Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2006, Page 18

Skessuhorn - 23.08.2006, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 Framkvæmdir samhliða kennslu í Brekkubæjarskóla Framkvæmdir eru haínar við lóð Brekkubæjarskóla. Eins og Skessu- hom hefur greint frá gekk illa að fá tilboð í verkið þegar það var boðið fyrst út. I vor var boðin út vinna við lóð, klæðningu og nýtt andyri en engin tilboð bárast í verkið. Nýr meirihluti bæjarstjórnar ákvað að endurskoða framkvæmdir við skól- ann og bjóða eingöngu út jarðvegs- vinnu og klæðningu. Við þá vinnu hefur ekki verið gert ráð fyrir and- dyri, t.d. ekki steyptir sökklar, þannig að óvíst er hvort farið verði í framkvæmdir við anddyrið. Vinna þurfti öll útboðsgögn upp á nýtt og fara í nýtt útboð og skýrir það hversu seint menn eru á ferðinni. Frá því að tilboð voru opnuð liðu sextán dagar þar til ákvörðun var tekin um að fara í verkið. Venjan er sú að tilboð eru opnuð á mánudegi eða þriðjudegi, samþykkt á bæjar- ráðsfundi á fimmtudögum og síðan er gengið til samninga við verktaka á föstudögum. Þegar tilboð voru opnuð í verkið var bæjarráð hins vegar í fundarhléi í tvær vikur og því var ekki hægt að taka ákvörðun um málið fyrr og verkið tafðist sem því nam. Engin tilboð bárust í klæðninguna þannig að nú verður eingöngu farið í jarðvegsvinnu. Þorvaldur Vestmann, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akranes- kaupstaðar, sagði aðspurður að verklok væru í tvennu lagi. Ollum yfirboðsfrágangi, vinnu við bfla- stæði, hellulögn og uppsetningu leiktækja, á að vera lokið þann 1. nóvember, en frágangi lóðar, gróð- ursetning o.þ.h., verður lokið 18. júní á næsta ári. Þorvaldur sagði að vinna við verkið gengi vel, mark- miðið væri að malbika bflaplanið og klára sem mest af hellulögn áður en skólahald hefst í næstu viku. Arnbjörg Stefánsdóttir skóla- stjóri Brekkubæjarskóla sagði að- spurð að það væri verra að verkinu væri ekki lokið áður en skólahald hefst, en fyrst sú væri raunin yrðu menn bara að gera það besta í stöð- unni. Hún segir að þetta muni ekki hafa áhrifa á daglegt starf í skólan- um, utan þess að börnin fái minna pláss til að leika sér á. „Annars finnst þeim skemmtilegt að hafa þetta eins og þetta er núna, era hér drullug upp fyrir haus. En verk- svæðið er afgirt og fyllsta öryggis verður gætt.“ Arnbjörg segir að fyrirhugað sé að haga vinnu þannig að hún mtmi ekki trufla kennslu. Þannig verði öll hávaðasöm verk unnin utan kennslutíma. KÓP TF - Sif á viSlegukantinum við smábátahöfnina í Grundarfirði sl. fimmtudag. TF Sif í Grundarfirði Þyrla landhelgisgæslunnar; TF- SIF hnitaði nokkra hringi yfir Grundarfjarðarbæ um hádegisbil sl. fimmtudag og skellti sér síðan til lendingar inn við smábátahöfn. Samkvæmt upplýsingum frá stjórn- stöð Landhelgisgæslunnar er þyrl- an á ferð vegna æfinga sem fram fara reglulega víðsvegar um landið um þessar mundir. GK Vegarkafli að Borgarfjarðarbrú fékk aðeins tvær stjömur Þrátt fyrir að bestu vegir lands- manna hafi fyrstir verið teknir í ítar- legt gæðamat samkvæmt alþjóðleg- um stöðlum, fá þeir misjafiia dóma. Meðal þeirra vegakafla sem nú voru til skoðunar var Vesturlandsvegur frá Reykjavík að Borgamesi. Vegur- inn að Borgarfjarðarbrú fær aðeins tvær stjörnur af fjórum mögulegum. Starfsmaður gæðamatsins segir sparnað við vegagerð undantekn- ingalítið koma niðtn á öryggi veg- anna. Hann segir að áffarn verði unnið á sömu braut og fleiri vegir teknir í mat. Á dögunum voru kynntar niður- stöður úr staðlaðri gæða- og örygg- iskönnun á íslenskum vegum undir merkjum EuroRap. I því felst ítar- legt gæðamat á vegum, samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, með tilliti til öryggis og er vegunum gefitar allt að fjórar stjörmn eftir gæðum þeirra. Aðstandendur EuroRap á Islandi eru Félag íslenskra bifreiðaeigenda sem sér um framkvæmdina hér á landi með stuðningi samgönguráðu- neytisins en Umferðarstofa annast fjármögnun verkefnisins. Grjóthleðslur hættulegar Meðal þeirra leiða sem nú voru teknar í gæðamat var leiðin um Vesturlandsveg frá Reykjavík í Borg- ames. I heildina fær sá vegur þrjár stjörnur. Sumsstaðar nær vegurinn aðeins tveimur stjörn- um og dæmi um það eru veg- brúnir uppfyll- ingarinnar sem liggja að Borg- arfjarðarbrúnni en þar eru sem kunnugt er stór- ir grjóthnull- vmgar sem upp- haflega áttu að varna því að ökutæki hafni út í sjó í stað þess að sett væru upp vegrið. Afleið- ingar þess að ökutæki hafnar á grjótgarðinum eru mun alvar- legri en ef það hafiiar á vegriði. Þetta veldur því að Borgarfjarð- arbrúin fær að- eins tvær stjörn- ur í fyrrgreindu mati. Sömu sögu er að segja af vegi við Hvalfjarðargöng vegna hæðar fram af vegi sjávarmegin. Hvað öryggissvæði á Vesturlands- vegi varðar þá segir í úttektinni að þar séu góðir kaflar með öryggis- svæðum en þó sé hátt fall fram af vegum á nokkrum stöðum og tals- vert um fall og skurði án vegriða. Þess má geta að nýi tvöfaldi veg- hluti Vesturlandsvegar, sem liggur mifli Suðurlandsvegar og Mosfells- bæjar er mjög nálægt því að fá fjórar stjömur. Þar er umhverfi vegarins til fyrirmyndar og gatnamót era sett í hringtorg. Haldið áfiram könnuninni Að þessu sinni voru í úttektinni vegir á Suðvesturhomi landsins. I hugum flestra eru það vegir sem hvað best eru búnir á landinu. Því vakna óneitanlega þær spumingar hvort ekki hefði verið rétt að hefja slíka úttekt á vegum sem að flestra áliti eru í verra ásigkomulagi. Má þar nefna ýmsa vegi á Vesturlandi, Vestfjörðum og Austurlandi. Olafur Guðmundsson varaformaður FIB var einn þeirra sem vann að úttekt- inni. Hann segir ekki óeðlilegt að þessi umræða komi upp. Þessir veg- ir nú hafi verið valdir meðal annars til þess að prafukeyra þetta úttektar- kerfi. „Við munum að sjálfsögðu halda áffarn starfi okkar og síðar á þessu ári verði leiðin milli Borgar- ness og Akureyrar tekin út, ýmsar leiðir á Austurlandi og fleiri leiðir á Suðurlandi. Á næsta ári megi svo búast við að haldið verði vestur á firði.“ Magn firemur en gæði Aðspurður hvort ekki felist áfellis- dómur í því að nýlegir vegir á miklu umferðarsvæði fái einungis tvær stjömur segir Olafur eðlilegt að svo sé tekið til orða. Hann vill ekki segja að mistök hafi átt sér stað við hönn- un vega heldur hafi meginþungi vegagerðar verið sá að komast sem lengstan veg fyrir sem minnst fjár- magn. Því hafi oft verið sparað við frágang vega. Sem dæmi nefnir hann vöntun á vegriðum og ónógan frágang utan vega. Þegar upp sé staðið sé það vafasamur sparnaður. Mikilvægast sé að í fr amtíðinni verði hugað að öllum þáttum við hönnun og gerð umferðarmannvirkja. Því sé þetta mat mikilvægt og nú sé kom- inn alþjóðlegur mælikvarði sem hægt sé að vinna eftir. Einstök mannvirki geti því hækkað í mati og einnig lækkað. Samanburður sé nú til staðar. Ólafur segir að ekki þurfi miklu að kosta til svo vegur hækki í mati og nefnir áðumefndan veg að Borgarfjarðarbiainni. HJ Borgarfarðarbrú: Hér má sjá grjóthleðsluna semfellir veginn að Borgarfarðarbrú í mati. Aðýmsu er að hyggja við hönnun og gerð vega. A Akranesvegi er þessi kafli þar sem vegur er uppbyggður en við veginn er skurður og hátt óvarið rœsi. Þessi h 'ónnun er ekki til eftirbreytni. Bilið brúað milli leik- og grunnskóla á Akranesi Hluti þátttakenda námskeiðsins ásamt Svölu Hreinsdóttur, verkefnisstjóra frœðslu-, íþrótta- og tómstundasviðs Akraneskaupstaðar. Svala er ífremstu röð, lengst til hægri á myndinni. Námskeiðið „Brúum bilið, sam- starf leik- og grunnskóla“ var hald- ið dagana 16. og 17. ágúst sl. í Grandaskóla á Akranesi. Rúmlega fjörutíu þátttakendur sóttu nám- skeiðið og samanstóð hópurinn af leikskólakennuram og leiðbeinend- um í elstu deildum leikskóla, grunnskólakennarar og leiðbein- endur í fyrstu bekkjum grunnskól- anna á Akranesi, deildastjórar og leiðbeinendur í skóladagvist, deildastjórar leik- og grunnskóla og aðrir þeir aðilar sem koma að þess- um málum. Brúum bilið hefur ver- ið samstarfsverkefni milli leik- og grunnskóla á Akranesi frá árinu 1994 en hófst með formlegum hætti þegar rekstur grunnskóla var færður yfir til sveitarfélaganna árið 1996. „Það eru ólíkir starfshættir og umhverfi í leikskóla og grunn- skóla og því oft mikil breyting fyrir bam að fara á milli þessara skóla- stiga. Reynslan hefur sýnt að sam- vinna og tengsl þessara skólastiga veitir börnum miláð öryggi á þeim tímamótum þegar barn fer úr leik- skóla í grunnskóla. Því hafa leik- og grunnskólar á Akranesi lagt mikið upp úr því að efla samstarfið sín á milli síðustu ár“, sagði Svala Hreinsdóttir, verkefnisstjóri ffæðslu-, íþrótta- og tómstunda- sviðs hjá Akraneskaupstað í samtali við Skessuhorn, en Svala stýrði námskeiðinu. Markmiðið með samstarfsverk- efninu Brúum bilið er að tengja skólastigin saman. Jafnframt að skapa samfellu í námi og kennslu nemenda á þessum tveimur skóla- stigum. Einnig eru markmiðin að byggja upp gagnkvæma þekkingu og skilning á starfi kennara á hvora skólastigi, að stuðla að vellíðan og öryggi barna við að fara úr leikskóla í grunnskóla og að skapa farveg fyr- ir miðlun upplýsinga á milli þessara skólastiga. Fyrirlesarar námskeiðsins voru allir af Akranesi. SO Atferli laxa kordögð með rafeindam erkj um Vorið 2005 var 300 laxaseiðum sem merkt voru með mælimerkj- um sleppt í Kiðafellsá í Kjós. Seiðin voru sér- staklega alin vegna þessara rannsókna af eldisstöðinni á Laxeyri í Hálsasveit. Merkin voru ný framleiðsla fyr- irtækisins Stjörnu- Odda og ekki hafa áður verið búin til jafn smá og fullkomin merki. I síðustu viku komu 3 þessara laxa aftur í Kiðafellsá eftir rúmlega sjó. Við skoðun Veiðimálastofhunar á merkjunum kom í ljós að þau hafa skráð hita og dýpi laxins allan dval- artímann. Er þetta í fyrsta skipti í heiminum sem slíkar upplýsingar fást um sjávardvöl laxins og þykir því niðurstaða tilraunar þessi mjög merkileg til atferlisgreiningar á lax- fiski. ,Með samanburði við um- hverfisgögn sjávar má síðan segja með talsverðri vissu hvar laxinn Sigurður Már Einarsson, fiskifrxðingur ogyfirmaður Vesturlandsdeildar Veiðimálastofhunar og Ragnhildur Þ. Magnúsdóttir líjfrœðingur vinna við rannsókn á merktum löxum úr sjávarverkefninu. Ljósm: BT ársdvöl heldur sig í hafinu á hverjum tíma og þá hvað kann að valda mismikl- um afföllum hans. Þá sýna niðttr- stöðumar að laxinn heldur sig að mestu í yfirborðslögum sjávar en tekur dýfur niður á meira dýpi og stundum mikið dýpi (allt að 600 m). Meira er um slíkar dýfur á seinni hluta sjávardvalarinnar og eru þær hugsanlega tengdar rötun fisksins til baka á heimaslóð," segir m.a. á vef Veiðimálastofhunar. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.