Skessuhorn


Skessuhorn - 07.06.2006, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 07.06.2006, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 iÍSEsÖUHöEKI Framtíð bæjarfélaga byggist á ungu fólld sem er að skapa verðmæti Rætt við Heiðar Magnússon útgerðarmann í Olafsvík HeiSar, Brynja Mjöll og dætumar um borö í bátþeirra. Oft hefur verið talað um að erfitt sé að komast inn í kvótakerfi okkar Islendinga og þar með fyrir unga menn að byrja í útgerð. Það er vafa- laust rétt því háar fjárhæðir þarf til að komast yfir aflaheimildir og svo að kaupa bátinn. Heiðar Magnús- son í Olafsvík keypti sér bát síðla vetrar 2001 og við skulum kynnast honum og útgerðarsögu hans í stuttu spjalli hér á eftir. Heiðar fæddist í Ólafsvík 1977 og er sonur hjónanna Sædísar Einars- dóttur og Magnúsar Jónassonar stýrimanns Guðmundssonar skip- stjóra í Ólafsvík og þar með sjó- maður aftur í ættir. Heiðar, sem er elstur af þremur systkinum, ólst upp í Ólafsvík og lauk námi í Grunnskólanum í Ólafsvík og tók svo einn vetur í framhaldsdeildinni sem þá var. ,,Mín sjómennska byrjaði á Ólafi Bjarnasyni SH,“ sagði Heiðar þegar hann rifjar upp sjómennskuna. „Aður vann ég hjá Fiskverkun Vala- fells í Ólafsvík. Svo eftir að ég hætti á Ólafi Bjarnasyni fór ég á ffysti- togarann Snæfell SH 740 sem hét áður Ottó Whatne. Skipstjórinn var Reynir Georgsson en heima- höfn skipsins var þá Ólafsvík. Við vorum á rækjuveiðum á Flæmska hattinum sem þá voru mikið stund- aðar af íslenskum skipum. Landað var í Harbour Race, á Nýfundna- landi. Þetta voru upp í 48 daga túr- ar en það voru góðar tekjur á þess- um veiðum og maður gat því safhað peningum sem komu sér vel seinna. Fg var á Snæfellinu í tvö ár og eftir að ég hætti fór ég á Faxaborgina SH með sama skipstjóranum en bátur- inn er í eigu KG ehf í Rifi. Við vor- um bæði á netum og línu og lönd- uðum mest í Rifi.“ Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006 kemur út fyrir nk. Sjómanna- dag. I blaðinu sem er fjölbreytt að vanda er byrjað á hugvekju efdr sr. Magnús Magnússon í Ólafsvík. Viðtal er við Sveinbjörn Benedikts- son fyrrverandi póst- og símstöðv- arstjóra á Hellissandi en hann lést á sl. vetri. Hann tók m.a. þátt í út- gerðarrekstri með hinum fræga aflamanni Sigurði Kristjónssyni en saman gerðu þeir út Skarðsvíkina SH 205. Asgeir Jóhannesson tekur saman upphaf að starfsemi Hrað- frystihúss Ólafsvíkur en fyrirtækið hóf starfsemi 1939. Viðtal er við Skúla Alexanderson fv. oddvita í Neshreppi utan Ennis og þing- mann Vesturlandskjördæmis. Skúli hefur ffá mörgu athyghsverðu að segja en hann kom á Hellissand 1952. Hann tók mikinn þátt í upp- byggingu staðarins og var þar í for- ystu í langan tíma. Grein er eftir Gísla Agúst Gunnlaugsson heitinn sagnfræðing en þar segir frá upp- hafi vélbátaútgerðar í Ólafsvík sem hófst 1904. Þá svarar Einar Krist- inn Guðfinnsson sjávarútvegsráð- herra nokkrum spurningum valin- kunnra skipstjóra við Breiðafjörð. Vðtöl eru við ýmsa menn ss. Elías J. Róbertsson en hann rekur vél- smiðju í Ólafsvík og Heiðar Magn- ússon skipstjóra en hann er einn af hinum trngu og upprennandi út- gerðarmönnum í Snæfellsbæ. Þá er skemmtileg grein eftir Þorkel Guðbrandsson og þar segir ffá ver- tíðarstemningu í frystihúsi Dags- Lét slag standa Heiðar segist alltaf hafa verið með það í huganum að eignast eig- in bát og vera sinn eigin herra. Það sem verður til þess að hann ákveður að kaupa bát er að hann slasast og verður ffá vinnu í þrjá mánuði vet- urinn 2001. „A þessum tíma, sem ég er ffá vinnu, fer ég alvarlega að hugsa um bátakaup. Eg fer þá að leita og ftnn bát sem hét Sleipnir, í Þorlákshöfn. Það var Sómi 860 og þetta var góður bátur. Eg átti góðan pening sjálfur eða um 50% sem ég gat sett í bátinn svo að ég lét slag standa og keypti hann. A þessum tíma var, eins og alltaf Forsíða nýja blaðsins. brúnar í Ólafsvík á árum áður. Gissur Tryggvason í Stykkishólmi skrifar um hið merka félag Báta- tryggingu Breiðafjarðar sem starf- aði í rúm 60 ár. Óli Sverrir Sigur- jónsson apótekari í Ólafsvík segir ffá síldarúthaldi í Norðursjó. Þá eru ýmsar greinar og frásagnir að ótöldum myndum eins og frá Sjó- mannadögum úr bæjarfélögunum á Snæfellsnesi 2005. Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar er brotið um og prentað í Prent- smiðjunni Steinprent í Ólafsvík og er alls 86 síður. Það verður til sölu í Reykjavík í Gleraugnaversluninni í Mjódd og Grandakaffi og einnig í öllum bæjarfélögum á Snæfellsnesi. Ritstjóri er Pétur Steinar Jóhanns- son. MM hefur verið, hátt verð á bátum og þá keypti maður leyfi sem var í þessu krókakerfi sem báturirm var í. Það eina sem var í kvóta hjá þessum bát- um var þorskur en ýsa, steinbítur, ufsi og aðrar tegundir voru utan kvóta. Það stóð ekki nema í eitt ár en þá var búið að kvótasetja þessar tegundir og það gerði manni erfitt fyrir þar sem ýsu og steinbítsveiði var mjög góð,“ segir Heiðar. Bjartsýnn ehf Heiðar stofhar þá einkahlutafé- lagið Bjartsýnn utan um rekstur bátsins og gefur honum nafnið Brynja og er það í höfuðið á kærust- unni. Heiðar sagði að honum hafi ekki verið spáð löngum lífdögum í útgerðinni og að hann færi fljótlega á hausinn, þar sem margir töldu bátinn alltof dýran og önnur skil- yrði ekki góð. Til að sýna að hann ætlaði sér að hafa ffamtíð í útgerð- inni og væri sjálfur bjartsýnn, þá gaf hann félaginu þetta nafn Bjartsýnn ehf, sem er bæði skemmtilegt og sýnir hug eigandans. „Eg fór strax á línu á bátnum og keypti mér sig- umaglalínu sem hefur gefist mjög vel. Ég beitti mest sjálfur og var einn um borð til að halda öllum kostnaði niðri. Þegar tegundir vom kvótasettar fór maður að kaupa heimildir enda var ekkert annað að gera ef maður ætlaði að vera í þessu. Eg hef keypt svona smátt og smátt og kvótastaðan er orðin nokkuð góð. Verðin hafa alltaf verið í toppi og sem dæmi, að þegar ég byrja þá er t.d. þorskurinn í 420 kr/kg en nú er hann komin í 1510 kr/kg,“ segir Heiðar. Nýr bátur Báturinn sem Heiðar keypti í byrjun reyndist vel en í september 2005 fékk hann sér nýjan og stærri bát og er hann smíðaður í Bátahöll- inni á Hellissandi. „Þessi bátur er um 15 lestir en sá eldri var um 6 lestir. Með stærri bát hafa umsvifin aukist og núna em þrír menn að beita í landi og ég er með einn mann með mér tun borð og við erum að róa með ffá 24 og upp í 34 bala í róðri. Þetta er miklu betra líf enda báturinn stærri og fer betur með,“ segir Heiðar og er mjög ánægður með bátinn. Greinilegt er að vel er hugað að öllu um borð enda öll umgengni til fyrirmyndar. Hann segist ekki strax vera farinn að huga að stækkun en það komi bara í ljós seinna með meiri kvóta Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar á leiðinni og öðm, en Heiðar segir að hann sé komin með um 200 tonna ígildi á bátinn sinn. Hann er þó samt að leigja aflaheimildir í viðbót til að lengja úthaldið. A s.l. ári seldu nokkrir aðilar á Snæfellsnesi í smábátakerfinu báta sína en þá var mikil eftirspurn effir aflaheimildum í því kerfi. Heiðar segir að menn hafi séð sér leik á borði að selja þar sem hátt verð hafi verið í boði og margir hafi talið að þetta kerfi yrði lagt niður. Hann segir að um 700 tonn hafi farið ffá Ólafsvík af nokkmm bátum. Hann og fleiri útgerðarmenn í smábáta- kerfinu í Ólafsvík hafi ekki verið sáttir við að hafa ekki fengið að bjóða í þann kvóta sem var á þess- um bátum sem seldir vom. Kvótakerfið „Ég er nokkuð sáttur við þetta fiskveiðikerfi sem slíkt sem við vinnum effir. Ég sé ekkert betra en það er bara alltof lítið sem má veiða effir alla þessa friðun í meira en 22 ár. Það mætti þó alveg taka út nokkrar tegundir úr kerfinu sem ekkert hafa þar að gera eins og t.d. karfa, skötusel og löngu sem alltaf kemur eitthvað af á línuna. Þá þarf alltaf að eiga einhver kíló af þessum tegundum. Mitt álit er að það sé hann að mælingar á stærð báta sé orðin eitthvað skrítin og búið sé að stytta málböndin hjá Siglingastofn- un og nefiiir þar dæmi um misræmi í mælingum á bátum sem em 14,99 tonn. Heiðar segist í sumum tilvikum ekki vera sammála forystu Félags smábátaeigenda en það sé þó nauð- synlegt að vera með gott félag. Hér í Snæfellsbæ er félag og margir sameiginlegir hagsmunir era þar ræddir. Hann segist landa öllum sínum fiski á fiskmarkað og er ánægður með þá þjónustu sem þar er veitt og nefnir þá kvótamiðlun sem markaðurinn rekur. Hann er þó ekki sáttur við þessa breytingu á slægingarstuðli úr 16% í 12%, sem kom frá sjávarútvegsráðherra og segir það beina skerðingu fyrir sjó- menn. Framtíðin björt Það er gaman að ræða við Heiðar um heima og geima og allt sem tengist útgerð og sjómennsku en framtíð bæjarfélaga byggist á unga fólkinu eins og honum og fleiram, sem er að skapa verðmæti. „Ég lít björmm augum á framhaldið og ekki hægt annað. Fiskverð er að hækka og þá að sjálfsögðu lánin Haldið á miðin. nóg til af fiski í sjónum en hann þurfi meira æti, en mér finnst að það ætti að veiða a.m.k. 240 þús. tonn á ári. Ég myndi t.d. vilja láta banna loðnuveiðar í flottroll því það veiðarfæri splundrar loðnutorf- tmum. Þær komast í mörgum tilvik- um ekki hér inn á Breiðafjörð þar sem æti vantar greinilega," segir Heiðar. Stytta málböndin „Bátum hefur fækkað talsvert í bæjarfélaginu og það er ekki góð þróun. Það vantar alveg skakarana sem vom en nú era bátar almennt að stækka og línuveiðar að taka al- veg yfir,“ segir Heiðar. Þá segir einnig. Á meðan ég get borgað af bátnum, greitt laun til fólksins sem er að vinna hjá mér og tekið mér sjálíur latm þá er ég bara bjartsýnn“ segir Heiðar og er sáttur við tilver- tma. Eiginkona Heiðars er Brynja Mjöll Ólafsdóttir og starfar hún sem leikskólakennari og eiga þau tvær dætur, þær Sædísi Rún sem er tveggja ára og Eriku Rún en hún er fimm ára. Viðtalið við Heiðar birtist einnig í Sjómannadagsblaði Snæfellsbæjar sem kemur út í þessari viku og birt með góðfúslegu leyfi Péturs S Jó- hannssonar, ritstjóra blaðsins. Heiðar keypti nýjan og stœrri bát í september ífyrra en hann er smíðaður í Bátahöllinni á Hellissandi og heitir Brynja SH 237.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.