Skessuhorn


Skessuhorn - 07.06.2006, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 07.06.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. JUNI 2006 SKESSUHÖEK Vilja að Guðni taki við afHalldóri A fundi í stjórn Framsóknar- félags Dalasýslu sl. sunnudag var samþykkt áskorun til stjórnar Framsóknarflokksins varðandi forystusveit flokksins. Alyktunin er svohljóðandi: „Stjórn Fram- sóknarfélags Dalasýslu skorar á núverandi varaformann, Guðna Agústsson, að taka við forystu Framsóknarflokksins fram að næsta flokksþingi. Stjórnin tel- ur mikilvægt að farið verði að flokkslögum en samkvæmt þeim ber varaformanni að taka við formanni, hverfi hann ffá störf- um áður en kjörtímabili lýkur. Stjórnin áréttar þann skýlausa rétt flokksmanna að velja eigin forystu og krefst þess að sá rétt- ur verði virmr í hvívetna með því að kjör hýrrar fbrystu flökks- ins fafi fram á flokksþingi en ekki miðstjórnarfundi." ' ' ' J MM Til minnis Skessuhorn minnir á Borg- firðingahátíð sem haldin verð- ur í 7. sinn um næstu helgi. Hátíðin fer fram frá föstudegi til sunnudags. Dagskráin verð- ur fjölbreytt og fer fram vítt og breitt um héraðið, þar sem all- ir ættu að geta fundið eitthvað sér til afþreyingar og ómældrar ánægju. Ve5Rrhorfw Það verður suðaustlæg átt og dálítil væta hér vestanlands flesta daga, en helst þurrt á föstudag. Spivrntruj viKnnnar í síðustu viku var spurt á Skessuhorn.is; „Er verðbólgan farin að hafa áhrif í heimilis- haldinu?" ]á, nokkuð svöruðu 40,5%, 32,7% töldu verðbólg- una vera farna að hafa mikil áhrif á heimilishald, 11,5% töldu hana hafa lítil áhrif, 8,6% töldu hana engin áhrif hafa og að lokum voru það 6,7% svar- enda sem vissu ekki hvort áhrifa gætti. í næstu viku spyrjum við: „Ertu ánœgð/ur með þœr breytingar sem eru að verða á ríkisstjórninni?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is VestlendtfujMr viMnnetr S kess u- horn útnefn- ir sjómenn á Vesturlandi, vestlendinga vikunnar og sendir þeim sínar bestu kveðjur í til- efni Sjómannadagsins. Stoínfundur Stéttarfélag Vesturlands Eins og fram hefur komið í ffétt- um Skessuhorns hafa Verkalýðsfé- lag Borgarness, Verkalýðsfélagið Valur í Dalabyggð og Verkalýðsfé- lagið Hörður í sveitarfélögunum sunnan Skarðsheiðar sameinast í Stéttarfélag Vesturlands. Stofn- fundur hins nýja félags var haldinn í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi mið- vikudaginn 31. maí. Meðal fundar- manna voru forseti ASI, formaður Samiðnar og framkvæmdastjóri SGS auk félagsmanna af öllu fé- lagssvæðinu. Stofhun félagsins var samþykkt í allsherjaratkvæða- greiðslu í félögunum 17. og 18. maí sl. Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að ekki verði úthlutað heim- ildum til hörpudiskveiða í Breiða- firði á næsta fiskveiðiári og verði farið að þeim tillögum verður það fjórða fiskveiðiárið í röð sem engar veiðar eru heimilaðar á hörpudisk. Til samanburðar má nefna að á ár- unum 1996-2000 var hörpudiskafl- inn í Breiðafirði um 8.500 tonn að jafnaði. Þrátt fyrir þessa friðun virðist stofhinn ekki ná sér á strik. I skýrslu um nytjastofna sjávar fyrir næsta fiskveiðiár sem kynnt var fyrir helgi segir að stofnirm hafi mælst í sögulegu lágmarki haustið Smellinn hf. á Akranesi hefur óskað efidr leyfi til stækkunar á lóð fyrirtækisins við Höfðasel. I bréfi frá fyrirtækinu til Akraneskaupstað- ar kemur ffam að vegna fyrirhug- aðrar stækkunar fyrirtækisins og vegna aukinna umsvifa sé nauðsyn- legt að stækka lóð fyrirtækisins við Hótel Eldborg hefur nú opnað á nýjan leik í húsnæði Laugargerðis- skóla en að þessu sinni með nýjum rekstaraðila. Olafur Lúðvíksson hefur keypt rekstur hótelsins. Hann hefur áður rekið raftækjaverslun í Reykjavík en þetta er frumraun hans í rekstri tengdri ferðaþjón- ustu. Hótelið verður opið hópum sem og einstaklingum en þar sem heimsóknir hestamanna hafa verið mjög vinsælar í gegnum árin hyggst Ólafur verða með helgartilboð fyr- ir hestamenn. Ólafur ætlar að bjóða Sveinn G. Hálfdánarson, for- maður Stéttarfélags Vesturlands, lýsti yfir stofntm þessa nýja félags. Hann sagði m.a. að stefnt væri að því að hraða því að félagið virkaði strax sem ein heild og að efla þjón- ustu við launþega á félagssvæðinu öllu. Að lokum sagði Sveinn: „Það er skoðun okkar að æskilegast hefði verið að öll sjö félögin á Vestur- landi hefðu staðið að stofnun eins félags á þessu svæði. Því var ekki að heilsa og þótti okkur þá rétt að sameina nú Vlf. Hörð, Vlf. Val og Vlf. Borgarness og sjá síðan hvað framtíðin bæri í skauti sér. Það er sameiginleg ósk og von okkar allra, 2003 eða tæplega 30% af meðaltali áranna 1993-2000. í október 2004 mældist stofninn um 15 % stærri en haustið 2003 og megi rekja þá stækkun til batnandi nýliðunar meðal yngri árganga. Samkvæmt nýjustu stofnmælingum frá haustinu 2005 og könrnrn á svæð- inu í vor virðist sú nýliðun ekki skila sér að fullu inn í veiðistofhinn. Kemur fram að dauðsföll hafi áfram mælst mikil á þýðingarmikl- um útbreiðslusvæðum stofnsins og stofhvísitalan sé aðeins um 20% af meðaltali áranna 1993-2000. Þá segir í skýrslunni að samfara Höfðasel 2. Felst stækkunin í því að stækka suðurmörk lóðarinnar um 150 metra í átt að Akranesi. Bæjar- ráð tók vel í málið og er nú unnið að því innan bæjarkerfisins. Fyrirtækið hefur að undanförnu unnið að lagfæringum á lóðinni og er stefht að því að malbika hluta gestum sínum upp á heimatilbúinn mat og hefur hann fengið í lið með sér matreiðslumann sem verður honum innan handar. Ölafur mun annars vinna mikið sjálfur og bend- ir á að eigið framlag í svona rekstri skipti miklu máli. Staðsetning hótelsins er kjörin fyrir alls konar skoðunarferðir og eru jöklaferðir, hvalaskoðunarferðir um Breiðafjörð, gönguferðir um fjörurnar, dæmi um frábæra afþrey- ingu fyrir ferðamenn svo eitthvað sé nefnt. A svæðinu er einnig stmd- sem að þessum málum hafa unnið af hálfu gömlu félaganna, að þetta skref verði launafólki á starfssvæði Stéttarfélags Vesturlands gæfu- spor.“ Stjórn Stéttarfélags Vesturlands skipa: Sveinn G. Hálfdánarson, Kristín H. Armannsdóttir, Baldur Jónsson, Kristján Jóhannsson, Guðrún H. Pálmadóttir, Sigurþór Ó. Agústsson, Guðbrandur Magn- ússon, Einar O. Pálsson, Ingi B. Reynisson, María E. Guðmunds- dóttir og Örn Guðjónsson. MM hnignun stofnsins í Breiðafirði hafi sjávarhiti þar verið hærri á undan- förnum árum en á nokkru öðru jafnlöngu tímabili síðan hörpudisk- veiðar hófust þar árið 1970. Þá staðfesti rannsóknir einnig umtals- verða frumdýrasýkingu ásamt vefja- breytingum sem virðist mega tengja við afföllin í stofninum. „Aðrir þættir kunna einnig að koma við sögu þessara dauðsfalla og ná- kvæm tengsl við hitastig sjávar eru ennþá að mörgu leyti óljós“ segir að lokum orðrétt í skýrslunni um ástand hörpudiskstofnsins í Breiða- firði. HJ hennar ásamt því að sáð verður og plantað trjám. Því hefur verið ósk- að efrir því að bæjarfélagið ljúki gatnagerð Höfðasels með lagningu slitlags og fól bæjarráð sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs að leggja fyrir ráðið kostnaðaráætlun vegna þess verks. HJ laug og tjaldstæði. Sveitahótelið í Laugargerðisskóla verður opið til 20. ágúst. KÓÓ Frá Löngufjörum. Ljósm: Ragnar Th. Sagði það ekki AKRANES: Steingrímur Bragason, íslenskukermari við FVA vill koma því á framfæri að orð sem eftír honum voru höfð í síðasta tölublaði Skessuhoms og fjalla um leiðréttingu á stafsem- ingarvillu á skilti Hróa Hattar við Hvalfjarðargöng, þar sem hann á að hafa sagt: „Þetta er löngu tímabært verk,“ vom alls ekki orð hans. Rétt mun vera að hann leiðrétti á stundum villur sem slæðast á auglýsingatöflur í skólanum, en í þessu tilfelli vora honum beinlínis ranglega lögð orð í munn - hann hafði ekki tjáð sig um umrætt mál. Beðist er velvirðingar á þessu. -mm Fjórir í árekstri IIVALIJÖRDUR: Fjögurra bíla árekstur varð í Hvalfjarðar- göngum um klukkan hálf fimm seinnipart Hvítasunnudags. Níu farþegar vora í bílunum og ekki urðu alvarleg slys á fólki en fjór- ir vora fluttir á slysadeild til að- hlynningar. Fjarlægja þurfti bíl- ana af vettvangi með krana og vora göngin opnuð fyrir umferð á ný um klukkan sjö þegar búið var að fjarlægja bflana og sópa glerbrotum og öðrum aðskota- hlutum í burtu. A meðan göng- in vora lokuð beindi lögregla bílum sem ætluðu um göngin um Hvalfjörð. -so Annríki hjá lögreglu BORGAKFJÖKÐUR: Um- ferðin gekk vónum ffamar um helgina og ekki varð nema eitt umferðaróhapp í umdæmi Borgarnes lögreglu. I því tilfelli var um ölvaðan ökumann að ræða sem velti bfl sínum á Snæ- fellsnesvegi en slapp með minniháttar skrámur. Þrír aðrir ökumenn voru teknir fyrir meinta ölvun við akstur um helgina. Þá kom upp eitt fikni- efnamál þar sem lagt var hald á lítilræði af kannabisefnum sem sagt var til eigin neyslu. Talsvert annríki var hjá lögreglunni í héraðinu um helgina, enda margir á ferðinni um hvíta- sunnuhelgina og fólk í mörgum sumarbústöðum á svæðinu. Fimm minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar en ekki er ennþá ljóst hvort að þær verði allar formlega kærðar. -so Framúraksturs- þrjótar BORGARFJÖRÐUR: Alls tók lögreglan í Borgamesi rúm- lega sjötíu ökumenn fyrir of hraðan akstur í umdæmi sínu í síðustu viku. Þekkt er að það hægist á umferðinni þegar hún eykst en þá verða þeir hættuleg- astir sem „leggjast utaná“ lang- ar bílaraðirnar til að freista þess að komast ffarnúr mörgum bíl- um í einu, en era svo uppá náð og miskunn annarra ökumanna þegar bílar koma á móti. Nokk- uð er um að ökumenn tilkynni slíkt aksturslag tii lögreglunnar og er þá reynt að hafa uppi á viðkomandi. Mikilvægt er í slík- um tilvikum að fá uppgefið bfl- númerið á viðkomandi ökutæki. -so Flyst á milli skólastiga Síðasta „útihús" Fjólbrautaskóla Vestur lands á Akranesi var flutt af lóð skólans laust fyrir hádegi síðastliðinn föstudag. Af lóð Fjölbrautar var farið með húsið á.lóð léik- skólans Garðasels á Akranesi þar sem fjöl- menni fylgdist með þegar það var sett á nýj- an stað til bráðabirgða. Því má ségja að hús- næðið hafi flust á milli skólastiga, frá ffam- haldsskóla tilleikskóla. A lóð FVA vora lengst af þrjú önnur álíka hús en þau hafa nú öll verið flutt í burtu enda skólahúsnæðið verið stækkað mikið á undan- förnum áram. Hin húsin hafa verið flutt í Heiðarskóla, á jörð í Borgarhreppi og fjórða húsið fór vestur á Snæfellsnes til þjónustu golfvallar. Húsiö komið á bílfi'á ÞÞÞ. Hörpudisksstoftiinn í Breiðafirði nær sér ekki á strik Smellinn rill stækka athafiiasvæði sitt Eigendasldpti á Hótel Eldborg

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.