Skessuhorn - 24.05.2006, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006
Kosið til tíu sveitarstjóma
á Vesturlandi á laugardagimi
A laugardaginn kemur ganga
landsmenn að kjörborðinu og
kjósa sér sveitarstjórn. A Vestur-
landi verður kosið til sveitarstjórna
í tíu sveitarfélögum. Þrjú þeirra
verða til að loknum kosningum.
Alls ganga 10.378 manns að kjör-
borðinu. Hefur kjósendum ijölgað
um 3% frá síðustu kosningum. A
sama tíma hefur kjósendum á land-
inu öllu fjölgað um 5,5%. Mun
fleiri karlar eru á kjörskrá eða
5.332 talsins en konur eru 5.046.
Akranes
A Akranesi eru fimm fram-
boðslistar. Það eru B-listi Fram-
sóknarflokksins, D-listi Sjálf-
stæðisflokksins, F-listi Frjáls-
lyndra og óháðra, S-listi Sam-
fylkingarinnar og óháðra og V-
listi Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs. Kjörfundur
verður í Brekkubæjarskóla og
hefst kl. 9 og lýkur í síðasta lagi
kl. 22. Talning fer fram í
Brekkubæjarskóla og flokkun
atkvæða hefst kl. 20. A kjörskrá
eru 4.162.
Sameinað sveitarfélag
sunnan Skarðsheiðar
I nýju sveitarfélagi sunnan
Skarðsheiðar, sem verður til við
sameiningu Hvalfjarðarstrand-
arhrepps, Innri-Akraness-
hrepps, Leirár- og Melahrepps
og Skilmannahrepps, eru þrír
framboðslistar. Það eru E-listi
samEiningar, H-listi H4 og L-listi
Hvalfjarðarlistans. Kosning fer
fram í félagsheimilunum Fanna-
hlíð, Hlöðum, Miðgarði og Heið-
arborg. Kjörfundur hefst kl. 10 á
öllum stöðum og lýkur kl. 20.
Talning fer fram í Miðgarði og
hefst hún kl. 21. Þá munu íbúar
hins nýja sveitarfélags greiða at-
kvæði á milli fimm nafna á hið nýja
sveitarfélag. Nöfnin eru Hafnar-
byggð, Heiðarbyggð, Heiðarsveit,
Hvalfjarðarbyggð og Hvalfjarðar-
sveit. A kjörskrá eru 403.
Sameinað sveitarfélag í
Borgarfirði
I nýju sveitarfélagi í Borgarfirði,
sem verður til við sameiningu
Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðu-
hrepps, Borgarbyggðar og Kol-
beinsstaðahrepps, eru þrír listar í
framboði. Það eru B-listi Fram-
sóknarflokksins, D-listi Sjálfstæð-
isflokksins og L-listi Samfylkingar,
Þá mun íbúar hins nýja sveitarfé-
lags einnig kjósa á milli fjögurra
nafna á hið nýja sveitarfélag.
Nöfnin eru Borgarbyggð, Brákar-
byggð, Mýrabyggð og Sveitarfé-
lagið Borgarfjörður. Talning at-
kvæða fer fram í Grunnskólanum í
Borgarnesi og hefst þegar öllum
kjörstöðum hefur verið lokað. A
kjörskrá eru 2.501.
Skorradalshreppur
I Skorradalshreppi kom enginn
framboðslisti fram og er kosning
Vinstrihreyfingarinnar-græns
framboðs og óháðra. Kjörfundir
fara fram á sex stöðum í sveitarfé-
laginu. I Grunnskólanum í Borg-
arnesi hefst kjörfundur kl. 9 og
lýkur kl. 20. I Þinghamri hefst
kjörfundur kl. 10 og lýkur kl. 20.1
Grunnskólanum á Kleppjárns-
reykjum hefst kjörfundur kl. 10 og
lýkur kl. 20. I Lyngbrekku hefst
kjörfundur kl. 12 og lýkur kl. 20. I
Lindartungu hefst kjörfundur kl.
12 og lýkur kl. 20. I Brúarási hefst
kjörfundur kl. 12 og lýkur kl. 20.
því óbundin. Kjósendum ber því
að rita nöfn fimm íbúa sveitarfé-
lagins á atkvæðseðilinn og munu
þeir sem flest atkvæði hljóta sitja í
næstu sveitarstjórn. Kosið verður í
Skátaskálanum og hefst kjörfundur
kl.12. Ekki er ljóst hvenær kjör-
fundi lýkur en að lágmarki mun
hann standa til kl. 18 nema allir
kjósendur hafi skilað sér á kjörstað
fyrr. Talning atkvæða fer fram á
sama stað að loknum kjörfundi. A
kjörskrá eru 47 og eru 45 þeirra í
kjöri, en Bjarni Vilmundarson og
Agúst Árnason fráfarandi sveitar-
stjórnarmenn gefa ekki kost á sér
til endurkjörs, en þeir hafa setið
þar lengi, Bjarni í 40 ár og Agúst í
20 ár.
Eyja- og Miklaholts-
hreppur
I Eyja- og Miklaholtshreppi
kom enginn framboðslisti fram og
er kosning því óbundin. Kjósend-
um ber því að rita nöfn fimm íbúa
sveitarfélagins á atkvæðseðilinn og
munu þeir sem flest atkvæði hljóta
sitja í næstu sveitar-
stjórn. Kjörfundur
verður í Félagsheimil-
inu Breiðabliki og hefst
kl. 10. Ekki er ljóst
hvenær kjörfundi lýkur
en að lágmarki mun
kjörfundur standa til kl.
18. Talning atkvæða
hefst á kjörstað kl. 21.
A kjörskrá eru 96.
Snæfellsbær
I Snæfellsbæ eru
tveir listar í framboði.
Það eru D-listi Sjálf-
stæðisflokksins og J-
listi Bæjarmálasamtaka
Snæfellsbæjar. Kosið
verður á þremur stöð-
um í sveitarfélaginu; í
grunnskólunum í
Olafsvík, Hellissandi
og á Lýsuhóli. Kjör-
fundur hefst kl. 9 í Olafsvík og á
Hellissandi en kl. 12 á Lýsuhóli.
Talning atkvæða fer fram í grunn-
skólanum í Olafsvík. A kjörskrá
eru 1.159.
Grundarfj arðarbær
I Grundarfjarðarbæ eru tveir
listar í framboði. Það eru D-listi
Sjálfstæðisflokks og L-listi Sam-
stöðu-listi fólksins. Kosið verður í
Samkomuhúsinu í Grundarfirði og
hefst kjörfundur kl. 10 og lýkur kl.
22. Talning fer fram í Samkomu-
PISTILL GISLA
Jeg er ikke g/g*
Fyrir nokkrum árum. Nokk-
uð mörgum árum kannski frek-
ar. Fyrir átján árum, nánast upp
á dag, til að nákvæmni sé
nokkurn veginn gætt, þá þurfti
ég að nýta mér heilbrigðisþjón-
ustu Kýpur hvort sem mér lík-
aði betur eða verr sem mér lík-
aði reyndar verr heldur en bet-
ur. Astæðan var einfaldlega sú
að ég var saklaust fórnarlamb
kaldrifjaðs leigubílstjóra sem sá
í mér gróðavon.
Málsatvik voru á þann veg, í
stuttu máli, að ég var á akstri á
50 kúbika mótorhjóli, rauðu að
lit, nokkuð aldurhnignu, eftir
aðalgötu borgarinnar Limasol
öðru megin á kýpur. Ok ég sem
leið lá vinstra megin á veginum
að hætti innfæddra. Skiptir þá
engum togum að við gatnamót-
in þar sem stóð, þá allavega, litli
veitingastaðurinn með gula
þakinu þar sem fengust
bragðvondar ommelettur, að
þar kemur aðvífandi leigubif-
reið og ekur hún sem leið lá í
veg fyrir mig. Var mér þá nauð-
ugur einn kostur að nauðhemla
með þeim afleiðingum að ég
hrataði í götuna en hjólið ók
sína leið.
Var ég svo búinn í þetta sinn-
ið að ég hafði hjálm á höfði,
svartan með silfurleytri stjörnu
að framanverðu. Var ég í sand-
ölum ljósbrúnum, stuttubxum
bláum með marglitum rósum
og hlírabol forljótum sem
skartaði mynd af drykkfelldu
ljóni.
Þegar ég skall í jörðina tapaði
ég skinni á stöku stað af allflest-
um útlimum en fékk í staðinn
kýpverskan jarðveg sem enn sér
örla fyrir á hnjám og olnbog-
um. Eg þurfti hinsvegar ekki
lengi að bíða þess að ég kæmist
undir læknishendur þar sem
bílsjóri fyrrnefndrar leigubif-
reiðar var boðinn og búinn að
veita aðstoð. Ók hann mér rak-
leitt á sjúkrahús effir krókaleið-
um nokkrum og beið svo með
mælirinn í gangi meðan hjúkr-
unarfræðingar af öllum stærð-
um og plokkuðu úr mér mestu
mölina, helltu illa soðnum
landa í sárin og bundu svo um
með sárabindum af sömu gerð
og Napóleon sálugi notaði
gjarnan þegar hann varð fyrir
hnjaski. Umrædd aðgerð var
einhver mesta martröð sem ég
hef á ævinni upplifað þar sem
hálf tylft lækna og hjúkrunar-
kvenna komu að aðgerðinni
sem líktist ffemur kjötvinnslu
en læknisfræðilegum verknaði.
Allir störfuðu þeir í einu og ég
komst engan veginn yfir að
kveinka mér í hvert sinn sem
þeir ráku í mig tangir og önnur
tól. Síðan var verkið kórónað
með því að vefja mig allan
þannig að ekki sá nokkurn mun
á mér og egypsku múmíunum
sem ég hafði litið fáum dögum
fyrr.
Þetta litla atvik rifjaðis upp
fyrir mér í dag þegar ég heyrði
fféttir af innflutningi á dönsk-
um hjúkrunarfræðingum og
þakkaði ég Guði og góðum
vættum fyrir að ekki var leitað
til kýpverskra heilbrigiðsstarfs-
manna í þetta sinnið.
Það kom mér reyndar ekki á
óvart að viðbrögð íslenskra
hjúkrunarfræðinga voru á ann-
an veg en mín. Þeir mótmæltu
innflutningnum á þeim for-
sendum að dönsku starfssystur
þeirra eða bræður fengju fullt af
peningum fyrir að sinna ís-
húsinu og hefst um það bil klukku-
stund eftir að kjörfundi lýkur. Á
kjörskrá eru 631.
Stykkishólmsbær
I Stykkishólmsbæ eru tveir listar
í framboði. Það eru D-listi Sjálf-
stæðisflokksins og L-listi Listi Fé-
lagshyggjufólks. Kosið verður í
Grunnskólanum og hefst kjör-
fundur kl. 9 og lýkur kl. 22. Taln-
ing fer fram á sama stað og hefst að
loknum kjörfundi. Á kjörskrá eru
799.
Helgafellssveit
I Helgafellssveit kom enginn
framboðslisti fram og er kosning
því óbundin. Kjósendum ber því
að rita nöfn fimm íbúa sveitarfé-
lagins á atkvæðseðilinn og munu
þeir sem flest atkvæði hljóta sitja í
næstu sveitarstjórn. Kosið verður í
Félagsheimilinu Skildi og hefst
kjörfundur kl. 12 og lýkur kl. 18.
Talning atkvæða fer fram á sama
stað þegar kjörfundarstörfum lýk-
ur. Á kjörskrá eru 45.
Sameinað sveitarfélag
Dalabyggðar og Saur-
bæjarhrepps
I nýju sameinuðu sveitarfélagi
Dalabyggðar og Saurbæjarhrepps
eru þrír listar í framboði. Það eru
H-listi Listi Dalabyggðar, N-listi
Listi nýrra tíma og V-listi Vinstri
hreyfingarinnar - græns framboðs.
Kosning fer fram á þremur stöðum
í sveitarfélaginu. I Stjórnsýsluhús-
inu í Búðardal hefst kjörfundur kl.
10 og lýkur kl. 22. I félagsheimil-
inu Staðarfelli hefst kjörfundur kl.
12 og lýkur kl. 20. I Félagsheimil-
inu Tjarnarlundi hefst kjörfundur
kl. 12 og lýkur kl. 20. Talning at-
kvæða fer fram í Stjórnsýsluhúsinu
í Búðardal og hefst að loknum
kjörfundi. Á kjörskrá eru 535.
W
lenskum sjúklingum. Það kom
mér samt á svolítið á óvart að
sjúklingarnir virtust vera auka-
atriði í þeirri umræðu.
Eg vil taka það fram að ég ber
fúllt traust til íslenskra hjúkrun-
arfræðinga og íslenskra heil-
briðisstétta yfir höfúð. Ef mér
er einhversstaðar illt er mér
hinsvegar nokk sama hvort ég
fæ bót minna meina á íslensku
eða dönsku. Eg þyrfti hinsvegar
að hugsa mig tvisvar um ef kýp-
versk hjúkka kæmi stormandi
með hitamælinn.
Gísli Einarsson,
við sæmilega heilsu.