Skessuhorn - 19.07.2006, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 19. JULI 2006
14
Spuming
vikunnar
Flokkarþú
sorp heima
hjá þér?
(Spurt í Stykkishólmi)
Sigrún Þórsteinsdóttir.
Já e'g geri það. Eg er með
safnkassa ogfer með dagblöð
ogfemur í gáma.
Sólveig Asgeirsdóttir, Telma
og Siggi Fannar.
Já að einhverju leyti, allavega
femur og blöð.
—r
Emil Þór Guðbjömsson.
Já e'g geri það eins og e'g get.
Bæjarfélagið skaffar samt bara
eina tunnu.
Benni Ölvers.
Já, við flokkum femur og blöð.
Páll Sigurðsson.
Nei égflokka ekki. Þeir gera
það örugglega ekki heldur (og
bendir á Emil Þór og Benna).
Sumarsmiðja ungs fólks
í Tjamarlundi
Byggt afkappi úr tágum og leir.
Sumarsmiðja var haldin í Tjarn-
arlundi í Saurbæ dagana 3.-7. júlí
síðastliðinn. 18 manns á aldrinum
6-16 ára tóku þátt í þessu skemmti-
lega verkefni og verður vonandi
framhald á því. I upphafi smiðjunn-
ar var unnið með teikninguna sem
tæki til að skoða og rannsaka hluti
og fyrirbæri. Teiknað var í ná-
grenni Tjarnarlundar, skoðaðar
byggingar, plöntur og smádýr og
hugað sérstaklega að uppistöðu-
grindum í náttúrulegum fyrirbær-
um og manngerðum hlutum. Smá-
sjár og stækkunargler voru notuð
til að komast nær veröld hins smáa.
Þessar athuganir voru síðan
hafðar í huga þegar hafist var
handa við byggingar úr tágum og
leir, ásamt því að brugðið var á leik
með því að búa til ýmis konar ævin-
týraverur og skrímsli þar sem ljós
og skuggi voru nýtt til að skapa
furðuheim. Einnig voru skoðaðar
bækur um byggingarlist þar sem
nærtæk efni eru notuð til bygginga;
svo sem íslensku torfbyggingarnar
og leirbyggingar í Afríku og Suður
Ameríku.
Sumarsmiðja í Tjarnarlundi var
unnin í samstarfi við Myndlistar-
skólann í Reykjavík og verkefnið
var stutt af Menningarsjóði Vestur-
lands.
GTS
Gestir og þátttakendur skoða afrakstur
námskeiðsins.
Hér eru söfnunarmennimir Kári Gíslason, Amar Þórsson, Rúnar Gíslason og Egill og
Friðrik Þórssynir.
Héldu basar
tál styrktar RKI
Þessir flottu strákar söfnuðu að um Urvali í Brogarnesi. Þeir söfn-
sér margs konar dóti í Borgarnesi uðu alls 10.883 krónum sem þeir
og nágrenni í síðustu viku og héldu lögðu samviskusamlega inn á
svo basar til styrktar Rauða krossi reikning Rauða krossins að basar
Islands sl. fimmtudag í Samkaup- loknum. MM
jífjiiijtóJ
Frá undirskrift samningsins. F.v.: Þjóðbjóm Hannesson jv. skátaforingi, Kristján Krist-
jánsson framkvœmdastjóri Uppheima, Guðríður Siguijónsdóttir, foringi Skátafélags
Akraness og Bragi Þórðarsonfu. skátaforingi.
Bók um skátastarf á
Akranesi í 80 ár
í haust verður gefin út bók um
skátastarf á Akranesi í 80 ár en
samningur milli Skátafélags Akra-
ness og útgáfuþjónustunnar Upp-
heima ehf þar að lútandi var undir-
ritaður í síðustu viku. Skátafélag
Akraness fagnaði 80 ára afmæli sínu
í maí í vor og var ákveðið að ráðast
í útgáfu bókarinnar í tilefhi þess. I
bókinni verður rakin saga skáta-
starfs á Skaga í stórum dráttum og
birt viðtöl við nokkra af helstu
frumkvöðlum skátahreyfingarinnar
á Akranesi. Umsjón með gerð bók-
arinnar er í höndum Onnu Láru
Steindal og Kfistjáns Kristjánsson-
ar og er áætlað að bókin komi út í
lok september. MM
Guðrún Fjeldsed leiðbeinir krökkunum í gerðinu.
Reiðnámskeið á
Ölvaldsstöðum
Nýlega lauk þriðja reiðnám-
skeiðinu í sumar hjá Guðrúnu
Fjeldsted á Ölvaldsstöðum. Það
hefur verið góð þátttaka á nám-
skeiðunum hjá henni í sumar enda
finnst krökkum gaman og því
spyrjast þau vel út. Guðrún byggir
námskeiðin þannig upp að börnin
læra að leggja sjálf á hestana og svo
er hver tími hafinn á því að ríða inn
í gerði þar sem farið er yfir ásetu,
stjórnun og jafnvægi og síðan er
farið í reiðtúra um nágrennið eftír
mörgum skemmtilegum reiðleið-
um. Á áningarstöðum er nesti
snætt og krökkunum kenndir
hestalitir og gerðar jafnvægisæfing-
ar á hesbaki.
Fyrirhuguð eru tvö reiðnámskeið
til viðbótar fyrir börn í sumar.
Einnig er á döfinni hjá Guðrúnu að
halda reiðnámskeið fyrir fullorðna
og geta þeir komið með sína eigin
hesta ef vilja. Á Ölvaldsstöðum er
nú risin ný reiðskemma og bætir
það aðstöðuna til námskeiðshalds
til muna.
ÞSK
Helgi Dan og Friðmey klúbbmeistarar GL
Klúbbmeistarar Leynis árið 2006: Friðmey Jónsdóttir og Helgi Dan Steinsson.
Ljósm: Sigurður Elvar Þórólfsson.
Meistaramóti Golfklúbbsins
Leynis lauk laugardaginn 15. júlí en
þátttakendur mótsins voru 96 tals-
ins. Þrátt fyrir leiðinda veður tókst
að ljúka leik án þess að þurfa að fella
niður umferð. Veðrið síðasta leik-
daginn var mjög erfitt, rigningar-
skúrir og vindur sem vættu vel
mannskapinn. Þrátt fyrir erfiðar að-
stæður luku langflestir leik og
keppni um efstu sætin í sumum
flokkunum var mjög jöfn og hörð.
Helgi Dan Steinsson og Friðmey
Jónsdóttir urðu að þessu sinni
klúbbmeistarar GL. Helgi Dan og
Hróðmar Halldórsson öttu harða
keppni en Hróðmar var með forystu
fyrir síðasta keppnisdag. Þeir Helgi
og Hróðmar voru jafiúr þegar tvær
holur voru eftír og náði Helgi að
knýja fram sigur á 17. og 18. holu og
stóð uppi sem sigurvegari í meistara-
flokki karla með tveggja högga mun.
I meistaraflokki kvenna vann
Friðmey Jónsdóttir nokkuð örugg-
lega.
I 1. flokki karla urðu jafhir þeir
bræður Birgir Arnar og Rósant
Freyr Birgissynir. Rósant Freyr
hafði betur í bráðabana þeirra
bræðra á 18. holu og stóð því uppi
sem klúbbmeistari í 1. flokki.
12. flokki karla var keppni jöfh og
spennandi en það var Andrés Már
Harðarson sem stóð uppi sem
klúbbmeistari í þeim flokki með
tveggja högga forystu.
I öðrumflokkum urðu klúbb-
meistarar þessir:
1. flokkur kvenna: Sigurbjörg Hall-
dórsdóttir
2. flokkur kvenna: Brynja María
Brynjarsdóttir
3. flokkur karla: Guðjón Viðar
Guðjónsson
4. flokkur karla: Jón Ingi Þórðar-
son
Öldungafl. kvenna: Edda Elíasdóttir
Óldungafl. karla: Hjörtur Júlíusson
Piltafl. 16-18 ára: Armann Öm
Bjamason
Strákafl. 14-15 ára: Leifiir Viktor
Guðmundsson
Drengir 13 ára ogyngri: Daníel
Guðmundsson
Glitnismótaröðinni lokið
Haldin voru 5 mót í Ghtnis -
mótaröðinni í júní og júlí hjá Golf-
klúbbnum Leyni. Þrjú mót töldu til
úrslita. Glæsileg verðlaun voru veitt
í mótinu, bæði fyrir hvert mót fyrir
sig og svo heildar árangur. Aðal-
styrktaraðili var Ghtnir. Alls voru
leiknir um 100 golfhringir á Ghtnis-
mótaröðinni og urðu helstu úrsht
þessi:
1. Davíð Búason á 111 punktum
2. Birgir Amar Birgisson á 110 p.
3. Ingi Fannar Eiríksson á 109 p.
4. Hróðmar Halldórsson á 109 p.
5. Aðalsteinn Huldarsson á 107 p.
6. Guðjón V. Guðjónsson á 105 p.
SO
Sigutvegarar í Glitnis mótaröðinni.