Skessuhorn - 07.06.2006, Page 22
22
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006
Sundfólkið frá Akranesi fagnar sigrinum.
Fjölmennt sundmót
Um helgina var hið árlega IA-
ESSO sundmót haldið að Jaðars-
bökkum á Akranesi. Til leiks
mættu 14 félög með um 350 sund-
menn á öllum aldri. Að sögn Heið-
bjartar Kristjánsdóttur, formanns
Sundfélags Akraness gekk mótið að
mestu leyti vel fyrir sig, enda veð-
urguðimir hliðhollir sundmönnum
að þessu sinni. Þó hafi þurft að
seinka keppni á sunnudeginum
vegna þess að ekki var nægt vatn í
lauginni sökum rafmagnsbilunar.
Sundfélag Akraness sigraði í
stigakeppni félaga á mótinu og
Ungmennafélagið Þróttur Vogum
var valið prúðasta lið keppninnar
þriðja árið í röð. Hrafn Traustason
var valinn besti sundmaður mótsins
en hann setti m.a. glæsileg Akra-
nesmet í 200 og 400 metra fjór-
sundi, 200 metra bringusundi og
vann auk þess allar sínar greinar.
Salome Jónsdóttir bætti einnig
Akranesmetið í 100 metra
flugsundi meyja en hún er á yngra
ári í aldursflokknum og á örugglega
eftir að gera atlögu að fleiri metum
á næstunni.
Sundfélag Akraness vill þakka
þeim fjölmörgu foreldrum sem
lögðu hönd á plóginn við ffam-
kvæmd mótsins, sem og styrktarað-
ilunum ESSO og Símanum. GK
Hrefiia á leið á heimsmeistaramót yngri spilara
Nú í lok þessa mánaðar fer sjötta
heimsmeistaramót yngri spilara í
brids fram í Slóvakíu. 17 ára stúlku
úr Borgarfirði, Hrefna Jónsdóttir
frá Björk í Reykholtsdal hefur átt
sæti í landsliðshópi yngri spilara
undanfarið ár og keppir nú ásamt
11 öðrum spilurum fyrir Islands
hönd á mótinu.
Hrefna byrjaði að æfa brids þeg-
ar hún var 11 ára gömul og naut
fyrst í stað leiðsagnar föður síns
Jóns Péturssonar, en fór síðan á
námskeið sem Bridsfélag Borgar-
fjarðar stóð fyrir þar sem Þorsteinn
Pétursson leiðbeindi stórum hópi
Borgfirðinga að læra spilið en þeir
hafa flestir haldið áfram og skipa nú
kjarna í einu öflugasta bridsfélagi
landsins.
Hrefna hefur náð feiknagóðum
árangri í íþróttinni nú þegar enda
mjög áhugasöm. „Eg byrjaði á að
Hrefna Jónsdóttir.
spila reglulega brids með félaginu
uppi í Borgarfirði en fór svo í
Menntaskólann í Reykjavík síðasta
haust og byrjaði þá að æfa með
yngri spilurum á vegum Bridssam-
bandsins. Síðan hef ég æft með
þeim og fór m.a. á Norðurlanda-
mót yngri spilara í Danmörku í
fyrra.“ Hrefna segist vera
næstyngsti þátttakandinn í lands-
liðshópnum, en það er einn 13 ára
piltur yngri. Makker hennar er 23
ára spilari úr Reykjavík sem heitir
Elva Díana Hermannsdóttir. Hún
segist hlakka mikið til ferðarinnar
en eftir mótið verður hún í 10 daga
Campus úti í Slóvakíu, sem er æf-
ingabúðir fyrir þátttakendur þar
sem í boði verða fyrirlestrar, mót en
um leið verður hægt að kynnast
bridsspilurum allsstaðar að úr
heiminum. „Þetta verður ferlega
skemmtilegt og brids er íþrótt sem
reynir á hugann og um leið er mað-
ur í mjög skemmtilegum félags-
skap. Eg er því ákveðin í að halda
áfram að æfa og keppa í brids í
framtíðinni," segir Hrefna að lok-
um. MM
Hjóladagur á Akranesi
Laugardaginn 20.maí var hinn
árlegi hjóladagur haldinn á Akra-
nesi. Að deginum standa Slysa-
varnadeild kvenna á Akranesi,
Grundaskóli, Brekkubæjarskóli,
Rauði krossinn og Lögreglan.
Settar voru upp þrautir fyrir reið-
hjól, hlaupahjól og línuskauta
sem böm og fullorðnir spreyttu
sig á. Félagar í Rauða krossinum
sáu um að stilla hjólahjálma og
lögreglan skoðaði hjólin en
mikilægt er að hvomtveggja
sé í lagi til að auka öryggi
barna í umferðinni. Tóti
trúður kom í heimsókn og
lék listir sínar á línuskautum
við góðar tmdirtektir við-
staddra. I lokin var dregið í
happdrætti og allir fengu
svaladrykk í boði Einars í
Einarsbúð.
Þriðja deild karla í knattspymu
Skagamenn eru
F axaflóameistarar
Skagamenn urðu Faxaflóameist-
arar í knattspyrnu í 5. flokki karla
en þeir sigmðu Gróttu 5 - 3 í úr-
slitaleik mótsins á Akranesi þann
19. maí sl. A mótinu, sem staðið
hefur yfir síðan í byrjun apríl, vom
spilaðir sex leikir auk úrslita- og
undanúrslitaleikja. Skagastrákarnir
stóðu sig frábærlega vel og unnu
fimm leiki en töpuðu aðeins einum
en þess má geta að allir sex leikir
þeirra vom útdleikir vegna lélegra
aðstæðna á Skaganum. Hugi Harð-
arson, þjálfari liðsins er að vonum
afar stoltur af sínum strákum. „-
Þetta er efnilegur en fámennur
hópur sem nær vel saman og þeir
áttu það fyllilega skilið að vinna
þetta mót,“ sagði Hugi. Hann
bendir á að hóparnir séu að minnka
með hverju ári og það veldur hon-
um vissum áhyggjum. „Það þarf að
vekja meiri áhuga á fótbolta hjá
yngri krökkunum og þá mættu for-
svarsmenn og leikmenn eldri flokk-
anna koma þar meira við sögu til að
efla yngri flokkana og tengsl þeirra
á milli. Það þarf að vinna markvisst
að þessum hlutum svo yngri flokk-
arnir skili sér á endanum inn í
meistaraflokk og bærinn geti í
framtíðinni staðið undir nafni.
KÓÓ
wxxx
IMxA'Vx
Snæfell-Skallagrímur
Lið Snæfells tók á móti Skalla-
grími á Stykkishólmsvelli í C riðli
3. deildar í knattspymu karla síð-
astliðinn fimmtudag. I hálfleik var
staðan markalaus en eitthvað hefur
Olafur þjálfari Skallagríms haff við
sína menn að segja í hálfleik, því
leiknum lauk með fimm mörkum
Skallagríms gegn engu marki
heimamanna. Finnur Jónsson var
með þrennu í leiknum, Valdimar
Sigurðsson skoraði eitt mark og
Emil Sigurðsson eitt. Efrir leikinn
eru Skallagrímsmenn komnir í 2.
sæti C riðils með 3 stig og Snæfell
er í 5. og næstneðsta sæti með 1
stig.
Kári-Hvöt
Lið Kára tók á móti Hvöt frá
Blönduósi á Akranesvelli föstudag-
inn 2. júní. Leiknum lauk með
þremur mörkur Hvatar gegn einu
marki heimamanna í Kára. Eftir
leikinn er Kári í 3. sæti C riðils,
með 3 stig eins og Skallagríms-
menn en Borgnesingarnir hafa
betri markatölu og eiga því 2. sætið
eins og sakir standa.
Snæfell og Kári léku á þriðju-
dagskvöldið 6. júní á Stykkis-
hólmsvelli (eftir að Skessuhorn fór í
prentun). Næsti leikur Skallagríms
er föstudaginn 9. júní klukkan 20 í
Borgarnesi á móti Neista H.
SO
---^----------------------
KSI heiðrar knattspymurefi
Tíu vel þekktir Skagamenn voru
sæmdir heiðursmerkjum Knattspyrnu-
sambands Islands á fimmtudaginn sl. í
tilefni af 60 ára aftnæli IA. Fjórir
þeirra hlutu silfurmerki KSI og sex
gullmerki en þeir hafa allir unnið ffá-
bært starf í gegnum árin og verið
ómetanlegir uppbyggjendur knatt-
spyrnuhreyfingarinnar á Akranesi.
Heiðursmerkin voru veitt af Eggerti
Magnússyni, formanni KSI.
Gullmerki hlutu: Gísli Gíslason,
Guðjón Guðmundsson, Guðjón Þórð-
arson, Hörður Helgason, Teitur Þórð-
arson og Þröstur Stefánsson. Silfúr-
merki hlutu: Alexander Högnason,
Haraldur Ingólfsson, Olafur Þórðar-
son, Andrés Olafsson. KOO
Aftari röð f.v. Eggert Magnússon formaður KSI, Ouójón Guómundsson, Teitur Þórð-
arson, Gudjón ÞórÖarson og Gísli Gíslason. Fremri röSf.v. Andrés Olafsson, Harald-
ur lngólfsson og Ólafur Þórðarson. A myndina vantar: Aléxander Högnason, Hörð
Helgason og Þröst Stefánsson.
Sundnámskeið í Borgamesi
Fimmti flokkur ÍA ásamt þjdlfaranum, Huga Harðarsyni.
Sparisjóðshlaup UMSB
I tengslum við Borgfirðingahátíð
fer Sparisjóðshlaupið ffam í Borg-
arnesi 11. júní klukkan 11.30.
Hlaupið hefst ffá húsi Sparisjóðs
Mýrasýslu og farið sem leið liggur í
nágrennið um eins kilómeters
hringur.
Hver hlaupari fær viðurkenningu
fyrir hlaupið og þrjár fyrstu sveitir
fá verðlaun. Sú sveit innan UMSB
sem hleypur á bestum tíma hlýtur
Sparisjóðsbikarinn til varðveislu í
eitt ár. Skráning í hlaupið fer fram
á skrifstofu UMSB í síma 437 1411
eða á netfanginu umsb@umsb.is
MM
Síðastliðnar 3 vikur hefur sund-
deild Skallagríms í Borgarnesi stað-
ið fyrir sundnámskeiði fyrir börn
sem eru fædd árið 2000. En það eru
börnin sem munu byrja í skóla í
haust. Er þetta ffekar stór árgang-
ur, en alls kom 31 barn á námskeið-
ið. Þar var kennt bæði bringu- og
skriðstmd og gerðar ýmsar æfingar
auk þess sem börnin gátu leikið sér.
Sundkennarar á námskeiðinu voru
þau Sigrún, Bjarni og Rakel Osp.
Allir þátttakendur á námskeiðinu
fengu verðlaunapening í lok nám- öllum sundpoka.
skeiðs og gaf Sparisjóður Mýrasýslu
ÞSK