Skessuhorn - 06.09.2006, Síða 15
^^ssunuu.
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006
15
Kröfu um ökuleyfis-
sviptingu vegna
hraðaksturs hafiiað
Fyrir dómi kannaðist ákærði við
að hafa ekið bifreið sini á umrædd-
um hraða á Vesturlandsvegi. Hann
þvertók hins vegar fyrir að há-
markshraði á veginum, þar sem
hraði biffeiðarinnar var mældur,
hefði verið 50 km á klukkustund.
Taldi hann sig hafa rétt áður ekið
framhjá lausum umferðarmerkjum
sem gáfu til kynna að lokið væri
vegarkafla með 50 km hámarks-
hraða. Taldi hann einnig að á þessu
svæði við og á brúnni hefði um
nokkurt skeið verið mikið misræmi
í hraðamerkingum á þjóðveginum.
Fyrir dómi sagði annar lögreglu-
þjóninn að í viðræðum við ákærða
hefði honum fyrir mistök verið
kynnt að hámarkshraði á þeim stað
sem hann var mældur væri 70 km á
klukkustund. Lögreglumennirnir
könnuðust ekki við að við veginn
hefðu verið þau umferðarmerki er
ákærði taldi. Starfsmenn Vegagerð-
arinnar komu einnig fyrir dóm og
töldu ólíklegt að umrædd umferð-
armerki hefðu verið til staðar því
þau hefðu hldega verið tekin niður
um leið og framkvæmdum var
ffestað. Lögreglumennirnir sögðu
aksturskilyrði hafa verið góð þó
bleyta hafi verið á veginum og um-
ferð hefði ekki verið þung.
Dómurinn taldi sannað þrátt fyr-
ir neitun ákærða að hámarkshraði á
umræddum vegarkafla hafi verið 50
km á klukkustund og því var hann
sakfelldur. Hins vegar taldi dómur-
inn ekki sannað að um vítaverðan
akstur hafi verið að ræða. Er þar
vísað til upptöku kvikmyndar af
hraðamælingunni þar sem fram
kemur að birtu var ekki tekið að
bregða, úrkoma var engin og yfir-
borð vegar þurrt að kalla og ekki
hafi verið teljandi umferð á vegin-
um. Að auki hafi annar lögreglu-
mannanna borið að hvorki hafi ver-
ið frost ná hálka á veginum.
Okumanninum gert að greiða 40
þúsund krónur í sekt og komi fjög-
urra daga fangelsi í stað hennar
verði hún ekki greidd innan fjög-
urra vikna. Þá var ákærða einungis
gert að greiða helming sakarkostn-
aðar eða rúmar 183 þúsund krónur.
Benedikt Bogason, héraðsdómari
kvað upp dóminn.
lOiáíiiyjjjjiii j JjdJjJ
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á
Vesturlandi auglýsir eftir starfsmönnum
í búsetuþjónustu í Borgarnesi.
Starfið felst í stuðningi og leiðsögn við
fólk með fötlun. Um er að ræða fjölbreytt
og gefandi starf.
Möguleiki er á fullu starfi eða hlutastarfi.
i Unnið er á vöktum.
I Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum.
Upplýsingar veitir: Hulda Birgisdóttir
ísíma: 893 9280
Umsóknir berist til:
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra
Vesturlandi, Bjarnarbraut 8,310 Borgarnesi.
Héraðsdómur Vesturlands hefur
hafnað kröfu ákæruvaldins að
svipta ökumann réttindum sínum
vegna hraðaksturs. Fyrir dómi við-
urkenndi ökumaðurinn hraðakst-
urinn en taldi mælingu lögreglu
ekki hafa farið ffam á þeim stað er
sagt var í ákæru. Dómari taldi að
ekki hafi verið um vítaverðan akst-
ur að ræða.
Málavextir eru þeir að um nónbil
þann 22. desember á síðasta ári
voru tveir lögreglumenn við um-
ferðareftirlit á Vesturlandsvegi.
Þeir óku yfir Borgarfjarðarbrú til
norðurs sem leið lá í Borgarnes. A
vegarkafla skammt sunnan við
verslun Bónuss mættu þeir bifreið
sem ákærði ók. Mældu þeir biffeið-
ina á 103 km hraða. Haustið 2005
og ffam á vetur höfðu staðið yfir
vegaffamkvæmdir rétt norðan við
vegarkaflann þar sem hraði biffeið-
arinnar var mældur. Fólst verkið
meðal annars í því að tengja Digra-
nesgötu við Vesturlandsveg.
Nokkrum dögum áður en áður-
nefndur akstur átti sér stað var
framkvæmdum frestað til vors.
Akæruvaldið krafðist þess fyrir
dómi að ökumaðurinn yrði dæmd-
ur til greiðslu sektar og sviptur
ökuleyfi enda hafi aksturinn átt sér
stað á vegarkafla þar sem hámarks-
hraði var 50 km á klukkustund.
Barsskor
heim
Færeyska Lögþingið hefur
samþykkt formlega sölu á
strandferðaskipinu Barsskor til
Akraness fyrir eina færeyska
krónu. Fulltrúar frá Akranesi og
Faxaflóahöfnum héldu um liðna
helgi til Færeyja og könnuðu á-
stand skipsins, en sagt er ffá
brotlendingu flugvélar þeirra á
öðrum stað í blaðinu. Hefur
Barsskor nú verið tekið í slipp
og ef ekkert óvænt kemur uppá
mun því verða siglt heim. Þetta
fornffæga skip mun því öðlast
nýtt líf á fomum slóðum.
HJ
BSRB hótaði lögsókn
en ekki fj ölmiðlaumfj öllun
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, gerir alvarlegar athuga-
semdir við ffásögn Kristins Jónas-
sonar, bæjarstjóra Snæfellsbæjar
sem fram kom í Skessuhorni í síð-
ustu viku. Þar kom ffam að Ög-
mundur hafi hótað fjölmiðlaum-
fjöllun ef uppsagnir bæjarstarfs-
marma yrðu ekki dregnar til baka. A
vef BSRB kemur ffam að Ögmund-
ur hafi hótað lögsókn ekki fjöl-
miðlaumfjöllun.
A vef BSRB segir orðrétt: „For-
maður BSRB gerir alvarlegar at-
hugasemdir við frásögn bæjarstjór-
ans. „Sannast sagna koma yfirlýs-
ingar bæjarstjórans mér mjög á
óvart. Eg átti ásamt lögffæðingi
BSRB og formanni Starfsmannafé-
lags Dala- og Snæfellsnessýslu
ágætan fund með bæjarstjóra og
samstarfsfólki hans 4. júlí þar sem
farið var yfir stöðu mála.“ Sagði
Ögmundur að af hálfu BSRB hefði
verið gerð grein fyrir því að banda-
lagið teldi uppsagnimar ekki stand-
ast lög og samninga og myndi mál-
ið enda fyrir dómstólum ef engin
breyting yrði á.
„Við buðum hinsvegar upp á
samstarf um að leysa málið sem þar
með yrði úr sögunni. Báðum við
bæjarstjóra að íhuga málið þar til
síðar í mánuðinum, áður en upp-
sagninrnar tækju gildi, og var
ákveðinn fundur 26. júlí. A þeim
fundi kom hins vegar í ljós að bæj-
arstjórn myndi halda málinu til
streitu og yrðu uppsagnirnar látnar
standa. Eg sagði að við hörmuðum
þessa niðurstöðu og í samræmi við
fyrri yfirlýsingar myndum við nú
fela lögmönnum að útbúa stefnu.
Fram til þessa hafði ég litið svo á að
málið væri í skoðtm á milli BSRB
og bæjaryfirvalda og vildi ég ekki að
bæjarstjóri velktist í vafa um að þar
sem bæjarstjómin vildi ekki taka
tillit til sjónarmiða BSRB færi mál-
ið fyrir dómstóla og yrði jafnffamt
gerð grein fyrir því opinberlega.
Það var og gert á fféttavef BSRB
eins og eðlilegt hlaut að teljast."
HJ
TT
Oryrkjum á Akranesi boðið
í tómstundastarf
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að kosta ákveðið tómstunda-
starf fyrir öryrkja á Akranesi. Frá
lokum árs 2005 hefur verið starfandi
vinnuhópur bæjarins og Sjúkrahúss-
ins og heilsugæslustöðvarinnar á
Akranesi þar sem athyglin hefur
beinst að yngri og miðaldra öryrkj-
tun og hvaða úrræði og þjónusta er í
boði fyrir þann hóp og hvemig bæta
megi hana. I bréfi Sveinborgar L.
Kristjánsdóttur, sviðsstjóra fjöl-
skyldusviðs til bæjarráðs kemur ffam
að JúHa Baldursdóttir, sem haldið
hefur utan um tómstundastarf eldri
borgara á Akranesi, hafi boðist til
þess að bjóða öryrkjum námskeið í
listsköpun með leir og gler ásamt
öðra föndri sem og gönguferðum.
Er miðað við að þetta verði einu
sinni í viku. HJ
wJ Gorsum hujjrdúpnn 9. <e?t:'**íbcr 2íW
l’lbrvinnsb, nulmvinnsLv lecHirvinna kleínubúkstur
kint-s.upuí.e.rd, heilgrilbd Urab. tonlist fyrirlestur og tleíra.
Ki. 1 v i,’.s". • vi‘.v b.sri: :v.: x:”. s.•:'. •..• .
m
\ P-
j $ɧ J
* v r:
v-.J.•:•.•<: s; . •.: • s■
Safna3væpipaAkrane31
Frumkvöðlastuðningur
- Hefur þú hugmynd? -
Ert þú með viðskiptahugmynd sem leitt gæti til nýsköpunar í íslensku atvinnulífi? Impra nýsköpunarmið-
sfödvekur athygli á Frumkvöðla- og handleiðslustyrkjum
Styrkir eru veittir frumkvöðlum á landsbyggðinnitil verkefna á sviði:
• Viðskiptaáætlunar
• Einkaleyfisumsóknar
• Hönnunarverndar
• Rekstrar- og fjárhagsáætlunar
• Markaðsáætlunar
• Hagkvæmnisathugunar
• Nýnæmisathugunar
• Þróunar vöru eða þjónustu
• Prófana
• Frumgerðarsmíðar
Skilmálar og umsóknarfrestur:
Stuðningur við frumkvöðul getur numið allt að 400 þús. kr.
gegn jafnháu framlagi styrkþega.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2006
Nánari upplýsingar má fá á www.impra.is eða hjá Sigurði
Steingrímssyni i síma: 460 7972
ímpra nýsköpunarmiðstöð
Iðntcfeknístofnun
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyrt
Sími 460 7972
www.impra.is
sigurdurs@iti.is