Skessuhorn - 19.07.2006, Blaðsíða 7
^&iíssuiiuk.
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006
7
Hildibrandur og Herborgfyrir framan Stldina, sexæring með Bolungarvíkurlagi sem afi
Hildibrands átti og var smíðaður árið 1860.
Nóg að gera þrátt
fynr veðráttuna
Hildibrandur Bjarnason og
Herborg Sigurðardóttir í Bjarnar-
höfn segja að nóg hafi verið að
gera í sumar þrátt fyrir vætutíð.
Bjarnarhöfh er vinsæll viðkomu-
staður ferðamanna sem koma bæði
til að kynnast sögunni og einnig til
að verða sér úti um hinn fræga
Bjarnarhafnarhákarl. Hann er
seldur um allt land og þykir alltaf
jafn mikið lostæti. I Bjarnarhöfh er
einnig að finna ýmsar minjar um
byggð við sjávarströndina í gegn-
um tíðina, tól til veiða og verkun-
ar auk þess sem staðurinn sjálfur
er ríkur af sögu. Aðspurður segir
Hildibrandur að alltaf sé nóg að
gera við að þjónusta ferðamenn.
Sumarið núna sé allt í lagi miðað
við fyrri sumur en það hafi hins-
vegar aukist að menn komi tveir
og tveir saman í bílum. „Það er
mun þægilegra fyrir okkur að
sinna 40 manns í rútu, það þarf að
eyða jafnmiklum tíma með tveim-
ur og með 40. En að sjálfsögðu
þjónum við öllum sem koma
hvenær sem þeir koma. Hingað
kom fullt af Rússum klukkan hálf-
tíu í gærkvöldi og daginn áður
komu Tékkar á sama tíma. Við
viljum nú heldur að fólk komi að-
eins fyrr á daginn en við því er
ekkert að gera,“ Bjarnarhöfn vekur
því áhuga bæði erlendra og inn-
lendra ferðamanna og í sumar
gerðist það m.a. að fimm daga í
röð komu erlendir blaðamenn í
heimsókn. „Það hefur því verið
nóg að gera hjá okkur þrátt fyrir
veðrið og við kvörtum ekki,“ sagði
Hildibrandur að lokum. -KÓP
Laust starf á Skattstofu
Vesturlandsumdæmis
Starfið: Laust er til umsóknar starfí afgreiðslu á Skattstofu
Vesturlandsumdœmis, Stillholti 16-18, Akranesi. Um er að ræða
jullt starf við afgreiðslu, símsvörun, upplýsingagjöf og röðun
gagna, ásamt öðrum almennum skrifstojustörfum.
Hœfnisskilyrði: Æskilegt er að umsœkjendur hafi reynslu af
skrifstojustörfum og séufœrir um að tjá sig skýrt og skipulega,
hafi jákvœtt viðmót og hœfni í mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvœmt launakerfi opinberra starfsmanna. Um
starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til 18. ágúst 2006. Umsóknum ásamt
upplýsingum um menntun, fyrri störf, meðmœlendur og annað sem
umsækjandi vill takafram, skal skilað til skattstjóra.
Upphaf staifs: Miðað er við að nýr starfsmaður hefji störfí
ágústmánuði 2006, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Jllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
Hggur fyrir.
| Nánari upplýsingar um starfið veita Stefán Skjaldarson skattstjóri
i og Sigríður Jónsdóttir deildarstjóri á Skattstofu
| Vesturlandsumdæmis í síma 430-2900.
- Skattstjórinn íVesturlandsumdœmi
Stillholti 16-18
300 Akranes
TIL AFHENDINGAR STRAX
Blucamp Sky 20, Ford 125 hestöfi tdci, Rockwood íbúð á hjólum.
lengd 6,3m, svefnpláss fyrir 4, loftkæling, Árgerð ‘93 V8 Sjálfskiptur. Einn með öllu,
rafm. rúður, tveir airbag, geislaspilari m/fjarstýringu. ekinn 100.000 km, lengd 8,5 metrar.
Verð 4,6 skráður Kr. 3.300.000,-
-------------------------N
Úrval nýrra húsbíla tilbúnir
til skráningar á lager á
Egilsstöðum. Erum einnig
með úrval notaðra bíla.
Hjólhýsi ný og notuð af öllum
gerðum og verðum.
Erum með umboð fyrir
Við bjóðum flug til Egilsstaða fyrir tvo við kaup á hverjum bíl!
Bilexport á íslandi ehf. WWW.bilexport.dk
Upplýsingar veitir Bóas í síma 0049 175 2711 783 eða Eðvald í 896-6456
Flugger
Hörpuskin, Hörpusilki
og Utitex
fást nú hjá KB Búrekstrardeild
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga