Skessuhorn - 24.05.2006, Side 30
30
MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 2006
IM..-
Akraneshlaupið á laugardaginn
Akraneshlaupið verður haldið í
14. sinn laugardaginn 27. maí. Eins
og undanfarin ár mun kvennanefhd
Knartspyrnufélags IA sjá um fram-
kvæmd hlaupsins, en þar sem ekki
var unnt að senda lið til keppni í
meistaraflokki í ár mun ágóða af
hlaupinu verða varið til styrktar
yngri flokkum kvenna.
Boðið er upp á þrjár hlaupavega-
lengdir, 21 og 10 kílómetra og 3,5
kílómetra skemmtiskokk auk 10
kílómetra hjólreiða. I fyrra var í
fyrsta sinn boðið upp á stuttar leið-
ir fyrir göngufólk og hitti það
greinilega beint í mark en 163 tóku
þátt í göngunni. Eldri borgarar á
Akranesi höfðu æft stafagöngu af
kappi vikurnar á undan og fjöl-
menntu í hlaupið og algengt var að
sjá þrjár kynslóðir ganga eða
skokka saman.
Akraneshlaupið hefur fest sig í
sessi sem eitt af vinsælustu almenn-
ingshlaupum landsins, gott þykir að
hlaupa á Akranesi enda ekki fleiri
keppendur í hálfmaraþoni í neinu
öðru hlaupi fyrir utan Reykjavíkur-
maraþonið. Það sem dregur fólk þó
aðallega að eru hin glæsilegu út-
dráttarverðlaun sem allir eiga kost á
að hreppa hvaða aðferð sem þeir
kjósa að nota til að komast í mark.
Vinningarnir tengjast allir ferða-
þjónustu á Vesturlandi. I boði eru
máltíðir og gisting víðs vegar um
Vesturland, siglingar á Breiðafirði,
sleðaferð á jökli, sjóstangveiði, golf
og sund, kort í göngin og Vega-
atlasar. Allir þátttakendur fá bol og
verðlaunapening, ffítt er í Jaðars-
bakkalaug og boðið er upp á orku-
drykk og banana að hlaupi loknu.
I ár ber hlaupið upp á kosninga-
dag og hafa ffamkæmdaaðilar af því
tilefni skorað á frambjóðendur að
sýna gott fordæmi og fjölmenna í
Akraneshlaupið og keppa um það
hvaða flokkur sé heilsuvænlegastur.
SO
Umhverfis- og menningardagur
í Grundarfirði
Þeir Markús HarSarson og Pawel Andrzej Konieczny eru meöal þeirra semfá Ijóð sín
birt t bókinni Ljóð unga fólksins. Afþví tilefni gœddu þeir sér á kleinum sem nemendur
9. bekkjar Grumiskólans höfSu á boðstólum ífjáróflunarskyni fyrir ferðasjóð sinn.
Að tillögu fræðslu- og menning-
armálanefndar Grundarfjarðar og
einstaklinga í bænum var sl. laugar-
dag haldinn svokallaður Umhverf-
is- og menningardagur í Grundar-
firði. Dagurinn hófst árla morguns
með tiltekt íbúa í görðum og á opn-
um svæðum en starfsmenn sveitar-
félagsins sáu um að losa fólk við það
rusl sem tínt var til. Þá veitti Þórð-
ur Runólfsson skógffæðingur ráð
um gróðursetningu og val á trjá-
plöntum til þeirra sem voru í gróð-
ursetingarhug. Eftir hádegi var
boðið upp á dagskrá í Sögumið-
stöðinni. Þar kynnti Skógræktarfé-
lag Eyrarsveitar starfsemi sína fyrr
og nú en af hálfu þess hefur verið
lögð áhersla á skógrækt umhverfis
Grundarfjörð í nágrenni við
byggðina. Gróðursetning hófst þar
árið 1987. Kynnt var í máli og
myndum jarðgerð á heimilisúr-
gangi en um þá kynningu önnuðust
Jóhanna H Halldórsdóttir og
Gunnar Njálsson. Leikskólinn Sól-
vellir sýndi myndir frá umhverfis-
vænu starfi sínu en hann er nú
„Skóli á grænni grein,“ sem er und-
anfari þess að skólinn fái Grænfána
Landverndar. Sérstakur kynning-
arbás Vistverndar í verki var á
staðnum og sáu þær stöllur Sigur-
borg Kr Hannesdóttir og Ingibjörg
T Pálsdóttir um að kynna fyrir fólki
starfsemi svokallaðra visthópa sem
komið hefur verið á laggirnar með-
al íbúa um allt land. Milli atriða
léku nemendur Tónlistarskóla
Grundarfjarðar á hljóðfæri. Einnig
voru afhentar viðurkenningar til
nemenda Grunnskólans fyrir þát-
töku í samkeppninni „Ljóð unga
fólksins“. GK
A myndinni eru Akranesmeistarar í sundi 2006.
Akranesmeistaramótíð
í nepjunni á laugardag
Akranesmeistaramótið í sundi
var haldið í Jaðarsbakkalaug síðast-
liðinn laugardag. Þar kepptu sund-
menn 9 ára og eldri og hugsuðu
margir hlýtt til væntanlegrar
innilaugar í nepjunni sem var á
laugardaginn.
Akranesmeistarar í flokki sveina
og meyja urðu þau Birgir Viktor
Hannesson og Salóme Jónsdóttir, í
flokki drengja og stúlkna Hrafh
Traustason og Inga Elín Cryer og í
fullorðinsflokki urðu Akra-
nesmeistarar þau Gunnar Smári
Jónbjörnsson og Rakel Gunnlaugs-
dóttir, en þau unnu einnig bestu af-
rek mótsins. Næsta stóra verkefhið
hjá sundfólkinu er svo hið árlega
ÍA-Essó mót sem haldið verður
dagana 2.-4. júní.
GHK
Kom heim til að
sinna væntanlegu
pabbahlutverkinu
Siguröur Þorvaldsson.
Sigurður Þorvaldsson
körfuboltakappi hefur
gert munnlegan samn-
ing um endurkomu sína
til Snæfells. Samningur-
inn er væntanlega til
eins árs, en Sigurður lék
körfubolta í Hollandi
síðasta vetur ásamt fé-
laga sínum Hlyni Bær-
ingssyni. Ekki er búið að
undirrita samninginn en
það mun verða gert á
næstu dögum. „Það kom
aldrei neitt annað til
greina en að koma aftur
heim á gamla, kalda Is-
land þar sem að ég er að
verða pabbi í byrjun
október,“ sagði Sigurður
um ástæðu heimkom-
unnar, en hann ákvað að
heim færi hann um leið
og hann hafði fréttir af
því að honum væri vænt-
anlegur erfingi. Onnur lið en
Snæfell komu til greina til að spila
með á næstu leiktíð en hann sagði
málin hafa þróast þannig að Snæ-
fell varð fyrir valinu. Sigurður var
valinn besti leikmaður úrvalsdeild-
arinnar í körfuknattleik vorið 2005
af leikmönnum og þjálfurum
deildarinnar og var hann einnig
valinn í lið ársins.
Nú er bara að bíða og sjá hvort
að kappinn knái sýni okkur ekki
einhver snilldartilþrif á vellinum á
næstu leiktíð, líkt og hann gerði
vorið 2005 er hann og félagar hans
í Snæfelli léku til úrslita um Is-
landsmeistaratitilinn og lentu í 2.
sæti í deildinni. Ekki þarf að efast
um það að heimkoma Sigurðar er
mikill styrkur fyrir lið Snæfells.
„Það er bara frábært að vera kom-
inn heim“, sagði kappinn að lok-
um.
SO
6. bekkur Grunnskólans í Borgamesi í Reykjavík
Vorferð 6. bekkjar
í Borgamesi
Sjöttu bekkingar í Grunnskólan-
um í Borgarnesi fóru í mjög fróð-
lega vorferð til Reykjavíkur
fimmtudaginn 18. maí síðastliðinn.
Var þetta náms- og skemmtiferð og
tengdist námsefni vertrarins í eðl-
is,- efha- og jarðfræði auk samfé-
lagsfræði. Fjallaði námið meðal
annars um Snorra Sturluson og
mannlíf á miðöldum sem er þema
sem bekkurinn hefur verið að vinna
með í vetur.
Lagt var af stað ffá Borgarnesi í
bítið og haldið á Arnarhól þar sem
nesti var borðað í sól og blíðu. Það-
an var haldið í Þjóðmenningarhús-
ið og skoðuð sýning sem heitir
Handritin heim, þar sem til sýnis
voru Snorra Edda og fleiri gömul
handrit. Þar var nemendum boðið
að skrifa á kálfskinn með fjöður og
ekta bleki eins og notað var í gamla
daga. Krökkunum var kennt mikið
um rúnaletur og að lesa úr rúnum.
Frá Þjóðmenningarhúsinu lá leiðin
í Rafheima sem er fræðslusetur
Orkuveitunnar. Þar tók á móti
hópnum Stefán dómari úr Gettu
betur spurningakeppninni og sýndi
þeim ýmislegt varðandi rafmagn.
Hann lét rafinagn leiða í gegnum
þau og gat til dæmis kveikt á ljósa-
peru í gegnum einn nemandann.
Síðan var farið á stöðvar og unnin
verkefni. Þótti ferðalöngunum
þetta alveg frábært og mjög
skemmtilegt, þótti þeim Stefán svo
hress og gera þetta allt svo lifandi
fyrir þau. Þegar rafmagnstússinu
var lokið var komið að hádegi og
farið á Pizza Hut á Sprengisandi,
þar sem allir fengu magafylli af
pitsum, brauðstöngum og ís. Þegar
allir voru orðnir saddir og sælir var
farið með hópinn í keilu í Öskju-
hlíð, þar sem allir spiluðu einn leik
og skemmtu sér vel. Allir komu
sælir og glaðir heim í Borgarnes
um klukkan 17:00, eftír frábæra
ferð í höfuðborgina. SO