Skessuhorn


Skessuhorn - 19.07.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 19.07.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 19. JULI2006 gfflgSSIíHÖMi Heimsókn firönsku skutanna mildð ævintýri - - Björg Ágústsdóttir fráfarandi bæjarstjóri í Grundarfirði segir heimsókn frönsku skútanna til Grundarfjarðar í tengslum við sigl- ingakeppnina Skippers d’Islande hafa verið mikið ævintýri. Sem kunnugt er komu nítján skútur til bæjarins í tengslum við þessa keppni en hún hófst í vinabæ Grundarfjarðar Paimpol í Frakk- landi. Björg segir keppni sem þessa ekki hrista fram úr erminni. „Und- irbúningur keppninnar hefur staðið lengi og við erum búin að vera með í honum í um eitt og hálft ár. Þetta er gríðarlega umsvifamikið og í mörg horn að líta hjá skipuleggj- endum keppninnar ytra,“ segir Björg í samtali við Skessuhorn. Siglingakeppni þessi milli Frakk- lands og Islands fór nú fram í þriðja sinn og að þessu sinni komu kepp- endur við í Grundarfirði og stöldr- Skútumar í höfn í Grundarfiröi. uðu þar við í nokkra daga. „Við vor- um óskaplega ánægð með að vera áfangastaður í þetta sinn, enda vel við hæfi þar sem Paimpol er vina- bær okkar.“ Skúturnar og skipverjar þeirra settu að vonum mikinn svip á stað- inn þá daga sem heimsóknin stóð og Björg segir heimsóknina hafa í alla staði tekist mjög vel og mikið líf Ljósm. Sverrir. og fjör hafi verið í bænum þessa daga. „Það er framandi og falleg sjón að sjá svona falleg skip og ara- grúa segla bera við sjóndeildar- hringinn og grundfirskt landslag. Við erum öllu vanari togskipum og trillum," segir hún. Aðspurð segist hún ekki annað hafa heyrt á gestunum en að þeim hafi líkað dvölin vel og þeir hafi verið hrifhir af landslaginu enda ekki vanir því að sigla á slóðum þar sem umhverfið eru fjöll með snjó í efstu hlíðum. Það umhverfi hafi þeim fundist tilkomumikið. „Við fengum einnig að heyra að þeir voru djúpt snortnir af viðmóti og móttökum bæjarbúa og hjálpsemi“ segir Björg. Eins og áður segir fer keppnin ffam á þriggja ára fresti og hafa Grundfirðingar þegar komið á framfæri óskum um að bærinn verði áfangastaður keppenda árið 2009. Engin ákvörðtm liggur hins vegar fyrir hverjir verði áfangastaðir keppenda þá. HJ Helgistund við minnisvarðann. Minnisvarði um franska sjómenn reistur á Grundarkampi Skólaskdp franska sjóhersins gólettan L’Etoile lagðist að bryggju í Grundarfjarðarhöfn sl. þriðjudag. Auk 30 manna áhafnar flutti skútan með sér steinkross einn mikinn og foman sem reistur var með viðhöfn á Grundarkampi þar sem hinn fomi Grundarfjarðarkaupstaður stóð. Krossin sem er gjöf ffá Paimpol vinabæ Grund- arfjarðar er minnisvarði um ffanska sjómenn sem létust á Islandsmiðum og stendur hann þar sem ffanskir sjómenn reistu sér kirkju á sínum tíma, en hún var rifin er þeir héldu af landi brott. Sr. Elinborg Sturludóttir sóknarprestur stjóm- aði helgistund sem ffam fór bæði á ffönsku og íslensku en ffanskir sjóliðar mynduðu heið- ursvörð. Eftir helgistundina var rósum varpað í sjóinn tdl að heiðra minningu um látoa ffanska sjómenn. Fjölmargir Grundfirðingar sem og ffanskir skútosjómenn sem þátt taka í keppninni Skippers d’Islande vom viðstaddir athöfhina á Grundarkampi. GK Rósum varpað til minningar umfranska sjómenn. Gissur Þór Hákonarson ogjónas Elís Gunnarsson við fylgdarskipið Etoile, eða Stjöm- una, og skútumar í baksýn t Grundarfjarðarböfn. Finnst fylgdarskipið flottast Við höfnina í Gmndarfirði hitti blaðamaður Skessuhorns þá Gissur Þór Hákonarson og Jónas Elís Gunnarsson sem fylgdust spenntir með skútunum í siglingakeppninni Skippers Dlslande. Það þarf ekki að undra að fjöldi glæsilegra skúta veki athygli ungra stráka enda höfðu þeir félagar fylgst mikið með lífinu í kringum þær. Þeir þekktu skútornar vel, átto sínar uppáhalds- skútur og höfðu miklar skoðanir á keppninni. Þeir Gissur og Jónas vora með það á hreinu að einhverj- ir Islendingar tækju þátt í keppn- inni, vom þó ekki sammála um það hvort þeir væm tveir eða fjórir, héldu þó helst að það væri ein kona, einn karl og tveir krakkar. Þeir vom þó sammála í þeirri af- stöðu sinni að halda ekki með ís- lendingunum. „Eg held með vini vinar míns sem er í keppninni. Hann er Franskur," segir Jónas og Gissur bætir við: „Eg held með skútunni sem er með myndinni af lundanum, hún er svo flott.“ Þrátt fyrir að skútumar séu hver annarri flottari var það þó fylgdar- skipið sem heillaði þá félaga mest, en það er gólettan Etoile sem fylg- ir skútunum á leið sinni. Þeir félag- ar vora sammála um að vissulega væri gaman að eiga skútu líka þeim sem voru í keppninni. Þeir gerðu sér hins vegar grein fyrir því að það væri meira en að segja það. „Svona skúta kostar öragglega milljón," segir Gissur, „en ég á tuttugu og eitt þúsund og sexhundruð.11 Það er ljóst að nokkur fjársöfnun bíður því þeirra félaga ætli þeir sér að eignast eigin skúto, en ekki var annað á þeim að sjá en einbeitingin væri næg til að þeir gætu látið draum sinn rætast. KOP Ræst í síðasta áfanga siglingakeppninnar Skipper dlslande ffá Grundarfirði Svífðu seglum þöndum... Hér standa þau við Sögumiðstöðina Eyrbyggju, frá vinstri: Michel Renard, Elisabeth Amos, Shelag Smith, Marylou Rafflegeau fulltrúi bæjarstjóra Paimpol og Emile Poidevin forseti Skippers D 'Islande. Það var tdlkomumikil sjón þegar skútumar nítján lögðu af stað ffá Grundarfirði í síðasta legginn í sigl- ingakeppninni Skipper d'Islande. Það var ffemur kalsasamt á höfhirmi en engu að síður nokkur mannfjöldi samankominn tdl að fylgja siglingar- köppumnn úr hlaði. Víða mátti sjá ffönsk flögg blakta í vindinum við hlið hinna íslensku og víst er að áhafiúr skútanna og gestir þeirra hafa sett mikinn svip á bæinn á með- an á vem þeirra stóð. Fyrir liggur ferð til ff anska bæjarins Paimpol, en hann er vinabær Grandarfjarðar og er reiknað með að ferðin taki um tíu daga. Þetta er í fyrsta skipti sem Grundarfjörður er áningarstaður í keppninni þrátt fyrir að bæjarfélagið hafi komið að henni í tvígang áður. Siglingakeppnin Skipper dlslande hefur fest sig í sessi og vak- ið athygli víða um heim. Þetta er eina keppnin sem fer svona norðar- lega, allar aðrar stórar keppnir fara frarn í heitum sjó. Keppnin var ræst 24. júní síðastliðinn og þegar kepp- endur koma í höfn í Paimpol mtmu þeir hafa lagt ríflega 4800 kílómetra að baki, enginn smáferð það. Shelagh Smith hefur staðið að skipulagningu keppninnar á Grund- arfirði. Hún segir að það sé mikil vinna á bak við svona keppni en margir hafi lagt hönd á plóg. I tengslum við keppnina hafi verið mynduð vinabæjartengsl við bæinn Paimpol í fyrra. I ffamhaldi af því hafi m'undi bekkur grunnskólanema verið í hálfan mánuði í Paimpol á vegum Leonardo verkefnis Evrópu- sambandsins. Krakkar þaðan síðan komið til Grundarfjarðar og bæði fyrir og effir hafi krakkamir verið í tölvusamskiptum. í tengslum við keppnina hafi fulltrúi borgarstjóra Paimpol síðan komið tdl Grandar- fjarðar. Shelagh er ekki í vafa um að Skippers Dlslande sé að festa sig í sessi sem ein af stóm keppnunum. Hún veki mikla athygli erlendis og hér sé t.a.m. staddur blaðafulltrúi ffá Frakklandi. Sérstaða keppninnar er hve norðarlega hún er og dragi það að sér marga keppendur. Sá kepp- andi sem mesta athygli hefur vakið að þessu sinni er ffanska konan Servane Escoffier. Þrátt fyrir ungan aldur, en hún er 24 ára, er hún að verða ein skærasta stjaman í siglinga- heiminum. Hún hafði forystu í kepprúnni þegar komið var til Grundarfjarðar. Escoffier er að æfa sig fyrir Rommkeppnina ffægu, en í henni er siglt yfir Kyrrahaf. Fyrir þá keppni þarf að vinna sér inn keppnis- rétt með því að vinna ákveðna erfið- leikagráðu. Sldppers Dlslande gefur henni kost á því að ná þeirri gráðu. Til viðbótar við skútumar m'tján sem taka þátt í keppninni var tveim- ur íslenskum áhöfiium boðið að taka þátt í leggnum Reykjavík - Grandar- fjörður í nokkurs konar kurt- eisiskeppni. Islensku skútumar Besta og Lilja sigldu því með keppendum til Gmndarfjarðar. Misjafnlega margir era í áhöfn á skútunum nítján, fimm sigla einir, ein skúta er með tvo í áhöfn og sumar allt upp í sex manns. -KOP

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.