Skessuhorn - 08.11.2006, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 45. tbl. 9. árg. 8. nóvember 2006 - Kr. 400 í lausasölu
Meðal
efnis:
• LMÍ úr
útgáfustarfi ....Bls. 24
• Of fáir í löggæslu í
Borgarnesi...Bls. 10
• Fyrirmyndarbú á
Sveitateiti....Bls. 8
• Hjónin á
Kirkjubóli...Bls. 14
• Norðurál
skatthæst......Bls. 4
• Snæfell á
toppnum.......Bls. 23
• Fylgissveiflur
flokkanna......Bls. 4
• Jólabasarar ....Bls. 16
• Borgfirskar
tískudrósir...Bls. 22
• Töluvert tjón
í óveðri......Bls. 6
• Saltfisksvinnsla í
Hólminum.......Bls. 8
• Mengun innan
marka.........Bls, 9
• Veiðimálastofnun í
hættu.........Bls. 9
• íbúar á
mölinní........Bls. 8
• Fannar fjallgöngu-
garpur........Bls. 12
• Fréttir frá
Malawí.......Bls. 18
• Bæjarráð vill
Grunnafjörð....Bls. 10 I
ATLANTSOLIA
Dísel ‘Faxabraut 9.
Mikinn suðvestan hvell geríi sl. sunnudag með úrkomu og hávaðaroki. Vindhraði fór allt upp í 50 metra á sekúndu í hviðum þegar
mest var og vari einna hvassast á Fróðárheiði á Snæfellmesi. Ekki urðu slys áfólki í veðurhamnum en tjón á mannvirkjum varð tals-
vert, einkum í Grundatfirði og Búðardal, eins og lesa má nánar um á bls. 6. A myndinni er Ólafur B Ólafsson, björgunarsveitarmaður
í Grundarfirði við stötf í sfómstöð sl. sunnudagsmorgun. Björgunarsveitarmenn víða í landshlutanum unnu mikið og gott starfvið að
forða tækjum og mannvirkjum frá skemmdum. Ljósm. Sverrir
Hörð viðbrögð við flottrolls-
veiðum á sfld við SnæfeHsnes
A myndinni má sjá hversu nálægt landi hin stóru stldveiðiskip draga troll sín, „eða nán-
ast inni í kálgörðunum hjáfólki, “ segir Alexander Kristinsson, formaður Snœfells.
Snæfell, félag smábátaeigenda á
Snæfellsnesi, hefur mótmælt harð-
lega þeirri ákvörðun Einars K.
Guðfinnssonar sjávarútvegsráð-
herra að heimila síldveiðar í
flottroll á grunnslóð við Snæfells-
nes. Formaður félagsins segir und-
arlegt að stærstu verksmiðjuskip
landsmanna þurfi að veiða í kál-
görðum Snæfellinga. Bæjarstjórn
Snæfellsbæjar hefur falið bæjar-
stjóra að ræða málið við sjávarút-
vegsráðherra.
I reglugerð sem sjávarútvegsráð-
herra gaf út á dögunum eru veiðar á
íslenskri sumargotssfld heimilaðar í
flottroll út af Snæfellsnesi í 12
klukkustundir á sólarhring frá kl.
20-08 til áramóta. Nokkur af
stærstu skipum flotans hafa verið að
veiðum á svæðinu meðal annars
Engey RE, Baldvin Þorsteinsson
EA, Vflhelm Þorsteinsson EA og
Hákon EA.
Stjóm Sæfells samþykkti ályktun
þar sem meðal annars segir að
ákvörðunin um að heimila veiðarn-
ar sé ábyrgðarlaus innrás í við-
kvæmt lífríki Breiðafjarðar. Með
henni sýni ráðuneytið lítilsvirðingu
við þau sjónarmið sem sjómenn við
Breiðaíjörð hafa haft „að Breiða-
fjörður sé griðland fyrir skaðræð-
isveiðarfæmm sem engu eira líkt og
flottroll er,“ segir orðrétt í ályktun-
inni.
Alexander Kristinsson, formaður
Snæfells segir þessa ákvörðun ráð-
herra forkastanlega. Með henni sé
verið að hverfa aftur til fortíðar
þegar togarar, innlendir sem er-
lendir, veiddu uppí allar fjörur við
landið. Hann segir að á þeim slóð-
um sem flottrollsveiði var heimiluð
nú séu meðal annars gjöful ýsumið
smábáta sem gera út á línu. Þær
veiðar leggist af á meðan stærstu
skip landsmanna athafni sig á svæð-
inu. „Það er afar dapurlegt að á
sama tíma og ekki virðist hægt að
selja sfld skuli útgerðir stærstu skipa
þjóðarinnar sjá það eitt í stöðtmni
að veiða sfld nánast inni í görðum á
Snæfellsnesi. Eg óttast mjög það
fordæmi sem þarna er gefið og ef
Hagkaup
opnar í
Borgamesi
Akveðið hefur verið að Hag-
kaup opni sérverslun við Digra-
nesgötu í Borgarnesi snemma á
næsta ári og eru framkvæmdir
við viðbyggingu við Bónushús-
ið hafhar. Geirabakarí sem rek-
ur bakarí og konditori í húsinu
mun flytjast um set í suðurenda
nýbyggingarinnar.
I samtali við Gunnar Inga
Sigurðsson, framkvæmdastjóra
Haga kom fram að í nýbygg-
ingnunni, sem verður um 600-
700 fermetrar að grunnfleti,
verða hinar og þessar sérvörur
sem Hagkaup leggur áherslu á,
svo sem dömu- og herrafatnað-
ur, barnaföt og snyrtivörur.
Gunnar Ingi sagði að þetta
væri eins konar tilraunaverkefni
hjá Högum en taldi að verslan-
irnar Bónus og Hagkaup gætu
vel þrifist í þessari nálægð og
myndu mjög líklega njóta góðs
hvor af annarri. Flæði fólks til
og frá Borgarnesi er mikið og
áskorun fýrir fyrirtækið að
mæta aukinni umferð með frek-
ari þjónustu. Ráðgert er að
opna 1. mars nk. og eru fram-
kvæmdir við bygginguna hafnar
af fullum krafti.
KH/ljósm. BGK
fram heldur sem horfir verður ára-
tuga barátta fyrir verndun grunn-
slóðar að engu orðin.“
Málið kom til umfjöllunar á
fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar í
síðustu viku og var bæjarstjóra falið
að ræða málið við sjávarútvegsráð-
herra. Ekki náðist í Kristinn Jónas-
son bæjarstjóra þar sem hann er
staddur erlendis. HJ
lllll lillllillllllllil 1