Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2006, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 24.05.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 2006 gSESSUHÖES; Ferðablaðið Vesturland og fleiri kynningamt Það er óhætt að segja að mikið efni komi út þessa dagana um ferðaþjónustu á Vesturlandi og er það vel enda mikil gróska í grein- inni. VESTIRLAIVD ForsíSa Ferðablaðsins Vesturlands 2006. Fyrir nokkru kom út Ferðablað- ið Vesturland 2006 sem Skessu- horn ehf. gefur út. Blaðið kemur nú út í 8. skipti og hefur fyrir löngu skipað fastan sess í huga ferðaþjónustuaðila og ferðamanna sem alhliða handbók um ferða- þjónustu í gamla Vesturlandskjör- dæmi. Efni þess er flokkað að hluta eftir landssvæðum innan Vestur- lands en auk þess er að finna í því viðburðaskrá sumarsins, umfjöllun um golf, sund og tjaldstæði, kort, lausar sumarhúsalóðir, kynningu á náttúru og sögu og margt fleira. Blaðið er prentað í 20 þúsund ein- tökum og er að þessu sinni 116 síður að stærð. Það hefur nú verið sent til 2200 eigendum sumarhúsa á Vesturlandi en afgangurinn, eða um 18 þúsund blöð fara í almenna dreifingu í upplýsingamiðstöðv- um, á ferðaþjónustustöðum og víðar. Um dreifmgu blaðsins sér Upplýsinga- og kynningarmiðstöð Vesturlands, UKV (síma 437- 2214). Töfirar íslands Síðustu tvö ár hefur Snæfells- nesið verið kynnt undir slagorðinu Töfrar Islands og er þar vísað til hins dulmagnaða og fjölbreytta landslags og náttúru sem þar er að finna. I nýútkomnum kynningar- bæklingi sem Framkvæmdaráð Snæfellsness gefur út er Snæfells- nesi skipt upp í þrjú mismunandi svæði, nesið sunnan- og norðan- vert og Utnesið þar sem Þjóðgarð- urinn Snæfellsjökull er. Númerað kort er af hverju svæði fyrir sig, svo og myndir sem sýna staðina sem verið er að vísa til til að hjálpa ferðamanninum, innlendum sem erlendum að velja þá staði og þau svæði sem þeir vilja helst skoða og kynna sér. Kort af Hellissandi Nokkrir framtakssamir aðilar í Snæfellsbæ hafa nú gefið út nýtt kort af Hellissandi. Höfundar þess eru Lilja Olafardóttir, Lúðvík Smárason og Skúli Alexandersson, en um uppsetningu og prentun sá Prentverk Akraness. Kortið sýnir alla helstu þjónustustaði og merka staði og gefur þannig greinargóðar upplýsingar fyrir gesti bæjarins. Önnur hlið nýja kortsinsfrá Hellissandi. BreitltiHörilMf Heliissandur SnœMsnesi - 6jú bnk6l?H A myndinni eruf.v. : Þórunn Sigþórsdóttir umhverfisfulltrúi Snæfellsness, Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvórður, Dagný Þárisdóttir bœjarfulltrúi Stykkishólms, Sigriður Finsen forseti bœjarstjómar í Grundarfirði, Guðrún G. Bergmann hótelst/óri og ráð- gjafi, Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir hönnuður og Róbert A. Stefánsson líffr<eðingur. Þau eru með nýja bækíinginn um Töfra Islands - Snœfellsnes. Hiyssa kastar - komið í heiminn í kuldatíð Morgun einn í liðinni viku þegar Bjöm Theo- dórsson, fiskifræðingur átti leið upp Borgarfjörð sá hann hryssu í haga neðan við bæinn Vatns- hamra í Andakíl og var hún að bera sig að við að kasta. Björn staldraði við og náði þessari skemmtilegri myndaseríu frá því fyrst sést í belg- inn, folaldið smám saman kemur í heiminn og þar til það er farið að arka á eftir móður sinni. Jarpa hryssan sem sést á nokkrum myndanna er undan þeirri sem kastaði en dótturinni fannst nauðsynlegt að fylgjast náið með. Hryssan og fol- aldið em í eigu Hallgríms Sveinssonar starfs- manns Bændasamtaka Islands en hann er sonur hjónanna Sveins og Gerðar ábúenda á Vatns- hömrum. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.