Skessuhorn - 22.03.2006, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
^ttUsunuKi
Samstarfssamningar Akraneskaupstaðar
og nágrannasveitarfélaganna
Viðræðuhópur um sameiginleg
verkefni Akraneskaupstaðar og
sveitarfélaganna stmnan Skarðsheið-
ar heíur komist að sameiginlegri
niðurstöðu í vinnu sinni og hefur
sent sveitarstjómum drög að samn-
ingum sem kveða á um viðamikið
samstarf sveitarfélaganna. Einnig er
tilbúin viljayfirlýsing um samstarf í
öðrum málum. Samningamir fara
nú til umræðu í sveitarstjómunum
og er vonast tdl þess að þær taki af-
stöðu til þeirra fyrir 15. apríl nk.
Starfshópurinn var skipaður á sín-
um tíma eftir að ljóst varð að fjögur
sveitarfélög sunnan Skarðsheiðar
yrðu sameinuð í eitt. Þau höfðu
hvert um sig ýmsa samninga við
Akraneskaupstað en hiutverk starfs-
hópsins var að semja að nýju um
samstarfið í heild. I starfshópnum
vom Asa Helgadóttir og Jón Hauk-
ur Hauksson ffá hrepptmum sunnan
Skarðsheiðar og Guðmundur Páll
Jónsson og Jón Pálmi Pálsson ffá
Akraneskaupstað. Hópurinn hefur
átt marga fundi, formlega og óform-
lega, auk þess sem einstakir nefhdar-
menn leystu ýmis verkefni á milh
funda. Hópurinn hélt kynningar-
fund fyrir sveitarstjórnir sveitarfé-
laganna á laugardaginn þar sem
samningadrögin vora kynnt.
Brunamál
Samkvæmt samningi um bruna-
varnir og eldvarnaeftirlit munu
sveitarfélögin reka í sameiningu
Slökkvilið Akraness og búa það
nauðsynlegum tækjakosti. Unnið
skal að því að fólk kunni sem best
skil á því hver viðbrögð séu vænleg-
ust til bjargar ef eldsvoða ber að
höndum. Slökkvilið Akraness skal
sinna útköllum og bregðast við
mengunarslysum í sveitarfélögun-
um. Kosmaði við reksmr og fjárfest-
ingu slökkviliðsins skal skipta á
sveitarfélögin með tilliti til fast-
eignamats í hverju sveitarfélagi, að
undanteknum lóð Norðuráls hf. við
Grundartanga og þeim mannvirkj-
um sem þar era og em í eigu Norð-
uráls. Komi til útkalla á iðnaðar-
svæði Norðtnáls greiða sveitarfélög-
in Akraneskaupstað fast gjald.
Félags- og íþróttamál
Samkvæmt samningi hafa starfs-
menn félagslegrar heimaþjónusm
sveitarfélaganna fjögurra aðgang að
ffæðslu sem innt er af hendi fýrir
starfsmenn þjónustunnar á Akranesi.
Skiptist kostnaður effir fjölda þátt-
takenda. Þá hafa íbúar sveitarfélag-
anna aðgang að félagsstarfi unglinga
sem ffam fer í Amardal og í Hvíta
húsinu á Akranesi svo og aðgang að
íþróttamannvirkjum fyrir almenning
og íþróttafélög á Akranesi. FvTÍr þau
afnot greiða sveitarfélögin 1.500.000
krónur árlega til Akraneskaupstaðar.
Þá er einnig kveðið á um í samning-
unum að íbúar sveitarfélaganna falh
undir reglur þær er gilda um styrki
vegna barna- og unglingastarfs á
Akranesi. Skal uppgjör fara ffam
með sérstökum hætti vegna þess
máls.
Rekstur tónlistarskóla
Sveitarfélögin gera samning um
að standa saman að rekstri Tónlist-
arskólans á Akranesi og með samn-
ingnum skal stefnt að eflingu tón-
listarlífs meðal íbúa með því að gefa
sem flestum kost á að sækja fjöl-
breytt tónlistamám við Tónlistar-
skólann. Auk Akraness er stefht að
því að kennsla fari ffam í sameinuðu
sveitarfélagi eftir nánari útfærslu
skólastjórnenda. Árlegum kostnaði
við rekstur skal skipt á sveitarfélögin
í hlutfalli við íbúafjölda í hverju
sveitarfélagi og er þess getið í samn-
ingi að sérstakt tdlht skuli tekið til
þeirra sem búa utan Akraness við
rekstur skólans.
Félagsstarf aldraðra
Ibúar sameinaðs sveitarfélags
sunnan Skarðsheiðar hafa aðgang að
félagsstarfi fyrir íbúa 67 ára og eldri
sem félagsmálaráð Akraness stendrur
nú fyrir. Skal kosmaði skipt í hlut-
falli við íbúafjölda þeirra.
Meðferð
og eyðing sorps
Akraneskaupstaður tekur sam-
kvæmt samningi við heimilissorpi á
sorpmóttökustöð kaupstaðarins í
Berjadalsnámu og er greitt fýrir
þjónustuna samkvæmt sérstakri
gjaldskrá. A sínum tíma greiddu
sveitarfélögin sunnan Skarðsheiðar
ffamlag vegna stofiikostnaðar sorp-
móttökustöðvarinnar og komi til
vemlegra endurbóta á stöðinni áskil-
ur Akraneskaupstaður sér rétt til að
taka upp viðræður við sveitarfélögin
um viðbótarffamlag.
B ókasafhsþj ónusta
Bókasafn Akraness skal annast
bókasafhsþjónustu við íbúa samein-
aðs sveitarfélags sunnan Skarðsheið-
ar og greiða sveitarfélögin fasta fjár-
hæð á ári fýrir þjónustuna. I dag er
sú upphæð 585 þúsund krónur.
Dvalarheimilið Höfði
Samkvæmt skipulagsskrá nær
starfssvæði Dvalarheimilisins Höfða
yfir Akraneskaupstað og sveitarfé-
lögin sunnan Skarðsheiðar. Akranes-
kaupstaður leggur heimilinu tdl 3
hektara lands og er eignarhlutur
bæjarins 9/10 á móti 1/10 ffá hinum
sveitarfélögunum. Stofnframlög
skulu vera í samræmi við eignarhlut-
föll. Sömu sögu er að segja af fram-
lagi til rekstrar og ábyrgð á rekstri
heimilisins. Stjóm Höfða skipa sam-
kvæmt tillögunni fjórir aðilar, þrír
ff á Akraneskaupstað og einn sem hin
sveitarfélögin koma sér saman um.
Bæjarstjóm Akraness tilnefhir for-
mann stjórnarinnar sem fer með
tvöfalt atkvæðavægi.
Byggðasafinið í Görðum
Starfssvæði Byggðasafhsins í
Görðum er hið sama og Dvalar-
heimilisins Höfða. Akraneskaup-
staður leggur því til nauðsynlegt
landrými og em sömu eignarhlutföh
og í Höfða. Sömu sögu er að segja
með rekstrarffamlag og stofnkostn-
að. Skipan stjórnar er einnig sú
sama.
Onnur mál
Auk ofangreindra samninga liggja
fýrir drög að viljayfirlýsingu um
ýmis önnur atriði. Skoða á hvort
auka má samstarf við skipulagningu
göngu-, hjólreiða- og reiðstíga geti
verið til hagsbóta fyrir íbúa. Sömu
sögu er að segja af samstarfi á sviði
barnaverndarmála og félagsmála. Þá
er til skoðunar hvort víðtækt sam-
starf á sviði safhamála geti verið til
hagsbóta og er þar nefnt samstarf
um vörslu skjala og annarra gagna.
Einnig að kannað verði hvort aukin
samvinna á sviði skipulags- og bygg-
ingarmála geti verið til hagsbóta
sveitarfélögunum og íbúum þeirra.
Hugsanlegt samstarf í vatnsmálum
verður kannað. A það við um vatos-
öfltm og vatosveitu fýrir íbúabyggð í
dreifbýli, á Akranesi og iðnaðar-
svæðisins á Grundartanga.
Skólamál
Skólamál em sá málaflokkur sem
hvað viðkvæmastur er við samein-
ingu og samstarf sveitarfélaga. Á
íbúaþingi sem sveitarfélögin sunnan
Skarðsheiðar efhdu til í vetur vora
þau mál mjög til umræðu. Þar kom
fram eindreginn vilji til þess að
skólahaldi yrði haldið áffam í hinu
nýja sveitarfélagi. I viljayfirlýsing-
unni sem áður er getið segir að at-
hugun fari ffam á því hvort auka
megi samstarf sveitarfélaganna á
sviði skólamála bæði leikskóla og
grannskóla, „hvort sem er með
meiri samvinnu skóla, nánari tengsl-
um starfsfólks eða nemenda eða
hugsanlega með samnýtingu hús-
næðis að einhverju leyti.
HJ
PISTILL GISLA
Her semfer
Það hefur staðið til í nokk-
ur misseri að dátarnir úr
Bandaríkjahreppi snautuðu
til síns heima. Samt kom það
öllum í opna skjöldu, og aðr-
ar góðar mjólkurkýr, þegar
aðstoðarritari aðstoðar-
manns aðstoðarvarnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna
hringdi í íslenska stjórnar-
ráðið í síðustu viku og sagði
á lítalausri ensku. „We are
going away with the Þyrls
and the Þots. Have a plea-
sant life, bæ-bæ.“
Islenska þjóðin var jafn
snöggum harmi slegin og
hún hefði fengið tilkynningu
um andlát ættingja sem bú-
inn var að liggja fyrir dauð-
anum árum saman.
Islenska þjóðin verður
skilin eftir ein og yfirgefin,
varnarlaus á skerinu og auð-
vitað verða menn reiðir og
sárir yfir þeim tíðindum.
Jafnvel þeir sem hrópuðu
herinn burt krefjast þess að
herinn verði um kjurrt.
Eini aðilinn sem ekki hefur
látið í sér heyra vegna máls-
ins og ætti þó mest að hafa
um það að segja er Félag
ástandskvenna. Enginn ætti
að harma þetta ástand meira
en félagskonur í þeim sam-
tökum.
Ef herinn fer þá fer sem
fer. Það þýðir ekki að gráta
það. A hinn bóginn er rétt að
huga að því hvað getur kom-
ið í staðinn. A Miðnesheiði
er heill bær sem leggst í eyði
og honum þarf að finna nýtt
hlutverk.
Ferðaþjónusta er klassísk
lausn á byggðavanda sem
hljómar ennþá vel á fundum.
Suðurnesjamenn hafa það
hvort eð er að markmiði að
tryggja að erlendir ferða-
menn sem koma til landsins
þurfi ekki að fara lengra en
rétt út fyrir flugstöðvar-
bygginguna og geti síðan
farið heim aftur. Þar er nú
verið að byggja upp lands-
námsþorp þótt enginn land-
námsmaður hafi komið á
Suðurnes, nema þeir sem
komu með flugi. Það eina
sem ferðamenn, erlendir,
gætu þurft að sækja annað er
Gullfoss og Geysir og ein-
hverjir útlenskir pervertar
hafa að sjálfsögðu áhuga á
„Dirty Weekend" í Reykja-
vík.
Eg legg til að skrefið verði
stigið til fulls. Innan varnar-
liðsgirðingarinnar er að
finna flugskýli sem er nógu
stórt til að þar væri hægt að
koma fýrir bæði Gullfoss og
Geysi innanhúss og bæta þar
með aðgengi að þessum
náttúruperlum til muna.
Síðan þarf að nýta aðra tóma
húskofa einnig og því liggur
beint við að flytja höfuð-
borgina á Suðurnes. Þar með
er hægt að sameina sjónar-
mið þeirra sem vilja flytja
Reykjavíkurflugvöll til
Keflavíkur og þeirra sem
vilja að hann verði áfram í
höfuðborginni með því ein-
faldlega að flytja hann til
Keflavíkur og hafa hann þar
í höfuðborginni.
Vandamál eru til að leysa
þau.
Gísli Einarsson,
varnarmálasérfræðingur.