Skessuhorn


Skessuhorn - 19.07.2006, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 19.07.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 ^ssunu^ Enduðu út í á LANGAVATN: Erlendir ferðamenn á bílaleigujeppa lentu í vandræðum við Langa- vatn sl. mánudagskvöld. Björg- unarsveitin Brák hélt á staðinn fólkinu til aðstoðar, kom mann- skapnum til byggða en bifreiðin var skilin eftir og sótt síðar. Tvær vegleiðir liggja að Langa- vatni, sú sem yfirleitt er farin er við Svignaskarð. Sú leið sem ferðalangarnir völdu sér er gömul leið sem til er á kortum en er ekki mikið notuð nema þá helst þegar haldið er til smöl- unar á haustin og er þá farið að vatninu við Grenjadal. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi virð- ist sem bíllinn hafi skrikað á vaðinu yfir ána og þar hafi bíll- inn stöðvast. Svo virðist sem ferðalangarnir hafi ályktað sem svo að fyrst leiðin væri á korti þá væri hún greiðfær. -so Minnismerki afhjúpað REYKHÓLAR: Sunnudaginn 23. júlí verður minnismerki um Jón Thoroddsen skáld afhjúpað á Reykhólum. Það var Reyk- hóladeild Lionsklúbbs Búðar- dals sem stendur fyrir uppsetn- ingu minnismerkisins. List- skreytingasjóður ríkisins styrkti verkefnið um eina milljón króna og ráðuneyti heildbrigð- is- og tryggingamála styrkti framtakið um hálfa milljón króna. Einnig komu framlög frá Barðstrendingafélaginu, Thoroddsen-ættinni, landbún- aðarráðuneytinu og fleiri aðil- um. Höfundur verksins er Finnur Arnar Arnarson mynd- listarmaður. -mm Ekiðá Hreðavatns- skála BORGARFJÖRÐUR: Öku- maður í æfingarakstri steig óvart á bensíngjöfina í stað bremsunnar er hann var að leggja í stæði utan við Hreða- vatnsskála sl. föstudag með þeim afleiðingum að bíllinn rauk af stað, upp á gangstétt og skall beint á útihurð skálans. Ekki urðu nein meiðsl á fólki en nokkrar skemmdir urðu á hurð- arbúnaði skálans. Bíllinn reyndist vera í ökuhæfu ástandi og tók móðir stúlkunnar við stjórn bifreiðarinnar þegar áffam var haldið. -so Vélhjólamenn fái aðstöðu AKRANES: Skipulags- og byggingarnefnd Akraness hefur mælt með því við bæjarstjóm að Vélhjólaíþróttafélagi Akra- ness verði veitt til afnota um þriggja hektara svæði í landi Asa 3. Félagið sendi bæjarráði ósk um aðstöðu og hafði ráðið sent málið til umsagnar skipu- lags- og byggingamefndar. -hj Enn eykst umferð um göngin í síðasta mánuði fóra 196 þúsund bílar um Hvalfjarðargöng. Era það 9% fleiri bílar en í júní í fyrra. Um- ferðaraukningin er enn meiri þegar horft er til tímabilsins október 2005 til júní 2006 eða ríflega 14%. Þetta kemur ffam á heimasíðu Spalar sem á og rekur göngin. Rekstrarár Spal- ar er ffá október til og með septem- ber. í nýju yfirliti fyrstu níu mánaða rekstarársins kemur í ljós að umferð í göngunum eykst enn veralega og stefnir því nú í fyrsta sinn að verða yfir 5.000 bílar á sólarhring. Sér- staka athygli vekur mikil umferðar- aukning mánuðina nóvember - febr- úar, en þá var hún á bilinu 21-28% miðað við sömu mánuði á fyrra ári. Af sjálfú leiðir að tekjur Spalar af umferðinni era umffam rekstrará- ætlun og þar af leiðandi mun félag- ið væntanlega greiða meira niður af skuldum sínum í lok rekstrarársins en ráð var fyrir gert að því er kem- ur fram á heimasíðunni. Sama gerðist reyndar á síðasta rekstrar- ári. HJ Minnkandi atvinnuleysi á Vesturlandi Atvinnuleysi á Vesturlandi mæld- ist aðeins 0,5% nú í júní en var 0,7% í maí. A landinu öllu mældist at- vinnuleysi í júní 1,3% að því er seg- ir í skýrslu Vinnumálastofnunar. Minnst atvinnuleysi mældist á Aust- urlandi en það var aðeins 0,3% og mest mældist atvinnuleysið á Norð- urlandi eystra, 2,1%. Meðalfjöldi at- vinnulausra á Vesturlandi í júm var 38 einstaklingar. Atvánnuleysi meðal karla í fjórðungnum var 0,3% en 0,8% hjá konrnn. Atvinnuleysi karla stendur svo til í stað milli mánaða en atvinnuleysi kvenna hefur minnkað um 0,5 prósentustig ffá því í maí. Atvinnulausar konur á Vesturlandi vora 24 í júní og hafði þeim fækkað um 16 síðan í maí en körlunum hafði fækkað um einn síðan í maí og vora því 14 í júní. A Akranesi vora fimm karlar án atvinnu í júm og sextán konur, í Borgarbyggð vora sex konur at- vinnulausar en enginn karl, í Dala- byggð var einn karl og ein kona án atvinnu í síðasta mánuði, í Grandar- fjarðarbæ vora tveir karlar og ein kona án atvinnu, ein kona var án at- vinnu í Skorradalshreppi í júní, fjór- ar konur og þrír karlar vora atvinnu- laus í Snæfellsbæ og í Stykkishólmi vora sjö karlar án atvinnu og tvær konur. I Eyja-og Miklaholtshreppi, Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit og Reykhólahreppi vora engir atvinnu- lausir í síðasta mánuði. I skýrslu Vinnumálastofhunar kemur einnig ffam að talsverð fækk- un er á ungu atvinnulausu fólki á landinu öllu í júmmánuði milli ár- anna 2005 og 2006. I júní í fyrra vora 731 skráðir atvinnulausir á aldrinum 16-24 ára en nú í ár hafði þeim fækkað niður í 448. SO A Björg Agústsdóttír lætur af störfum Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfirði lét af störfum sl. föstudag. Hún tilkynnti síðla vetrar að hún sæktist ekki eftir endurráðn- ingu að sveitarstjórnarkosningum loknum. Hún féllst á að gegna stöðunni þar til nýr bæjarstjóri yrði ráðinn. A fimmtudag var gengið frá ráðningu Guðmundar Inga Gunnlaugssonar í stöðu bæjarstjóra og mun hann taka við starfinu 1. september nk. Fram að þeim tíma mun Sigríður Finsen forseti bæjar- stjórnar gegna starfi bæjarstjóra. Björg sagði í samtali við Skessu- horn að hún myndi á næstu vikum sinna ákveðnum verkefnum fyrir Grundarfjarðarbæ en daglegum störfum hennar lauk á föstudag. Hún sagðist ekkert hafa ákveðið hvað við tæki hjá sér. Fyrst og fremst ætlaði hún að slaka á næstu vikurnar. Það væri hverjum manni nauðsynlegt öðra hverju. Hvað síð- ar tæki við myndi tíminn leiða í Ijós.HJ Valafell kaupir Hróahúsin í Ólafsvík Fiskverkunar- og útgerðarfyrir- tækið Valafell hefur fest kaup á fiskvinnsluhúsum í Olafsvík sem kennd hafa verið við Hróa. I sam- tali við bæjarblaðið Jökul segir Kristín Vigfúsdóttir framkvæmda- stjóri Valafells að fyrst um sinn verði lögð áhersla á að fegra og verja húsin en þegar fram líða stundir verði rekstur fyrirtækisins bæði í núverandi húsakynnum sem og í þeim húsum sem nú hefur ver- ið fest kaup á. Um árabil var fisk- vinnslufyrirtækið Hrói eitt af stærstu fyrirtækjum í saltfiskfram- leiðslu en síðar var í húsunum rek- in slægingarþjónusta. HJ Nautgripir reknir með hrossa- stóði á Löngufiörur Á Lönguijörum á Snæfellsnesi er vinsæl reiðleið sem fjöldi hesta- manna nýtur á hverju sumri. Flestir ferðalangar eiga góð samskipti við landeigendur en því miður verður stundum misbrestur þar á. Hópur nautgripa frá bænum Stakkhamri á Snæfellsnesi var tekinn með irm í rekstur hrossa sem var á leið á Löngufjörar í síðustu viku. Naut- gripirnir vora þannig reknir með hrossahópnum niður í fjöra og virt- ist ekki skipta ferðamennina nokkra máh að aðfall var á sama tíma og hefði getað farið illa fyrir þesstun 26 gripum ef ábúendur á Stakkhamri hefðu ekki gripið í taumana. „Ef þessi ferðahópur hefði verið á ferðinni deginum áður væru grip- ir eflaust dauðir þar sem enginn var heima á bænum þann dag. Aðeins heppni réði því að við tókum eftir þeim þama niður í fjöra og ferða- hópurinn reyndi ekki einu sinni að reka nautgripina til baka. Það eina sem hægt var að gera í stöðunni var að hendast út og leggja á þau hross sem við vissum að kæmust hraðast og ríða niður í fjöra í einum spreng til að koma gripunum upp á beitar- landið aftur áður en meira féll að,“ sagði Laufey Bjarnadóttir ábúandi að Stakkhamri í samtali við Skessu- hom. Hún segir ábúendur á Stakk- hamri ekki hafa lent áður í atvikum sem þessu en nágrannar þeirra við fjörarnar hafi þó lent í svipuðum málum. Laufey vill beina þeim til- mælum til ferðalanga á Löngufjör- ur að sýna kurteisi og hafa samband við ábúendur og þá sé auðveldlega hægt að koma í veg fyrir að svona gerist. Vildi hún samt koma því á ffamfæri að langflestir ferðamenn gengju vel um og færa þessa leið í samráði við ábúendur. Aðspurð um þeirra fyrstu viðbrögð eftir atvik þetta með nautgripina sagði hún að eiginmaður hennar hafi haft upp á hópnum og hafi hann talað mjög skýra og greinargóða íslensku við fararstjóra hans til að leiða honum fyrir sjónir ábyrgðarleysi hans. SO Ráðinn umsjónarmaður fasteigna DALABYGGÐ: Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt að ráða Viðar Olafsson í Búðardal sem umsjónarmann fasteigna og yfirmann áhaldahúss sveitarfé- lagsins. Starfið var auglýst laust til umsóknar fyrir skömmu og var Viðar eini umsækjandinn. -hj Yariskona stakk af HVALFJARÐARSVEIT: Á föstudaginn síðasta gisti ung þýsk kona á gistiheimilinu Móum í Innri Akraneshreppi. Kona þessi gerði sér lítið fyrir og stakk af næsta morgun án þess að borga sem telst vart annað en þjófnað- ur. „Konan er með millisítt hár og ekur um á hvítri Toyotu Yaris biffeið. Mistökin vora að rukka hana ekki strax um kvöldið, held- ur átti að gera upp um morgun- inn. Ef kona sem passar við lýs- inguna fær gistingu hjá öðrum þjónustuaðilum er ástæða til að vara fólk við,“ segir Sólveigjóna Jóhannesdóttir, gistihússeigandi. „Það er ástæða til að láta vita af svona tilfellum. Þetta er auðvitað bara óþolandi og ekkert nema þjófhaður,“ bætir hún við. -mm Bílvelta MYRAR: Fjórir útlendingar vora fluttir á sjúkrahús efrir bíl- veltu á Snæfellsnesvegi við Álftá á laugardaginn var. Ekki er vitað um orsök slyssins en bíllinn var fluttur á brott með kranabíl. -so Nýtt byggðamerki BORGARBYGGÐ: Atvinnu- og markaðsnefiid Borgarbyggðar hefur lagt til við sveitarstjóm að efnt verði til opinnar hugmynda- samkeppni um gerð byggða- merkis fyrir Borgarbyggð hina nýju og dómnefhd velji úr þeim hugmyndum sem berast. Var Þór Þorsteinssyni, formanni nefhdar- innar, falið að afla gagna og vinna tillögu um hvernig samkeppni skuh háttað og leggja hana fyrir næsta fund byggðaráðs Borgar- byggðar. -hj Sveitarstjóm harmar aðhalds- aðgerðir DALABYGGÐ: Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt ályktun þar sem aðhaldsaðgerðir ríkisstjómarinnar í vegamálum, vegna þenslu í þjóðfélaginu, era harmaðar. Sérstaklega er ffestun vegalagningar um Amkötludal mótmælt „þar sem áhrifa þensl- unnar hefur lítið gætt á þessu landssvæði," eins og segir í álykt- uninni. Á það er bent að það landssvæði sé dreifbýlt og sam- göngur hafi lengi verið erfiðar og því bitni niðurskurðurinn á íbú- um byggðarinnar. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1 300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is Sigurbjörg Ottesen 868 0179 sibba@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.