdur AKRANES: Brotist var inn í Honda Civic biffeið sem stóð við Grundartún á Akranesi rnn helg- ina og hún skemmd mikið. Rúða hafði verið brotin og úr henni stolið Kenwood geislaspilara. Auk þessa var biffeiðin stór- skemmd með einhverju odd- hvössu áhaldi. Djúpar rispur í lakki á hurðum, vélarhlíf, brett- um og stuðurum. tjónið er tals- vert og biður lögregla þá sem geta veitt einhverjar upplýsingar um að hafa samband. -mm Mildð líf og fjör við Akraneshöfn Það er óhætt að segja að mikið líf og fjör hafi verið við höfnina á Akranesi sl. fimmtudag þegar blaðamaður Skessuhorns var þar á ferðinni. Mikið var af skipum við bryggju og má nefna að Faxi RE 9 var nýbúinn að landa fullfermi af kolmunna til bræðslu, um 1400 tonnum. Þá var Ingunn AK einnig nýlega komin að landi með full- fermi af kolmunna og stóð fyrir dæling úr skipinu, alls á um 2000 tonnum en kolmunninn veiddist á Rockhallsvæðinu. Nokkuð er síðan kolmunna var síðast landað á Akranesi en enginn slíkur barst þangað á síðustu vertíð. Þá kom Sunnubergið með 132 tonn til löndunar á Akranesi á þriðjudag en skipið kom að landi vegna bilunar og voru starfsmenn Þ&E að vinna við viðgerðir á því. Loks landaði Sturlaugur H Böðvarsson 145 tonnum af ísfiski á miðvikudag. Að sögn hafnarstarfsmanna er höftfin á Akranesi fullnýtt þessa dagana og mikið um bókaðar skipakomur næstu daga. Ekki er einvörðungu verið að landa fiski því bæði á að landa áburði og hitaveiturörum og von er á skipi til að sækja sement. Þá stóð lestun á fiskimjöli einnig yfir sl. fimmtudag. MM Leitað að nafiii á nýtt sameinað sveitarféíag Samhliða kosningum í samein- uðu sveitarfélagi Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðu- hrepps og Kolbeinsstaðahrepps þann 27. maí í vor verður kosið um nafn á nýja sveitarfélaginu. Nefnd hefur verið skipuð til að stýra naftiavalinu en kosið verður um nokkrar tillögur í kjörklefamun í vor. I nefndinni eru Kristín Thor- lacius í Borgarnesi sem jafnframt er formaður, Agústa Þorvaldsdóttir á Skarði, Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróðastöðum og Jónas Jóhannes- son á Jörfa. „Við ætlum að fiima þjált og fal- legt nafn sem um leið hefur sldrskotun í sögu og sérkenni hér- aðsins og auglýsum því eftir tillög- um ffá íbúum þessa nýja sveitarfé- lags. Nefndin velur 3-5 nöfn úr innsendum tillögum sem kosið verður úr. Tillögum má skila til mín á netfangið; krt@simnet.is eða í pósti að Skúlagötu 23, 310 Borg- arnesi. Gjama viljum við fá tillög- umar sendar fyrir 1. apríl," sagði Kristín Thorlacius í samtali við Skessuhom. MM Samstaða í Grundarfirði leggur firam lista Samstaða - listi fólksins býður fram eftirfarandi lista í Grundar- firði í sveitarstjómarkosningunum 2006 undir listabókstafhum L: 1. Gísli Olafsson, framkvœmda- stjóri 2. Una Yr Jörundardóttir, fram- haldsskólakennari 3. Emil Sigurðsson, vélstjóri 4. Jóhanna von Schalkwyk, kenn- ari 5. Sigurjón Fannar Jakobsson, út- gerðarmaður 6. Sigurður Olafur Þorvarðar- son, skipstjóri 7. Helena M Jónsd. Stolzenwald, ræstitæknir / nemi 8. Sædís Alda Karlsdóttir, nemi 9. Ingi Hans Jónsson, sagnamað- ur 10. Sœvör Þorðvarðardóttir, ritari 11. Dóra Aðalsteinsdóttir, leik- skólaliði 12. Sólrún Guðjónsdóttir, kvik- mynda- og leikhúsfræðingur 13. Oddur Hlynur Kristjdnsson, sjómaður Gunnar áfiram í fyrsta sæti Gunnar Sigurðsson mtm áffarn leiða lista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningamar á Akra- nesi í vor. Það var ákveðið á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í gærkvöldi. Tillaga uppstillingar- nefhdar flokksins var þar samþykkt einróma. Listinn er þannig: 1. Gunnar Sigurðsson 2. Sæmundur Víglundsson 3. Eydts Aðalbjómsdóttir 4. Þórður Þ Þórðarson 5. Bjöm Elísson 6. Silvía Llorens 7. Haraldur Helgason 8. Olafur Helgi Haraldsson 9. Guðrún Elsa Gunnarsdóttir 10. Ingþór Bermann Þórhallsson 11. Hallveig Skúladóttir 12. Vtlhjálmur Andrésson 13. Ingunn Viðarsdóttir 14. Haraldur Friðriksson 15. Hildur Karen Aðalsteinsdóttir 16. Hróðmar Halldórsson 17. Stefán Orri Olafsson 18. Þóra Björk Kristinsdóttir. f síðustu kosningum hlaut flokk- urinn fjóra bæjarfulltrúa kjöma og era tveir þeirra í fjórum efstu sæt- unum, það er Gunnar og Þórður. Guðrún Elsa Gunnarsdóttir gaf ekki kost á sér til setu í efstu sætum hstans. Fjórði bæjarfulltrúinn, Jón Gunnlaugsson, er hins vegar eldd á listanum. Benedikt Jónmundsson formaður uppstillingarnefndar sagði í samtali við Skessuhom að ekki hefði verið gerð tillaga um Jón á listanum en vildi að öðm leyti ekki tjá sig um málið. Þegar blaðamaður hafði samband við Jón Gunnlaugsson hafði hann að sögn ekki heyrt af skipan listans. Aðspurður sagði hann að ekki hefði verið leitað eftir því að hann tæki sæti þar og við því væri í sjálfu sér Gunnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæöis- manna á Akranesi. ekkert að segja. Hann taldi að það hefði hins vegar verið sjálfsögð kurteisi að honum hefði verið skýrt ffá því áður en listinn var borinn upp að ekki væri sóst eftir setu hans þar. HJ Hugmynd um gönguleið að golfvelli BORGARNES: Bæjarráð Borg- arbyggðar hefur ákveðið að kalla bæjarverkfræðing, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og verkstjóra hjá Njarðtaki til næsta fundar ráðsins en þar verða ræddar hug- myndir Ebbu Pálsdóttur um lagningu gönguleiðar ffá Bjargi að Hamri þar sem golfvöllur Borgnesinga er. Ebba sendi bæj- arráði hugmyndir sínar í bréfi á dögunum og þakkar ráðið henni fyrir þann áhuga og frumkvæði sem hún sýnir skipulagsmálum í Borgarbyggð. Ebþa mim einnig sitja fund ráðsins þar sem hug- myndir hennar verða ræddar. -hj Kau p á slökkvibifreið BORGARNES: Bæjarráð Borg- arbyggðar hefur samþykkt að fela bæjarstjóra og bæjarverkfræðingi að halda fund með slökkviliðs- mönnum til undirbúnings á kaupum á nýrri slökkvibifreið fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar. -hj Bæta vatnsból BORGARBYGGÐ: Bæjarráð Borgarbyggðar hefur falið bæjar- verkfræðingi að kanna í hvaða framkvæmdir þarf að ráðast til að lagfera vatnsból vatnsveitu fyrr- um Álftaneshrepps. Þessi ákvörðun var teldn í kjölfar bréfe sem ráðinu barst frá Guðbrandi Brynjúlfesyni þar sem hann vekur athygli á bágbornum ffágangi vatnsbóls veitunnar sem stendur við neðanvert Hraundalshraun. Telur Guðbrandur að ekki verði hjá því komist lengur að gera endurbætur á vatnsbólinu og skorar á bæjaryfirvöld „að vinda sér í það verk hið snarasta," eins og segir orðrétt í bréfi hans. -hj Snókur vill að Grundartanga GRUNDARTANGI: Snókur ehf. í Vogatungu í Leirár- og Melahreppi hefur sótt tun lóð undir atvinnustarfsemi við Grundartanga. Hafnarstjóm Faxaflóahafna tók máfið fyrir en treystir sér ekki til að taka af- stöðu til erindisins fyrr en skipu- lagning svæðisins hefur átt sér stað. -hj Ágústa hættir í bæjarstjóm AKRANES: Ágústa Friðriks- dóttir, bæjarfulltrúi Akraneslist- ans hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til setu í bæjarstjóm á komandi kjörtímabili. Ágústa hefur verið bæjarfulltrúi í átta ár. I samtali við Skessuhom segir hún þessa ákvörðun tekna af per- sónulegum ástæðum. Hún segist þó full áhuga á málefiium bæjar- félagsins og muni trúlega koma að þeim máltun með einhverjum hætti í framtíðinni. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sfmi: 433 5500 Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla mi&vikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er bent á a& panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Bla&ið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuði en krónur 900 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhom.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.