Skessuhorn


Skessuhorn - 07.06.2006, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 07.06.2006, Blaðsíða 11
asEssgiSifam MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 11 r ■ Ibúar Flateyjar segjast hafa gleymst við kosningar Nokkur óánægja er meðal kosn- ingabærra íbúa Flateyjar á Breiða- firði vegna framkvæmd sveitar- stjórnarkosninganna í síðustu viku. Telja þeir yfirvöld hafa gleymt þeim og þeir hafi því ekki átt þess kost að kjósa með jafn auðveldum hætti og oftast áður. Eyjan tilheyr- ir nú Reykhólahreppi þar sem voru óbundnar kosningar. Flateyjar- hreppur sameinaðist sveitarfélög- um í Austur-Barðastrandarsýslu árið 1987 og til varð Reykhóla- hreppur. Síðan hefur ekki verið sjálfstæð kjördeild í eynni. Ibúar segja að við flestar kosningar síðan hafi sýslumaður eða starfsmenn hans komið við í eynni fýrir kjör- dag og gefið fólki kost á að greiða atkvæði utan kjörfundar. Slíkt var hins vegar ekki í boði nú. Halldór D. Gunnarsson formað- ur kjörstjórnar Reykhólahrepps segir það ekki í verkahring kjör- stjórnar að sjá til þess að hægt verði að greiða atkvæði utan kjörfundar. Hann kveðst hafa heyrt af óánægju vegna málsins en hafi ekki heyrt ffá íbúum í eynni vegna málsins. Að öðru leyti vísaði hann á Þórólf Halldórsson sýslumann Barða- strandarsýslu. Þórólfur segir ekki fast form á því að íbúum í Flatey standi til boða að greiða atkvæði utan kjör- fundar. íbúum hafi þó staðið slíkt til boða við einhverjar kosningar og meðal annars hafi hann í það minnsta við einar kosningar komið þar við sjálfur á leið sinni yfir Breiðafjörð. Hann segist hafa sett hreppstjóra í Reykhólahreppi fýrir sveitarstjórnarkosningarnar nú til þess að gera íbúum hreppsins kleift að greiða atkvæði utan kjörfimdar. Slík skipan sé ekki skylda en harm hafi hins vegar tahð það nauðsyn- legt. Ibúar í Flatey sem blaðamaður Skessuhorns ræddi við sögðu nauð- synlegt að kjósendum stæði í það minnsta til boða kosningar utan kjörfundar. Töldu þeir stjórnvöld af einhverjum ástæðum áhugasam- ari um að eyjaskeggjar gætu greitt atkvæði í alþingiskosningum en sveitarstjórnarkosningum. Þeir sögðu jafhframt ógerlegt sökum vegalengdar að sækja kjörfund á Reykhóla. Því væri best að hafa opna kjördeild stuttan tíma í eynni við kosningar eða að sýslumaður eða starfsmaður á hans vegum kæmu við fýrir kjördag þannig að alhr gætu greitt atkvæði utan kjör- fundar. A kjörskrá í Reykhólahreppi voru 190 þar af eru 12 á kjörskrá í eyjum á Breiðafirði. HJ Saltfiskssalar firá Catalóniu í heimsókn Félagar saltfiskssalanna bláklœddir en ólífufélagamir í grænu. A bakvið eru þeirfélagar Sigurður Haraldsson, Rúnar S Magnússon skipstjóri og Sigurður Sigurbergsson fram- kvæmdastjóri lengst til hœgri. Það er ekki á hverjum degi sem spænskir saltfiskssalar koma í heim- sókn til þeirra sem annast verkun á saltfiski á Islandi. Hjá fiskverkun Soffaníasar Cecilssonar hf. í Grundarfirði hefur saltfiskvinnsla verið í fýrirrúmi um margra ára bil. Afurðirnar hafa um langa tíð verið fluttar til suður Evrópu þjóðanna, einkum til Spánar og hefur fyrir- tækið í gegnum tíðina skapað tengsl við þá sem sjá um að selja saltfisk- inn til spænskra neytenda. Fyrir nokkrum árum var Soffanías Cesil- son hf. meðal stofhenda fýrirtækis- ins Bacco ehf, sem sérhæfir sig í út- flutningi á saltfiski m.a. ffá íslandi, en einnig ffá Grænlandi og Færeyj- um. Það var á vegum Bacco sem hópur saltfiskssala frá Catalóniu kom í heimsókn á Snæfellsnesið um hvítasunntma. Saltfiskssalarnir hafa með sér fé- lagsskap sem vinnur í samvinnu við félag ólífusala, því á Spáni er eng- inn saltfiskur maddreiddur án ólífuolíu. Þessi félagsskapur á sér foma hefð í Catalóniu en var end- urvakinn fýrir 25 árum efrir nokk- urt hlé og var þessi ferð félaganna tilkomin að þeirra frumkvæði vegna afmælisins en um 35 manns vora þarna á ferð. Með í för á ís- landi sem túlkur og fararstjóri var Sigurðu Haraldsson sölustjóri hjá Bacco. Hópurinn skoðaði verkun- araðstöðuna hjá SC hf og tók á móti einum báti fyrirtækisins, Grundfirðingi SH sem landaði þennan dag. I hófi sem haldið var í kaffistofu fyrirtækisins var fjöl- skylda Soffaníasar Cecilssonar með sérstakri viðhöfn gerð að heiðursfé- laga í félagi saltfisksalanna og tók Hulda Vilmundardóttir ekkja Soff- aníasar fýrrum útgerðarmanns og skipstjóra, við sérstöku heiðurskjali því til staðfestingar fýrir hönd fjöl- skyldunnar. GK Byggingarmenn framtíðarinnar Vordagar voru í Grunda- skóla síðastliðna viku. Við skógrækt Akraneskaupstaðar unnu nemendur í 4., 5. og 6. bekk í Grundaskóla m.a. við kofasmíði. Sex kofar voru í byggingu þegar ljósmyndari Skessuhorns átti leið um svæðið og glumdu hamars- höggin um allt. Ahuga, ánægju og einbeitingu mátti sjá á hverju andliti þegar unnið var við að saga spýtur og negla þær við stoðir kof- anna. Bekkjtmum þremur var skipt upp í fjóra hópa. Húsmyndun var Hópur 4., H. og 6. bekkinga í Grundaskóla á byggingasvæðinu við Skógræktina. komin vel af stað og unnu krakkar- inir hörðum höndum undir leið- sögn kennara sinna, en samt sem áður vissu þau alveg hvemig þau vildu að sínir kofar litu út og vora hin kátustu í góða veðrinu. Vafa- laust hafa þau notið góðs af því að hafa fylgst með þeirri upp- byggingu sem átt hefur sér stað í stærri húsa- byggingum í bæjarfé- laginu á liðnum árum. SO Dagskrá Borgfirðingahátíðar Fimmtudagur 8. júní Kl. 19.30 Fjallganga Fyrsta kvöldganga sumarsins hjá UMSB gengið verður á Hraunsnefsöxl i Norðurárdal Kl. 20.30 Borgarneskirkja Gospeltónleikar í boði LOFTORKU Gospelkór Borgarijarðar, stjórnandi Zsuzsanna Budai Föstudagur 9. júní Kl. 16.00 Safnahús Borgarfjarðar Opnun Ijósmyndasýningar Guðbjargar Hörpu Ingimundardóttur Upplestur fjögurra krakka úr Ijóðum sínum sem verða gefin útí Ijóðabók Haraldur Jónsson les prósa úr bók sinni „Hugrenningur” Sýning á vettlingasafni Helgu Hansdóttur Sýning á myndverkum Lúkasar Kárasonar úr rekaviði afStröndum Kl. 17.00 Landnámssetur Sögustund fyrir börnin Kl. 20.30 Baðstofukvöld á Indriðastöðum í Skorradal Bjartmar Hannesson skemmtir Steinunn Árnadóttir, Ásdís Haraldsdóttir og Snorri Hjálmorsson flytja lög eftir Sigfús Halldórsson örn Árnason leikari Sagnamenn frá landnámssetri Baðstofustjóri Haukur Gunnarsson Aðgangseyrir: Kr. 1.000 fyrír fullorðna og frftt fyrir 14 ára og yngri Miðnætursund i Hreppslaug tH kl. 02.00 (opnunartími Hreppslaugar á www.kerti.is) Laugardagur 10. júní Kl. 10.00 Fjallganga á Hafnarfjall undir leiðsögn gönguklúbbs Borgarness Gönguferð í Englendingavík undir leiðsögn Finnboga Rögnvaldssonar Kl. 12.00 Landnámssetur Sögustund fyrir börn í Landnámssetri Kl. 14.00 Tjaldstæðið í Borgarnesi Danshópurinn á Kleppjárnsreykjum Söngatriði grunnskólabarna Tónlistaskóli Borgarfjarðar með atriði úr Litlu stúlkunni með eldspýturnar Götusmiðja vinnuskólans Andlitsmálun Leiktæki Hoppukastalar ... og margt fleira Kl. 16-18 Sundlaug Borgarness Dískósund Kl. 16.00 Borgarneskirkja Kristin Magdalena Ágústsdóttir heldur einsöngstónleika, undirleikari Skarphéðinn Þór Hjartarson. Aðgangseyrir Kl. 17.00 Landnámssetur Sögumaður fyrir fullorðna Kl. 21.00 Hótel Hamar „Mýrarnar perla vesturlands" kvikmyndasýning Óskars Þórs Óskarssonar Kl. 21.00 Tjaldstæðið í Borgarnesi Baggalútur á útitónleíkum í boði SPARISJÓÐS MÝRASÝSLU Útimarkaður Knapans við Hyrnutorg. Til sölu verða notaðir hnakkar og ýmsar aðrar vörur tengdar hestamennsku. Þá býðst fólki einnig að koma með reiðfatnaðinn sem bömin eru vaxin upp úr og seija eða skipta við aðra. Sunnudagur 11. júní Kl. 9.00 Skallagrímsgarður Morgunmatur í boði: Borgarnes kjötvörur, Geirabakarí, Mjólkursamsalan, Laugaland, Víðigerði, Sólbyrgi, JGR heildsala. Kl. 11.00 Skallagrímsgarður Útimessa í Skallagrímsgarði Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, Steinunn Pálsdóttír leikur á harmoniku. Kl. 12.00 Landnámssetur Sögustund fyrir börnin Kl. 11.30 Sparisjóðshlaup UMSB Hlaupið fer fram i Borgarnesi, í tengslum við Borgfirðingahátíð. Hlaupið er frá húsi Sparisjóðs Mýrasýslu og hlaupið i nágrenni þess ca 1000 m hring. Hlaupið er 15 km boðhlaup með 5 þátttakendum. Að minnsta kosti 2 konur skulu vera I hverri sveit Hver hlaupari skal hlaupa 1000 m þrisvar sinnum. Hver hlaupari fær viðurkenningu fyrir hlaupið og þrjár fyrstu sveitir verðlaun. Sú sveit innan UMSB sem hleypur á bestum tima hlýtur Sparisjóðsbikarinn til varðveislu i eitt ár. Skráningar á skrifstofu UMSB i síma 437 1411 eða á umsb@mmedia.is Kl. 13.00- 17.00 Hvanneyri (planið hjá Hvanneyrarkirkju) Bændamarkaður Húsdýragarður Ullarselið-tóvinna Leikir og þrautir Búvélasafn Reiðskóli Guðrúnar Fjeldsted, teymt undir börnumfrákl. 13.00- 15.00 Kaffihús og lifandi tónlist Kl. 13.00 til 16.00 Golfklúbbur Borgarness Golfkynning að Hamri fyrir 55 ára og eldri. Félagar í GB leiðbeina. Kl. 14.00 og 16.00 Landnámssetur Sögumaður fyrir fullorðna Kl. 15.00 Hótel Hamar „Mýrarnar - perla Vesturiands” kvikmyndasýning Óskars Þórs Óskarssonar Kl. 13.00- 17.00 Fossatún, leikur í lyndi Gestum býðst að leika sér í leiktækjum. Umsjónarmenn og leiðbeinendur verða á staðnum. Mini-golf Skriðkólfur Kúluspil Útitafl Refskák Reipakast Klifurkastali Trampólínur Útikeila Útipílur ... og margt fleira Kl. 14.00og 16.00 Fossatún Hin einstaka sýning Tónmilda Island, þar sem íslensk tónlistog náttúra fallasti faðma. Borgarfjarðarkafíi og með'ðíi veitingasal og á útipalli f Fossatúni. Sjá wmvsteinsnar.is Sýningar í héraðinu sem eru opnar alla helgina: Sýning í Snorrastofu Opin alla daga frá kl. 10.00 - 18.00 Snót, brúður, svanni Konur á öld Snorra Sturlusonar Sjá www.snorrastofa.is Safnahús Borgarfjarðar Sýningar í safnahúsi Borgarfjarðar opnar á laugardag lO.júnífrákl. 13.00- 17.00 Sjá www.safnahus.is Landnámssetur Borgamesi Opið alla daga Borgfirðingahátíðar frákl. 10.00- 19.00 Sýnlngar á Mr. Skallagrfmsson Föstudag kl. 20.00 Laugardag kl. 20.00 Sunnudag kl. 20.00 Sjá www.landnam.ls

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.