Skessuhorn - 07.06.2006, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006
§SiSSUH©BKI
Hetjur hafsink í róðri frá Skaganum
Sœvar í aðgerð.
Nú fer senn að líða að Sjó-
mannadegi sem haldinn verður há-
tíðlegur um allt land um næstu
helgi. Blaðamaður Skessuhorns
fékk leyfi til að skyggnast lítilega
inn í líf hins almenna sjómanns og
fékk að fljóta með í stuttan túr ffá
Akranesi. Reynslulaus en áhuga-
söm um sjómennskuna mætti und-
irrituð klukkan sex um morguninn
niður á höfn klædd regngaila og
strigaskóm, algjörlega grunlaus um
hvað biði hennar. A þorskveiðar var
haldið með Sfldinni AK og þeim
félögum Gunnari Þór Jóhann-
essyni skipstjóra og Sævari Sig-
urðssyni sjómanni. Eftir góðan
kaffisopa og klukkutíma siglingu á
miðin fór blaðamaður að finna fyr-
ir óþægindum í maga og nokkurri
ógleði sem var að einhverju leyti
ekki óeðlilegt miðað við talsverðan
öldugang og úfinn sjó. En vilja-
Inga Bima skipstjórajrú tók á móti eig-
inmanni sínum á bryggjunni ásamt dótt-
urþeirra, Ragnheiði.
styrkurinn
hafði betur og
fjandakornið
skyldi sjóveiki
ekki eyðileggja
þessa kær-
komnu ævin-
týraferð.
Enginn
draumur í
dós
Netin voru
dregin inn eitt
af öðru og bát-
urinn fór að
fyllast af þorski sem þeir félagar
náðu fumlaust um borð. En hvern-
Björgunarsveitir mega
nú nota litaða olíu á
björgunartæki
Félagar í Slysavarnafélaginu
Landsbjörgu fagna þeirri afgreiðslu
sem varð í síðustu viku á Alþingi á
frumvarpi um breytingu á lögum
um olíugjald. Samkvæmt niður-
stöðu Alþingis er björgunarsveitum
nú heimilt að nota, á sérútbúin tæki
til björgunarstarfa, litaða olíu. Um
er að ræða gríðarlegan sparnað fyr-
ir björgunarsveitir um allt land og
ekki síst hjá litlum björgunarsveit-
um í fámennari byggðarlögum þar
sem fjáröflunarleiðir eru takmark-
aðar. „Slysavarnar- og björgunar-
sveitarfók í landinu stendur í þakk-
arskuld við alþingismenn sem unnu
að þessari farsælu lausn málsins. I
samþykktinni fellst mikil viður-
kenning á starfi sjálfboðaliða í ís-
lenskum björgunarsveitum," segir
m.a. í ályktun frá Slysavamafélag-
inu Landsbjörgu. Við atkvæða-
greiðslu í þinginu reyndust allir
þingmenn utan einn sammála þess-
ari breytingu á frumvarpinu.
MM
Vörubílastæði breytt
í fólksbílastæði
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að fela sviðsstjóra tækni- og
umhverfissviðs að láta endurhanna
svæði við Jörundarholt sem áður
var ætlað stórum bflum þannig að
eingöngu verði mögulegt að leggja
þar fólksbflum. Þetta var ákveðið í
framhaldi af óskum íbúa við göt-
una.
Forsaga málsins er sú að þegar
hverfið var hannað á sínum tíma
var gert ráð fyrir að vörubílum yrði
lagt á umrædda lóð sem er skammt
frá lóðunum nr. 121 og 123 viðjör-
undarholt. Nýverið var hins vegar
útbúið sérstakt bflastæði fyrir vöru-
bfla og frá þeim tíma hefur verið
bannað að leggja vörubílum við
Jörundarholt. Einhverjum slíkum
hefur þó verið lagt þar áfram ef
marka má bréf sem Halldór Stef-
ánsson íbúi við götuna sendi bæjar-
ráði. Segir hann tilefni þess bréfs
vera það ónæði sem íbúar við Jör-
undarholt verða fyrir „á hverjum
degi vegna umferðar og stöðu
stórra vörubfla,“ eins og segir orð-
rétt í bréfinu. Því til staðfestingar
sendi Halldór bæjarráði myndir af
slíkum tilvikum.
„Eg fer fram á að bæjaryfirvöld
loki þessu svæði þannig að stórir
bflar komist ekki inn á það. Eins og
þetta hefur verið til þessa fær mað-
ur ryk yfir hús og garð og þvott á
snúrum þegar þessi stóru tæki
koma inn á svæðið,“ segir orðrétt í
bréfinu. Þá nefnir hann að olía leki
af bílunum og eyðileggi fatnað
barna sem í komast auk þeirrar
slysahættu sem umferð þessara
stóru faratækja veldur að hans
sögn.
HJ
Höfrungsungi flœktist í einu netanna en var umsvifalaust sleppt.
Hér er Gunnar að jýlla út aflaskýrslu.
ig er að vera sjómaður í dag? Svör-
in sem fengust komu nokkuð á
óvart, því þeir virtust á sama máli
um að starfið væri nú ekki eins dá-
samlegt og margan grunaði. „Það
eru engin laun í þessu lengur,
stjórnmálamenn og útgerðin eru að
drepa þessa stétt með þátttökuleysi
sínu. Svo er búið að eyðileggja
þetta starf fyrir komandi kynslóðir
og það er eiginlega með ólíkindum
að þetta skuli hafa gerst,“ sagði
Sævar sem eytt hefur tæplega 9000
dögum af ævi sinni á sjó. Gunnar
hefur einnig mikla reynslu af sjó-
mennsku þrátt fyrir ungan aldur en
hann er aðeins 32 ára gamall. „Að
vera sjómaður í dag er ekki eins
ákjósanlegt starf og var hér á árum
áður og ég hef leitt hugann að því
að skipta um starf en ég þekki ekk-
ert annað þannig að maður lætur
sig hafa það,“ sagði þessi ungi og
geðþekki skipstjóri.
S j ómannadagurinn
ónýtur
Þá lék blaðamanni forvitni á að
vita hver þeirra áform væru fyrir
Sjómannadaginn á sunnudaginn
næstkomandi. „Hvað er nú það?
Þessi dagur er fyrir löngu ónýtur og
útdauður í huga
sjómanna. Hér á
árum áður var oft
mikið fjör á Sjó-
mannadaginn,
reipitog, kapp-
róður og margt
fleira en það hef-
ur heldur betur
breyst í gegnum
árin,“ sagði Sæv-
ar. Vafalaust eru
ýmsar ástæður
fyrir því að Sjó-
mannadagurinn
er minni hátíð en
áður en sjómerm-
irnir á Sfldinni
voru hinsvegar á
einum rómi um
að dagurinn sem
slíkur væri ekki
lengur sú hátíð
sem hann var.
Eftir fjörugar
umræður um sjó-
inn og margt sem
honum tengist,
var haldið heim
með 700 kíló af
þorski, blauta fætur og regngalla
þakinn slori og salti.
Blaðamaðurinn þakkar þeim fé-
lögum fyrir ffábæra upplifun sem
gleymist seint og um leið óska öll-
um sjómönnum til hamingju með
daginn. KÓÓ
Vel heppnað fj ölumdæmisþing
Lionshreyfingarinnar
Um helgina var Fjölumdæmis-
þing Lionshreyfingarinnar haldið á
Akranesi í tileíni að 50 ára afrnæli
Lionsklúbbs Akraness og 2 5 ára af-
mæli Lkl. Eðnu. Gestir þingsins,
Lionsfélagar og makar þeirra voru
um þrjú hundruð talsins og þar af
12 manns frá öðrum löndum. Þing-
ið hófst með skrúðgöngu á laugar-
dagsmorgun í blíðskaparveðri en að
henni lokinni tók við þingsetning
og þinghald sem stóð ffam
eftir degi. Þá var Guð-
mundur Rafn Valtýsson
kjörinn nýr fjölumdæmis-
stjóri Lionshreyfingarinnar.
Lionsþinginu lauk svo með
glæsilegri hátíð um kvöldið
í hátíðarsal FVA en það var
veitingahúsið Galito sem sá
um veitingarnar.
KÓÓ
jl I lAe'gÉÍ
Framkvæmdir á
Kleppj ámsreykj um
ins, Búið er að skipta um allan
hreinsibúnað sundlaugarinnar og
er nú verið að mála og ganga ffá
umhverfi til að hægt verði að opna
fyrir sumaropnun síðar í þessum
mánuði.
MM/ljósm. BHS
Unnið við þökulögn við sundlaugina á '
Kleppjámsreykjum.
Nýlega var lokið við malbikun
nýs göngustígs sem liggur í gegn-
um Kleppjárnsreykjahverfið í
Borgarfirði. Jarðvegsskipti og und-
irlagsvinna var í höndum Einars S
Traustasonar verktaka en malbikun
og ffágangur var í höndum Malbiks
og völtunar. Þetta eru ekki einu
framkvæmdirnar á staðnum því nú
er unnið við ýmis verkefhi á lóð
grunnskólans. Meðal annars hefur
verið sett ný girðing í kringum
skólalóðina og hellu- og þökulagt
við sundlaug og íþróttahús staðar-
Balbikun nýs göngustígar er nú lokið.
i