Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2006, Page 17

Skessuhorn - 24.05.2006, Page 17
^&usunu... MIÐVIKUDAGUR 24. MAI2006 17 Nám á grunnskólabraut Háskólans á Akureyri Allmargir Vestlendingar hafa stundað fjarnám frá Háskólanum á Akureyri og nú í vor mun til dæmis brautskrást stór hópur leik- skólakennara sem stundað hafa nám sitt frá Akranesi og Borgarnesi. Þessu ágæta fólki - reyndar allt sam- an konur - hef ég kynnst lítillega vegna kennslu um myndfundabúnað og tveimur vegna vinnu við loka- verkefni. Leikskólabrautin er þar með nokkuð kynnt á Vesturlandi en grunnskólabrautin ekki. Nú langar mig til að bæta þar lítdllega úr en hvet jafriframt alla áhugasama til þess að leita sér frekari upplýsinga á vef Háskólans á Akureyri, www.unak.is. Það hafa lengi verið öflug tengsl á milli Vesturlands og Akureyrar um skólamál, lengstum vegna sóknar Vestlendinga í fram- haldsskóla norðanlands en á síðari árum einnig vegna tilkomu Háskól- ans á Akureyri. Grunnskólakennaranám er marg- þætt nám sem ætlað er að búa fólk undir kennslu sex til sextán ára bama og unglinga. Starfsvettvangurinn sem bíður brautskráðra er fjölbreytt- ur því aldurshópur grunnskólanem- enda er breiður, námshæfni og þroski er mismunandi, áhugasviðin ólík og námsgreinarnar margar. Mikilvægi kennarastarfsins felst ekki síst í því að hafa skýra heildarsýn yfir alla þessa þætti, geta eygt og greint hvað hverjum nemanda hentar hverju sinni, kunna að bregðast við ólíkum aðstæðum, hafa staðgóða þekldngu á því sem kennt er og geta beitt ólíkum aðferðum við kennsl- una svo góður árangur náist. Nám til B.Ed.-prófs á grunn- skólabraut er 90 einingar sem deilast niður á þrjú ár í staðamámi en fjög- ur ár í fjamámi. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur eigi kost á ítar- legu námi í grunngreinum grunn- skólans, íslensku og raunvísindum. Skipulag og innihald námsins er í megindráttum eins og hér segir: Allir nemendur taka sex einingar í aðferðafræðinámskeiðum sem snú- ast einkum um rannsóknaraðferðir, tölfræði og þjálfun gagnrýnnar hugsunar. Fimm einingar em í ís- lensku og aðrar fimm í náttúmvís- indum og stærðfræði. Að þeim ein- ingum loknum velur nemandinn fimm einingar til viðbótar í annað hvort íslensku eða náttúmvísindum og stærðfræði þannig að skylduein- ingar á öðm greinarsviðinu verða tíu en fimm á hinu. I heimspeki og sið- fræði em átta einingar, þrjár eining- ar era teknar í íslenskri sögu og jafh- margar í listum sem og sálarfræði. Tólf einingar em í grunnskólafræð- um sem fjalla meðal annars um skól- ann sem starfsvettvang, námskrár- fræði, kennsluaðferðir, námsefnis- gerð og skólaþróun. Loks er tólf ein- inga samfellt vettvangsnám á haust- misseri fjórða árs. Þá dvelja nem- endur við athuganir, áheyrn og æf- ingakennslu í einum og sama skól- anum allan tímann og fá þar með fá- gætt tækifæri til þess að kynnast öll- um helstu innviðum venjubtmdins skólastarfs. Ohætt er að fullyrða að þetta langa og samfellda vettvangs- nám hafi gefist vel og er eitt af sér- kennum námsins við gnmnskóla- braut HA. Skyldunámskeiðin sem samtals em 62 einingar deilast á öll fjögur námsárin. Af þeim em 25 einingar teknar sameiginlega með leikskóla- braut og við trúum að í þeim nám- skeiðum sé mikilvægur vettvangur til samræðu og skilnings á milh þess- ara tveggja skólastiga sem hlýtur að skila sér í starfi að námi loknu. Þær 28 einingar sem ótaldar era teljast til svokallaðra kjörsviða og þau era nokkur í staðarnáminu. Enn sem komið er höfiun við aðeins boð- ið eitt kjörsvið í fjarnámi og veljum þar saman námskeið í þölbreyttan námspakka af þeim námsleiðum sem staðamemum standa til boða. Þá hafa sumir fjamemar valið að taka kjörsvið við Kennaraháskóla Islands og í undirbúningi er samstarf við Háskóla Islands á þessu sviði. Norska húsið í Stykkishólmi opnar á uppstigningardag 25. maí 2006, kl. 15.30 með því að Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður opnar sýninguna Brot úr sögu verslunar við Breiðaíjörð 1400-1900 Sýningin er hluti af verkefninu „Northem Coastal Experience” (NORCE) sem er styrkt af NPP sjóði Evrópusambandsins Nemendur úr Tónlistarskóla Stykkishólms spila íyrir gesti Boðið verður upp á léttar veitingar í Krambúðinni er fjölbreytt úrval af forvitnilegum vömm Ailir hjartanlega velkomnir Húsið er opið daglega í sumar kl. 11.00-17.00 Allt frá upphafi hefur það verið keppikefli grunnskólabrautar - eins og kennaradeildarinnar allrar - að mynda góð tengsl á milli nemenda og kennara, nýta kosti nálægðar tdl fullnustu og varast að láta óþarfar hindranir rísa. Þessa nálægð höfum við flutt inn í fjarnámið með því að skipuleggja það í kringum námshópa og kenna í gegnum myndfundabún- að (gagnvirkt sjónvarp) til nokkurra staða í senn. Fyrir þeirri aðferð em margvísleg kennsluffæðileg rök, til dæmis er unnt að skipuleggja hóp- vinnu og annað samstarf meðal fjar- nema vítt um land. Grunnskóla- kennsla byggist að miklu leyti á góðri samvinnu kennara í milli og mikilvægt er að verðandi kennarar þjálfist í slíkri samvinnu í námi sínu. - Auk beinnar kennslu um mynd- fundabúnað til fjamema hafa þeir svo eins og aðrir nemendur beinan aðgang að margvíslegu námsefni og umræðuvettvangi á námsumhverfi á vef, WebCT, og er reynt að gera mun staðarnáms og fjarnáms eins h'tinn og unnt er. Skammt er síðan fjarnám hófst á grunnskólabraut en skólaárið 2005- 2006 vom námshópar á þriðja ári í Reykjanesbæ og á Selfossi, á öðm ári í Neskaupstað, Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og Isafirði, á fyrsta ári á Þórshöfit, Höfii í Homafirði og í Haínarfirði. Reynsla af kennslu um gagnvirkan myndfundabúnað er að flesm leyti góð og við teljum að það hafi meira gildi að mynda námshópa ffernur en leggja kennslu og náms- efiú út á netið til afnota fyrir hvem þann sem til þess hefur nauðsynleg- an tækjakost. Aðferðir við fjar- kennslu em samt og verða alltaf í sí- felldri endurskoðun með hliðsjón af tækniþróun og kennsluffæði. Eg vil þakka aðstandendum Skessuhomsins fyrir að veita þessari grein viðtöku um leið og ég hvet alla áhugasama um kennaranám að horfa með athygli og alvöm til kennara- deildar Háskólans á Akureyri. Við kappkostum að bjóða gott nám og góða þjónustu. Spyrjið þá áhts sem þegar hafa numið hjá okkur og hikið ekki við að hafa samband ef og þeg- ar spurningar vakna. Umsóknar- ffesmr er til 5. júní næstkomandi. Bragi Guðmundsson, brautarstjóri grunnskólabrautar við kennaradeild Hdskólans á Akureyri Netfang: bragi@umk.is Tilkynning frá yfirkjörstjórn vegna sveitarstjómarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Hvalfjarðarstrandarhrepps, Skilmannahrepps, Innri-Akraneshrepps og Leirár- og Melahrepps, laugardaginn 27. maí 2006. Kjörstaðir. Á kjördag verður einn kjörstaður í hveiju sveitarfélagi. Kjörstaður fýrir íbúa í Hvalfjarðarstrandarhreppi verður að Hlöðum. Kjörstaður fyrir íbúa í Skilmannahreppi verður í Fannahlíð. Kjörstaður fýrir íbúa í Innri-Akraneshreppi verður í Miðgarði. Kjörstaður fýrir íbúa í Leirár- og Melahreppi verður í Heiðarborg. Kjörfundur. Kjörfundur hefst á öllum kjörstöðum kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. Kjósendur em hvattir til að koma snemma á kjörstað. Framkvæmd kosninganna. Þrír framboðslistar em í kjöri. Kosningamar fara því fram með svipuðu sniði og við Alþingiskosningar. Kjósandi greiðir atkvæði með því að merkja X fyrir ffaman listabókstaf þess lista sem hann kýs. Aðsetur yfirkjörstjórnar. Á kjördag hefur yfirkjörstjóm aðsetur í stjómsýsluhúsi Skilmannahrepps við Innri-Mel. Símanúmer yfirkjörstjómarmanna em tilgreind að neðan. Talning atkvæða. Talning atkvæða fer ffam í Miðgarði og hefst kl. 21:00 á kjördag. Skoðanakönnun. Samhliða sveitarstjómarkosningum fer ffam skoðanakönnun um nafn á hið sameinaða sveitarfélag. Kjósendur lýsa skoðun sinni með því að merkja X við einn af þeim fimm valkostum sem em til könnunar. Yfirkjörstjórn, 22. maí 2006, Jón Haukur Hauksson s. 669-7932 Helga Stefanía Magnúsdóttir s. 862-8920 - Jóna Björg Kristinsdóttir s. 894-6965 SVEITARSTJORNARKOSNINGAR í SAMEINUÐU SVEITARFÉLAGI BORGARBYGGÐAR, BORGARFJARÐARSVEITAR, HVÍTÁRSÍÐUHREPPS OG KOLBEINSSTAÐAHREPPS 27. MAÍ 2006 Skipting svæðisins í kjördeildir: Borgarneskjördeild, Lyngbrekkukjördeild, Þinghamarskjördeild, Lindartungukjördeild, fyrir svæðið milli Langár og Gljúfurár. fyrir svæðið milli Langár og Hítarár. fyrir Borgarbyggð ofan Gljúfurá. fyrir Kolbeinsstaðahrepp. Kleppjárnsreykjakjördeild, fyrir Borgarfjarðarsveit. Brúaráskjördeild, fyrir Hvítársíðuhrepp. Kjörfundir laugardaginn 27. maí 2006 verða sem hér segir: [ Borgarneskjördeild í Þinghamarskjördeild í Kleppjárnsreykjakjördeild í Lyngbrekkukjördeild í Lindartungukjördeild í Brúaráskjördeild í Grunnskólanum frá kl. 9:00 - 22:00 í Þinghamri frá kl. 10:00 - 20:00 í Grunnskóianum frá kl. 10:00 - 20:00 í Lyngbrekku frá kl. 12:00 - 20:00 í Lindartungu frá kl. 12:00 - 20:00 í Brúarási frá kl. 12:00 - 20:00 Kjósendur eru hvattir til að athuga vel í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað. Á kjördag er sími yfirkjörstjórnar 845-8818 og mun hún hafa aðsetur í Grunnskólanum í Borgarnesi. Talning atkvæða fer fram í Grunnskólanum í Borgarnesi þegar öllum kjörstöðum hefurverið lokað. Yfirkjörstjórn.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.