Skessuhorn - 06.09.2006, Blaðsíða 19
»a£ssunv»~:
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006
19
Haustönn Símenntunarmiðstöðvarinnar að hefjast
Starfsfólk
Símenntunar-
miðstöðvar-
innar á Vest-
urlandi er nú í
óða önn að
undirbúa haustönnina, en náms-
vísir haustannar 2006 á að vera
kominn inn á hvert heimili á Vest-
urlandi, fyrirtæki og stofnanir. Að
þessu sinni er aukin áhersla á
starfstengdar námsleiðir og nám-
skeið, en tómstundanámskeiðin
skipa sinn sess að venju.
Atvinnulífið tekur örum breyt-
ingum og þá reynir á sveigjanleika
starfsfólks og kunnáttu til að takast
á við breyttar aðstæður. I janúar sl.
var gerður samningur á milli
menntamálaráðuneytisins annars-
vegar og hinsvegar Alþýðusam-
bands Islands og Samtaka atvinnu-
lífsins um víðtækt samstarf um sí-
menntun á vinnumarkaði með því
að þróa nýjar aðferðir til að efla
þekkingu og færni fólks í atvinnu-
lífinu og framkvæmd samstarfs-
verkefna. Markhópurinn er fólk á
vinnumarkaði með litla formlega
grunnmenntun og hefur Fræðslu-
miðstöð atvinnulífsins séð um
framkvæmd þessa verkefna. Auk
þessa hefur Símenntunarmiðstöð-
in ráðið náms- og starfsráðgjafa,
en honum er ætlað sérstaklega að
sinna náms- og starfsráðgjöf í fyr-
irtækjum og kynna fyrir þessum
hópi fólks þær fjölbreyttu náms-
leiðir og námskeið sem í boði eru
tii að styrkja stöðu þess á vinnu-
markaðnum.
Aftur í nám
SMV býður upp á þrjár náms-
leiðir í samstarfi við Fræðslumið-
stöð atvinnulífsins nú á haustönn.
A Akranesi er boðið upp á náms-
leið sem nefnist „Aftur í nám“ og
er ætlað þeim sem eiga við lestrar-
og skriftarörðugleika að glíma.
Markmiðið með þessu námi er
m.a. að fólk öðlist þekkingu á eðli
lesblindu samkvæmt aðferðafræði
Ron Davis, auki færni sína í lestri
og auka hæfni einstaklingsins til
náms og starfs og stuðla að já-
kvæðu viðhorfi til áframhaldandi
náms. Námið er alls 95 kennslu-
stundir og er kennt tvisvar í viku,
fjórar kennslustundir í senn. Nem-
endur fá kennslu í íslensku, á tölv-
ur og lögð er áhersla á sjálfsstyrk-
ingu. Af þessum 95 kennslustund-
um eru 40 einstaklingstímar þar
sem viðkomandi er m.a. kennt að
þekkja jákvæðar og neikvæðar
hliðar lesblindu, hvernig auka má
færni sína í lestri og lesskilningi og
hvernig hann getur haldið áfrarn
nauðsynlegri þjálfun til að yfirstíga
neikvæða þætti lesblindu. Kennsla
hefst þriðjudaginn 3. október og
lýkur í byrjun desember. Verkefna-
stjóri er Erla S. Olgeirsdóttir,
Davis ráðgjafi.
Landnemaskólinn
Landnemaskólinn verður í boði í
Olafsvík, nú á haustönn en þetta er
í annað skiptið sem þetta nám er í
boði hér á Vesturlandi. A síðustu
vorönn var Landnemaskólinn í
Grundarfirði og útskrifuðust 11
nemendur frá 4 löndum. Mark-
miðið með Landnemaskólanum er
að auðvelda fólki af erlendum upp-
runa að aðlagast íslenskum vinnu-
markaði og samfélagi. Oll kennsla
fer fram á íslensku og er mikið lagt
upp úr umræðum og verkefna-
vinnu þar sem námsmenn afla sér
upplýsinga m.a. í fjölmiðlum og á
Netinu. Einnig kynnast nemendur
grundvallaratriðum á tölvu, samfé-
lagsfræði og íslenska eru samþætt
auk þess sem nemendur eiga að
búa til eigin færnimöppu þar sem
þeir safna saman upplýsingum um
náms- og starfsferil sinn og lýsa
færni sinni almennt. Kennsla hefst
19. september í Grunnskóla Snæ-
fellsbæjar í Olafsvík. Verkefna-
stjóri er Kolbrún Reynisdóttir,
grunnskólakennari.
Grunnnám skólaliða
Grunnnám skólaliða verður í
boði í Grundarfirði, en þetta er í
fyrsta sinn sem boðið er upp á slíkt
nám hér á landi. Símenntunar-
miðstöðin á Vesturlandi hefur
unnið þessa námskrá í samvinnu
við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
og markmiðið með náminu er að
efla ófaglært starfsfólk leik- og
grunnskóla. Námið er alls 70
kennslustundir og komið er inn á
ýmsa þætti eins og uppeldi og um-
önnun, slysavarnir og skyndihjálp,
aga og reiðistjórnun, leik og skap-
andi vinnu, mat og næringu, ræst-
ingu og umhverfið, svo eitthvað sé
nefht. Kennsla hefst í byrjun októ-
ber og fer hún fram í Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga. Verkefnastjóri
er Guðrún Vala Elísdóttir, ráðgjafi
hjá Símenntunarmiðstöð Vestur-
lands.
Nánari upplýsingar og lýsingar á
námsskrám og einstaka námsþátt-
um er að finna á heimasíðu
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins:
http://www.frae.is
Menntasmiðja kvenna
Fjórða stóra verkefnið sem verð-
ur á vegum Símenntunarmiðstöðv-
arinnar nú á haustönn er Mennta-
smiðja kvenna, en þetta er í fjórða
sinn sem slík menntasmiðja er
haldin. Að þessu sinni verður hún
haldin í Varmalandsskóla í Borgar-
firði. Kennt er sjö helgar, frá föstu-
degi til sunnudags og er gert ráð
fyrir að konurnar gisti á Varma-
landi. Fyrirmynd að fyrstu
Útvegsmenn súpa nú seyðið
af of miHum loðnuveiðum
Þann 1. september hófst nýtt
kvótaár í sjávarútvegi. Eins og sið-
ur er á áramótum er við hæfi að
líta um öxl og gera síðasta ár upp.
I því skyni náði Skessuhorn sam-
bandi við Olaf Rögnvaldsson for-
mann Utvegsmannafélags Snæ-
fellsness og framkvæmdastjóra
Hraðfrystihúss Hellissands. Ólafur
var að sjálfsögðu að veiðum þegar
Skessuhorn náði tali af honum, að
vísu að þessu sinni í Langá. Hann
segir að síðasta ár hafi verið nokk-
uð gott. „Það var helvíti gott ár-
ferði, sérstaklega seinni partinn í
vetur. Þá var hækkandi verð á af-
urðum og sígandi gengi og það
hefur mikil áhrif hjá okkur.“
Þenslan í samfélaginu hefur mikil
áhrif á sjávarútveginn og ekki síst í
litlum sjávarbyggðum. Ólafur seg-
ir að þenslan geri fólki við sjávar-
síðuna mikinn óleik. „Við njótum
ekki þenslunnar hér. Eftir því sem
hún verður meiri og krónan styrk-
ist, versnar hagur okkar hér á
landsbyggðinni.“
Ólafur segir að vel hafi gengið
að fiska upp í úthlutaðan kvóta,
svo vel reyndar að hann kláraðist
um sjómannadaginn. Síðan hafa
bátarnir verið bundnir við
bryggju. Spurður hvort menn fái
úthlutað of litlum kvóta segir
Ólafur vera skiptar skoðanir um
það. „Sumum finnst við veiða allt
of mikið en okkur finnst við veiða
of lítið, hann er vandrataður þessi
gullni meðalvegur. vknnars er sama
hve miklum veiðiheimildum mað-
ur bætir við sig, skerðingarnar eru
í gangi allt árið og éta það upp. I
heildina vantar um 200 torm á
hvern bát til að þetta gangi upp.“
Ólafur segir að það sé allt of lít-
ið af þorski í sjónum og ljóst sé að
eitthvað þurfi að gera í þeim mál-
um. Sjávarhitinn sé nægur en allt
æti vanti. „Við erum að súpa seyð-
ið af því að hafa drepið of mikið af
loðnu í gegnum tíðina. Ef ýsan
hefði ekki gefið sig hefði farið illa
fyrir ansi mörgum. Síðustu tvö
árin hafa menn bjargað sér á henni
og fleiri tegundum.“
Hvað framtíðina varðar segist
Ólafur vera bjartsýnn. Þrátt fyrir
að menn hafi staðið í sömu sporum
við þessi tímamót ansi lengi, sjó-
menn viljað meiri kvóta sem þeir
ekki fá, lætur hann það ekki á sig
fá. „Eg er bjartsýnn að eðlisfari og
vona að næsta ár verði gott til sjáv-
ar og sveita," segir Ólafur að lok-
um.
-KÓP
menntasmiðju kvenna er fengin frá
lýðháskólum á Norðurlöndum
sem og frá svokölluðum kvenna-
dagsskóla í Kaupmannahöfn
(Köbenhavns kvindedagshöjskole).
Uppbygging námsins er með öðr-
um hætti en í hinu hefðbundna
skólakerfi. Námið er mjög einstak-
lingsmiðað og sniðið að þörfum
nemandans. Það er ekki síður mik-
ilvægt að í menntasmiðjunni skap-
ist „hlutlaus“ vettvangur fyrir kon-
ur á öllum aldri þar sem þær geta
skipst á skoðunum, miðlað af
reynslu sinni og dregið lærdóm af
reynslu annarra. Það eru einkum
þrír þættir sem hafðir eru í for-
grunni í náminu, þ.e. sjálfsstyrk-
ing, hagnýtir þættir, s.s. tölvu-
leikni, tungumál og hópefli og síð-
an skapandi þættir s.s. handverk
ýmis konar, leiklist, myndlist o.fl.
Stefnt er að því að fara af stað með
þetta verkefni í október nk. ef næg
þátttaka næst. Verkefnastjórn er í
höndum þeirra Valgerðar Jónu
Kristjánsdóttur og Þrúðar Krist-
jánsdóttur.
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður dagana
24. -30. september nk. en mennta-
málaráðuneytið stendur fyrir þessu
árvissa verkefni. Markmiðið með
því er að vekja fólk til umhugsunar
um mikilvægi menntunar og hinar
ýmsu námsleiðir kynntar. Af þessu
tilefni ætla starfsmenn SMV að
heimsækja fyrirtæki og stofnanir
og kynna starf nýráðins náms- og
starfsráðgjafa, en Guðrún Vala El-
ísdóttir gegnir því starfi. Einnig
mun SMV bjóða upp á opna
fræðslufundi, í samstarfi við Ron
Davis ráðgjafa, um lesblindu og
hvernig hægt er að tileinka sér
tækni til að halda athygli og út-
haldi við lestur og skrift.
Að síðustu mun Símenntunar-
miðstöðin að bjóða upp á fyrir-
lestra með Guðjóni Bergmann sem
nefnist „Streita - vinur eða fjandi“
tvö kvöld í Viku Símenntunar.
Annar fyrirlesturinn verður í
Grundarfirði mánudagskvöldið 25.
september og hinn fyrirlesturinn
verður miðvikudagskvöldið 27.
september á Akranesi. Allt varð-
andi Viku símenntunar verður
auglýst nánar þegar nær dregur.
Auk þess sem að framan er
greint er vel á fjórða tug nemenda
á Vesturlandi í fjarnámi og nýta sér
aðstöðuna í námsverum, en fyrsti
hópurinn sem stundaði sitt nám
með þessum hætti útskrifaðist sl.
vor. Fjarfundabúnaðurinn býður
upp á marga möguleika og um að
gera að afla sér upplýsinga um það
sem býðst í fjarnámi.
Af þessu má sjá að fjölbreytt og
spennandi verkefni eru framundan
hjá Símenntunarmiðstöðinni nú á
haustönn og er fólk eindregið
hvatt til að hafa samband og afla
sér nánari upplýsinga um hvað er í
boði.
Inga Dóra Halldórsdóttir, fram-
kvamdastjóri SMV
Jfí
& VINNUEFTIRLITIÐ
Stillholt 18 - 300 Akranes - Sími: 431 2670 - Fax: 431 2025
Netfang: vinnueftirlit@ver.is - Heimasíða: vinnueftirlit.is
Vinnueftirlit ríkisins starfar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980. Markmið stofnunarinnar er að stuðla að
fækkun slysa, atvinnutengdra sjúkdóma og góðri líðan starfsmanna á vinnustað.
Vinnueftirlitiö óskar að ráða eftirlitsmann
til starfa á Vesturlandi
Helstu verkefni eru:
• Vinnuvéla- og tækjaeftirlit
• Eftirlit með aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi í landbúnaði
• Fræðsla, sbr. ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Staðgóð tæknimenntun, t.d. vélfræði- eða iðnmenntun
• Þekking og reynsla sem nýtist í starfi sem þessu
• Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla í tölvunotkun æskileg.
Um er að ræða 100 % starf með staðsetningu á Akranesi. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsþjálfun fer fram við upphaf starfs.
Laun eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Vinnueftirliti ríkisins, Stillholti
18, 300 Akranesi fyrir 15. september nk. Umsóknareyðublað er ekki notað.
Nánari uppiýsingar um starfið fásthjá Guðjóni Sólmundssyni umdæmisstjóra,
skrifstofu Vinnueftirlitsins áAkranesi, s. 4312670 og 892 7593, (gsoi@ver.is),
Hauki Sölvasyni deildarstjóra vinnuvéladeildar og Þórunni Svein-sdóttur
deildarstjóra þróunar- og eftirlitsdeildar, s. 550 4600.
Flligger
Hörpuskin, Hörpusilki
og Utitex
fást nú hjá KB Búrekstrardeild
BUREKSTRARDEILD
c
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga