Skessuhorn - 24.05.2006, Blaðsíða 17
^&usunu...
MIÐVIKUDAGUR 24. MAI2006
17
Nám á grunnskólabraut Háskólans á Akureyri
Allmargir
Vestlendingar
hafa stundað
fjarnám frá
Háskólanum á
Akureyri og nú
í vor mun til
dæmis brautskrást stór hópur leik-
skólakennara sem stundað hafa nám
sitt frá Akranesi og Borgarnesi.
Þessu ágæta fólki - reyndar allt sam-
an konur - hef ég kynnst lítillega
vegna kennslu um myndfundabúnað
og tveimur vegna vinnu við loka-
verkefni. Leikskólabrautin er þar
með nokkuð kynnt á Vesturlandi en
grunnskólabrautin ekki. Nú langar
mig til að bæta þar lítdllega úr en
hvet jafriframt alla áhugasama til
þess að leita sér frekari upplýsinga á
vef Háskólans á Akureyri,
www.unak.is. Það hafa lengi verið
öflug tengsl á milli Vesturlands og
Akureyrar um skólamál, lengstum
vegna sóknar Vestlendinga í fram-
haldsskóla norðanlands en á síðari
árum einnig vegna tilkomu Háskól-
ans á Akureyri.
Grunnskólakennaranám er marg-
þætt nám sem ætlað er að búa fólk
undir kennslu sex til sextán ára bama
og unglinga. Starfsvettvangurinn
sem bíður brautskráðra er fjölbreytt-
ur því aldurshópur grunnskólanem-
enda er breiður, námshæfni og
þroski er mismunandi, áhugasviðin
ólík og námsgreinarnar margar.
Mikilvægi kennarastarfsins felst ekki
síst í því að hafa skýra heildarsýn yfir
alla þessa þætti, geta eygt og greint
hvað hverjum nemanda hentar
hverju sinni, kunna að bregðast við
ólíkum aðstæðum, hafa staðgóða
þekldngu á því sem kennt er og geta
beitt ólíkum aðferðum við kennsl-
una svo góður árangur náist.
Nám til B.Ed.-prófs á grunn-
skólabraut er 90 einingar sem deilast
niður á þrjú ár í staðamámi en fjög-
ur ár í fjamámi. Sérstök áhersla er
lögð á að nemendur eigi kost á ítar-
legu námi í grunngreinum grunn-
skólans, íslensku og raunvísindum.
Skipulag og innihald námsins er í
megindráttum eins og hér segir:
Allir nemendur taka sex einingar í
aðferðafræðinámskeiðum sem snú-
ast einkum um rannsóknaraðferðir,
tölfræði og þjálfun gagnrýnnar
hugsunar. Fimm einingar em í ís-
lensku og aðrar fimm í náttúmvís-
indum og stærðfræði. Að þeim ein-
ingum loknum velur nemandinn
fimm einingar til viðbótar í annað
hvort íslensku eða náttúmvísindum
og stærðfræði þannig að skylduein-
ingar á öðm greinarsviðinu verða tíu
en fimm á hinu. I heimspeki og sið-
fræði em átta einingar, þrjár eining-
ar era teknar í íslenskri sögu og jafh-
margar í listum sem og sálarfræði.
Tólf einingar em í grunnskólafræð-
um sem fjalla meðal annars um skól-
ann sem starfsvettvang, námskrár-
fræði, kennsluaðferðir, námsefnis-
gerð og skólaþróun. Loks er tólf ein-
inga samfellt vettvangsnám á haust-
misseri fjórða árs. Þá dvelja nem-
endur við athuganir, áheyrn og æf-
ingakennslu í einum og sama skól-
anum allan tímann og fá þar með fá-
gætt tækifæri til þess að kynnast öll-
um helstu innviðum venjubtmdins
skólastarfs. Ohætt er að fullyrða að
þetta langa og samfellda vettvangs-
nám hafi gefist vel og er eitt af sér-
kennum námsins við gnmnskóla-
braut HA.
Skyldunámskeiðin sem samtals
em 62 einingar deilast á öll fjögur
námsárin. Af þeim em 25 einingar
teknar sameiginlega með leikskóla-
braut og við trúum að í þeim nám-
skeiðum sé mikilvægur vettvangur
til samræðu og skilnings á milh þess-
ara tveggja skólastiga sem hlýtur að
skila sér í starfi að námi loknu.
Þær 28 einingar sem ótaldar era
teljast til svokallaðra kjörsviða og
þau era nokkur í staðarnáminu. Enn
sem komið er höfiun við aðeins boð-
ið eitt kjörsvið í fjarnámi og veljum
þar saman námskeið í þölbreyttan
námspakka af þeim námsleiðum sem
staðamemum standa til boða. Þá
hafa sumir fjamemar valið að taka
kjörsvið við Kennaraháskóla Islands
og í undirbúningi er samstarf við
Háskóla Islands á þessu sviði.
Norska húsið
í Stykkishólmi
opnar á uppstigningardag
25. maí 2006, kl. 15.30
með því að Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður opnar
sýninguna
Brot úr sögu verslunar við Breiðaíjörð 1400-1900
Sýningin er hluti af verkefninu „Northem Coastal
Experience” (NORCE)
sem er styrkt af NPP sjóði Evrópusambandsins
Nemendur úr Tónlistarskóla Stykkishólms spila íyrir gesti
Boðið verður upp á léttar veitingar
í Krambúðinni er fjölbreytt úrval af forvitnilegum vömm
Ailir hjartanlega velkomnir
Húsið er opið daglega í sumar kl. 11.00-17.00
Allt frá upphafi hefur það verið
keppikefli grunnskólabrautar - eins
og kennaradeildarinnar allrar - að
mynda góð tengsl á milli nemenda
og kennara, nýta kosti nálægðar tdl
fullnustu og varast að láta óþarfar
hindranir rísa. Þessa nálægð höfum
við flutt inn í fjarnámið með því að
skipuleggja það í kringum námshópa
og kenna í gegnum myndfundabún-
að (gagnvirkt sjónvarp) til nokkurra
staða í senn. Fyrir þeirri aðferð em
margvísleg kennsluffæðileg rök, til
dæmis er unnt að skipuleggja hóp-
vinnu og annað samstarf meðal fjar-
nema vítt um land. Grunnskóla-
kennsla byggist að miklu leyti á
góðri samvinnu kennara í milli og
mikilvægt er að verðandi kennarar
þjálfist í slíkri samvinnu í námi sínu.
- Auk beinnar kennslu um mynd-
fundabúnað til fjamema hafa þeir
svo eins og aðrir nemendur beinan
aðgang að margvíslegu námsefni og
umræðuvettvangi á námsumhverfi á
vef, WebCT, og er reynt að gera
mun staðarnáms og fjarnáms eins
h'tinn og unnt er.
Skammt er síðan fjarnám hófst á
grunnskólabraut en skólaárið 2005-
2006 vom námshópar á þriðja ári í
Reykjanesbæ og á Selfossi, á öðm ári
í Neskaupstað, Vestmannaeyjum,
Hafnarfirði og Isafirði, á fyrsta ári á
Þórshöfit, Höfii í Homafirði og í
Haínarfirði. Reynsla af kennslu um
gagnvirkan myndfundabúnað er að
flesm leyti góð og við teljum að það
hafi meira gildi að mynda námshópa
ffernur en leggja kennslu og náms-
efiú út á netið til afnota fyrir hvem
þann sem til þess hefur nauðsynleg-
an tækjakost. Aðferðir við fjar-
kennslu em samt og verða alltaf í sí-
felldri endurskoðun með hliðsjón af
tækniþróun og kennsluffæði.
Eg vil þakka aðstandendum
Skessuhomsins fyrir að veita þessari
grein viðtöku um leið og ég hvet alla
áhugasama um kennaranám að horfa
með athygli og alvöm til kennara-
deildar Háskólans á Akureyri. Við
kappkostum að bjóða gott nám og
góða þjónustu. Spyrjið þá áhts sem
þegar hafa numið hjá okkur og hikið
ekki við að hafa samband ef og þeg-
ar spurningar vakna. Umsóknar-
ffesmr er til 5. júní næstkomandi.
Bragi Guðmundsson, brautarstjóri
grunnskólabrautar við kennaradeild
Hdskólans á Akureyri
Netfang: bragi@umk.is
Tilkynning frá yfirkjörstjórn
vegna sveitarstjómarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi
Hvalfjarðarstrandarhrepps, Skilmannahrepps, Innri-Akraneshrepps
og Leirár- og Melahrepps, laugardaginn 27. maí 2006.
Kjörstaðir.
Á kjördag verður einn kjörstaður í hveiju sveitarfélagi. Kjörstaður fýrir íbúa í Hvalfjarðarstrandarhreppi
verður að Hlöðum. Kjörstaður fyrir íbúa í Skilmannahreppi verður í Fannahlíð.
Kjörstaður fýrir íbúa í Innri-Akraneshreppi verður í Miðgarði. Kjörstaður fýrir íbúa í Leirár- og
Melahreppi verður í Heiðarborg.
Kjörfundur.
Kjörfundur hefst á öllum kjörstöðum kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. Kjósendur em hvattir til að koma
snemma á kjörstað.
Framkvæmd kosninganna.
Þrír framboðslistar em í kjöri. Kosningamar fara því fram með svipuðu sniði og við Alþingiskosningar.
Kjósandi greiðir atkvæði með því að merkja X fyrir ffaman listabókstaf þess lista sem hann kýs.
Aðsetur yfirkjörstjórnar.
Á kjördag hefur yfirkjörstjóm aðsetur í stjómsýsluhúsi Skilmannahrepps við Innri-Mel. Símanúmer
yfirkjörstjómarmanna em tilgreind að neðan.
Talning atkvæða.
Talning atkvæða fer ffam í Miðgarði og hefst kl. 21:00 á kjördag.
Skoðanakönnun.
Samhliða sveitarstjómarkosningum fer ffam skoðanakönnun um nafn á hið sameinaða sveitarfélag.
Kjósendur lýsa skoðun sinni með því að merkja X við einn af þeim fimm valkostum sem em til könnunar.
Yfirkjörstjórn, 22. maí 2006,
Jón Haukur Hauksson s. 669-7932
Helga Stefanía Magnúsdóttir s. 862-8920 - Jóna Björg Kristinsdóttir s. 894-6965
SVEITARSTJORNARKOSNINGAR
í SAMEINUÐU SVEITARFÉLAGI BORGARBYGGÐAR,
BORGARFJARÐARSVEITAR,
HVÍTÁRSÍÐUHREPPS OG KOLBEINSSTAÐAHREPPS
27. MAÍ 2006
Skipting svæðisins í kjördeildir:
Borgarneskjördeild,
Lyngbrekkukjördeild,
Þinghamarskjördeild,
Lindartungukjördeild,
fyrir svæðið milli Langár og Gljúfurár.
fyrir svæðið milli Langár og Hítarár.
fyrir Borgarbyggð ofan Gljúfurá.
fyrir Kolbeinsstaðahrepp.
Kleppjárnsreykjakjördeild, fyrir Borgarfjarðarsveit.
Brúaráskjördeild, fyrir Hvítársíðuhrepp.
Kjörfundir laugardaginn 27. maí 2006 verða sem hér segir:
[ Borgarneskjördeild
í Þinghamarskjördeild
í Kleppjárnsreykjakjördeild
í Lyngbrekkukjördeild
í Lindartungukjördeild
í Brúaráskjördeild
í Grunnskólanum frá kl. 9:00 - 22:00
í Þinghamri frá kl. 10:00 - 20:00
í Grunnskóianum frá kl. 10:00 - 20:00
í Lyngbrekku frá kl. 12:00 - 20:00
í Lindartungu frá kl. 12:00 - 20:00
í Brúarási frá kl. 12:00 - 20:00
Kjósendur eru hvattir til að athuga vel í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa
og minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
Á kjördag er sími yfirkjörstjórnar 845-8818 og mun hún hafa aðsetur í
Grunnskólanum í Borgarnesi.
Talning atkvæða fer fram í Grunnskólanum í Borgarnesi þegar
öllum kjörstöðum hefurverið lokað.
Yfirkjörstjórn.